Morgunblaðið - 03.05.1969, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ 196S
11
— ÞESSI stutti tími hjá Arse
nal verður mér ógleymanleg
ur og þaðan á ég ánægjuleg
ustu stundir ævi minnar. Ég
lék með nokkrum þekktustu
knattspyrnufélögum Evrópu
á sínum tíma, en hvergi leið
mér eins vel og hjá Arsenal
Og þar kynntist ég félags-
anda, sem ég hygg að eigi fáa
sína líka, og einnig ótrúleg-
um sigurvilja og baráttuþreki
sem hefur reynzt mér hald-
gott á öðrum sviðum en í
knattspymunni síðar á lífs-
leiðinni.
Eittihvað á þessa leið fór-
ust Albert Guðmundssyni
orð þegar við röbbuðum við
hann á d'ögunum um dvöl
hans hjá Arsenal. Við spurð-
um hann þá, hvernig hefði
Iúð Arsenal 1947 á Highhury -leikvangi. Albert Guðmundsson er fimmti frá viastri af leik-
mönnum Arsenal, en við hlið hans stendur markvörðurinn S windin, síðar framkv.stj. Arsenal
Sigurvilji og baráttuþrek ein
kenna félagsanda Arsenal
— segir Aibert Guðmundsson sem lék
með félaginu fyrir rúmum 20 árum
staðið á því að hann hóf að
leika með félaginu.
— Jú, ég var staddur í Lund
únum ásamt íslenzku liði ár-
ið H946, og lékum við þar
einn leik. Strax eftir leikinn
hafði framkvæm<iastjóri Arse
nal, Tom Wittaker, samband
við mig, og spurði hvort ég
hefði áhuga á að koma til fé-
lagsins og leika með því. Eg
þáði boðið strax með þÖkkum
og örfáum ctögum síðar lék ég
min-n fynsta leik.
— Gegn hverjum var sá
leikur?
— Við lékum við tékkneska
liðið Sparta, og leiknum lykt-
aði með jafntefli 2:2.. Ég var
svo lánsamur að skora jöfnun
armarkið fyrir Arsenal
skömmu fyrir leikslok, og fyr
ir bragðið hlaut ég gott lof í
blöðunum. Til að mynda man
ég að ein fyrirsögnin hljóðaði
eitthvað á þessa leið: „ís-
lendingurinn bjargaði brezkri
knattpyrnu, þegar atvinnu-
mennirnir brugðust..,
— Gerðir þú aldrei atvinnu
samning við Arsena'l?
— Jú, ég undirritaði at-
vinnusamning við félagið, e»
hann tók aldrei gildi, því að
félaginu tókst ekki að fá at-
vinnuleyfi fyrir mig í Eng-
landi. Ég lék allan tíma minn
hjá Arsenal, sem áhugamað-
ur, eins og ég hafði gert áður
hjá Glasgow Rangers. Ég kom
til Arsenal á miðju leikári
1946 og keppti fyrir félagið
það leikár og hið næsta, bæði
í deildarkeppninni og bikar-
keppninni. En ég var þó ekki
eini áhugamaðurinn, sem
keppti fyrir Arsenal á þess-
um tíma, því að með mér
léku einnig írskur læknir að
nafni O’Flannagan, og Bern-
hard Joy, sem átti síðar eftir
að 'leika í enska landsliðinu
og er nú þekktur íþróttafrétta
maður í Englandi, En ég 'held
ég megi fullyrða, að síðan
hafi áhugamenn ekki leikið
með aðalliði félagsins.
— Hvernig gekk Arsenal
þessi tvö ár, sem þú dvaldir
hjá þeim?
— Allþokkalega. Annað ár-
ið urðum við í fimmta sæti í
deildinni, og hitt árið kom-
umst við í undanúrslit í bik-
arkeppninni. Og þarna lék ég
með og á móti ýmsum þekkt-
ustu knattspyrnumönnum Eng
lendinga á þessum tíma, en
tveir samherjar verða mér þó
sérstaklega minnisstæðir. Það
voru þeir Cliff Bastin og Ted
Drake, báðir gamlkunnar
kempur, sem farnir voru að
eldast og da'la, en ég lærði þó
mikið af þeim.
— Geturðu lýst félagsandan
um, sem ríkti og ríkir víst
ennþá innan herbúða Arse-
nal?
