Morgunblaðið - 11.03.1969, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1969.
líkamans hristist og skókst eftir
hljóðfallinu.
Hún kinkaði kolli og brosti til
hans, og fann, að fingur hans
hertu takið á handleggnum á
henni. Einhver sælukennd fór
um hana alla.
Dansfólkið kom nú aftur og
hún varð að rýma til fyrir því.
Töfrunum var lokið. Blake and-
varpaði, stóð upp og tók hina
óþreytandi Roxane aftur út á
dansgólfið. Lísa strauk á sér
handlegginn þar sem fingur hans
höfðu kreist hann. Hún þorði
ekki að líta út á gólfið, þar sem
hann var að dansa við Roxane,
því að þá hefðu tilfinningar
hennar komið alltof berlega í
ljós.
Hún hvíslaði að Peter, að hún
væri orðin afskaplega þreytt og
vildi fara heim. Hann var blíður,
nærgætinn og umhyggjusamur að
vanda og svarið: Hvenær
sem þú vilt.
Um leið og Blake og Roxane
komu aftur að borðinu, stóðu
þau Lísa og Peter upp og buðu
góða nótt. Roxane vildi endilega
fá simanúmerið hennar, en Peter
var vandræðalegur á svipinn. Síð
an dró hún mann sinn á fætur
til að dansa við sig Charleston.
Blake sagði ekkert. Hann stóð
upp um lieið og þau gengu frá
borðinu, brosti sínu venjulega
tvíræða brosi og horfði á þau
fara.
Á leiðinni út greiddi Peter
sinn hluta reikningsins Kjá þjón
inum og sagði henni að bíða í
forsalnum meðan hann næði í bíl
inn sinn. Hún sagðist heldur
vilja fara með honum. Hann tók
hana undir arminn og hún hall
aði sér upp að honum af ein-
tómri þreytu.
Hún andaði djúpt að sér köldu
útiloftinu og andvarpaði. Það var
gott að láta hugsa svona vel um
sig, gott að vera með Peter.
Æsingin af nærveru Blakes
hafði gert hana alveg uppgefna
En þessi kyrrláti kunningsskap
ur við Ný-Sjálendinginn var
ekki til að vanmeta. Og kannski
var það bezta sambandið við
karlmann. Kannski gætu þau I
sameiningu gert sér lífið ein-
hvers virði. Það væri fyrst- og
fremst gagnkvæm virðing í
hversdagslegu lífi, sem yrði af-
farasælust.
Það var rétt eins og Peter
læsi hugsanir hennar, því að áð
ur en hann sneri bíllyklinum,
'lagði hann arminn um herðar
henni og sagði:
— Liz. . . samningurinn minn
fer hvað úr hverju að verða út-
runninn. Fyrir fáum mánuðum
ætlaði ég ekki að geta beðið
eftir því en eins og er, þá er
52
ég orðinn hræddur við að snúa
aftur til gamla landsins. Ég held
þú vitir hversvegna. Síðustu vik
urnar, þegar þú varst hvergi
nærri, voru óþolandi. Þú hlýtur
að vita tilfinningar mínar. .
Hún tók fram í fyrir honum,
þar eð hún vissi, að hann var
BETUR MEÐ COCA-COLA
drykkurinn sem hressir bezt, léftir skapið
og gerir lífið ánœgjulegra.
FRAMUCITT AF VERICSMiDJUNNI VÍFILFELL í UMBOÐI THE COCA-CCJLA EXPQRT CORPQRATION
ALLT GENGUR
(hvar sem er og hvenœr sem er
- við leik og störf - úti og inni
og á góðra vina fundum - )
kominn á fremsta hlunn að
biðja hennar — og hálfvegis
þráði hún það, en þrátt fyrir
léttinn við að vera ein með hon-
um, vissi hún að þetta var ekki
rétt hjá henni. Og nú fleygði
hún viljandi frá sér hamingju-
möguleikum sínum, um leið og
hún hræddist einveruna, sem
hlaut að koma, og spurði: — Og
hún Miff. . . hvað um hana?
