Morgunblaðið - 16.04.1969, Page 5
MORQUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1969
5
<
m m m m m —m — ■ — ™ ™ ™ “ ■ ■ ■ ■ “ “ ■ » ™ « ■ “ » " «i «— « 0 0
Með víkingahjálm og íslenzkan fegurðarblett
„EINN blaðamanna okkar
kom við hér á íslandi á heim-
leið frá Tékkóslóvakíu í janú-
ar sl. og hann lýsti landinu
með svo mikilli hrifningu, að
við ákváðum að senda hóp til
Islands og kynna það fyrir
lesendum okkar í máii og
myndum.“ Þannig fórust Rich
ard Desberg, aðalritstjóra
bandaríska mánaðarritsins
CHAR.LIE orð, þegar hann
skýrði blaðamanni Morgun-
blaðsins frá ástæðunni fyrir
komu átta manns frá Charlie
hingað til Iands.
„Charlie hefur nú komið út
í rúmt ár,“ sagði Desberg
Upplagið er nú um 400 þús-
und eintök og lesendur þess
eru dreifðir um öll Bandarík
in. Þetta er tímarit fyrir ungt
fólk og við skrifum um tizk-
una, tónlist og allt annað,
sem við vitum, að unga fólk
ið hefur áhuga á og einnig
reynum við að kynna því
ýmsa nýja hluti, sem vi'ð höld
um að geti vakið áhuga þess.“
—; Hvaða efnis ha.fið þið
aflað ykkur hér?
— Hérna tókum við allar
Ljósmyndari CHARLIE, Jack Cowiey, og ein fyrirsætan, Linda, notuf u tækifærið í gær og
gengu í það heilaga. „Dómarinn, sem gaf okkur saman var mjög elskulegur og nú eigum
við Jack sérstaklega kæra minningu frá þessari tslandsferð", sagði frú Linda. Á myndinni
sjást brúðhjónin (t.h. skála við aðalritstjóra CHARLIE og Bathe konu hans.
myndir í kynningu okkar á
sumartízkunni 1969. Þær tók-
um við á Þingvöllum og þó
veðrið væri ekiki alveg upp á fyrir í léttum sumarfatnaði
það bezta — fyrirsætunum — þá hafði það engin áhrif á
fannst víst fullkalt að sitja útkomuna. Við ná’ðum alveg
stórkostlegum tízkumyndum í
íslenzka landslaginu.
Við höfum einmg aflað
okkur efnis í greinar um ís-
lenzka hestinn og íslenzka
matinn og svo verðum við
auðvitað með grein um land
og þjóð.
ísland er mjög fallegt land
— einhvern veginn svo allt
öðru vísi fallegt en önnur
lönd — og ljósmyndarinn
minn segir mér, að hann hafi
náð þessari sérstæðu fegurð
landsins í myndir sínar. Hann
segist hafa tekið á um 50 36-
mynda filmur svo við ættum
að hafa úr nógu að velja,
þegar þar að kemur.
— Hvenær verður það?
— Við ætlum að birta þetta
í . júníheftinu. Forsíða þess
heftis verður mynd af ungri
stúlku með víkingahjálm og
íslands-lagaðan fegurðarblett
á kinninni. Nafn Islands verð
ur svo með stórum stöfum í
bakgrunninum.
Þessi ferð okkar til íslands
hefur orðið okkur ánægjuleg
reynsla. ísland hefur unnið
hugi okkar allra og ég er
ekki í neinum vafa um, að það
muni falla lesendum Charlie
vel í geð. •
Þið íslendingar hljótið að
vera hamingjusamir að eiga
þetta land.
(
Jónas Pétursson, alþingismaður:
Raforkumál
Fyrir Alþingi liggur nú frv.
uim Norðvesturlandsvirkjun,
flutt af þremur þingmönnum
kjördæmisins, er sæti eiga í neðri
deild. Þess er getið í greinar-
gerð frv. áð það sé flutt í sam-
ráði við tvo þm. í efri deild, þá
Ólaf Jóhannesson og Jón Þor-
steinsson.
Frv. er um stofnun sameignar-
fyrirtækis ríkis og sveitarfélaga,
þ. e. Húnavatnssýslna, Skaga-
fjarðarsýslu og Sauðárkrókskaup
staðar um raforkuvinnslu og
flutning raforku um svæðið.
Greinargerð frv. hefst þannig:
Frumvarp þetta er flutt vegna
eindreginnar áskorunar Raforku
málanefndar Norðvesturlands. Á
fundi nefndarinnar, sem haldinn
var á Blönduósi 2. marz sl. var
samþykkt svofelld ályktun: „Raf
orkumálanefnd Norðurlands
vestra, sem skipuð er fulltrúum
frá sýslunefndum Húnavatns- og
Skagafja-rðarsýslna ásamt Sauðár
krókskaupstað, skorar á þing-
menn kjördæmisins að flytja á
yfirstandandi Alþingi frumvarp
til laga um stofnun sameignar-
félags fyrrgreindra áðila ásamt
ríkisstjórninni, er hafi þann til-
gang að sjá um orkuöflun og
orkuflutning á Norðvesturlandi."
