Morgunblaðið - 10.05.1969, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.05.1969, Blaðsíða 29
MOftGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1969 29 (utvarp) LAUGARÐAGTJK 16. MAÍ 7.00 Morgnnútvarp Veðurfregnir. Tónleikar. 7.30 Fréttir, Tónleikar, 7.55 Bæn, 8.00 Morgunleikfimi Tónleikar. 8.30 fréttir og veðurfregnir. Tón- leikar. 8.55 Fréttaágrip og út- dráttur úr forustugreiimm dag- blaðanna. 9.15 Morgunstund barn anna: Sigrún Sigurðardóttir end ar söguna „Álfagull" eftir Bjama M. Gíslascsn og Xes álfa- kvæði eftir Ingólf Jónsson. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.05 Fréttir, 10.10 Veðurfregnir, 10.25 I>etta vil ég heyra: Stefán Sigur karlsson lyfsali í Stykkishólmi velur sér hljómplötur 11.40 ís- lenzkt mál (endurt. þáttur — J. A.J.) 12.00 Hádegisútvarp Dagskráin Tónleikar. 12.15 Til- kynningar 12.25 Fréttir og veð- urfregnir. Tiikynningar. 1300 Óskalög sjúklinga Kri9tín Sveinbjörnsdóttir kynnir. 14.30 Fósthólf 120 Guðmundur Jónsson les bréf frá hlustendum og svarar þeim. 15.00 Fréttir — og tónleikar. 15.26 Um málefni heyrnleysingja Jónas Jónasson sér um viðtals- þátt. 15.50 Harmoníkuspii 16.15 Veðurfregnir Á nótum æskunnar Dóra Ingvadóttir og Pétur Stein grímsson kynna nýjustu dægur- lögin. 17.00 Fréttir Langardagslögin 18.00 Söngvar í léttum tón The Family Four syngja sænsk lög. 18.20 Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir Tilkynningar 19.30 Dagiegt líf Árni Gunnarsson fréttamaður stjórnar þaettinum. 20.00 I.eikrit: „Eva siítur barns- skónum" eftir Kjeld Abell Áður flutt í janúar 1958, Þýðandi: Ásgeir Hjartarson. Leikstjóri: Indriði Waage. Per- sónur og leikendur: Safnvörður Klemenz Jónsson Katrín af Neðra-Bayern Anna Guðmundsdóttir Eva Katrín Thors Anna frænka Arndís Björnsdóttir Missia frænka Nína Sveinsdóttir Ungfrú Funk Guðbjörg Þorbjarnardóttir Ernst, faðir Evu Haukur Óskarsson Elín, móðir Evu In@a Þórðardóttir Jörgen Benedikt Árnason Adam Róbert Arnfinnsson Forstjóri listasafnsins Þorgrímur Einarsson Dómarinn Ævar R. Kvaran Malarasveinn Ólafur Þ. Jónsson HsegindastóU Þorsteinn ö. Stephensen Aðrir leikendur: Hildur Kalman, Ása Jónsdóttir, Sigríður Þor- valdsdóttir og nokkur börn. 22.00 Fréttir 22.15 VeSurfregnir Danslög 23.55 Fréttir í stuttu máii Dagskrárlok (sjfnvarp) LAUGARDAGUR 10. MAl 1969. 17.30 Endurtekið efni „Það er svo margt“ Kvikmyndaþáttur Magnúsar Jóhannssonar. Sýnd verður kvikmyndiu „Fuglamir okkar" Áður sýnd 10. maí 1967. 18.00 Sigríður E. Magnúsdóttir syng ur Undirleik annast Guðrún Kristins dóttir Sigfríður syngur lög eftir Martini, Mozart, Bizet og Saint- Saens. Auk þess spjallar hún við Andrés Indriðason um söngnám í Vínarborg og fleira. Áður sýnt 7. apríl 1969. 18.25 „V°rboðinn ljúfi“ Sjónvarpið gerði þessa kvik- mynd í Kaupmannahöfn. Svipazt er um á fornum slóðum íslend- inga og brugðið upp myndum frá Sórey, þax sem Jónas Hall- grímsson orti nokkUT fegurstu kvæði sín. Kvikmyndun örn Harðarson. Umsjónarmaður Eið- ur Guðnason. Áður sýnt 6. apríl 1969. HLÉ 20.00 Fréttir 20.25 Sumir minna beztu vina eru hvítir rikjunum skoðað af allnýstár- legum sjónarhóli. 20.55 Skemmtiþáttur Jan Malmsjö Meðal þeirra, sem koma fram, eru Ulla Sallert og Per Grunden. (Nordvision - Sænska sjónvarp.) 