Morgunblaðið - 03.05.1969, Blaðsíða 18
18
MORGUNB-LAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1909
Ingunn Eyjólfsdóttir
frá Laugarvatni
Ingunn Eyjólfsdóttir, fyrrum
húsfreyja að Laugarvatni, and-
aðist að heimili dóttur sinnar og
tengdasonar, hjónanna Svanlaug
ar og Jóns Leós .bankafulltrúa
Blönduhlíð 6 í Reykjavík sunnu
daginn 27. apríl s.l. Útför henn-
ar fer fram í dag.
Ingunn var fædd á Laugar-
vatni 2. ágúst 1873. Foreldrar
hennar voru merkishjónin,
Ragnheiður Guðmundsdóttir og
Eyjólfur Eyjólfsson, sem lengi
bjuggu á Laugarvatni, en Ing-
unn og ættfólk henn&r höfðu bú-
ið á þessu höfuðbóli samfleytt í
250 ár, er þau Ingunn og eigin-
maður hennar, hinn þjóðkunni
bændahöfðingi, Böðvar Magnús-
son, létu það af hendi til hins
veglega skólaseturs, er þar hef-
ur nú verið reist.
Ingunn var af merkum bænda
ættum komin, sem hér verða ekki
- t
Maðurinn minn
Auðunn Vigfús Auðunsson
Höfðaborg 39,
lézt að heimili sínu aðfara-
nótt 1. maá.
Þórey Valdimarsdóttir
og fóstursonur.
t
Móðir okkar
Davíðsína Sigurðardóttir
Langholtsvegi 140,
lézt að heimili sínu 1. maí.
Eiður Hafsteinsson
Halldóra Friðriksdóttir.
t
Bróðir minn
Ólafur Kjartansson
andaðist að Elli- og hjúkrun-
anheimiiinu Grund 30. apríl.
Þorbergur Kjartansson.
t
Runólfur Jónsson
lézt að vistheimiiinu Grund
þann 30. april.
Karitas Sigurðardóttir
Sig. Runólfsson.
t
Magnús Jón
Magnússon
frá Hellissandi
andaðist á Hrafnistu 30. apríl.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Fyrir hönd vandamanna.
Þórdís Guðjónsdóttir
Jóhanna Friðbjarnardóttir.
raktar, heldur aðeins í því efni
vísað til bókarinnaj- „Undir tind
um“ eftir Böðvar Magnússon
Leiðir þerrra, Ingunnar og Böð-
vars lágu sneomma saman og sam
leið þeima var löng og góð. Ör-
lögin höguðu því svo, að á sama
árinu 1887 önduðust bæði Eyj-
ólfur, faðir Ingunnar og Arn-
heiður, móðir Böðvars. Varð það
til þess, að Magnús, faðir Böd-
vars, sem ,ður hafði búið að Út-
hlíð í Biskupstungum, fluttist
með nokkuð af börnum sínum að
Laugarvatni, og giftust þau síð-
an, hann og Ragnheiður, hinn 4.
desember 1888. Segir svo í bók
Böðvars, Undir tindum, að þá
hafi verið 16 manns í heimili á
Laugarvatni. Ingunn varð þá 15
ára, en Böðvar 10 ára að aldri,
eir þau þannig urðu fóstur- og
stjúpsystkini.
Ástir, sem entust lengi og vel,
munu snemma hafa tekist með
þeim, Ingunni og Böðvari. Þau
giftust árið 1901, en hófu búskap
að Útey í Laugardal og bjugu
þar í 7 ár. Að Laugarvatni
fluttu þau svo aftur og tóku við
búi þar, vorið 1907, en þar
bjuggu þau síðan stórbúi við
mikla rausn og myndarskap um
30 ára skeið. Áður en þau hættu
þar búskap hafði Hérasskólirm
á Laugarvatni verið reistur, að
lokinni margra ára bau-áttu Böð-
vars og góðra samherja hans fyr
ir því mikla menningarmálí.
Ekki mun Ingunn hafa gert
neina tilraun til að leggja stein
I götu þess, að skólaruim yrði
valinn staður á Laugarvatni.
