Morgunblaðið - 14.03.1969, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MARZ 1969
75 ára 8. febrúar
fá hátUvmAkó
HERRADEILD
Tvær lögregluþjónsstöður
á Isafirði eru lausar til umsóknar frá 1. apríl n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, fyrri störf, menntun
o. fl., sendist undirrituðum fyrir 31. marz n.k.
Bæjarfógetinn á ísafirði 10. marz 1969
Björgvin Bjarnason.
Sigríður Fanney
Jónsdóttir Egilsstöðum
ÞANN 8. febrúar síðastliðinn átti
frú Sigríður Fanney Jónsdóttir
á Egilsstöðum 75 ára afmæli.
t tilefni þess langar mig til að
senda henni kve'ðjur og árnaðar-
óskir og vonir um að við sem
höfum kynnzt henni fáum að
njóta samvista við hana sem allra
lengst.
Margir munu þeir sem notið
hafa beina og aðhlynningar á
heimili þeirra hjóna á undan-
förnum áratugum og er það saga
út af fyrir sig.
Aldrei gleymi ég því er ég í
fyrsta sinni, þá 19 ára gömui,
sitjandi í boddy-bíl kom upp í
Egilsstaðaskóg, aldrei hafði ég
séð slíka dýrð sem þennan sól-
glitrandi birkiskóg og alla þessa
grænu víðáttu. Lögin, og heið-
arnar allt umhverfis, og svo skóg
arilminn sem barst að vitum
mínum. Ég var sem heilluð af
allri þessari fegurð og fannst
sem fólkið sem byggi hér mundi
vera öllum öðrum sælla.
í þetta sinn sá ég ekki hús-
freyjuna á Gistihúsinu á Egils-
stöðum, það var ekki fyrr en
sumarið 1940 og þeir fyrstu fund
ir okkar eru mér minnisstæðir
og þrungnir þakklæti. Þá fórum
við 3 stúlkur frá Eskifirði á reið-
hjólum upp í Egilsstaðaskóg, en
þar átti að vera samkoma daginn
eftir. Svo illa tókst til að ég datt
af hjólinu og meiddi mig iila á
Dömur athugsÖ
Permanent, lagningar, litanir og lokkalýsing.
Höfum opið á sunnudögum fyrir fermingarnar.
stjörnuhArgreiðslustofan
Laugavegi 96 1— Sími 21812.
VX-6
CADMIUM
lögurinn eyðir súlfat-
mjndun í rafgeymi
yðar, eykur endingu
geymisins um ÁRABIL
og tafarlausa ræsingu.
Ileldur ljósunum jöfn-
um og björtum.
Fæst hjá öllum benzín-
afgreiðslum.____
wU wU fttj wU wU «!b wU wU wU wU wU ^ ^
Wf W£* W£9 W£9 Wf Wf Wf »4» Wf Wp Wg» Wg* W£9 W£9 W£9 W£9
argus auglýsingastofa
ÞVOTTALÖGUR í
UPPÞVOTTINN
Mihlur fyrir
hendur
Skilar kristaT
tœrum glösum
EFNAVERKSMIÐJAN
SJÖFN
AKUREYRI
Fljótvirkur
FÆST I KAUPFELAGINU
HÆTTA Á NÆSTA LEITI —— eftir John Saunders og Alden McWilliams
THAT IS
NOT ONLy
I UNNECESSARy
MY FRIEND... IT
IS IMPOSSIBLE.1
Jæja herrar minir, við skulum líta á
þessa uppgötvun ykkar. Við . . . ah, fund-
um þetla í skransölu herra Athos. 2.
mynd) Hmmm, það er ekki svo óvenju-
legt að finna verðmæt listaverk oakvið
einskisvert rusl. 3. mynd) Við vitum að
faðir yðar er sérfræðingur þegar verk
Matins eru annars vegar . . . ef hann gæti
iitið a maiverkið . . . Það er ekki aðeins
ónauðsynlegt vinur minn, það er gersam-
lega útilokað.
handlegg og blæddi mikið úr.
Ég sá ekki önnur ráð en leita á
náðir gistihúseigenda og fór þang
að heim, með hálfum huga þó,
því kl. var rúmlega 12 áð kveldi.