21-55 Nautabaninn (The Brave Bulls). Bandarísk kvikmynd. Leikstjöri Robert Rossen. Aðalhlutveirk: Mel Ferrer, Ant- hony Kuinn, Eugene Iglesias, José Toruay og Charlita. 23.40 Dagskrárlok. - KVENFANGARNIR Framhald af bls. 17 stofnuðu kvennabúSum í Alikar nassos. Frá hinni hrjóstrugu Jaros- ey, þar sem við dvöldumst heila 16 márnuði við verstu aðstaeður, vorum við fluttar 26. ágúst til Alikamassos-fangelsisins hjá Herakleion á Krít, skammt’ frá hinni fornu Knossos-borg. Á Jaros vorum við útlagar og gát- um hreyft okkur innan þröngra takmarka undir eftirliti vopnaðr ar lögreglu, en nú erum við komn ar í tölu fanga. Þeir hafa sett okkur í Alikarnassos-fangelsið nokkra metra frá sjónum. Vönt un á hreyfingu, hinn geysimikli raki (rigningar eru tíðar), hálf- hrunin byggingin þar sem hurð- ir og gluggar lokast ekki, vatn og vindar eiga greiðan aðgang inn og við skjálfum af kúlda í klefum okkar. það er engin upp hituin hér, við fáum ekki heitan mat né heitt vatn til þvotta, föt okkar eru gatslitin, og fjölskyld ur okkar, sem eru ofsóttar með réttindamissi og atvinnuleysi, geta ekki komið okkur til hjálp- ar. Við sendum yfirvöldunum skýrslu um öll þessi atriði fyrir fjórum mániuðum, og við höldum áfram að minna þau á þarfir okkar, en ekkert hefur verið að- hafzt né hefur nokkur ábyrgur aðili virt okkur svars. Meðal okkar eru hættuiega sjúkar kon ur eins og Eleni Anagnostópú- lú, sem hafði lungnablæðingar á Jaros og gemgur nú með opið sár á heilbrigða lunganu. Ráðu- neytið synjaði umsókn hennaa- um frelsi til að leita sér lækn- inga. Hún hefur ekki fengið rúm á sjúkrahæli og er nú að vesl- ast upp fyrir augunum á okkur. Efthia Tsóka, sem þjáist af berkl um í kviðarholi og léttist með hverjum degi sem líður, fær ekki læknisaðstoð. Evangelía Dý dúmí, Anna Siblí, báðar aldrað- ar, Díómýsía Bitzileki, Alíkí Sfý rídaki, þessar konur allar og margar fleiri þjást af alvarleg- um geðrænum sjúkdómum, og líf þeÍTTa er í tvísýmu. Margar kvennanna þjást af kvensjúkdóm uim sem versna við hinar óheil- næmu aðstæður búðanna með hörmulegum afleiðingum. Allar konurnar þjást nú af gigt. Með- al okkar eru fatlaðar konur og konur komnar yfir sextugt, sem verða að þola hið erfiða líf búð- anna. Margar mæður urðu að yf- irgefa afkvæmi sín, brjóstmylk- irtga og eldri börn, þeirra á með- al María Diplú, en eiginmaður hennar var handtekinn og tvö böm þeirra eru í vörzlu móður hennar sem er blind af glákomu, og sömuleiðis María Frangú, en hennar maður er fangi á Leros og litla dóttir þeirra í vörzlu nágranna. Auk þeirra eru 23 mæðiii' meðal okkar og eitin ig konur sem eiga eiginmenn sína í ýmsum fangelsum og fanga búðum og sem reyna hið ömur- lega hlutskipti tvístraðrar fjöl- skyldu. Við erum fangar, en engin ákæra hefur verið lögð fram gegn okkur. Við vorum handteknar í vamaðarskyni vegna skoðana okkar og stjórn- málastarfsemi — sem var lögleg og samkvæm stjómarskránni tii þess dags er stjómarskráin var numin úr gildi og frelsi og rétt- indi grísku þjóðarinnar troðin undir fótum. Við höfum aldrei verið teknar til yfirheyrslu. Fyrsta ári útlegðar okkar lauk, og þeir tilkynntu