Morgunblaðið - 11.03.1969, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1«09.
JRtftgmilifljrifö
■Oifcgseifíandi H.f. Arv’áfcunr, Reykjavík.
Fnamfcvœmdasfcj óri Haraldur Sveinsaon.
'Rifcstjórar Siguxður Bjarniason frrá Vigur.
Mafcfch'ías Jdhannesíien.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritsitjómarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttaístjóri Bjiörn Jóhannsson!.
Auglýsingaistj ótí Árni Garðar. Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalsfcræti 6. Sími l'ð-MX).
Auiglýsingar Aðaistræ'fci 6. Sími 22-4-60.
Askxif targjald kr. 150.0'D á mánuði innanlands,
í lausas&iu kr. 10.00 einitakið.
FRIÐRIK
DANAKONUNGUR
LAIRD FARINN
FRÁ S-VIETNAM
Heitir nauðsynlegum og öflugri stuðningi
Fkanska þjóðin hyllir í dag
Friðrik 9. konung sinn
sjötugan. Hann hefur verið
þjóð sinni farsæll þjóðhöfð-
ingi, og nýtur vinsælda og
virðingar meðal alira stétta
hennar. Einn af fyrrverandi
forsætisráðherrum Dana
komst þannig að orði, „að í
Friðrik konungi hefðu sam-
einast beztu erfðavenjur kon
ungdæmisins, og djúpur og
einlægur skilningur á lýðræð
inu.“
Konungdæmið er elzta
stofnun Danmerkur. Áður en
dönsk lög voru skráð, áður
en kirkja og dómstólar komu
til sögunnar í Danmörku, var
þar konungdæmi. Á grund-
velli þess varð hið danska
ríki til.
Konungurinn er sameining
artákn dönsku þjóðarinnar.
Hann er einnig frelsistákn
hennar. í því sambandi má
minnast mikilvægs hlut-
verks Kristjáns konungs 10.
þegar danska þjóðin var her-
numin í síðari heimsstyrjöld-
inni. Festa hins aldna kon-
ungs og kjarkur átti þá ríkan
þátt í að viðhalda trú dönsku
þjóðarinnar á framtíðina og
sigur réttlætisins yfir hinu
kaldrifjaða ofbeldi.
Friðrik konungi 9. hefur
tekizt að samræma konung-
dæmið nýjum tíma. Þess
vegna eru tengsl hans og
dönsku konungsfjölskyldunn-
ar við þjóð sína traust og
sterk.
íslendingar minnast Frið-
riks 9. sem síðasta krónprins
íslands. Hann kom á æsku-
árum sínum alloft hingað til
lands og átti hér marga vini
og kunningja. Síðan hann var
konungur og lýðveldi var
stofnað á íslandi hefur
Friðrik konungur einnig
heimsótt ísland, ásamt Ingi-
ríði drottningu, og verið fagn
að hér af hlýju og vináttu.
Milli íslenzku og dönsku
þjóðarinnar liggja nú traust-
ari vináttubönd en nokkru
sinni fyrr. Þessar náskyldu
þjóðir eiga engin óútkljáð
deilumál.
íslendingar senda Friðrik 9.
Danakonungi, og dönsku þjóð
inni einlægar árnaðaróskir á
tímamótum.
LOFTLEIÐIR
25 ÁRA
|7yrir 1000 árum voru íslend-
*■ ingar brautryðjendur 1
ferðum um Norður-Atlants-
hafið. íslenzkir sæfarendur
fundu Grænland og megin-
land Norður-Ameríku. Enn í
dag eru íslendingar braut-
ryðjendur á Atlantshafssvæð
inu. íslenzkt fyrirtæki hefur
gert á annarri milljón manna
víðs vegar úr heiminum kleift
að fljúga yfir Norður-Atlants
hafið á lægri fargjöldum en
völ er á hjá öðrum flugfélög-
um.
f gær voru 25 ár liðin frá
því að Loftleiðir hf. hófu starf
semi sína og á þeim aldar-
fjórðungi hefur gerzt eitt
mesta ævintýri í íslenzkri at-
vinnusögu á þessari öld. Árið
1953 fluttu Loftleiðir 5000 far
þega árlega. Árið 1964 var
farþegafjöldinn kominn yfir
100 þúsund og árið 1968 var
fjöldi farþega í flugvélum
Loftleiða nær 200 þúsund.
