Morgunblaðið - 11.03.1969, Side 30

Morgunblaðið - 11.03.1969, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1969. Fram vann nýliöa ÍR 20:18 í slagsmálaleik Furðuleg dómgæzla áfti sirm \sátt i sigrinum ÍR og Fram léku í síðari um- ferð 1. deildarkeppninnar á sunnudag og leikurinn varð eftir liking af fyrri leik liðanna. I fyrri hálfleik náðu ÍR-ingar al- gerum tökum á leiknum með fallegu spili, hættulegum skotum og umfram allt leik, þar sem all- ir liðsmenn tóku þátt og Ieikur liðsins varð góð kennslustund fyrir Islandsmeistara Fram. En í siðari hálfleik tóku Framarar upp harðan og grófan varnarleik og með furðulegri dómgæzlu, sem fjallað er um á öðrum stað á síðunni, fengu þeir sigurinn færðan á silfurdiski — eins og einn Framari komst að orði eftir á. ÍR-liðið sýndi mjög góðan leik Valur vann Hauka auðveldlega 24:17 framan af, en naut einnig ríku- legrar heppni, bæði í skotum sín um og eins í lélegri markvörzlu hjá Fram. Forskotið varð gífur- legt og komst upp í 8 mörk, en varð 6 í hálfleik. Drýgstan þárt í markaskoruninni áttu Ágúst Svavarsson með 5 mörk í hálf- leiknum og Villhjálmur með 4 mörk. í síðari hálfleik tóku leikar að breytast og á 26. mín höfðu Framarar jafnað forskotið. En á þeim 25 mín höfðu menn líka orðið vitni að svo ljótum varnar- Framhald á bls. 31 Þór - IS á Akureyri í kvöld1 I ÞÓR og íþróttafélag stúdenta , I áttu að leika saman i 1. deild ' íslandsmótsins i körfuknatt-1 leik á Akureyri á Iaugardag-1 Unn. Veðurs vegna komust i I stúdentar ekki til keppninnar ] I og fer leikurinn fram á Akur-1 eyri í kvöld. Leikið verður í| 1 íþróttaskemmunni og heíst | I keppnin klukkan 19.30. Sendiherrabikarinn HAUKAR, sem voru aðalógn FH-inga í 1. deildarkeppninni í handknattleikskeppninni, urðu heldur auðveld bráð fyrir Vals- menn á sunudagskvöldið. Leikur þeirra var sviplítill og á köflum bæði þófkenndur og ógnunarlít- ill. Svo fór um síðir, að uppgjöf varð i liðinu og Valsmenn unnu sinn stærsta _ sigur í mótinu, 24:17. Haukar skoruðu fyrsta markið en síðan náðu Valsmenn forystu og að undanskildu því að Hauk- ar jöfnuðu 5:5, höfðu Valsmenn ætíð örugga forystu; 10:7 í hálf- leik og síðan aldrei minna en 3 mörk. Leikurinn varð aldrei skemmti legur á að horfa enda spennu- lítilL Bezti maður Valsliðsins var Ólafur H. Jónsson og er hann sívaxandi leikmaður. Hermann Gunnarsson virðist aftur kom- inn í góða þjálfun, þó ekki hafi hann æft mikið annað en knatt- apyrnu í vetur. Sveifluskot 'hans rugluðu markverðina mjög og hann varð markakóngur leiksins með 9 mörk, þar af 3 úr víta- köstum. Hjá Haukum var Þórður Jóns- son hressilegastur, en liðið í heild var dauft og máttlítið mið- að við ýmsa fyrri leiki. Þeir voru því glaðlegir FH- ingarnir sem á leikinn horfðu og það er ekki nema fjarlægur möguleiki á pappírnum að FH missi af íslandsmeistaratitlinum í ár. Mörk Vals skoruðu: Hermann 9 (3 víti), Ólafur Jónsson 4, Berg ut og Bjarni 3 hvor, Gunnsteinn 2, Gunnar og Jón Ág. 1 hvor. Mörk Hauka: Þórður 7, Sig- urður 3, Viðar 3, Ólafur Ól. 2, Stefán og Þórarinn 1 hver. Dómarar