Morgunblaðið - 16.04.1969, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1969
B(LALEIGANFALUR%
car rental service ©
22-0*22*
RAUDARÁRSTÍG 31
SS)1-44-44
Hverfiseötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
MAGIMÚSAR
MciPHOinTl «mar21190
eftir lokun iimi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðaatræti 13.
Sími 14970
jeis - MANVHLE
glerullareinangrunin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manvilie glerullareinangrunina
rr.u j álpappírnum, enda eitt
bezta einangrunarefnið og jafn-
fiamt það langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4” J-M
gierull og 2J" frauðplasteinangr-
un og fáið auk þess álpappir
með! Jafnvel flugfragt borgar sig.
Sendum um land allt —
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121. — Sími 10600.
0 Nemendaskiptin
Sr. Jón Bjarman æskulýðsfull-
trúi þjóðkirkjunnar skrifair:
„Til Velvakamda:
Ég leyíi mér að fara þess á
leit Við yður, að þér birtið eftir-
farandi athugasemd í dálkum yð
ar, vegna bréfs Bjöms O. Björns
sonar fyrrv. sóknarprests, sem
þar birtist 28. marz s.l.
í lok bréfs séna Björns fer
hann mjög hörðum orðum um
nemendaskipti þau, sem æsku-
lýðsstarf kirkjunnar hefir átt að-
ild að -allt frá árinu 1961, o-g
kallar það „hugsanaleysis apa-
skap“ að taka þátt i slíku. Fram-
hald þessar&r tilvitnunar er svo
barmafulit af fordómum og stór-
yrðum um menningu erlendrar
Foreldrnr
Látið börnin læra ensku þar
sem hún er töluð bezt. Get út-
vegað dvöl og kennslu á úr-
valsheimilum, hjá menntuðu
fólki. Nánari upplýsingar í síma
4 10 50 eftir kl. 19.
þjóðar (Bandaríkjamanna), að
maður fyllist undrun yfir að siík
ar skoðanir skuli settar fram í al
vöru. Tilgangur nemendaskipt-
anna er meðal annars sá, að
koma í veg fyrir að kynslóðir
framtíðarinnar búi yfir slikum
fordómum.
0 Starfsemin kynnt
Þar sem nemendaskiptin hafa
á þennain hátt verið tekin til um-
ræðu vil ég nota tækifærið og
kynna lesendum þessara dálka
hverskoniar starfsemi er hér á
ferð. Rætur nemendaskiptanna,
„Kristilegra alþjóðlegra ung-
mennaskipta", má rekja til árs-
ins 1949. Bræðrakirkjan í Banda-
rikjum Norður Ameríku átti
frumkvæðið að því, að þýzkum
og austurískum ungmennum var
boðið til ársdvalar í Bandaríkj-
unum, jafnframt því sem ung-
menni þaðan fóru til Þýzkalands
og Austurríkis. Ungmennin
dvöldu á einkaheimilum þetta ár,
gengu í skóta og tóku þátt
í kirkjulífi með fjölskyldunum,
sem þeir dvöldu hjá. Reynt var
að stefna að því að ungmennin
lifðu eðlilegu heimilislífi þetta ár
eignuðnc* aðra fjölskyldu, for-
Verzl. Straumnes. Nesvegi 33.
Þórunn Andrésd., Dunhaga 17.
Sjóðbúðin v/Grandagarð.
Aðalumboðið Vesturveri.
B.S.R., Lækjargötu.
Verzl. Roði, Laugavegi 74.
Hreyfill, benzínið, Hlemmtorgi.
Bókabúð Safam.—Háaleitisbr. 58—60.
Hrafnista, verzlunin.
9
Bókabúð Jónasar Eggertss , Rofabae 7.
Verzl. Réttarholt, Réttarholtsvegi 1.
í KÓPAVOGI:
Litaskálinn v/Nýbýlaveg.
Borgarbúðin, Hófgerði 30.
I HAFNARFIRÐI:
Verzl. Föt og sport, Vesturgötu 4
og í happdrættishúsinu Garðaflöt 25.
Sala á lausum miðum
stendur yfir
Happdrætti D.A.S.
eldra, systkini og heimili meðal
þessana þjóða, sem fáiun árum
áður höfðu átt í grimmilegum ó-
friði. Tilgangurinn var sá að sætta
þessar þjóðir, slíkt mætti fremur
takast með því að eyða tor-
tryggni, fordómum og öfund, en
með stjórnmálalegum samning-
um einum samiam.