Það voru ungir menn, sem
hófu starfsemi Loftleiða fyrir
25 árum og djörfung og áræði
æskunnar hefur einkennt alla
starfsemi þessa fyrirtækis síð
an. Jafnvel nú á 25 ára afmæl
inu, þegar Loftleiðir hafa
tryggt sér sess sem þýðingar
mikill aðili á flugleiðinni yfir
Norður-Atlantshafið, halda
Loftleiðamenn áfram að koma
okkur á óvart með djörfum
ákvörðunum á borð við þá,
er þeir nú fyrir nokkrum dög
um yfirtóku rekstur hættu-
legs keppinautar á Bahama-
eyjum.
Starfsemi Loftleiða í þessi
25 ár er glæsilegasta dæmi í
íslenzkri sögu um það hverju
dugnaður og áræði einstakl-
ingsins getur fengið áorkað.
Á þessum tímamótum í sögu
Loftleiða sendir Morgunblað-
ið þessu mikla atvinnufyrir-
tæki árnaðaróskir með von
um að næstu 25 ár í starfs-
sögu félagsins einkennist af
þeim æskuþrótti og áræði,
sem markað hefur starf fé-
lagsins á liðnum aldarfjórð-
ungi.
KRABBAMEINS-
FÉLAG
REYKJAVIKUR
k laugardag voru 20 ár liðin
frá því að Krabbameins-
félag Reykjavíkur hóf siarf-
semi sína. Það var fyrsta
Krabbameinsfélag, sem stofn
að var í landinu en síðan hafa
fleiri fylgt í kjölfarið en lands
samband þessara félaga var
stofnað 1951.
Saigon, 10. marz NTB—AP
MELVIN Laird. varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hélt í dag
frá Suður-Vietnam til Bandaríkj-
anna. Hann sagði við brottförina,
að bandaríska stjórnin myndi sjá
ttil þess að Suður-Vietnamar
til þess að Suður-Vietnamar
fengju næga hjálp og þann útbún
að sem þeir þörfnuðust í stríðinu
I TILEFNI 25 ára afmælisins
hafa Loftleiðir gefið út 40 síðna
afmælisrit á ensku, til dreifing-
ar erlendis. Er varla ofsagt að
það sé eitt glæsilegasta afmælis-
rit sem gefið hefur verið út um
íslenzkt fyrirtæki, og er mjög
vandað bæði í efnisvali og frá-
gangi.
Saga félagsins er rakin þar
nokkuð nákvæmlega og einnig
er margt mynda, bæ’ði teikni-
mynda og ljósmynda, af ýms-
um stóratburðum í sögu þess.
Margar þeirra eru í litum.
Frá upphafi hefur upplýs-
inga-og fræðslustarfsemi ver-
ið einn meginþátturinn í starf
semi Krabbameinsfélags
Reykjavíkur. Um langt skeið
hefur krabbamein verið sá
sjúkdómur, sem almenningur
hefur hræðzt einna mest. En
fræðslustarfsemi Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur og
annarra félaga hefur orðið til
þess að auka mjög þekkingu
almennings á þessum sjúk-
dómi. Með stofnun Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur var
vonleysi breytt í von, eins og
Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri sagði í afmælisávarpi
sl. laugardag. Nú er svo kom
ið, að þriðji hver krabba-
meinssjúklingur fær fullan
bata og sýnir það hve langt
læknavísindin hafa náð í bar-
við kommúnista og hann kvaðst
mæla með að meira yrði lagt af
mörkum, ef ástæða þætti til.
Laird hefur rætt við ýmsa
helztu leiðtoga landsins meðan
hann hefur dvalizt í landinu, þ.
á.m. Thieu forseta og ræddu þeir
um hugsanlegar gagnráðstafanir
Bandaríkjamanna og Suður-Viet-
nama við stöðugum árásum komm
Gamla landinu er heldur ekki
gleymt því búast má við að ritið
liggi víða frammi erlendis og án
efa getur það vakið ferðahug
með einhverjum.
Haraldur J. Hamar, ritstjóri, sá
um útgáfu ritsins fyrir Loftleið-
ir. Textahöfundur er Thomas
Bross, myndritstjóri, Lennárt
Carlén, útlitsteiknari, Gísli B.
Björnsson og teikningar eru eft
ir Winfred Weller. Ritið er prent
að hjá Henkes-Holland , Hol-
landi.
áttunni við þennan sjúkdóm,
þótt orsakir hans séu enn lítt
kunnar.