voru Karl Jólhanns- son og Björn Kristjánsson og dæmdu af ákveðni og stuðluðu að góðum handknattleik. — A. St. EINS og getið var hér á síðunni á sunnudag, sigraði Reykjavik í kcppninni um hinn svonefnda sendiherrabikar, en það er keppni í körfuknattleik milli úr- valsliðs Reykjavíkur og varnar- liðsmanna á Keflavíkurflugvelli. Reykjavíkurliiðið tryggði sér sigur í fimm leikja keppninni með því að sigra varnarliðsmenn ina í Laugardalshöllinni á fimmtudagskvöld með 72:47. Fimmti og síðasti leikur keppn- innar fór fram á föstudagskvöld ið á Keflavíkurflugvelli, og sigraði Reykjavík einnig í þeim leik með 90:81. Lauk keppninni í ár með fjórum sigrum Reykja- vikur gegn einum sigri varnar- liðsmanna. Reykjavík hefur unn- ið þessa keppni frá upphafi eða í sex ár samtals. Myndin hér að ofan er frá verðlaunaafhendingunni á föstu- dagskvöld. Kristinn Stefánsson fyrirliði Reykjavíkurúrvalsins tekur við Sendiherrabikarnum úr hendi Rolvaag, sendiherra Bandaríkjanna á íslandi. IR og KR unnu með yfirburðum — og ekkert um óvænt úrslit ISLANDSMÓTINU í körfuknatt- leik var haldið áfram um helg- ina og leiknir samtals fimm Ieik- ir í 2. flokki, 1. flokki og 1. deild. Ekkert var um óvænt úr- slit og leikir heldur ójafnir, ut- an þeir tveir er leiknir voru í 1. flokki. í 1. deild sigraði ÍR KFR með yfirburðum, 84 stigum gegn 54, og var aldrei nein barátta í leikn um, til þess voru yfirburðir ÍR- inga of miklir. KR sigraði Ár- mann, einnig í 1. deild, með svip uðum yfirburðum, eða 82:55. Var sá leikur einnig vita baráttulaus ef frá eru taldar fyrstu mínútur leiksins. Þó vantaði KR þrjá menn, þá Kolbein Pálsson, eina msginstoð liðsins, Brynjólf Mark ússon og Ágúst Svavarsson. 1 1. flokki sigraði Árrnann íþróttafélag stúdenta í spenn- andi leik með 33:34, og ÍS vann ÍR mr-ð 40:37. í 2. flokki vann KR Ármann með 43:30, og áttu KR-ingar mjög góðan leik. Var þessi leik- ur einn þriggja leikja í úrslita- keppni 2. flokks, en keppnin í Framhald á bls. 31 Landsliðið vann 3:2 — í snjómuggu og lélegu skyggni Á SNÆVI þökktum velli og í snjómuggu svo varla sást á milli marka, léku „landsliðið" sem Á að eyðileggja ísl. handknattfeik? UM helgina urðu þeir, sem í Laugardalshöllina komu að sjá leiki 1. deildar, vitni að einhverri þeirri lélegustu dómgæzlu, sem hérlendis hef- ur sézt — og er þá nokkuð langt jafnað. Átti þetta sér stað í leik Fram og ÍR. Hið unga, en bráðefnilega ÍR-lið hafði hreinlega veitt íslands- meisturum Fram góða kennslustund í handknattleik í fyrri hálfleik. Voru ÍR-ingar þá einnig heppnir með mark- skot og markvarzla Fram í lélegra lagi. En markatalan var 14:8 í hálfleik, ÍR-ingum í vil. Allan þennan hálfleik var leikurinn prúðmannlega leik- inn og yfirleitt aðeins góður handknattleikur sýndur. í síðari hálfleik létu Fram- arar til skarar skríða — nú eins og í fyrri leik Iiðanna, en einnig þá höfðu ÍR-ingar gott forskot í fyrri hálfleik. Upphófust nú slík „faðm- lög“, hrindingar, stympingar og pústrar í hvert sinn er ÍR- ingur nálgaðist skotfæri við Fram-markið, að einsdæmi munu vera. Framararnir