Morgunblaðið - 11.03.1969, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ l»ö«.
19
Frá afmælisfundi Krabbameinsfélagrs Reykjavíkur sl. laugaruag, og sést yfir fundarsalinn.
Fremst á myndinni er Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, og eiginkona.
- Krabbameinsfélagið
Framhald af bls. 14
krabbameiniið, hversu mikil
nauðsyn væri á auknum krab'oa
meinsrannsóknum, og einnig
benti hann á hversu mikið gagn
gæti verið að félagsskap, sem
styddi í hvívetna baráttuna gegn
krabbameininu.
Strax á fyrsta fundi félagsins
kom fram mikill áhugi fyrir mái
efnum, sem almennur félagsskap
ur gæti vel unnið að. í fyrstu
stjórn félagsins voru kosnir:
Próf Níels Dungal, formaður, Ai-
freð Gísiason, læknir, varafor-
maður, dr. med. Gísli Fr. Peter-
sen, ritaú og Gísli Sigurbjörns-
son, forstjóri, gjaldkeri. Með-
stjórnendur voru: Magnús Jocn-
umsson, póstmeistari, frú Sigríð
ur J. Magnússon, Sveinbjörn
Jónsson, hrl. Katrín Thoroddsen,
læknir, og Ólafur Bjarnason,
læknir. Varastjórn: Frú Sigríður
Eiríksdóttir hjúkrunarkona, Jó-
hannes Sæmundsson, prótfessor,
og Þorsteinn Scheving Thor
steinsson, lyfsali.
Strax á fyrsta ári hó>fst mikið
starf hjá félaginu. Byrjað var
að gefa út Fréttabréf um heil-
brigðismál. Fræðsluerindi voru
ihaldin, skipulagt var betra fyrir
komulag á sendingum vefjasýna
til Rannsóknarstofu Háskólans,
og félagið bauðst til að gefa
Röntgendeild Landspítalans ný-
tízku röntgentlækningatæki til
að greiða fyrir öryggi í röntgen-
lækningum. Þá var einnig hvatt
til stofnunar fleiri félaga utan
Reykjavíkur. Þegar á öðru ári
var undirbúið samband krabba-
meinsféalga, sem þá höfðu ver-
ið stofnuð. Var síðan Krabba-
meinsfélags ísland stofnað 27
júní 195'1. Hafði stjórn Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur átt
veigamikinn þátt í undirbúningi
þeirrar félagsstofnunar.
Próf N. Dungal tók við stjórn
Krabbameinsféalgs íslands, en
Alfieð Gíslason læknir, varð þá
formaður Krabbameinsféalgs
Reykjavíkur, en hann hafði frá
upphafi verið varaformaður.
Bjarni Bjarnason læknir tók
við formennsku Ki abbameinsfé-
lags Reykjavíkur af Alfreð Gísla
syni árið 1960. Var hann formað-
ur félagsins þar til árið 1060, er
próf. Niels Dungal lézt, en þá
tók Bjarni við formentnsku í
Krabbameinsfélagi íslands. Nú-
verandi stjórn Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur skipa:
Dr. Med. Gunnlaugur Snædal
læknir .formaður, próf. Gísli Fr.
Petersen yfirlæknir ritari, próf
Ólafur Bjarnason læknir gjald-
keri. Meðstjórnendur: Svein-
björn Jónsson hrl., Hans R. Þórð
arson stórkaupm., Jón Oddgeir
Jónsson framkv.stj. félagsins, frú
Alda Halldórsdóttir hjúkr.kenn-
ari. Varastjórn: Guðmundur Jó-
hannesson læknir, Asmundur
Brekkan yfirlæknir og frú Guð-
laug Guðmundsdóttir hjú'krunar
kona.
★ ★ ★
Á hátíðarfundinum á laugar-
dag flutti Geir Hallgrímsson,
borgai stjóri, ávarp. Hann drap á
þýðingu slíkra áhugamannafé-
laga á ýmsum sviðum til að
starfa að ákveðnum verkefnum
og veita hinu opinbera stuðnir.g
og aðhald, þar sem það hefði í
mörg horn að líta. Hann sagði,
að Krabbameinsfélag Reykjavík
ur hefði látið margt gott af sér
leiða. Við stfonun þess hefði
vonleysi verið breytt í von.