0 „Kristileg alþjóðleg
ungmennaskipti“
Síðan þetta var eru nú liðin
tuttugu ár, og margt hefirbreytzt
á þeim tíma. Flest allar mótmæl-
endakirkjur i Bandaríkjunum
gengu brátt í samvinnu við
Bræðrakirkjuna, fleiri lönd í Ev-
rópu bættust við, sömuleiðis í
hinum heimsálfunum, Asíu, Af-
ríku og Suður Ameríku. Eftir
1960 verður einnig sú breyting á,
að skipti hefjast á milli Evrópu-
lianda innbyrðis og milli þeirra
og landia í öðrum álfum en Norð-
ur Amerífcu. Árið 1966 eru al-
þjóðasamtökin formlega stofnuð
af alþjóðlegri nefnd, sem 27 þjóð
lönd úr öllum álfum áttu aðild
að. Höfuðstöðvar saimtakanna
eru tvennar, i Genf og í New
York. Ári síðar var samþykkt
svohljóðamdi stefnustorá: Sam-
tökin „Kristileg alþjóðleg ung-
mennaskipti" (International Chri
stian Youth Exchange) stefna að
því að efla alþjóðlegt og kirkju
legt bræðraþel og skilning milli
þjóða með ungmennaskiptum, og
á þann hátt að búa æ&ku heims-
ins undir það hlutskipti að lifa
sem kristnar manneskjur í heim-
inum. Með hliðsjón af samábyrgð
toristinna kirkna í þessum efnum
er það eðlilegt að þetta verk sé
unnið sameiginlega á alþjóðleg-
um grundvelli. Fulltrúar allra
þátttökuþjóðanna vilja því bera
sameiginlega ábyrgð á skipuiagn
ingu,- framkvæmd og kostnaði
skiptanma.
Það er álit þeirra, sem að sam
tökunum standa, að það sé frum-
skylda þeirra að stuðla að efma-
hágslegu og félagslegu réttlæti og
friði í heiminum, og eru fram-
kvæmdanefndir þátttökuþjóðanna
hvattar til að haifa þetta í huga
í skipulagi sínu og störfum, og
hvetja jafnframt ríkisstjórnir
landa siima og aðra aðila að
vinna að sama miarki."
0 Markmiðið augljóst
Markmið nememdaskipfcanna
ætti að vera augljóst af þess-
ari tilvitnun. Það ætti einnig að
vera ljóst, að skiptin eru ekki
miðuð við eitt land heldur mörg.
Þannig verður með þátttöku ís-
iands i ár, íslenzk ungmenni
muinu fara fcil Svíþjóðar, Hol-
lands, Sviss, Þýzkalands, Banda-
ríkjanna og Costa Rica í Mið
Ameríku. Til íslands munu koma
10 ungmenni til ársdvalar frá
Bandaríkjunum, Þýzkalandi,
Sviss, Jamaica, Boliviu og Brasi
líu. í þessum hópi verða ungl-
ingar frá .Bandaríkjunum í minni
hluta. Það er mjög mikilvægt
að geta tekið á móti þessum ungl
ingum og komið á tengslum fyr-
ir þeirra tilstilli milli íslands og
heimalanda þeirra. Enn vantar
töluvert á, að nægilega mörg
heimili séu fyrir hendi svo hægt
sé að taka á móti þessu unga
fólikii, og vildi ég biðja þá, sem
hafa áhuga á slíku að hafa sam-
band við mig. Ungmennaskipti
til náms og kynningar eru al-
geng. Á hverju ári fer t.d. fjöldi
íslenzkra ungmenna til sfcammr-
ar dvaLar í Englandi, skipti milli
Þýzkalainds og Frakklands eru I
mjög stórum stíl. Aðilar eins og
„Experiments in International liv
ing“, „Community Education for
the yourg European" og „Ameri
can Field Service" eru þekktir
og virtir um aJian heim. Flest
eru þessi skipti fyrir unglinga á
sama aldri og hjá „Kristilegum
alþjóðlegum ungmennaskiptum“,
þ.e.a.s. 16—19 ára. Þó hefir eng-
Lnn hinna fyrrtöldu aðila sama
markmið og tilgiamg og hið síðast
fcalda. Það markmið höfðar til al
þjóðlegrar, kristilegrar ábyrgðair
tilfinningiar, og það er álit mitt
að þar megi Islendingar ekki
ganga undan merkjum.
Jón Bjaman
æskulýðsfulltúi"
0 Leiðrétting.
Bréfið um gömlu húsin i Mið-
bænum, sem birtist hér sl. sunnu
dag, átti að hefjast á orðinu af-
mán (ekki afnám).
Knattspyrnumenn
Knattspyrnudómarafélag Reykjavíkur vill ráða framkvæmda-
stjóra til að annast boðun dómara á alla knattspyrnuleiki.
ársins 1969.
Umsóknir sendist K.D.R. íþróttamiðstöðinni Laugardal fyrir
23. apríl
K.D.R.
Hjúkrunurkonur ósknst
Hjúkrunarkonur vantar á hinar ýmsu deildir Landspítalans til
afleysinga í sumarleyfum. Barnagæzla fyrir hendi.
Allar nánari upplýsingar gefur forstöðukona spítalans á staðn-
um og í síma 24160.
Reykjavík, 9. apríl 1969.
Skrífstofa ríkisspítalanna.
SkuldabréC
ríkistryggð og fasteignatryggð tekin í umboðssölu.
Kaupendur og seljendur hafið samband við okkur.
Einbýlishús í Arnarnesi til sölu.
FYRIRGREIÐSLUSKRIFSTOFAN
Fasteigna- og verðbréfasala
Austurstræti 14 Simi 16223.
Þorleifur Guðmundsson heima 12469.
>