Morgunblaðið - 16.04.1969, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1»69
7
/
„Vindsorlínan“ öllu ráðandi í
karlmannafatatízku næsta ár
„Óhætt er aS fullyrða, að engin
íslenzk karimannafataverzlun vill
í dag lækka gæðamarkið i fatn
aðinum. Ég held þær setji þar
í stolt sitt að halda upp þessum
svokallaða „standard", og þetta
gæðamark hefur um árabil sett
svipmót sitt á þessar verzlanir,"
sagði Eiríkur Helgason, stór-
kaupmaður, sá maður, sem um
langt árabil hefur flutt inn gæða
föt handa karlmönnum, og er
manna bezt kunnugur þeim
sveifium, sem eru og verða á
karlmannafatatízku.
Við hittum Eirík hér á dög-
unum ásamt Ragnari Guðmunds
syni framkvæmdastjóra hjá hinu
þekkta fyrirtæki Andersen o-g
Lauth, en þeir voru þá nýkomn
ir frá frægri sýningu á karl-
mann.afatnaði úti í London.
Okkur þótti því fróðlegt að
spyrja þá spjörunum úr um
nýjustu tízku í þeim efnum og
um ýmsa aðra hluti, því við-
kom'andi.
★
„Já, þetta var alþjóða fatn-
aðarsýning á drengja- og karl-
mannafötum, svokölluð IMB-
Ex, sem við sóttum í London,
og var haldinn í Earls Court.
The Brithish Mensweax Guild
er samsteypa framleiðenda í
karlmannafatnaði, allt frá hatti
og niður í skó, eins og þeir
segja hjá P og Ó. Ég hef haft
mikil skipti við þá samsteypu,"
segir Eiríkur,“ og meðan á
Imbex stóð héldu þeir sjálf-
stæða tízkusýningu í White Hall.
Umhverfið ,þar er alveg stór-
kostlegt, eiginlega ólýsanlegt.
Þarna voru lifaindi sýningar-
menn, og aRt gert til þess, að
gera okkur lífið ánægjulegt. Á
þessa sýningu mættu frægir
menn og frægar koiraur, drottn-
ing Bretaveldis og prinsessur.
White Hall var byggt 1619 af
Jakobi I. konungi, og þar eru
myndir eftir Rubens og hafur það
síðain sífellt fengið gagngera
endurbót, en heldur alltaf þess-
um gamla góða blæ, sem er
sérstakur fyrir tryggð Breta
við fornar dyggðir."
„Og hvernig verður svo tízk
an, mínir herrar?“
„Þessu er auðvelt að svara,"
segjia þeir báðir, Eirlkur og
Ragnar. „Nýja línain í karl-
mannafaitraaði kallast á ensku
„The Windsor Look“, og bezt
að lýsa þessari línu með þvi
að segja, aðeins leragri jakkar,
bæði einhnepptir og tvihneppt-
ir, með vesti og án, aillar klauf
ar í jökkum eru lengri en bux
ur hafa á sér þenraan „tangó-
sjarma", sem kom upp á ár-
unum eftir 1930.“
„The Windsor Look minnir
mig raunar á það, sem Bretax
hljóta að meina með þessu, sem
sagt smekk Prinsiras af Wales,
Játvarð VIII, hertoga af Wind-
sor, en hann var þekktur fyrir
góðara fatasmekk. Sú saiga gekk
að hann hefði einu sdnni gleymt
að hneppa neðstu tölunni á vest
inu sínu, og það var eins og
við manniran mælt, að slikt varð
tízka upp frá því.“
„Já, þetta mun sjálfsagt vera
rétt hjá þér, en þessi Windsor
lína mun verða öllu ráðandi
Lengst til hægri á þessari mynd má sjá Eirík Helgason, heilsa
verzlunarmálaráðherra Breta. Lord Brown, sem gat sagt hon-
um allt um fatainnflutning íslendinga, en Eiríkur á þar
mestan hlut að máli. Næst Eiríki er fornvinur hans, Derek
Ross, formaður The British Menswear Guild, og þar næst er
dr. L. Simpson (Simpson, Piccadilly).
hér á næsta ári. Það er nú ein-
hvernveginn svo, að þessar
nýju línur koma hingað nokkru
seinna, sem eðlileigt er, og á
meðan seljum við föt með öðru
sniði,“ sagði Ragnar.