— Það er afskaplega erfitt
að iý.a honum í orðum, en
hann er ótrúlegUT. Einihver ó-
sýnileg félagsbönd tengja
alla leikmennina saman, og
þau ná langt út fyrir leikvang-
inn sjálfan. Takmarkalaus sig
lu-viljinn er öllum sameigin-
legur, og í hverjum leik er bar
izt ‘likt og um hinzta leik sé
að ræða. Já, þetta var manni
ómetanlegur skóli síðar meir.
Whittaker vaT húsbóndinn, og
honum hlýddu allir. Hann
stjórnaði þó miklu fremur af
góðmenm-ku en af hörku.
Hann var ákaflega mannleg-
ur og lagði mikla áherzlu á að
efla samtakamátt félagsins.
Ég varð aldrei var við að
hann beitti hörku eða freikju,
enda maut hann virðingar
allra sem honum kynntust.
— Hefurðu haldið einihverju
sambandi við Arsenal eftir að
þú hættir sem leikmaður hjá
þeim?
— Arsenal hefur jafnan ver
ið mér einstaklega velviljað,
og í þau fáu skipti sem ég hef
heimeótt félagið, 'hef ég fund-
ið að það er og var einhvers
virði að vera Arsenal-maður.
Þeir buðu mér til að mynda
að vera viðstaddur úrslitaleik
féiagsins í bikarkeppninni um
þremur árum eftir að ég var
farinn yfir til Frakklands frá
Englandi. Nokkrum árum síð-
ar bauð félagið mér svo með
sér í keppnisför til Brasilíu
sem gestaleikmanni, og er það
víst í eina skiptið, sem félag-
ið hefur tekið lánsmann í
slika för. Þótti mér þetta að
sjálfsögðu mikill heiður, en
ekkert þessa finnst mér þó
jafnast á þann velvilja, sem
félagið tíýnir með komu sinni
hingað, sagði Albert að end-
ingu.
vel það. Fimm sinnum á átta
leiktímabilum (1931—38) var
Arsenal Englandsmeistari, þar
af þrívegis í röð árin 1933,
1934 og 1935. Að vísu naut
Chapmann þess ekki að sjá all
án árangur erfiðis síns, þar
sem hainn lézt árið 1934. Frá
1938 hefur Arsenal aðeins unn
ið deildarkeppnina tvívegis —
árið 1948 og 1953, en oft verið
nálæigt því.
ÓVÆNT ATVIK I
BIKARÚRSLFTUM
Arsenal tók fynst þátt í bik-
arkeppninni 1890 en félagið hef
ur komið þar mikið við sögu.
Á Wembley hefur félagið sex
sinnum leikið til úrslita um bik
arinn, og þar af farið þrisvar
með sigur af hólmi. Hafa allir
þessir úrslitaleikir þótt sér-
lega eftirminnilegir, vegna ó-
væntra eða sögulegra atvika.
Frægasta atvikið er þó vafalít
ið frá 1927, er Arsenal lék til
úrriita við Cardiff. Aðeins ör
fáar mínútur voru til leikisloka
og staðan 0:0, þegar miðherji
Walesmannanna reyndi örvænt-
ingarfullt skot að marki Ar-
senal úr vonlausri aðstöðu. Lew
is, markvörður Arseniail, átti
í engum erfiðleikum með að
handsama knöttinn, en þar sem
tveir leikmenn Cardifif sóttu a'ð
honum, sneri hann sér undan
til að taka af sér höggið. Um
leið og hann sneri sér missti
hann knöttinn með óskiljanleg
um hætti, og horfði eftir hon
um sfcoppa yfir mankMnuna.