fundu, að dómararnir aðhöfð- ust ekkert, og hertu þennan varnarleik sánn, og um það er lauk munu víst flestar grein- ar handknattleikslaganna hafa verið brotnar. Hvað eftir annað var gripið um ÍR-ingana aftan frá innan þriggja m línu — en aldrei vítakast dæmt á það og ekki einu sinni áminning veitt. Guðjón tók eitt sinn 5 eða 6 skref og skoraði (17. mark Fram) — og markið var gilt!! Aukakast var dæmt á ÍR-inga fyrir brot. Slíkt kast á að framkvæma á brotstað. En meðan ÍR-ingar stilltu sér upp, var leik haldið áfram og skorað — því enginn reyndi að verja — og það var einnig gilt (15. mark Fram). Dómarar voru Valur Bene- diktsson og Óskar Einarsson og hefur Valur alþjóðleg dóm araréttindi upp á vasann. Undirritaður sá norska dóm ara í landsleik íslendinga og Dana i febrúar og kvað lé- lega dóma sem sézt hafa í landsleikjum hér á íslandi vera barnaleik í samanburði við það sem í Danmörku sást. En nú getum við aðeins sagt: „Maður, líttu þér jiær“. Með þessum aðferðum dóm ara verður ísl. handknattleik- ur eyðilagður á stuttum tíma. Fái leikmenn að beita slikum bellibrögðum óátalið, verður gallinn að vana, sem ekki verður auðveldlega af mönn- um vaninn. Og með svona leikaðferðum er ekki furða þótt erlend blöð kalli íslenzk lið „kjötkvarnir", „frumstæða kraftakarla“ og fleiri upp- nefnum. En sökin er ekki leikmann- anna. Þeir ganga að vísu á lagið eins og þeir geta, því dómarar eru misjafnir. Það eru dómararnir sem hér ráða. Og með slíkum dómum eru þeir að vinna eyðilegg- ingarstarf sem seint verður bætt. Þeir geta ráðið því hvort ísl. lið verða í framtíð- inni „kjötkvamir“ eða „frum- stæð kraftakarlalið“ eða skip uð handknattleiksmönnum. Það sem fram fór i leik ÍR og Fram í síðari hálfleik er ekki handknattleikur, og á ekkert skilt við þá íþrótt. í næsta leik voru menn um- svifalaust áminntir og reknir út af fyrir sömu brot og fram- in voru í tugatali í leik ÍR og Fram og dómararnir horfðu á, án þess að lyfta augabrún — hvað þá flautunni sinni. — A. St. íþróttafréttamenn höfðu valið gegn unglingalandsliði KSÍ á sunnudaginn. A-Iiðið sigraði eft- ir skemmtilegan leik og lengi vel tvísýnan. Lokatalan varð 3:2, en í hálfleik stóð 1:1. Þrátt fyrir veðuraðstæðurnar horfði fjöldi manns á þennan leik og sýnir það enn vinsældir vetrarknatt.-pyrnunnar. Hermann skoraði fyrsta mark leiksins fyrir A-liðið, en á sið- ustu mínútum fyrri hálfleiks jafnaði unglingaliðið. Hreinn Elliðason færði A-lið- inu aftur forystu um miðjan síð- ari hálfleik, en UL jafnaði enn og það var ekki fyrr en rétt fyr- ir leikslok að A-liðið staðfes-ti sigurinn með marki er Hreinn Elliðason skoraði. Góðir leikkaflar voru í þess- um ieik sem hinum fyrri og það er ekki vafi á að þessir vetrar- leikir eru knattspyrnunni til framdráttar. Enski bikarinn EINN leikur í ensku bikarkeppi inni fór fram um helgina. Lei cester vann Mansfield 1:0. Næst eru undanúrslitin o, fara þau fram á „hlutlausum völl'um. Þá leika Leicester Oj West Bromwidh og hins vega Bverton og Mancih. City.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.