Aðrir sem tóku til máls á há-
tíðarfundinum, voru: Baldur
Möller, ráðuneytisstjóri, sem
flutti kveðjur heilbrigðismála-
ráðherra, en hann dvaldist er-
lendis, Sigurður Sigurðsson, lar.d
læknir, Alfreð Gíslason, læknir,
og dr. med Friðrik Einarsson,
varaformaður Krabbameins-
félags íslands. Hann flutti kveðj-
ur frá formanni félagsins,
Bjarna Bjarnasyni, lækni, sem
ekki gat verið viðstaddur hátíð-
arfundinn. Las hann kafla úr
ávarpi frá Bjarna, þar sem hann
getur um það sem áunnizt hafi
i baráttunni gegn krabbameini.
Fyrir aldamót hafi hver einasti
maður dáið, sem fékk krabba-
mein, en nú vær evo komið, að
þriðji hver krabbameinssjúkling
ur læknaðist. Bjarni sagði enn-
fremur, a(5 samkvæmt skráin
væru nú um 250 þúsund manns í
Bandaríkjunum taldir lækngðir
af krabbameini. Taldi Bjarni það
geta haft verulega þýðingu, ef
hafizt væri handa um að gera
skrá yfir það, hversu margir
væru læknaðir af þessair mein-
•emd hérlendis.
- Ræða dr. Gunnlaugs
Framhald af bls. 14
veg, kemur strax í ljós að miklu
hefur verið áorkað á því stutta
skeiði, sem Krabbameinsfélögin
hafa starfa'ð í landinu.
Tilgangur sá er Krabbameins
félag Reykjavíkur setti sér i
fyrstu, að styðja í hvívetna bar-
áttuge gn krabbameini, er enn
óbreyttur. Þrátt fyrir ótrúlegar
fjárhæðir, sem veittar eru í heim
inum árlega til þess að finna or-
sakir illkynja sjúkdóma, liggja
þær enn ekki ljósar fyrir. Við
skulum öll vona að lausn finnist
í náinni framtíð, en varast of
mikla bjartsýni. Meðan orsakir
finnast ekki og þar af leiðandi
ekki fullur skilningur á hvernig
sigrast megi algerlega á þessum
sjúkdómi eða sjúkdómum, má
hvergi slaka á í baráttunni fyrir
bættum árangri.
Ef við virðum fyrir okkur
hvað við höfum gert til þess og
hvað víð gætum betur gert,
mundi niðurstaðan verða eitt-
hvað á þessa leið:
Af þeim atriðum, sem getið
var um sem tilgangur félagsins,
má telja að þrjú séu vel rækt en
hin tvö verið í brennipunktinum
að undanförnu.
Fyrsta atriðið, fræðslustarfsem
in, hefur verið me'ð miklum
blóma og má telja að verulegur
árangur hafi náðst í aukinni sam
vinnu við almenning. Hræðsla
við sjúkdóminn fer ört þverrandi
vegna betri skilnings á því hve
góðan árangur má fá af með-
ferð, sem snemma er hafin. Hér
hafa sannast, sem annarsstaðar,
orð prófessors Heymans í Stokk-
hólmi.a ð „bezta ráðið til þess
að draga úr ótta fólks vi'ð sjúk-
dóminn, er að það hafi sín á
meðal full-læknaða krabbameins
sjúklinga í hverju þorpi og hverj
um hreppi landsins".
Telja má að fræðslunni sé vel
borgið með því skipulagi, sem
nú er. Reynt er með hverju ári
að ná til fleiri og fleiri og sífellt
er unnið að endurbótum á
fræðslubæklingum og efnisval
aukið.
Annar þátturinn, a'ð stuðla að
aukinni fræðslu lækna, hefur
verið vel ræktur, eftir því sem
efni hafa staðið til á hverjum
tíma.
Stjórn félagsins hefur nú í
undirbúningi stærra átak í þess-
um efnum. Fjöldi nýrra lyfja
hafa komið fram á seinni árum,
sem geta bætt mjög líðan krabba
meinssjúklinga, en eins og kunn-
ugt er eru skurðlækningar og
geislalækningar þau helztu ráð,
sem til þessa hafa að gagni kom
ið til lækninga. Vissum tegund-
um illkynja meinsemda má nú
halda í skefjum um skemmri
eða lengri tíma með lyfjum og
í fáeinum tilfellum veita fulla
lækningu. Full þörf er á að fylgj
ast vel með í þessum efnum og
sjá um að allir þeir möguleikar,
sem fyrir hendi eru, séu nýttir.