Trúlega mun hún hafa fylg‘
manni sínum heil og óskipt í þvi
stóra áhugamáli har.s eins og
hún mun ævinlega hafa gert í
ö'llu, sem til gagns og góðs mátti
leiða. Ingunn, sem var mikil og
góð kona, átti stóra sál. En ekki
gæti það talist ótrúlegt að nokk-
ur átök hafi það kostað innra
með henni, er hún tók þá ákvörð
un að láta af hendi og úr ætt
sinni óðalið mikla, sem margir
þjóðkunnir menn, hafa talið eitt
hinna allra fegurstu og kosta-
ríkustu bændabýla á þessu landi.
En Ingunn var gáfuð kona og
hún var stór í öllu, en þó
kannski stærst í lítillætinu, kær-
leikanum og öllu sem blítt var
og gott. Hún stjórnaði hinu stóra
fjölmenna heimili sínu á Laugar
vatni af mikilli rausr. og mynd-
arskap. Heimilið var í þjóðbraut
t
Sonur okkar og bróðir
Sigurður Gunnar
Magnússoi.
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 5.
maí kl. 3.
Edda Þórs
Magnús Valdimarsson
Már Magnússon
Katrin E. Magnúsdóttir.
t
Hjartans þakkir til allra
þeirra, sem sýndu mér sam-
úð við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar og mó'ður
Erlu Valtýsdóttur
Grýtnbakka 32.
En sérstakar þafckir færi ég
starfstfélöguim mínum í
Slökkviliði Reykjavíkur og
hr. forstjóra Otihari Elling-
sen og starfefólki hans.
F. h. vandamanna,
Guðmundur Bergsson
Berglind Guðmundsson.
og þar fóru fáir hjá garði. Gest-
rismán var víðkunn og þaðan fór
engiinn án þess að njóta góðs
beina. Húsbóndinn var höfðingi
sveitarinnar og mikils metin í
sínu héraði og sinni stétt, en hús
freyjan átti sinn ríka þátt í allri
hams velgengni og stóð honum
hvergi að baki að öllum höfð-
ingsskap.
Gæfa þeirra hjóna var miki'l.
Hjónabandið ástríkt og gott og
börnin mörg og vel gefin. Ell-
efu dætur og einn sonur kom-
ust til fullorðins ára og eru öll
á Kfi, en eina dóttur misstu þau
nýfædda.
Það hefur því ekki oft verið
hljóðlátt og rólegt í kring um
húsmóðurina á Laugarvatni á
þeim tíma, sem börnin voru
að alast upp. En Ingunn
þurfti sjaldan að beiita
hörku eða valdi við állan þenn-
an hóp. Hennar kærieiksríka bros
var áhrifaríkara en vöndurinn
hjá sumum öðrum. Hún og þau
hjónin létu sig þá heldur ekki
muna um að taka algerlega til
uppeldis eitt barnabarn sitt og
annað að nokkru leyti.
Það var oft glatt á hjalia og
oft dansað og sungið í baðstof-
unni á Laugarvatni á þessum
árum. Annað danshús var þá
ekki til þar. Dæturnar mörgu og
ungu voru mikið fyrir hljómlist
og dans, og ung'lingar frá ná-
granmabæjunum áttu þar margar
ánægjustundir. Ég var einn af
ættingjum húsbóndans, en átti
heima í fjarlægri sveit. Það kom
þó fyrir að ég var meðal þátt-
takenda í þessum glaðværu sam
komum og ein þeirra hefur ver-
ið mér sérstaklega minnisstæð
Ég var þá ekki eldri en svo, að
þrátt fyrir hinn glæsilega ung-
meyjahóp, man ég bezt eftir hús
freyjunnL Hún var þá glöðust
allra. Mér hefur oft dottið í hug
þessi ánægjulega kvöldstund á
Laugarvatni, en það var ekki
fyrr en á fullorðmsárum að mér
skildist að gleði Ingunnar þá, í
öllum hennar önnum, var auðvit
að fyrst og fremst vegna gleði
barnanna hennar og okkar ung-
linganna, sem með þeim glödd-
umst.