rafhlöður
fyrir
ölI viðtæki
Heildsala- smásala
VILBERG &
ÞORSTEINN
Laugavegi 72 sími 10259
— Það er nú það, sem ég hef
áhyggjur af. Ég skammast mín
fyrir að vera svona fantur. Ég
veit að ég ætti að haga mér eins
og heiðarlegi;r maður og fara
heim og tala út um málið við
hana, því að hún er nú svodd-
an ágætis stúlka. En tilfinningar
mínar til hennar eru ekki leng-
ur þær sömu og áður var. En
Liz, þú hefur enn ekki sagt neitt
um tilfinningar þínar ghgnvart
mér. . .
— Þú hlýtur að vita, að mér
þykir mjög vænt . .
— Vænt? Er það allt og sumt?
En það nægir þér ekki. Eða seg-
irðu það bara vegna bennar
Miff? Eða er einhver annar í
spilinu?
— Já . . og nei.
— Þá hlýtur það einhver að
vera. Er hann giftur? Er það í
veginum.
— Nei, hann er það ekki.
— Þú ert víst bara að finna
þetta upp til þess að hlífa til-
finningum mínum.
— Eitt er að minnsta kosti
víst, sagði Lísa. — Þú verður að
fara heim til Nýja-Sjálands. Þú
veizt það, er ekki svo? Það væri
ekki rétt af þér að fara þang-
að ekki. En meðan hún var að
segja þetta, fann hún til afbrýði-
11. MARZ
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Gættu vel að öryggisráðstöfunum. Þig blóðlangar að láta
ljós þitt skína við einhverja yfirboðara Er það ráðlegt.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Athugaðu vel tækifæri, sem þér býðst, einkum ef aðrir eru
þér sammála um ágæti þess
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Reyndu að vinna af kappi, einkum ef þú vinnur að uppgötv-
un, eða ert að leggja síðustu hönd á verk.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Vera má, að þér gefist kostur á selja eitthvað með hagnaði
en fáðu ráð sérfróðra um málið, áður en þú hefst nokkuð að. '
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Áhugi þinn fyrir starfinu kann að leiða þig á furðubrautir.
Láttu þér vel líka, þar sem þetta er nýstárlegt
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Skoðanir þínar eru ennþá í gildi, þrátt fyrir öfund og
rætni fólks. Láttu fátt uppi, en réyndu að komast snemma í
rúmið. Peningamálin virðast í megnustu óreiðu.
Vogin 23 seplember — 22 október
Undirvitund þín virðist vera líklegasta skýringin á vandamál-
um þínum, annaðhvort stendurðu sjálfum þér fyrir þrifum,
eða þér er allt of ljóst, hvar skórinn kreppir að.
Spoðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Þínir nánustu vi.'ðast allir á móti þér, en ókunnugir styðja
þig Betri upplýsingar gætu ráðið bót á þessum vanda, en farðu
að öllu með gát.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Allir virðast berjast um völdin Sækztu eftir aðstoð, sem þér
befur verið beitið, en vertu reiðubúinn að láta eitthvað í sölurnar.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Slefburðurinn virðist þrífast einkar vel í dag, er hálfsagðar
sögur berast, og því miður eru það vinir þínir sem þar eiga
hlut að máli. Þér gefst tækifæri til að afreka eitthvað í starfinu.
Láttu ekkert uppskátt. Gakktu frá öllum fjármálum í kvöld.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Það er hollt að gera sér grein fyrir smáatriðunum. Þetta er
óheppilegur tími til að kaupa eða semja. Sama má segja um
skemmtanir.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Einhver samvinna kann að hafa óþægileg áhrif á þig Reyndu
fyrst að taka þig á, en síðan skaltu friða aðra, eins og frekast er
kostur á. Bezt er að sem minnstar sveiflur verði á nokkru.