Síðan er rakinn áhugi heima-
manna á raforkuöflun í þessum
landshluta, sem um langt skeið
hefir verið bundinn Við virkjun
á Reykjafossi í Svartá í Skaga-
firði.
Ég fæ ekki orða bundizt til að
fagna framkomu þessa frv. Ljós
ara verður með hverju ári að
aukin áhrif og vald byggðarlag-
anna á mikilsverðustu málum
þeirra sjálfra er grundvallar-
atriði fyrir velferð þeirra, vöxt
og viðgang. Og þar eru raforku-
málin í fyrstu röð. Framkoma
þessa frv. og samstaða sýslu-
nefndanna og bæjarstjórnar
Sauðárkróks, sem á bak við
stendur, er áþreifanlegur hlutur
um afl, sem er að verða virkt til
sóknar í sjálfstæðismálum ís-
lenzkra byggða. Afl, sem rökhugs
un og vilji til jafnvægis í byggð-
um fæðir af sér.
Það er þessi byggðahugsun,
sem ræður afstöðu minni í raf-
orkumálunum. Þess vegna er ég
í engum vafa um að næsta skref
ið í orkuöflun fyrir nor’ðan, aust-
an og vestan er að virkja hag-
stæðustu vatnsföllin sem víðast
á þessum svæðum af almennings
samtökum, t.d. kjördæmanna, í
samstarfi við ríkisvaldið, og sjá
um orkudreifingu, með líkum
hætti og gert er ráð fyrir í frv.
um Norðvesturlandsvirkjun,
Þess vegna á að vinna tafarlaust
að virkjun í Svartá í Skaga-
firði, í Lagarfljóti við Lagarfoss,
í Kláffossi í Hvítá, svo að beztu
virkjunarstaðir séu nefndir.
Áframhaldandi virkjun í Laxá
er framundan. Um þessar virkj-
anir og dreifingu orkunnar um
eðlileg orkuveitusvæði á að
mynda félagsskap af heimaaðil-
um þar sem hann er ekki fyrir.
Þetta er sjálfstæðismál byggðar-
laganna og landshlutanna, jafn-
réttismál — jafnvægismál. Hvert
nýtt orkuver er nýtt heimili fyr-
ir tæknimenn í þeirri byggð eða
landshluta, menn sem standa
framarlega að hæfni og hafa
menntun á hinum þýðingarmestu
sviðum nútímalífs. Treysta þann
ig almennt mannlíf á þeim slóð-
um. Orkuverið verður hvati fram
kvæmda og athafna í nálægð
sinni, þegar stjórn þess er háð
laugakerfi hæfilegs svæðis. Þetta
er mikilvægt atriði, mannlegt,
sálrænt, sem tölvan nær ekki
tökum á.
Sú hugsun hefir verið mjög
uppi hjá Orkustofnun,, a.m.k. nú
um skei'ð, og virðist vera í huga
þeirra er hagstofnanir byggja
um þessar mundir, að samteng-
ing raforkukerfisins sem víðast
um landið sé eitt lausnarorðið
í „hagvexti" hjá vorri þjóð. Ekki
hefir heldur dulist að augum er
rennt fyrst og fremst upp með
Þjórsá. Þegar hornsteinn var
lagður að stöðvarhúsi Búrfells-
virkjunar var birt ræða, er aðal-
bankastjóri Seðlabankans flutti,
þar sem framtíðarsýn var lýst
um áframhaldandi virkjanir á
Þjórsársvæði. Flest sem sfðan
hefir birzt frá okkar tæknimönn
um er í svipuðum dúr. Myndum
Jónas Pétursson
er brugðið upp sem ná norður
undir Sprengisand — eru sunnan
og vestan jökla.
