Morgunblaðið - 16.04.1969, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1969
þegar pilsið er styttra .. . Lucy
brosti til mín. — Þú hefur svo
afskaplega fallega fótleggi, Mel
issa.
Ég leit á þá og vonaði, að
hún hefði á réttu að standa. Og
þeir sáust líka betur nú, þegar
pilsið var eins og tízkan bauð.
Ofurlítil sviðalykt kom á móti
mér, þegar ég kom fram í eld-
húsið til að pressa pilsið. Ég
var rétt búin að því, þegar
heyrði að framdyrnar voru
opnaðar og þeim lokað aftur. Ég
leit á klukkuna. Hún var fjögur.
Það var ofsnemmt til þess að
það gæti verið Kay og sömuleið-
is Nick og Mark kom aldrei úr
skólanum fyrr en langt gengin
fimm.
BIBLÍAN er Bókin
handa fermingarbaminu
Þungt fótatak heyrðist í gang-
inum og hurð var skellt.
Ég fékk fyrir hjartað. Hver
gat þetta verið af heimilisfólk-
inu? Ekki gat það verið Kay. í
hvaða skapi sem hún annars var,
þá var hún alltaf léttstíg. Ekki
gat það verið Mark. Hann hugs
aði aldrei nema um eitt og það
sama, þegar hann kom heim: að
fá eitthvað í svanginn.
Ég tók járnið úr saimbandi og
fór upp. Dyrnar á svefruherbergi
Kay voru opnar og eins Marks.
En dyrn.ar hjá Nick voru lok-
aðar.
Ég barði að dyrum. Ekkert
svair. Ég sagði við sjálfa mig, að
annski hefði hann komið snemma
heim úr vinnunni, af því að hanm
væri veikur.
Ég barði aftur og enn kom
ekkert svar. Ég hikaði og velti
því fyrir mér, hvort ég ætti að
fara niður aftur, en reyndi samt
einu sinni enn. Ég vissi, hvort
sem var, að Nick hlaut að vera
þama inni. En ég kunni því illa
að fá ekkert svar.
Við þriðju barsmíðina, hjá mér
heyrði ég sagt, ólundarlega: —
Hver er þar?
Ég leit inn fyrir hurðina. Ég
þurfti ekki annað en líta á ól-
undarlegt andlitið á Nick, til
þess að sjá, að ástæðan til heim-
komu hans var ekki nein veik-
indi. Ég var næstum farin að
óska að svo hefði heldur verið.
— Hvað viltu? spurði hann.
— Bara vita, hvort eitthvað
gengur að þér. Ég heyrði þig
koma inn — að minnsta kosti
hélt ég að það væri þú.
— Það var ég líka. Og . . .
— Hversvegna ertu kominn
heim, Nick? Svona snemma dags.
Þú kemur venjulega ekki fyrr
en langt gengin sex.
— Ég veít það. En úr því að
þú spyrð. . .þá er ég kominn
vegna þess að ég er farinn úr
vinnunni. Og áður en ég gæti
nokkuð sagt, hélt hann áfram:
— Og í guðs bænum, Melissa,
farðu ekki að skamma mig. Ég
get fullvissað þig um, að ég er
búinn að þola allt sem hægt er
að heimta, af hálfu þessa svíns,
hans Frintoras. Það þýddi nú
iítið þó að þú segðir mér, að ég
gæti haldið áfram einis og áður
og allt skyldi vera gleymt —
hamingjan skal vita, að ég hef
iðrazt eftir að hafa verið svona
bölvaður asni — «n hann hefur
ekki gleymt því eina einustu
mínútu. Ég hef aldrei sagt þér
hvernig hann hefur verið sí og
æ að kvelja mig. Ég vildi ekki
gera þér áhyggjur. Þú hefur
reynzt mér svo vel í þessum
vandræðum mímum, svo að mér
27
fannst ekki mætti minna vera
en ég léti þig halda, að allt
væri í lagi.
— Það hélt ég iíka, að það
væri, sagði ég, en mig hryllti
við þessu sem hann var að segja
mér.
—,— Nei, það var sannarlega
ekki allt í lagi. ðru nær, og
ég fullvissa þig um, að þetta
hefur verið hreinasta helvíti
undanfarnar vikur, og loks þoldi
ég ekki lengur við. Þessi með-
STAÐA BYGGINGARIÐNAÐARINS
LANDSMÁLAFÉLAGIÐ VÖRÐUR HELDUR ALMENNAN FUND
UM STÖÐU BYGGINGARIÐNAÐARINS
í SIGTÚNI MIÐVIKUDAGINN 16. APRÍL KL. 20,30
RÆÐUMENN:
GUÐMUNDUR EINARSSON,
verkfræðingur
Á EFTIR
VERÐA
FRJÁLSAR
UMRÆÐUR
STJÓRNIN.