★
„Hverju veldur svo gengis-
breytingin varðandi karlmainna
fatnað?“, spyrjum við.
„Að sjálfsögðu hækkar þetta
flest," segir Eiríkur, „en meðoil
annars var föir mín gerð til
Bretlands til þess að kanna,
hvernig viðskiptavinir mínir
þar gætu komið á móts við okk
ur í þessum vamda, án þess að
lækka gæðin. Eins og er í dag
er Rretland iang hiagsitæðasti
viðskiptaaðilinn, og þeir hafa
svo sannarlega komið á móts
við okkur og látið okkur sæta
beztu fáanlegum kjörum, þann-
ig að við þurfum ekki að lækka
gæðaimiarkið.“
„Ég hafði með mér í förinni
klæðskerameistaira fyrirtækisiras
Ándersen og Lauth, Kristján
Ólafsson, til þess að hanm gæti
frá fyrstu hendi skoðað þessar
nýju línur í karlmiann'afatnað-
inum,“ sagði Ragraar. „Á þessu
sviði er um ýmsar tækninýurag
ar að ræða, sem við verðum að
tileiraka okkur, ef við ed'gum að
stamdiast samkepprairaa.
Allar þessar nýjungar auka
gæði fatanraa, og það er sanraar-
lega nauðsynlegt, að klæðsker-
ar hórlendis kyrani sér þessi
nýju snið, þessar nýju líraur.
Þessar nýju línur koma smátt
og smátt, við höldum auðvitað
því, sem viðtekið er, og breyt-
um svo út aif, þegax sá tími er
kominn."
★
„Að hugsa sér, hvernig íslend
ingar klæðast. Ég er ekki að
gera gys að þeim, en komir þú
austur á Þingvöll heitan sum-
ardag á suranudegi, muntu sjá,
að velflestir klæðast svörtum
sparifötum, með svört bindi við
hvíta skyrtu. Hvers vegiraa veit
ég ekki“, sagði Eiríkur nú.
„Mér fyndist einhverraveginn
eðlilegra, að þeir klæddust létt-
um sportfatnaði, og tízkan í
London gefur einmitt bendingu
til þess. Þax eru á ferð-
irani . sterkarii litir, fleiri litir,
m.a. ljósfjólubláir."
„Er þá almenniragur á ís-
landi fariran að halla sér að
Carraabye.stræti, mínir herrar?“
„Alls ekki,“ svara þei rbáðir
einum rómi. „Carraaiby-stræti er
hiras vegar nauðsyralegur hlekkur
í keðjunni. Þegar þessir ungling
ar eru búnir að fá sig fullsadda
eða fuUkéypta á Carnabye-
streettízkunrai, þá koima þeir til
alvöruklæðskeranna í miðborg-
irani, og verða upp frá því
þeirra beztu viðskiptavinir. En
óneitanlega hefur stundum
Carraabyestreet gefið línuraa.
Núraa er um miklu meiri lita-
dýrð að ræða. Ekki ailitaf svart
og hvítt, heldur líka gult og
fjólublátt.
★
„Ekki skal ég trúa því, að
þið hafið ekki lent í einíhverj
um ævintýrum þar ytra, Eirík-
ur?“
„Það væri þá helzt, þegar ég
tók þátt í golfkeppni við 300
koraur."
„Það muraar nú ekki um
minraa. Og hvernig gekk?“
„Það var talað um þessa
keppni í öllum brezku blöðun-
um. Þeir „lúffa“ fyrir golfi,
Bretarnir. Ég er meðlimur I
Berkshireklúbbnum, og svo var
mér og Jóhanni Eyjólfssyni
úr Silfurtúni boðið upp á þessi
ósköp, og svo gengum við til
leiks.
Við Jóharan unraum frækileg-
an sigur, og við fengum hvor
um sig forláta gullúr að laun-
um, sem við notum ekki raema
spari.
