Morgunblaðið - 11.03.1969, Blaðsíða 18
18
MORGUNRLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1069.
inni, t.d. vörugeymslu á Selt]arn
arnesi, vörugeymslubus við
Skerjaf.jörð, bílageymski við
Öskjuhlíð og geymslurými í húsi
Kr. Kristjánssonar við Suður-
landsbraut. Er nú stefnt að því
að nota vörugeymsluihúsin við
höfnina sem uppskipunanhús
en hins vegar Skúlaskála og
Borgarskála fyrir tollvöru-
geymslustarfsemi, og fyrir vörur
sem geyma þarf til langs tima.
Frá hinu nýja vörngeymsluhúsi á Austurbakka, sem hlotið hefur nafnið Faxaskfli. — Ljósm :
Sv. Þorm.
Stórbætt vörugeymslurýmí
Eimskipafélagsins
— Ný hœð í Faxaskála fekin í notkun
AÐSTÆÐUR Eimskipafélags ís-
lands í vörugeymslumálum hafa
verið algjörlega óviðunandi um
langt skeið og félaginu til hins
mesta tjóns og viðskiptavinum
þess tii óhagræðis. Félagið hef-
ur því stöðugt unnið að þvi að
koma þessum málum í betra horf
og stóð það um langan tíma
í samningum við Hafnarstjórn
Reykjavíkur um lóð við höfn-
ina undir vörugeymsluhús með
öllum nýtizku útbúnaði. Fékk
Eimskipafélagið 9.500 fermetra
lóð við Reykjavíkurhöfn og
jafnframt fyrirheit um stór at-
hafnasvæði í Sundahöfn. Er
fyrirhugað að reisa þar vöru-
geymslur, svo fljótt sem auðið
er.
Framkvæmdir við nýja vöru-
geymsluhúsið á Austurbakka við
Reykjavíkurhöfn hófust í febrú
ar síðastliðið ár og er húsíð reist
í tveimur áföngum. Fyrri áfangi
er nú langt kominn á veg og
var neðri hæð hans tekin í notk
un í desember, en efri hæðin
var tekin í notkun í gær. Er
það samkvænvt áætlun. Hafa þá
verið teknir í notkun um 700
fermetrar af hinu nýja húsi, en
vonir standa til að húsið verði
fullsmíðað á þessu ári.
Óttarr Möller forstjóri og Sig-
urlaugur Þorkelsson, blaðafull-
trúi buðu blaðamönnum í gær
að skoða hin nýju húsakynni. Að
því tilefni sagði Óttarr að saman
lagt flatarmál geymsluhúsa Eim
skips væri nú rúmlega 30.000
fermetrar. Við eðlilegan inn
flutning kvaðst hann þó búasit
við að þyrfti um 50.000 fermetra.
Það fer hins vegar ekki milli
mála, að smíði nýja vörugeymslu
hússins, sem búið verður öllum
nýjasta og nýtízkulagasta útbún
aði til vörumóttöku og afhend-
ingar, bætir verulaga aðstöðu fé
lagsins og auka hagræði við
gkipta 'inanna. Til viðbótar hefur
Eim'kirafélagið tjkið- á leigu
geymslurými i nýja tollhúsinu á
Miðbakka við Reykjavíkurhöfn
og er flatarmál þess um 4000
fermetrar.
Við vöruafgreiðslu hafa nú
300 manns fasta vinnu hjá Eim-
skipafélaginu, en alls vinna hjá
félaginu um 750 manns. Samtim-
is því, sem aðstæður hafa batn-
að við Reykjavikurhöfn, hefur
Eimskip getað lagt niður vöru-
geymalur, sem liggja fjarri höfn-
Unnt er að lyfta vörunum upp um lúgu á gólfi efri hæðar-
innar.
Hið nýja geymslurými í tollstöð inni, sem Eimskip hefur tekið á
leigu.
Starísheiti sjúkraþjólfara
ó Norðurlöndum
DAGANA 22.—23. febrúar var
haldinn í Oslo fundur formanna
norrænna sjúkraþjálfara. Frá fs-
landi sótti fundinn formaður fé-
lags íslenzkra sjúkraþjálfara,
Sigríður Gísladóttir. Samband
félaga norskra sjúkraþjálfara
stóð fyrir fundinum að þessu
sinni og var hann haldinn á
Grand Hotell í Oslo.
Meða] þess, sem rætt var á
fundinum var menntun og fram-
haldsmenntun sjúkraþjálfara,
þjálfun aðstoðarfólks, þörfin fyr-
ir sjúkraþjálfara í dag og á
næstu árum.
Einnig var rædd tillaga Norð-
urlandaráðs um sameiginlegan
vinnumarkað fyrir sjúkraþ álf-
ara, sem Danmörk, Finnland,
Noregur og Svíþjóð standa að.
f tillögu Norðurlandaráðs er
m. a. lagt til að notað verði sam-
eíginlegt starísheiti á Norður-
löndum.
Launamál, með hliðsjón af
launum annarra gambærilegra
stétta, voru einnig rædd og at-
huga skal möguleika á nánari
samvinnu með tilliti til nám-
skeiða fyrir sjúkraþjálfara, en
þau hafa verið haldin um langt
árabil.
Félag íslenzkra sjúkraþjálfara
Reykjavik.
Féltsg áhugamanna um siávarútvegsmál
FUNDUR
verður haldinn 1 Sigtúni við Austurvöll miðviku-
daginn 12. marz kl. 20.30.
FUNDAREFNI :
1. Ávarp: Gunnar Friöriksson, form. félagsins.
2. Framsöguerindi: Sjávarútvegur á tímamótum,
Már Elísson, fiskimálastjóri.
3. Frjálsar umræður.
Allir áhugamenn um viðgang sjávarútvegsins eru hvattir til að mæta á þessum fyrsta fræðslu- og útbreiðslu-
fundi í hinu nýstofnaða félagi og gerast félagsmenn. Árgjald 200 krónur — Mætið stundvíslega.
STJÓRNIN.