GISSUR SIGURÐSSON,
húsasmíðameistari
OTTÓ SCHOPKA,
framkvæmdastjóri
HILMAR GUÐLAUGSSON,
múrari
— Nei, Júlíus, — erþetta ekki einum of.
COSPER
47Í9
I
ferð, sem ég hef sætt, var ekki
hundi bjóðandi auk heldur manni.
Mannfjandinn 'er með kvalalosta
En svo sauð upp úr í dag og
ég fór.
Ég var alveg orðlaus.
— Segðu mér bara álit þitt
á mér.
Ég veit ekki, hvað ég á að
halda. En það stendur ekki vel
á hjá okkur, að þú verðir at-
vinnulaus. þegar við eigum eftir
að greiða þessa peninga, sem ég
fékk lánaða.
Ég óskaði þess samstundis og
ég sagði þetta, að ég hefði ekki
farið að minna hainn á þessa
skuld, sem ég var í hans vegna.
Það þjónaði engum tilgangi, hvort
sem var.
— Ég vissi, að þú mundir
skamma mig, sagði hann gremju
lega.
— Það var nú annars ekki
ætlan mín. En ég hefði bara vilj-
að að þú yrðir kyrr í vinn-
unni, þangað til búið væri að
endurgreiða þetta.
— Ailt í lagi! Allt í lagi! Það
hefði auðvitað verið skynisam-
legra. En ég gat það bara ekki.
En hvað sem því líður, þá fæ
ég mér eitthvað annað að gera.
— Heldurðu kannski, að Jobn
gefi þér meðmæli? Þegar þú
sækir um nýtt starf, verðurðu
spurður, hversvegna þú hafir
farið úr því næsta á undan.
Nick hló, en það vair býsna
gleðisnauður hlátur.
— Ég held, að þú ættir ekki
að fara að leggja gott orð inn
fyrir mig hjá honum John Frint-
on. Eins og ég hef sagt þér, hef-
ur hann ekki gert annað en núa
mér þessu um nasir síðan það
skeði. Kannski ekki beint með
orðum, en með allri framkomu
sinni. Hann hefur verið alveg
óþolandi. Og svo í dag. . .
— Hvað gerðist sérstakt í dag?
— Æ í guðs bænum hættu að
yfirheyra mig. Þér ætti að nægja
að vita að öllum viðskiptum við
John Frinton er lokið. Sannast
að segja, þá talaði hann and-
Styggilega um okkur öll — nema
náttúrlega Kay, og hún er sodd-
an bjáni, sem talar eins og harnn
vill heyra. Að minnsta kosti get
ég ekkert gert að því, sem skeði
í dag og hver maður með ein-
hverja sómatilfinningu hefði far
ið að eins og ég gerði. Og sagt
það, sem ég sagði. Ég get full-
vissað þig um, að þessi bölvað-
ur asni fékk viðeigandi svar hjá
mér, og ég sé ekki neitt eftir
því. Hann sneri sér að mér reiði
lega. — Ég skal líka segja þér
annað: Ég ætla ekki að verða
hér heldur til lengdar og hlusta
á siðapredikanirnar hjá þér, um
hvað ég eigi að gera eða ekki
gera. Ég er orðinn þreyttur á
því, hvernig þú ferð með mig
eins og ég vær einhver krakki.
Mér hefur fundizt undanfarið,
að það væri fullmargt kvenfólk
hér á heimilinu. Þú og Lucy og
Kay — Mark sleppur betur, af
því að hann er enn í skóla — en
ég er búinn að fá nóg af þessu.
Ég er að fara. Hann seildist eft-
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Þér opnast margar nýjar Iciðir i dag, þótt eitthvað standi á
afrakstri.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Mikiar breytingar verða á vinnuskiiyrðum og heilsufari.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Spenningurinn er beizlaður, og rómanlíkin blómstrar.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Þú verður að taka ákvörðun, því að annars vcrða allir leiðir á þér.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Það eru mörg einkamál, sem þarfnast umhugsunar, og nú er
tíminn.
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Þú kippir harkalega við þér, en láttu það ekki glepja þig.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Samverkamenn og keppinautar eru timafrekir og valda þér á
ýmsan hátt vonbrigðum. Vertu því ákveðinn.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Nú geturðu litið yfir farinn veg með velþóknun.
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Reyndu af öllum mætti að halda fast við þín góðu áform, þrátt
fyrir íhlutan annarra.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Það er ekki til neins að þrasa heima fyrir, því að það hefur engin
áhrif á neinn, nema e.t.v. þig.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Þú verður freistingunni yfirsterkari 1 dag.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz
Þegar þú hefur fundið Iciðina skaltu strax byrja að vinna.