Ég gerði boð fyrir frúna, sem
kom strax fram fasmikil og létt
í spori. Ég stundi upp erindinu
og sýndi henni sárið og áður en
ég vissi af var ég komin inn í
stofu, stúlkunni sagt að hafa til
heitt vatn í skál og hrein stykki
til að þvo upp handlegginn og
síðan var gengið frá þessu eftir
beztu getu.
Þannig voru mín fyrstu kynni
af Sigríði Fanneyju og þannig
hafa öll okkar kynni verið síðan,
hún veitandi ég þiggjandi.
Síðastliðin tuttugu ár höfum
við starfað að ýmsum félagsmál-
um. Sigrfður Fanney er mikil fé-
lagsmálakona, hún gekkst fyrir
stofnun kvenfélags hér á Egiis-
stöðum og hefur starfað í því af
lífi og sál, hún var formaður
þess í 14 ár eða þar til hún tók
við formerunslku í Sambaindi aust
firzkra kvenna.
A þeim vettvangi hefur félags-
hyggja hennar og þjálfuð fram-
koma notið sín í ríkum mæli.
Fyrir hennar atbeina hafa mörg
kvenfélög verið stofnuð og tekin
inn í Sambandið sem nú hefur
24 kvenfélög innan sinna vé-
bamda. Hún hefur ótrauð barizt
fyrir öllum þeim menningar- og
mannúðarmálum sem S.A.K.
hefur á stefnuskrá sinni og hefur
margt áunmizt sem tiil heilla hefur
reynzt okkur Austfirðingum. Vil
ég þar sérstaklega tilnefna
tvennt. Heilsuverndarsjóð S.A.K.
sem hefur styrkt með fjárfram-
lögum hin ýmsu sjúkrahús okkar
og Húsmæðraorlofið, en S.A.K.
sem kom af stað orlofi fyrir hús
mun hafa verið fyrsta sambandið
mæður.
Fundum S.A.K. hefur Sigríður
Fanney stjórnað af festu og ör-
yggi og að loknum fundi verið
hrókur alls fagnaðar eins og allt-
af þegar hún er í kunningjahópi.
Fyrir allt þetta hefur hún áunn-
ið sér óskipta aðdáun og virð-
ingu ailra þeirra kvenna er setið
hafa aðalfundi S.A.K. í hennar
stjórnartíð á undanförnum árum.
Þrátt fyrir sitt stóra og um-
fangsmikla heimili hefur hún
oftast gefið sér tíma til að sækja
formannafundi Kvenfélagasam-
bands íslands og m'ðlað, okkur
hinum, fróðleik úr þessum ferð-
um sínum.
Austfirzkar konur eiga frú
Sigríði Fanney mikið að þakka
fyrir forustu hennar í félagsmál-
um þeirra og þá ekki síst við
sem erum í kvenfélaginu Blá-
klukka á Egilsstöðum, og vil ég
því fyrir hönd okkar allra færa
henni þakkir fyrir forustu og
félagslyndi á undangengnum 20
árum og sameiginlega getum við
glaðst yfir því að stóri draumur-
inn okkar er að rætast. Kirkjan
okkar er að rísa af grunni.
Þegar Egilsstaðasókn var stofn
uð var Sigrfður Fanney kosin í
sóknarnefnd og er formaður
hennar og ekki hefur hún legið
á liði sínu þar fremur en annars
staðar.
Sigriður Fanney er fædd og
uppalin hér á Fljótsdalshéraði og
hér hefur hún alla tíð átt heima,
að undanskildum þeim árum sem
hún notaði til að mennta sig,
bæði innanlands og utan.
Árið 1921 giftist hún Sveini
Jónssyni bónda á Egilsstöðum og
hefur því í nær hálfa öld veitt
því landskunna heimili forstöðu
af raun og prýði.
Börn þeirra hjóna eru, Ásdís
sem býr heima, Jón Egill, giftur
Mögnu Gunnarsdóttur og Ingimar
giftur Gúðrúnu Gunnarsdóttur.
Svo lánsöm eru þau Sveinn og
Fanney að börn þeirra búa öll
á Egilsstöðum og bamabörnin
sem eru 11 að tölu munu eiga
margt sporið heim til afa og
ömmu og vera þeim til yndis og
ánægju.
Ég lýk þessum orðum með inni
legum hamingjuóskum til fjöl-
skyldunnar á Egilsstöðum og
Fanney mín þakka þér allar þær
ánægjustundir sem við höfum átt
saman baeði fyrr og síðar. Lifðu
heil.
Dagmar Hallgrimsdóttir.