Morgunblaðið - 16.04.1969, Síða 18

Morgunblaðið - 16.04.1969, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRtL 1&69 Hverjir hafa gleymt konunum? Á undanförnum árum hafa orðið miklar framfarir í heil- brigðis- og mannúðarmálum hér á landi. Er óþarfi að telja upp dæmi, en áberandi er, hve sam- tök kvenna standa að mör,gum þeirra. Nú er svo komið, að sú stofn- un, er mest varðar ^konurnar sjáifar og heilsu þeirra, Fæðing- ar- og Kvensjúkdómadeild Land spítalans, er ekki aðeins orðin úrelt fyrir löngu, heldur eru þrengslin þar svo mikil, að til Jóhanna A. Friðriksdóttir. vandræða horfir. Má segja, að algjör neyð hafi verið, að notast við deildina hingað til, hvað þá, ef hún á að verða áfram um ófyrirsjáanlegan tima eina sjú'kra húsið þar sem konur víðsvegar af landinu geta fengið geislameð ferð við krabbameini. Það er ekki eðlilegt, að fólk almennt geri sér Ijóst, hve alvarlegt á- stand þetta er, en hverjum þeim, er kynnist því af eigin raun, hlýtur að blöskra. Þegar krabbameinsleitarstöðin við Suðurgötu tók til starfa, veitti það konum hér aukið öryggi um heilsu sína og hefði þá mátt ætla, að þær gætu verið jafn bjartsýnar um þessi mál og kynsystur þeirra í nágranna- löndunum. Það takmark mun þó vera langt undan, ef ekki verður þegar í stað hafizt handa um úr- lausn, og eina viðunandi úr- lausnin er: Ný kvensjúkdóma- deild með fullkomnustu aðstöðu til geislalækninga. Til stuðnings þessu má nefna, að konur, sem hafa fengið úrskurð um að þjgr þurfi að komast þarna inn, verða margar hverjar að bíða í 2—3 mánuði eftir rúmi. Ef geislalækn ing er nauðsynleg, þá vita þær allar núorðið, að notazt er við tæki, sem talin eru úrelt, en kóbolttæki það, sem gefið var Landspítalanum, bíður ónotað, vegna þess, að ekki er til hús yfi rþað. Þetta er slíkt alvöru- mál, að varla tekur að geta þess, að setustofa fyrir fótaferðarsjúkl inga er engin á deildinni, né heldur, að salerni eru aðeins 3 á 'hæðinni og iðulega eru eitt eða tvö þeirra biluð. Þarf víst ekki að útskýra, hvaða óþægind- um slikt velduT sjúklingunum, að maður nefni ekki starfsfólkið, sem leysir sitt starf aðdáanlega vel af hendi við hin erfiðustu skilyrði. Enginn efi er á því, að kven- sjúkdómadeildin hlýtur að vera álhugaefni hverrar einustu konu á landinu, því engin veit, hver verður næst. Er þvi nauðsynlegt, að konur almennt kynni sér stað- reyndir um þetta mál. Verður það bezt gert með því að lesa grein eftir frú Steinunni Finn- bogadóttur ljósmóður, í nýút- komnu hefti af tímaritinu Hús- freyjan. Þar kemur fram tillaga Bandalags kvenna í Reykjavík, ásamt greinargerð frú Steinunn- ar, sem send var öllum þing- mönnunv og ráðherra. Er greinin því í rauninni upp- haf þess, að máiið, var tek- ið fyrir á Alþingi. Æski- legt væri, að greinin birtist á enn stærri vettvangi, svo að al- menningur gæti kynnt sér um hvað er að ræða, og hve þörfin er brýn. Við lestur greinarinnar verður ljóst, að sparnaður, eða bið á framkvæmdum er í raun- inni sóun á mannlífum. Hefur þjóðin efni á sliku? Er ekki kominn tími til, að konur ranki við sér og láti ekki gleyma sér lengur? Gleyma er rétta orð- ið, því ekki þarf annað en líta heim að Landspítalanum og horfa á framkvæmdir þar, til þess að sjá, að hagsmunir kvenna hafa verið