Þarf því a’ð undirbúa og efla
sérmenntun læknis eða lækna í
þessum efnum og gætu félögin
átt þátt í að veita þeim brautar-
gengi á tvennan hátt.
Annars vegar með því að beita
sér fyrir því í samráði við skyld
félög erlendis, að greiða götu
læknis (lækna) inn á þær stofn-
anir, sem mesta reynslu hafa í
meðferð krabbameins.
Hins vegar með styrkjum til
viðkomandi aðila, sem slíkt nám
vildu takast á hendur.
Þriðja atriði'ð, sem vel er á
veg komið, er starfsemi leitar-
stöðvanna. Hefur sú starfsemi
þegar gert mikið gagn. Skipu-
lagning og árangur eru með ágæt
um og hafa vakið athygli og
hróður víðcf erlendis.
Þarf enn að styrkja og efla
starf Krabbameinsfél. íslands á
þessu sviði, svo að það hafi bol-
magn til að taka að sér um allt
landi’ð leit að þeim tegundum
krabbameins, sem leitarstöðvar
geta fundið.
Mörg ný félög úti á landi hafa
nú bætzt í hópinn og hafa sum
þeirra í undirbúningi leitarstöðv
arstarfsemi í samráði við Krabba
meinsfélag Islands.
Fjórða atriðið, að stuðla að út-
vegun fullkomnustu lækninga-
tækja, hafa löngum verið stór-
mál meðal félaganna. Áður var
minnst á geislalækningatæki,
sem gefið var 1952. Undanfarin
4 ár hafa félögin beitt sér fyrir
því a'ð kobolttæki fengist til
landsins, en það er sú tegund
hávoltageislatækja, sem mest
hafa rutt sér til rúms í heim-
inum sl. 10—15 ár og henta
mundu bezt hér. Það ber að
harma hve lengi hefur dregizt
að fá tæki þetta til landsins, en
von mun að úr rætist með komu
þess nú í náinni framntíð.
Það hefur komið í ljós, að
árangur í meðferð krabbameins
hér á landi hefur ekki verið sem
skyldi. Allt bendir til þess að
einkum megi tvennu um kenna.
Skort hefur tæki til hávoltageisl
unar og samræmingu hefur vant
að í me’ðferð vegna þess hve hún
hefur farið fram víða og með
ýmsu móti. Sjúkrarými hefur
vantað til þess, að öll meðferð á
krabbameini í landinu gæti safn
ast á fáar og vel búnar deildir.
Því hafa uppá síðkastið, sjúk-
lingar með vissar tegundir
krabbameins, verið sendir til út-
landa, þar sem árangur er betri
vegna fullkomnari aðstæðna.
Það hlýtur a'ð verða eitt af
stærstu baráttumálum félaganna
að úr þessu verði bætt á næstu
árum.
Fullkomin geislalækningadeild
hlýtur að verða miðstöð krabba-
meinslækninga á flestum. tegund
um þess sjúkdóms. Slík deild
verður auk hávoltageislunar, að
hafa góðar aðstæður fyrir radi-
umgeymslu og undirbúning radi-
ummeðferðar, isotopararannsókn
ir og meðfei'ð auk aðstöðu til
þess að fylgjast alltaf upp frá
því reglulega með öllum þeim
sjúklingum, sem meðferð hafa
hlotið.
Gott eftirlit með öllum sjúk-
lingum með krabbamein, sem
Svíar urðu fyrstir til að byggja
upp í öllu landinu, átti mikinn
þátt í því, að þeir urðu ein af
leiðandi þjóðum heims í með-
fertS krabbameins. Hin Norður-
löndin hafa einnig fyrir löngu
byggt upp slíkt kerfi hjá sér,
auk byggingar fullkominna geisla
lækningadeilda, enda árangur
ekki látið á sér standa.
Hér á landi er að sjálfsögðu
aðeins þörf fyrir eina geislalækn
ingadeild. Sú deild, sem til er,
hefur svo takmarkað húsrými,
að því fer fjarri, að hún geti
sinnt öllum áðurnefndum atrið-
um. Vegna staðsetningar sinnar
á Landspítalanum, er eðlilegt að
miðað verði a’ð því að áðurnefnd
miðstöð fyrir alla krabbameins-
meðferð verði þar og deildir
Landspítalans önnuðust aðra með
ferð, — skurðlækningar radium-
meðferð og lyflækningar eftir teg
undum meinsemdanna.