Eftir að þau Laugarvatnshjón
ni höfðu látið Héraðsskólanum
jörð sína í té og bú á vægara
verði en verðmætin námu,
bjuggu þau síðan áfram á Laug-
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vináttu við fráfall
unnusta míns og föður
Jóns Sigurðssonar
er fórst með m.b. Dagný
hinn 7. marz sl. Slysavarna-
félagínu, skipstjórum og
skipshöfnum, hjónunium á
Garðskagavita, svo og öllum
sem tófcu þátt í umfangsmik-
illi leit, færum við sérstakt
þalkklætL
Júlíana Gestsdóttir
Rúnar Örn Jónsson
StykkLshóImL
arvatni á meðan heilsa leyfði.
Hann héít áfram hreppstjórastöirf
um og fleiri trúnaðarstörfum fyr
ir sveit sína og sýslu, en hún
húsmóðurstarfinu með sama
myndiarbnag og áður, þar til hún,
88 ára að aldri, varð fyrir slysi,
er lagði hana í rúmið, svo að eft -
ir það hafðii hún ekki fótavist.
Sagt er að hvarjum gefi, sem
hann er góður til, og Ingunn
þurfti hvorki á langri sjúkrahús
vist eða elliheimili að halda. Hún
var velkomin á hið yndislega
heimiíi yngstu dóttur sinnar og
eiginmanns hennar, sem nafn-
greind voru í upphafi þessara
orða. Þar naut hún síðan um
sjö síðustu ár æfinnar, alls þess,
sem hún sjálf hafði til unnið, að
svo miklu leyti, sem maninlegur
máttur og kærleikur geta veitt.
Áttu þau hjónin Svanlaug og
Jón Leós, þar jafnan hlut ásamt
börrnum sínum, að því að veita
hinni háöldruðu merkiskonu alla
þá umönnun, sem hennar sterka
sál bezt gat notið á hinu langa
ævikvöldi. En sálarþrekið entist
henni í ríkum mæli fram til síð-
ustu daga.
Onnur börn Lauigarvatns-
hjóna eru: Ragnheiður, ekkja
Stefáns heitins Diðrikssonar,
kaupfélagsistjóra á Minni-
Borg, Magnús, hreppstjóri á
Laugarvatni, kvfntur AðaTbjörgri
Guðimundi Guðmundssynd bónda
á Efri Brú, Laufey, gift PáliDið
rikssynL bónda á Búrfelli, Hrefna
ekkja Stefáns Ingvarssonar,
bónda, Laugardalshólum, Magn-
ea, gift Jónasi Þorvaldssyni, fyrr
verandi skólastjóra, Hlíf, ekhja
Guðmtundar Gíslasonair íkóla-
stjóra, Sigríður, gift Valtý Guð-
mundssyni, fyrrverandi bónda i
Miðdalskoti, Lára, gift Hauki Egg
ertssyni, framkvæmdastjóra, Auð
ur Bergþóra, gift Hjalta Bjarn-
finnssyni, verksmiðjustjóra og
Annia Bergljót, gift Benjamín
Halldórssyni, húsasmið.
Öll hefðu þessi böm Ingunnar
á síðustu árum ævi hennar áreið
anlega viljað gegna hinu veg-
lega hlutverki yngstu dótturinn
ar. En hún varð þeirrar gófu
aðnjótandi og enginn mun sak-
ast um það, því samstaða þeirra
systkinanna er frábær og öll
báru þau mikla umhyggju fyrir
sinni göfugu móður.
f dag verður Ingunn á Lau-g
arvatni flutt aftur heim í dal-
inn sinn fagra, sveitina sína.
Þar verður hún ’tögð til hinztu
hvildar við hliðina á vininum,
sem hún unni. Hann andaðist 10.
október, 1966 og bíður hennar
þar.
Frændur og vinir, Laugdæl-
ingsu- og aðrir Árnesingar munu
fjölmenna að Laugarvatni í dag
til þess að votta þar virðingu
sína og þakkir einni af merk-
stu konum í íslenzkri bænda-
stétt á þessari öld.
Blessuð sé minning hennar.
Ingólfur Þorsteinsson.
Kveðja frá fósturdóttur.
INGUNIN Eyjólfsdóttir fæddist
2. ágúst 1873 á Laugarvatni. Gift-
ist Böðvari Magnússyni 2. des-
ember 1901. Eignuðust þau 13
börn, 12 dætur og 1 son, en
misstu eina dófctur unga. Enn-
fremur ólu þau upp eina dóttur-
dóttur.
