Morgunblaðið - 03.05.1969, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. MAÍ 1989
trtgjeiandi H.f. Árvafcar, Eeyfcjavik.
Framfcvacmdastj óri Haraldur Sveinsaon.
íU.tstjórai' Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johanness'en.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Bitstj ómarfulltrúi Þorbjöm Guðlmundsson.
Frétfcaisitjóri Bjiörn Jóhannsson.
Auglýs ingastj óri Arni Garðar Kristinsson.
Ritetjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími l»-10ð.
Auglýsdngar Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
Áafcniftargjald fcr. 150.00 á mánuði innanlands.
í lausasiolu fcr. 10.00 eintakið.
VÖRUVÖNDUN OG
FJÖLBREYTTARI
1FRAMLEIÐSLA
¥ samtali við tvo Bandaríkja-
-*■ menn, sem birtist hér í
blaðinu í fyrradag, kemur
það m.a. fram að íslending-
ar fluttu á árinu 1968 20.5%
af heildarinnflutningi frystra
fiskflaka og fiskblokka til
Bandaríkjanna. Aðeins Kan-
adamenn flytja meira inn af
þessum fisktegundum til
Bandaríkjanna. Veruleg sölu
aukning á íslenzkum fiski
varð til Bandaríkjanna á ár-
inu 1968. í samtalinu kom
það jafnframt fram, að gæði
fiskjarins skipta höfuðmáli.
leggja verður geysilega á-
herzlu á vöruvöndun í sam-
bandi við framleiðsluna. Ef
slakað er á kröfunum um
fyllstu gæði fiskjarins, þá
töpum við markaðnum,
sögðu Bandaríkjamennirnir.
Hraðfrystiiðnaðurinn hér
á landi hefur undanfarin ár
* lagt sig mjög fram um að
bæta gæði fiskafurða sinna.
Af þeirri viðleitni hefur orð
ið mikill árangur. Þess vegna
hefur íslenzki fiskurinn líka
verið að vinna á á stærsta og
bezta markaði okkar í Banda
ríkjunum.
Én það er ekki nóg að
vanda útflutningsvöruna. Við
verðum jafnframt að gera
hana fjölbreyttari. í samtali
við Bandaríkjamennina kom
það fram að unnið er að því
- að skapa markað fyrir nýjar
tegundir fiskafurða frá ls-
landi. Sérstök áherzla er lögð
á að vinna markað fyrir
lönguflök, flatfisk, rækjur og
hörpudisk. Hins vegar eru
ekki miklar horfur á að þar
takist að vinna markað fyrir
síld eða síldarafurðir. Valda
því neyzluvenjur Bandaríkja
manna.
En íslenzkar fiskafurðir
eru fluttar til fleiri landa en
Bandaríkjanna. Einnig þar
ber að leggja áherzlu á meiri
sölu. Nauðsyn vöruvöndunar
*er alls staðar jafn mikil. Við
eigum í harðri samkeppni við
aðrar fiskveiðiþjóðir, sem sí-
fellt taka upp nýjungar og
leggja áherzlu á vöruvönd-
un.
Frystiiðnaðurinn er í dag
stóriðja á íslandi. Þess vegna
skiptir öllu máli að hún sé
rekin á heilbrigðum grund-
velli. Á sl. ári var svo kom-
ið fyrir þessari mikilvægu
atvinnugrein, að allmörg
frystihús höfðu stöðvazt. Þau
voru rekiri með stórfelldum
halla. Af því leiddi að at-
vinnuleysi skapaðist í fjöl-
mörgum byggðarlögum. Slíkt
ástand má ekki skapast að
nýju. Hallalausan rekstur
frystihúsanna verður að
tryggja. Það væri mikil
ógæfa ef þeim yrði á ný
sökkt í fen hallareksturs.
Það er ekki nóg að skipa
þessum framleiðslutækjum
að skila góðri og vandaðri
vöru til útflutnings á mark-
aði okkar erlendis. Það má
ekki búa þannig að þeim, að
þau geti ekki endurnýjað
vélar sínar og tæki. Þegar
þannig væri komið yrði ó-
hægara um vik með lífsnauð
synlega vöruvöndun.
Allt ber hér að sama
brunni. Heilbrigður rekstur
útflutningsfyrirtækjanna er
frumskilyrði atvinnu- og af-
komuöryggis almennings í
landinu. Sá tími hlýtur einn-
ig að renna upp, að íslend-
ingar fullvinni fiskafurðir
sínar en selji þær ekki sem
óunnið hráefni úr landi.
ÓHUGNANLEG
SKEMMDAFÝSN
Okemmdafýsn unglinga og
^ jafnvel fullorðins fólks
og virðingarleysi fyrir eign-
um annarra er komið á óhugn
anlegt stig hér á landi. Það
eru daglegir viðburðir að
skornir séu hjólbarðar undir
bifreiðum og reiðhjólum.