Ég hefi komið að Búrfellsvirkj
un. Það gladdi mig sannarlega
og ég sá ísland stækka. En fyrst
og fremst vakti það mér hugsan-
ir um möguleikana handan jökl-
anna. Ég ef&st um að margir
geri sér grein fyrir að í þessum
sífelldu framtíðarmyndum, sem
brugðið er upp af orkuverum,
sem svo til allar eru bundnar
við Suðvesturlandi'ð, felast að
nokkru óbeinar ögranir við hug
sjónir, skoðanir og tilfinningar
þeirra, sem eiga óskalönd sín
hinumegin jöklanna, þar sem
vötn falla til sjávar líka, þar
sem býr fólk með vonir og mann
dóm. Flutningúr frv. um Norð-
vesturlandsvirkjun er hreint
fagnaðarefni. Ég hefi lýst í
stuttu máli rökum þess frá mín-
um sjónarhóli, og ég vona í aðal-
dráttum allra þeirra mörgu í
byggðunum fyrir austan, norðan
og vestan, sem eru á sömu skoð-
un. Og ég veit að þeim fer sífellt
fjölgandi, sem skilja að velferð
byggðarlaganna er fólgin í vax-
andi sjálfsstjórn, vaxandi valdi
og ábyrgð stærri og minni heilda
innan þjóðfélagsins — og að ein-
mitt raforkumálin, orkuöflunin
og nýting hennar, þessi blóðrás
athafnalífs í nýju íslandi, — hún
þarf að vera í höndum þeirra, er
vinna óskiptir að heill þeirra
byggðeiheilda, sem þeir starfa í,
lifa og starfa fyrir.
Austfirðingar þurfa að hugsa
þessi mál að nýju. Fyrir 2 árum
flutti ég frv. á Alþingi um Aust-
urlandsvirkjun — mjög sam-
hljóða því frv., er þm. Norður-
landskjördæmis vestra flytja nú
fyrir áskorun heimamanna. Þá
skelltu Austfirðingar skollaeyr-
um við máli mínu — ekki allir,
en allt of margir. — Tvö dýr-
mæt ár eru töpuð. Enn er þó
hægt að endurskoða hugann og
vinna að svipaðri samstö'ðu á
Austurlandi og í Norðurlandi
vestra.
Á páskum 1969.
Jónas Pétursson.
Mikil atvinna
á Akranesi
Akranesi, 14. apríl.
AFLI í þorskanet hefur verið
tregur að undanförnu eða frá
tveimur upp í sextán lestir eftir
nóttina. Einn bátur veiðir enn
með línu, fékk bann 8 og 9 lest-
ir í síðustu tveimiur róðrum. Vél
skipið Súlan frá Akureyri land-
aði hér í morgun 10 lestum af
fiski, mestmegnis stórum þorski,
sem aflaðist í nót. Togarinn Vík
ingur er á veiðum við Grænland
og muin landa fiskinum tii vinnslu
hér á Akranesi.
í síðustu viku tók v.s. Brúar-
foss frystan fisk til fiutnings á
Bandaríkjamarkað. V.s. Freyfaxi
kom með sementsgjall til Sem-
entsverksmiðj unnar frá Dan-
Neskaupstað 14. apríl.
FJÓRIR bátar lönduðu hér í dag,
alls 215 tonnum af þorski. Þessir
bátar voru Bjartur NK með 85
tonn, Barði NK 45 tonn, Börkur
NK 40 tonn og Birtingur NK 45
tonn. Mikij vinna er við nýtingu
aflans og undanfarið hefur verið
unnið í frystihúsi og söltunar-
stöð fram undir miðnætti.
mörku, v.s. Stapafell tók 200 lest
ir.af lýsi og v.s. Askja tók 400
lestir af loðhumjöli. Helgafell k>s
aði í dag salt í fiskinn og áburð
til landbúnáðarþarfa.
Atvinna hefur verið mikil hér
að undanföm'U, raunar hvorki
verkfall né verkbann hamlað at-
höfnum. — H.J.Þ.
fvar Jónsson
Aðolfundur Bluðumunnuiélugsins
Ivar Jónsson kosinn formaður
BLAÐAMANNAFÉLAG fslands
hélt aðalfund sinn sl. sunnudag.
Eitt aðalverkefni félagsins á
þessu starfsári hefur verið að
koma upp blaðamannanámskeiði,
sem einmitt stendur yfir og hef-
ur tekizt mjög vel. Þá er Vil-
hjálmur Þ. Gíslason fyrrv. út-
varpsstjóri að ljúka samningu
bókar um blaðamennsku á ís-
landi í tilefni^af 70 ára afmæli
félagsins á þessu starfsári. En
afmælisins var minnzt með hófi.
Formaður Bl'aðamannafélags
íslands fyrir næsta starfsár var
kjörinn ívar Jónsson, Þjóðvilj-
anum. Aðrir í stjórn eru: Árni
Gunnarsmn, (fréttastofu Ríkis-
útvarpsins), varaformaður, Atli
Steinarsson (Morgunblaðinu)
gjaldkeri, Valdimar Jóhannes-
son (Ví:i) ritari og Kári Jónas-
son (Tímanum). í varastjórn eru:
Eiður Guðnason (fréttastofu
sjónvarps), Elín Pálmadóttir
(Morgunblaðinu) og Sigurjón
Jóhannsmn (Alþýðublaðinu).