Eiginmann sinn missti Ingunn
1<8. október 1966.
Amma mín!
Með nokkrum línum vil ég
láta í ljós þakklæti mitt fyrir
svo ótal margt. Þú reymdist mér
ávalLt isem bezta móðir. Þú áttir
svo kærleiksríkt íhjarta og ljúfa
Lund. Aldrei sá ég þig skipta
skapi. Ef eitthvað bjátaði á, tókst
þú því með einstakri ró og jafn-
aðargeði. Þegar gest bar að garði
brást þú skjótt við vegna þinnar
meðfæddu gestrisnL því ekki
var til að tala um annað en að
komumaður þæði góðgerðir, enda
þótt hann ætlaði aðeinis að stanza
stutta stund. Öllum vildir þú gott
gera. Sá eiginleiki var þér svo
eðlilegur að lifa fyrir aðra og
vera' þeim til góðs. Gott var að
leita til þín í öllum vanda; alltaf
áttir þú nóg ráð og heilræði. Og
bænir þínar fyrir bömum og
barnabörnum voru einlægar og
heitar. Oft varstu bæiniheyrð. Ég
minnist þeirra stunda, er þú tal-
aðir við mig um Guð og kennd-
ir mér margar bænir. Ekkert
vegamesti er betra út í lífið en
hol’I ráð og kristinfræðsla.
Guð gaf þér góða theilsu, amma
mín, þar til síðœbu árin, er þú
þurftir sökum slappleika að vera
rúmliggjandi. Átti ég margar
yndislegar samverustundir með
þér á heimili Svanlaugar og Jóns
Leós í Blöndiuhlíð 6, en hjá þeim
nautst þú alúðlegrar umhyggju,
sem þú varst svo þakklát fyrir.
Og einnig þar varst þú til gleði
og ánægju, sem beimilisfólkið
þar mun minnast með þakklætL
Sjúkleika þinn barstu með þol
inmæði og rósemi. Aldxei eitt
æðruorð. Þú vissir að þér bar að
bíða, þar til Guð fcallaði þig
heim til sín. Nú þegar ævidagar
þínir eru allir mun ég minmast
þín og afa rneð þakklæti. Hjá
ykkur átti ég yndislegt heimili.
Blessuð ®é minning ykkar.
Áslaug Stefánsdóttir.
HÖRÐUR ÓLAFSSON
hæstaréttarlögmaður
skjalaþýðandi — ensku
Austurstræti 14
símar 10332 og 35673.
FÉLAGSLÍF \
Farfuglar — ferðameon
Tvær gönguferðir um helgina.
1. Esja.
2. Móskarðshnúkar.
Farið frá bifreiðastæðinu við
Arnarhói. Farseðlar við bílana.
Ármann, knattspymudeild
2. fl. æfing á Melavelli á
þriðjudag 6. maí kl. 7. Áriðandi
að allir mæti.
Þjálfari.
FISKISKIP
TIL SÖLV
Af sérstökum ástæðum höf-
um við til sölu og afhending-
ar nú þegar, sérlega góðan 50
smálesta véfbát með trollút-
búnaði. Upplýsingar í sima
18105 og eftir skrifstofutíma
36714.
Ingunn andaðist í hárri elli 27. apríl 1969 á heimili yngstu dótt- ur sinnar, Svanlaugar og Jóns Leos, Blönduhlíð 6. Fasteignir og fiskiskip, Hafnarstræti 4, sími 18105.
1 Þökkum innilega auðsýnda [ samúð og vinarhug við andlát
og útför töður okkar, tengdaföður og bróður
ÁRSÆLS SVEINSSONAR
útgerðarmanns.
Fögrubrekku, Vestmannaeyjum.
Asta Arsælsdóttir, Bernódía Sigurðardóttir,
Lárus A. Arsælsson, Bergþóra Þórðardóttir,
Ella Arsælsdóttir, Kristján Björnsson,
Leifur Arsælsson, Guðný Bjamadóttir,
Lilja Arsælsdóttir, Sigurður Guðnason,
Arsæll Ársælsson, Guðrún Kjartansdóttir,
Sigurveig Sveinsdóttir,