Algjör samræming þarf a’ð
eiga sér stað, ekki aðeins í áætl-
un um meðferð, heldur og hjálp
til þeirra er ekki læknast að fullu
heldur þurfa umönnun og eftir-
lit.
Hér hefur verið minnst á þau
alvarlegustu vandamál er varða
meðferð krabbameins í landinu.
Leitarstöðvarstarfið og mjög
vaxandi árvekni lækna í grein-
ingu sjúkdómsins, hefur valdið
aukinni þörf fyrir sjúkrarými,
einkum fyrir konur með grun
um krabbamein í legi. Tekið
skal skýrt fram, að ekki er um
verulega aukningu krabbameins
á hærra stigi að ræða, heldur
koma sjúklingar nú æ fyrr til
meðferðar og í síauknum mæli
áður en æxlisvöxtur er hafinn.
Kallar þetta á mjög aukna þörf
fyrir próftökur og minni aðgerðir
í greiningarskyni. Vandræðin,
sem stafa af skorti á sjúkrarúmi
fyrir þessa sjúklinga, eru ugg-
vænleg.
Mörkun stefnu í málefnum
krabbameinslækninga, er fyrsta
atriðið, sem framkvæma þarf til
þess að úrbóta megi vænta.
Sú stefna verður að ákveða
hver skal verða:
í fyrsta lagi uppbygging full-
kominnar geislalækningadeildar,
er auk lækninga skipuleggi eftir
rannsóknir.
í ö'ðru lagí — staðsetningu
sjúkrarýmis fyrir alla þá sjúkl-
inga er annarra meðferðar þarfn
ast.
í þriðja lagi — staðsetningu
er meðferð hafa hlotið en lengri
vistar þurfa svo og fyrir þá er
ekki hafa hlotið lækningu eða
afturhvarf fá síðar meir.
Þessi síðast töldu málefni
heyra að sjálfsögðu undir heil-
brigðisstjórn landsins og verða
einungis leyst af henni vegna
kostnaðar. Krabbameinsfélögin
eiga hins vegar að veita málefn-
um krabbameinslækninga þá stoð
sem þau mega. Þau hafa þegar
unnið stórvirki með samtaka-
mætti sínum og starfi og geta
áfram séð um þá mikilvægu
þætti, sem komnir eru í fastar
skorður.
LOKAORÐ
Ég lýk nú máli mínu með þeim
óskum, að það hjálparstarf við
leit og lækningar krabbameins
megi áfram eflast og dafna —
að þau alvarlegustu mál, sem
drepið hefur verið á hér að
framan, leysist í náinni framtíð.
Þá mun allt það góða fólk, sem
li'ðsinnt hefur félögunum í starfi,
fá umbun fyrir.
Þakkir vil ég flytja stjórn
Krabbameinsfélags íslands fyrir
ágæta og ánægjulega samvinnu á
liðnum árum. Þar hefur enginn
skuggi á fallið.
Meðstjórnendum mínum þakka
ég einnig ágætt samstarf svo og
starfsfólki félaganna.
Ykkur — góðir gestir — þakka
ég komuna hingað — fyrir að
vilja fagna með okkur þessum
tímamótum. Megi þau verða
okkur öllum hvatning til nýrra
átaka í þeim málefnum, sem
Krabbameinsfélögin berjast fyrir
þjóðinni til heilla.
Vymura vinyl-veggfóður
Þ0LIR ALLAN ÞV0TT
UTAVER Grensósvegi 22-24
\<P
Simi 30280-32262
Hafnarfjörður
íbúðir til sölu í Norðurbæ
90 ferm. 3ja herb. Verð frá 780—810 þús.
94 ferm. 3ja herb. Verð frá 810—840 þús.
112 ferm. 4ra herb. Verð frá 910—940 þús.
íbúðir þessar verða seldar tilbúnar undir tréverk. Sameign
fullfrágengin. Úlb. við samning frá kr. 50 þús. til kr. 100 þús.
ílbúðirnar veiða tilbúnar á árinu 1970.
GUÐJÓN STEINGRÍMSSON. HRL„
Linnetstíg 3, Hafnarfirði,
sími 50960. kvöldsimi 51066.