Bifreiðar eru rispaðar og rúð
ur brotnar. Almenningssíma-
klefar í borginni eru eyði-
lagðir og stór spjöll unnin á
görðum og sumarbústöðum.
Þjófnaðir unglinga og árásir
á gamalt fólk eru allt að því
daglegir viðburðir. Þessi
skrílmennska er sorglegur
vottur um menningarleysi.
Þá sem skemmdarverkin
fremja skortir greinilega
þekkingu á frumstæðustu
þáttum umgengnismenning-
ar.
En hvað er til ráða gegn
þessum ósóma?
Þess verður fyrst og fremst
að krefjast að foreldrar inn-
ræti börnum sínum betri
siði og virðingu fyrir hags-
munum og eignum samborg-
KíWW.v.™"
Leikhúsgestir í A-Berlín
hlæja að Ulbricht
— Skrítlur um hann sagðar opinberlega
— í tyrsta sinn
Leifchúsgestir í A-Berlín
Aldrei hefur verið skortu"
á „neðanjarð,arskrítlum“ um
Waiter Ulbricht, valdsmann
Austur-Þýzkalands, en um
þessar mundur geta A-Þjóð-
verjar hlegið að skrítlum um
Ulbricht, sem samþykkt hef-
ur verið að flytja megi opin •
berlega. Kemur skrítla þessi
fram í nýju leikriti eftir a-
þýzka leikritaskáldið Helm-
ut Baierl, sem áður var að-
stoðarmaður hins kunna leik-
ritahöfundar Bertholt Brecht.
í leikritinu er póstafgreiðlsu
maður í a-þýzkri veirksmiðju
látinn vara einn starfsmann-
inn við að setja fleiri en eitt
frímerki með mynd af Ul-
bricht á bréf. „Ég lít svo á
hlutina, að persónudýrkun
hefjist með því að nota tvö
slík frímerki", segir harnn og
leikhúsgestir hlæja óspart.
Leikrit Baierls snýst um
unga stúlku, Jóhönnu, sem yf
irgefur samyrkjubú og hefur
'leit að hinum langþráða „sos-
íaliska" manni í landbúnaðar
vélaverksmiðju. Leikritinu
var gefið nafnið Johanna von
Döblen, og er hér um að ræða
einskonar þýzkan orðaleik
varðandi heilaga Jóhönnu
Döbeln er bær sá, er rekur
landbúnaðarvéla verksmiðj una
Baierl tekst að láta leik-
húsgesti hins fræga leikhúss
Austur-Berlínar, „Berliner En
semble“ h'læja að ýmsu því,
sem áður hefur ekki mátt hafa
í flimtingum austur þar. f
einu atriðanna spyr flokks
riitari verksmiðjunnar Jó-
ávana hennar að túlka sósíal
ismamin bókstaflega, minnir
hún hann á gífurlegan rauð
an borða, sem blaktir yfir
verksmiðjunni með á'letrun-
inni: „Verksimiðjan þarfnast
allra og alliir þarfnast verk-
smiðjunnar."
„En þetta er aðeins slag-
orð“, útskýrir flokksritarinn.
Áhorfendur öskra af hlátri.
Hið opinbera máigagn komm
Walter Ulbricht.
2 frímerki: Persónudýrkun
Neues Deutschland, hefur sagt
í strön.gum tón um leikritið
og ýmis tilsvör þar að þau
væru „seld of dýru verði. Inni
hald þeirra er ódýrara”.
Baierl skirifaði leikrit sitt
að beiðni menningarmálaem-
hönnu hvort hún geri sér grein bættismanna kommúnistaflokks
fyrir því, hversu uppbyggi-
legir „hlutirnir eru hér.“
„Áttu við^verksmiðjuna?",'
spyr hún.
„Nei, ég á við í Þýzka al-
þýðulýðveldinu" svarar hann.
Þegar hinn öskuvondi
flokksritari hyggst reka Jó-
hönnu úr starfi vegna þess
ins, sem vildu, að a.m.k. eitt
nútíma sósíaliskt verk eftir
a-þýz.kan höfunid yrði sýnt
•nú á þessu 20. afmælisári A-
A-Þýzkalands. Innihald leik
ritsins kemur kunnuglega fyr
ir sjónir, því það er svipað
og í nútíma sovézkum og öðr-
um a-evirópskum leikritum og
snýst einkum um að bylting-
in lifi áfram í skrifstofum og
verksmiðjum, en það sé erf-
itt að koma auga á hana nú
þegar stéttabaráttan sé á enda
í kommúnistaríkjunum.
En sá böggull fylgir skamm
rifi varðandi 'leikrit sem þetta
í Austur-Þýzkalandi, að bylt
ingin kom þangað í formi
Rauða hers Sovétríkjanna.