fyrir borð bornir. Ekki er rétt að álíta að það hafi orðið með vilja, en þá hljóta þeir líka að hafa gleymzt. ■ Og hverjir hafa gleymt konunum? Æskilegt væri að fá svar við því. Ótrúlegt er t.d., að ekki skuli vera tilbúið húsnæði yfir nýja kóbolttækið, sem Oddfelhow- reglan gefur, þegar það kemur til landsins og alveg fáránlegt, að sjúklingar og starfslið búi áfram við aðstæðurnar á gömlu fæðingardeildinni á meðan ráða menn velta fyrir sér tilfærslu Hringbrautarinnar eða einhverju slíku. Meðan á því stendur falla í valinn konur á bezta aldri, sem hefði verið haegt að hjálpa, ef skilyrði til lækninga hér vaeru samibærileg við það, sem tíðkast á Norðurlöndum. Oft hefur verið sagt, að líf hvers íslendings væri dýrt, þar sem við erum svo fámenn þjóð. Því þyrftum við að búa þeim mun betur að hverjum einstakl- ingi. Hve mikils virði er þá líf íslenzku konunnar? Er hún e'kki nokkuð lágt metin, ef umferðar breytingar og annar hégómi verð ur þyngri á metunum, ep líf hennar Oig heilsa? Er hægt að ætlast til þess, að hún uni slík- um dómi? Jóhanna A. Friðriksdóttir, kennari. íslandsbók á Itölsku NYLEGA kom út á Ítalíu bók um faland og nefnist hún „IS- LANDA: un ‘isola fantastica“. Höfundar hennar Maurizio og Annamaria Thaon di Revel segja í formála bókarinnar að þau hafi komið hingað í sumarleyfi en hrifizt svo af landi og þjóð að þau hafi ákveðið að kynna löndum sínum þetta sérstæða land og fólkið sem það byggir. íslandsbókin, sem gefin er út af „edizioni del nomade" er 154 blaðsíður og í henni eru 21 lit- mynd og 86 svart-hvítar rnynd- ir og einnig landakort og jarð- fræðikort. „ISLANDA’ ‘un isola fanta- stica“ er fyrsta bókin í bóka- flokk, sem útgefendur ætla að gera um framandi lönd og næsta bókin, sem kemur út á þessu ári verður um Japan. tslenzkur hestur. „Fákar og form" Ljósmyndasýning Matthíasar Gestssonar Matthías Gestsson frá Akur- eyri opnaði ljósmyndasýningu í Hliðskjálf sl. mánudag. Sýningin verður opin til 24. apríl frá kl. 14—22 daglega. Á henni verða til sýnis 50 ljósmynd ir. Nefnir Matthías sýningu sina: „Fákar og form“. Þetta er sölusýning, og er sölusýning, og er verð mynd- anna kringum 1500 krónur, að undanskildum stærstu myndun- um, sem hann metur frá kr. 5000 upp í 25.000, og er aðeins ein mynd til af þeim. Stór kvöldmynd er þarna frá Akureyri, og fær fimmhundrað- asti gesturinn hana að gjöf. Eins og nafnið gefur til kynna, er þarna miki'ð af hestamynd- um, og full ástæða til að gefa henni gaum. Tveíi brunar TVEIR brunar urffu um helgina. Geymsluskúr Breiffhiolts hf. brann í Breiffholti og er taliff aff börn Ihafi kveikt í honum og eldur toviknaffi, líklegast út frá rafmagni í húisi a/ustan viff Héff- inkhöfffa. Geymsiuskúrinn gjör- eyffilagffist or miklar rikemmdir urffu á húsinu viff Héffinshöfffa og í trésmiffju, sem þar er til húsa ásamt öffru. Ávísanofals ó Akureyri Akureyri, 14. apríL Á LAUGARDAGINN var hand- tekinn maður hér í bæ, grunað- ur um ávísanaföljsun og játaði verknaðinn. Skömmu fyrir jól 1 vetur hafði hann komið inn á bílaverkstæði hér í bæ þar scm kurmingi hans var að vinma að kvöldlagi, gekk inn í skrifstofu verkstæðisins og stal þar ávís- anahefti úr skrilfiborðsskúffu, éin 'þess að kunningiinn yrði þess var. Þrjár ávsíanir gaf hanm út úr hefti þessu fyrir jólin, eina eftir áramótin og fjórar niú fyrir skömmu. Engin ávísunin náði þúsund króna fjárhæð, en alis nam hið svikna fé 5741 krómu. Máðurinn kvaðst hafa eyðilagt þau ávísanablöð, sem eftir voru í heftimu og fleygt heftiniu sj álfu, áður en hann var handtekinn. — Sv. P. Innbrot um helginn Fjögur innbrot um helgina . 