Mér er nú nær að halda, að
þeir hafi veitt okikur þessii verð
laun aðallega fyrir dirfsku okk
ar og kjark að keppa við þess-
ax þrjúhundruð galvösku kon-
ur. En svoraa eru íslendingar",
sagði Eiríkur um leið og við
kvöddum harara og Ragraar, eft-
ir að hafa fræðst um næstu
karknararaatízku, „The Windsor
Look“. — Fr. S.
A þessari mynd sjást, staddir á tízkusýningu British Menswear Guild, í White Hall, talið frá I
vinstri Mr. Derek Ross, formaður þeirra samtaka, Sir Peter Runge, forseti brezka útflutningsráðs-1
ins, Eiríkur Helgason, stórkaupmaður og Ragnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri.
KEFLAVlK BROTAMALMUR
Tveggja herbergja íbúð ósk- Kaupi allan brotamálm, lang
ast til leigu. Uppl. í síma hæsta verð. Staðgreiðsla.
1982. Nóatún 27, sími 35891.
VERZLUNARHÚSNÆÐI SKRIFSTOFUHERB. TIL LEIGU
Vil kaupa verzlun eða taka Til leigu 3 saml. herb. að
á leigu húsnæði f. kjöt- og Laugav. 28. Leigjast saman
nýlenduvörur, annað kemur eða stök. Mætti nota fyrir
til gr. Tikb. sendist Mbl. f. læknastofur, léttan iðnað og
kaugardag merkt „2557". fleira. Sími 13799 og 52112.
STÚLKA KEFLAVÍK — SUÐURNES
með 1 barn óskar að kom- Nýkomin kápu- og dragtar-
ast sem ráðskona á gott efni, rósótt sumarefni, rós-
heimili, má vera í sveit ótt ög röndótt frottéefni.
sunnanlands. Uppl. i síma Mjög fallegt úrval.
92-2539, Keflavík. Verzlunin Femina.
TVEGGJA ÁRA GOLFSETT
WILLYS STATION Wilson staff, poki og kerra.
árgerð '62 í góðu lagi til sölu. Sími 84756 eða 37582. til sölu. Sportvöruverzlun Kristins Benediktssonar Óðinsgötu 1.
IGAVPLAST
Höfum aftur fyrirliggjandi
HARÐPLAST HILLUPLAST
BAKPLAST
PLASTHÚÐAÐ MASONIT
PLASTHÚÐAÐAR SPÓNA-
PLÖTUR 13 og 19 mm.
ÚRVALS VARA — HAGSTÆTT VERÐ.
R. SRBMIHIDSSON t KVARAN HF.
ÁRMÚLA 14, REYKJAVÍK, S í BVII 35722
Ol CATERPILLAR
Notaðar jarðýtur
Til sölu: CATERPILLAR D6B árgerð 1964 með rifkló, beinni
tönn og strokk til að halla henni, húsi & miðstöð,
nýlegpm beltakeðjum og ásoðnum sköflum.
Notuð um 8 000 vinnustundir.
Til sölu: CATERPILLAR D6B árgerð 1964 með skekkjanlegri
tönn, húsi & miðstöð og nýlegar ásoðnar rúllur.
Tímamælir sýnir um 8000 stundir.
Höfum kaupenda að CATERPILLAR D6C í góðu ásigkomulagi
með skekkjanlegri tönn og rifkló.
Calerpillar, .Cit og CB eru skráselt ntimeiki
HEKLA hf
•^^m^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmrnam
Aðalfundur
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags Islands verður haldinn í fund-
arsalnum í húsi félagsins í Reykiavík, föstudaginn 30. maí
1969 kl. 13.30.
Dagskrá samkvæmt 13. grein samþykkta félagsins.
Tillögu til breytinga á samþykktum félagsins samkvæmt
niðurlagi ákvæða 15. greinar samþykktanna (ef tillögur
koma fram).
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins, Reykjavík 27. —
28. maí.
Reykjavík, 14. apríl 1969.
STJÓRNIN.
Laugavegi
170-177
Simi
21240