Krabbameinsfélag Reykja-
víkur hefur einnig staðið fyr-
ir víðtækum fjársöfnunum í
því skyni að bæta aðstöðu til
krabbameinslækninga hér-
lendis. í því sambandi má
nefna að krabbameinsféiögin
keyptu ný geislalækninga-
tæki 1951 og gáfu Röntgen-
deild Landsspítalans. Fyrsta
leitarstöðin hóf starfsemi sína
sumarið 1957 og var hún fyrst
rekin af Krabbameinsfélagi
Reykjavíkur en síðan af
Krabbameinsfélagi íslands,
sem nú rekur þrjár slíkar
stöðvar. Loks er ástæða til að
minna á, að krabbameinsfélög
in hafa um nokkurra ára
skeið unnið að því að fá hing
únista á óbreytta borgara. Engar
ákvarðanir haifa þó verið teknar
enn um það, hverjar þær ráðstaf
anir verða. Þeir voru sammála
um, að árásir kommúnista hefðu
haft litla hernaðarlega þýðingu,
en engu að síður væri nauðsyn-
legt að stöðva sókn kommúnista.
Aðspurður við brottförina um
það, hvort bandaiískir hermenn
hefðu farið inn fyrir landamæri
Laos sagði ráðherrann ekki úti-
lokað að bandarískir hermenn
hefðu gert það tii að vernda
bandaríska hermenn og væri frá
leitt að telja það stríðsaðgerð.
r
Alyktun iundnr
utvinnuluusru
„Fundur atvinnulausra laun-
þega, haldinn að tilhlutan Dags-
brúnar í Iðnó, mánudaginn 10.
marz 1069, ályktar eftirfarand:
Við sem höfum verið atvinnu-
lausir, sumir svo vikum og jafn-
vel mánuðum skiptir, teljum, að
við höfum þar með verið srviptir
sjálfsögðustu mannréttindum.
Fyrir því krefjumst við þess
— í okkar fulla rétti — að Al-
þingi o*g ríkisstjórn geri ráðstaf-
anir, sem létti tafarlaust af okk-
ur þessu atvinnuleysisböli og
tryggj fulla atvinnu.
Sýni ríkisstjórnin hins vegar
hvorki vilja né getu til Þess að
fullnægja þessari kröfu, sem er
að okkar áliti ein af fremstu
skyldum stjórnvalda, teljum við,
að hún hafi brugðizt skyldum
sínum og fyrirgert umboði sínu.
Tillaga þessi var samþykkt
samhljóða og gengu fundarmenn
s'íðan fylktu liði að Alþingishús-
inu, og nefnd sem kosin var af-
henti forsætisráðherra fundar-
s'amþykktina.“
Uppspuni
frá rólum
segja lœknar Liz
Hallywood, 9. marz — AP
LÆKNAR leikkonunnar
Elizabethar Taylor báru í dag
til baka frétt, uffl að leikkon-
an þjáðizt afkrab'bameini í
mænu. Þeir sögðu, að hún
hefði verið lögð inn á sjúkra-
hús til almennrar lœknisskoð
unar og fengi að fara af
sijúkrahúsinu á morgun,
þriðjudag eða miðvikudag.
Blaðið Detroit Free Press
sagði frá því fyrir helgina og
hafði eftir fréttaritara sínum
í Hollywood, Mari'lyn Beck,
að Elizabeth væri þungt hald
in og þjáðist að öllum líkind-
um af krabbameini. Eiginmað
ur leikkonunnar, Richard
Burton, sagði fréttamönnum,
að ekkert væri hæft í þessum
sögusögnum. Ritari leikkkon-
unnar og ýmsir ættingjar
hennar hafa sömuleiðis vísað
frétt Marilyn Beck á bug og
segja hana illgirnislegan u.pp-
spuna.
að til lands fullkomin kobolt
tæki, sem mjög hafa rutt sér
til rúms erlendis og standa
vonir til, að þau tæki verði
tekin í notkun innan tíðar,
en því miður í bráðabirgða-
skýli fyrst um sinn.
Krabbameinsfélag Reykja-
víkur er eitt þeirra frjálsufé
lagasamtaka í landinu, sem
unnið hafa ómetanlegt starf.
Þar hafa starfað saman áhuga
menn og sérfræðingar með
góðum árangri. Á 20 ára af-
mælinu getur Krabbameins-
félag Reykjavíkur Htið yfir
farinn veg í þeirri vissu, að
töluvert hefur á unnizt, þótt
enn sé mikið starf fyrir hönd
um í baráttunni við krabba-
mein.
25TH
ANNIVERSARY
LOFTLEIDIR
ICELANDIC AIRLINES
1944-1969
i * * <m
'ÉM
■ ■ ■ •
s '■■•*«-- hó' k -
■< mrnmm
Forsíða afmælisritsins
Glæsilegt afmælis-
rit Loftleiða gefið út