4 BROTIZT var inn í fjögur fyrir- tæki um helgina. Afffaranótt laugardagsins var brotizt inn í Verksmiðjuna Sanitas og Sölu- turninn á Hlemmtorgi og afffara- nótt sunnudagsins var brotizt inn í Platínubúðina viff Tryggva götu og Vélsmiðjuna Þrym í Borgartúni. Frá Sanitas var engu stolið, en skemmdir voru unnar á hurð og peningaskáp, sem innbrots- mönnum tókst ekki að opna. Úr Söluturninum á Hlemmtorgi var stolið 40 lengjum af vindlingum. Úr Platínubúðinni var stolið tveimur sígarettulengjum. Frá Vélsmiðjunni Þrym í Borgartúni 25 var stolið tveimur rafsuðuköplum frá rafsuðuvél- um og er hvor kapall 75 metrar að lengd. Notar vélsmiðjan kaplana, þegar logsoðið er um borð í skipum. Gildleiki kapl- anna er % úr tommu og biður rannsóknarlögreglan, hvern þann, sem gefið geti upplýsing- ar um kaplana og þá sem stálu þeim, um að hringja í síma 21107. BÍTLARNIR HAFA ALDREI SAMID MEIRA AF LÖGUM EN EINMITT NÚ segir framkvœmdastj. tyrirtœkis þeirra TONY Branwell, einn af fram kvæmdastjórum Apple-plötu- fyrirtækis Bítlanna brezku, var meðal dómenda, þeg- ar vaiin var. Hljómsveit ungu kynslóðarinnar 1969“ í Aust- urbæjarbíói í gærkvöldi. Morg unblaffiff hitti Branwell aff máli skömmu eftir aff hann kom til íslands í fyrrakvöld. — Vis9uð þér fyrir komuna hingað, að til væri land, sem héti ísland? — Ég hafði óljósar hug- myndir um land með því riafni, já. — Vissuð þér þá eitthvað um íslenzkt „pop“? — Ekkert. — Nú er orðið æði lángt síðam Bítlarnir hafa haldið hljómleika. Er vom á nokk- urri breytingu þar á? — Já. Bítlarnir hafa hugsað sér að hefja hljómleikahald að nýju og nú síðast lét Jahm Lennon opinberlega í ljós áhuga á hljómleikáhaldi. Hins vegar hefur ekkert verið ákveð ið í þessum efnum. — Nú hafia eituriyf oft beyrzt nefnd í sambamdi við Bítlama. Hefur það nokkuð diregið úr vinsældum þeirra? — Ekki verður það séð á plötusölumni. — Mikla athygli vakti áhugi þeirra á austurlenzikum dul- spekifræðum. Er hamn alltaf jafn mikill? — Ja, þeir hafa gefið hug- leiðsluma upp á bátinn. — Hver þeirra fjórmenn- inga er að yðar dómi bezt gef- inn? — John Lennon. — Nú hefur hann nýlega vakið mikla athygli fyrir mót mæli „í rúminu“. Hann lét við upphaf þeirra í ljós þá ósk, að í mótmælalegumni heppnaðist honum að gera komu sinni barn . . . — Já, en ég veit ekki, emm hvort honum hefur tekizt það! Hins vegar veit ég, að mót- mælalega þeirra Yoko vakti einnig þá athygli, sem henni var ætlað að vekja til stuðn- ings friði í heimimum. Tony Branwell — Nú hafið þér unnið fyr- ir Bítlamia í nokkur ár. Haía þeir breytzt mikið á þessum tíma? — Nei, í mínium augum eru þeir emn söimu menm og áður. — Hvað er helzt á döfinni hjá þeirn núna? — f dag kom út í Bretlandi ný tveggja laga plata með" þeim og í júní kemur plata með 15 nýjum löguim. Bítlarn ir hafa aldrei samið meima af liöguim en einmitt nú.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.