Jafnvel enn þann dag í dag
leyfir a-þýzka stjómin fleiri
smáfyrirtæki í einkaeigu en
nokkurt annað kommúnista-
land, og er þetta gert til þess
að koma til móts við þá stað-
reynd, að rætur margra A-
Þjóðverja standa enn í Kap-
ítalismanum, Þannig er verk-
smiðjustjórinn í leikritinu ekki
mjög sannfærandi er hann
minnist þess er hann og fé-
lagar hans hafi endurbyggt
verksmiðj uná með berum hönd
unum þrátt fyrir árásir óvin-
arins, V-Þýzkalands, sem kost
að hefðu 40 milljónir manna
lífið.
Enda þótt leikritinu sé
beint til hinnar ungu og spyrj
andi æsku í A-Þýzkalandi, hef
ur Baierl kosið að gera aðal-
persónuna að ungri stúlku,
sem hefur svo bairnailega mik-
inn áhuga á a-þýzkum sósíal-
isma, að vafasamt er að æska
laind'sins sé sama sinnis. Mið-
stöð æskulýðsrannsókna í Leip
zig birti nýlega niðurstöður
skoðanaklönnunar, sem fram-
kvæmnd var meðal ungra A-
Þjóðverja á aldirinum 15-24
ára. 4% þeirra, sem spurðir
voru, kváðu þróun A-Þýzba-
lands aðaláhugaefni sitt ,en
aðaláihugaefni flestra var að
fá gott starf, ástir, fjöl-
skyldustofinun, eignamyndun,
ferðalög og ný íbúð.
Er ungmennin voru spurð
hvaða starfsgreinar voru virð
ingarverðastar frá félagslegu
sjónarmiði, kom á daginn að
meirihlutinn taldi það vera
læknisfræði og kennslu. Þeir
töldu minnsta virðingu felast
í því að vera þingmaður, borg
arstjóri eða embættismaður
flokksins. Aðeins lprs þess-
ara a-þýzku ungmenna töldu
að starf í þágu flokksins væri
eftirsóknarverður 'lífstíðarfer
ill.
J
ara sinna. Ennfremur virðist
það eðlilegt og sjálfsagt að
kennarar í barna- og ungl-
ingaskólum leggi aukna
áherzlu á að kenna manna-
siði og skaplegar umgengn-
isvenjur. Unglingarnir verða
að vita að s kemmdarvarg-
arnir eru að fremja ódæði
gagnvart samfélagi sínu.
Önnur hlið á þessu máli er
sú, að unglingur, sem leggur
í vana sinn að skemma og
eyðileggja muni í kringum
sig getur fyrr en varir leiðst
út í stærri og ennþá hættu-
legri afbrot gagnvart samfé-
lagi sínu.
Skemmdarverkin eru
skammarblettur á hinu ís-
lenzka þjóðfélagi. Allra
vegna verður að taka hart á
þeim.
Kvikmynd um
Nixon Bondo-
ríkjaforsetu
UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA
Bandaríkjanna efnir til fjögurra
kvikmyndasýninga fyrir almenn
ing í Nýja Bíó í Reykjavík
fjóra laugardaga í maí, kl.
2 eftir hádegi. Aðgangur að sýn-
ingunum er ókeypis og öllum
heimill, meðan húsrúm leyfir.
Á fyrstu íiýningunni, sem fram
fer laugardaginn 3. maí, verða
sýndar tvær myndir um tón'list,
önnur sem fjallar um sitmar-
skóla og tónleikahald í Tangle-
wood í Massachiusets og hin um
ind verí ka hlj óms veitarstjórann
Zubin Mehta, sem stjómar Los
Angeles sinfóní u'hlj ómsveitinni,
Toronto sinfóníuhljómsveitinni,
auk þess æm hann stjórnar við
Metropolitan-óperuna í New
York.
Önnur sýningin verður 10. maí
og verða þá sýndar kvikmyndir
um Nixon forseta. Þar á meðal er
mynd, þar sem hann segir frá
uppvaxtarárum sínum og sýnd-
ur verður einn af blaðamanna-
fundum forsetans.
Þriðja sýningin verður laugar-
daginn 17. maí. Verða þá sýndar
kvikmyndir um geimferðir, m.eð*
al annars um ferðir Apollo 8 og
Apollo 9. Reiknað er með að
Apollo 10 leggi upp í ferð sína
daginn eftir, 1«. maí.
Á fjórðu sýningunni, sem fram
fer laugardaginn 24. maí, verða
sýndar kvikmyndir um mynd-
list. Fyrst verður 'sýnd mynd um
listmálarann Andrew Wyebh, þá
mynd frá Museum of Modern
Art í New York og loks mvnd
frá Natiianal Gallery of Art í
Washingfcon, sem á fjölda frægra
verka. Þarna sjást því margn -
hliðar á amerísku lfcitalífi.