Þetta varð eina mark leiksins,
að Cardiff-leikmennirnir urðu
þess heiðurs aðnjótandi að
verða fyrsta liðið til að fara
með bikarinn frá Englandi og
yfir til Wales. Og það er ó-
meitanlega kaldhæðni örlag-
anna, að aumingja Lewis, mark
vörður Arsenal, var einmitt
ilandsliðsmarkvörður Wales-
manna. Fleiri dæmi um sögu-
'leg atvik úr bikarleikjum Ar-
senal mætti tiltaka, en hér gefst
ekki rúm til þess. Lítum í þess
stað á eftirfarandi töflu, sem
sýnir frægðarferil félagsins á
þessu eftirminnilega tímabili:
Ekkert annað enskt lið hefur
náð slíkum árangri sem Arsen
al á áratugnum fyrir heimsstyrj
öldina síðari. Chapman sáði
og hóf að uppskera, en þegar
hann lézt tók George Allison
við framkvæmdastjórastarfinu
og fúllkomnaði verkið. Á þess
um árum þótti allt sem við-
kom Arsenal fréttnæmt og
fylgzt var með öllu sem Ar-
senal-menn tóku sér fyrir hend
ur. Þeir voru guðum líkastir í
huguim knattspymuumnenda og
sátu í upphæðum, þar seim eng-
ir virtust ná til þeirra. En það
vita Arsenal-menn einir, hvað
það kostaði að halda velli á
þessum olympísku hæðum knatt
spyrnunraar. Allir vildi sigra
Arsenal, það voru tugir Da-
víða, en aðeins einn Goliat!
ENDURREISNARSTARF
WHITTAKERS
Heimsstyrjöldin síðari batt
enda á sigurferil Arsenal um
sinn, því að meðan hún geis-
aði lagðist bæði deilda- og bik
arkeppnin niður. En árið 1948
er félagið aftur komið í eld-
línuna og nú var Tom Whitt-
aker tekinn við framkvæmda
stjórastöðunni. óneitanlega
þurfti hugrakkan man.n til þess
að fara í spor þeirra Chap-
manis og Allisons, en Whitt-
aker, sem hafði verið náinn
samverkamaður beggja, leysti
verkefni sitt prýðilega af
hendi. Undir leiðsögn hans sigr
aði Arsenal deildakeppnina ár
ið 1948 og 1953, og bikarinn
árið 1949.
Og það var einmitt Whittak
er, sem fékk Albert Guðmunds
son til Arsenal. Þar lék Al-
bert með mörgum frægum leik
mönnum og einn þeirra var mark
vörðurinn Swindin, sem síðar
tók við framkvæmdastjóra-
stöðu félagsins. En velgengnis
tíma Arsenal lauk með fráfalli
Whittakers, því að frá 1953 hef
ur félagið ekki orðið ofar en
í 3ja sæti í deildakeppninni né
komist í úrslit í bikarkeppn-
inni.
Árið 1966 var Billy Wright
fyrrum fyrirliði enska lands-
liðsins og leikjahæsti landsliðs
maður Englands, ráðinn fram-
kvæmdastjóri Arsena'l í stað
Swindin. En félaginu vegnaði
miður vel undir stjóm hans,
svo að hann var fljótlega lát-
inn víkja. (Wright var nýhætt
ur sem leikmaður hjá Úlfun-
um, þegar hann fór yfir til Ar
senad). f hans stað var ráðimn
Bertie Mee, einn af þjálfurum
Arsenal, og hefur félagið mjög
sótt í sig veðirð á ný undir
hans stjórn.
Framkvœmdastjóri
Viljum ráða mann nú þegar til þess að annast daglega stjórn
og rekstur á trésmiðju og bifreiðaverkstæðum vorum.
Aðeins maður með einhverja reynslu í stjórnum fyrirtækja
kemur til greina.
Skriflegar umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf,
ásamt kaupkröfu, sendist til undirritaðs eigi síðar en 15. þ m.
KAUPFÉLAG ARNESINGAR
Oddur Sigurbergsson.
Vymura vinyl-veggfóður
ÞOLIR ALLAN ÞVOTT
LITAVER Grensásvegi 22-24
[£
Simi 30280-32262
Leiktímabil: Bikarkeppnin: Deildin:
1925—26: 8-liða úrslit 2. sæti
1926—27: Úrslit gegn Cardiff — töpuðu
1927—28: Undanúrslit
1928—29: 8-liða úrslit
1929—30: Urslit geign Hnddersefield — unnu
1930—31: Meistarar
1931—32: Úrslit gegn Newcaste — töpuðu 2. sæti
1932—33: Meistarar
1933—34: 8-liða úrslit Meistarar
1934—35: 8-liða úrslit Meistarar
1935—36: Úrslit og unnu Sheffield United.
1936—37: 8-liða úrelit 3. sæti
1937—38: Meistarar