okkur strax framlengingu útlegðarinnar um eitt ár til viðbótar. Við eigum þesa engan kost að fara fram á endurskoðun þeirrar ákvörðun- ar. Ríkisstjórnin staðhæfir að hún hafi okkur í haldi á grund- velli gamalla laga frá 1924 o.s. frv. Þetta er ekki rétt, vegna þess að með tiiskipun nr. 165 frá 16. október 1967 afnam einræð- isstjómin öil réttindi útlægra borgara til að verja hendur sín ar. Fyrsta tilskipunarnefndin, sem gefur út úrskurði um út- legð er skipuð tveimur lögreglu jónum og sýslumannimim, sem er traustur trúnaðarmaður einræð isstjórnarinnar. Önnur tilskip- unamefndin (yfimefndin) hef- ur verið afnumin. Útlaginn get- ur ekki ráðið lögfræðing eða kvatt til vitni. Hann getur ein- ungis áfrýjað til ráðherrans. En engri slíkri áfrýjun hefur nokk- urn tíma verið sinn:, vegna þess að við erum fangar ríkisstjóm- arinnar — gíslar um óákveðinn tíma. Ríkisstjórnin gerir allt sem í hennar valdi stendur til að halda kvennafangabúðunum leyndum og nefnir einungis Ler- os. Fyrir nokkrum mánuðum voru fáeiinar konur látnar laus- ar. Stjórnin heldur því fram, að þær sem eftir sitji hafi verið dæmdar áður fyrir stjórnmália- starfsemi. Þetta er ósatt. Bæði meðal þeirra kvenna, sem látn- ar voru lausar skilmálalaust, og meðal þeirra, sem eítir sitja, eru konur sem voru fyrr á tíð dæmd- ar af herrétti og einnig konur sem höfðu aldrei fyrr verið handteknar. f tilefni jóla og nýárs heitum við á ykkur að halda áhugan- um vakandL Birtið bréf okkar eins víða og þið eigið nokkurn kost. Sendið það ölium alþjóða- stofnunum, Mannréttindanefnd Evrópuráðsins, Alþjóðamannrétt- indanefndinni, Alþjóðasamtökum lýðræðissinnaðra kvenna og öll um samtökum sem ykkur er kunn ugt um, að sýnt hafa máli okk- ar áhuga því við fréttum ekki um allar þær aðgerðir sem eiga sér stað. Við biðjum ykkur líka að senda bréfið öllum hreyfing- um í einstökum iöndum, sem starfa að lausn pólitískra fanga og endurreisn lýðræðis í Grikk landi, og til alira sem hafa á- hyggjifr af örlögum ckkar. Við þökkum félögum þessara samtaka og hreyfinga og biðj- um þá að herða baráttuna fyrir því, að fangabúðunum verði lok að, ofsóknum í Grikklandi hætt, kvenföngunum í Alikarnassos- fangelsinu sleppt og lýðræði endurreist í Gnkklandi. Við sendum ykkur, kæru vin- ir, eiinlægar kveðjur og dýpstu virðingu. 137 pólitískir fangar Kvennabúðanna í Alikamassos. Alikarnassos, 10. desember 1968. TIL LEIGU verztunarpláss á góðum stað við Laugaveginn um 50 fer- metrar. Aðstaða fyrir geymslu á vörum getur fyigt. Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Verzlun — Lauga- vegur 2446". Stangaveiðimenn I ágústmánuði eru veiðleyfi laus til sölu t Stóru Laxá og Brúará.' Upplýsingar í síma 20082 eftir kl. 5 þrjá næstu daga. Vörulyftari — notoður Höfum áhuga á að kaupa notaðan rafknúinn vörulyftara. Lyftikraftur um 1000 kg. Verzlunarmannafélag H afnarfjarðar hetdur framhaldsaðalfund sinn í Sjálfstæðishúsinu í Hafnar- firði, laugardaginn 40. maí kl. 3 síðdegis STJÖRNM. Storfsstúlknnfélagið Sókn Skólavörðustíg 16, sími 16438. Þær félagskonur Sóknar. sem ætla að sækja um dvöl T Ölfus- borgum sumarið 1969 tilkynni það skrifstofu félagsins á mánu- dag og þriðjudag n.k. kl. 3—6 e.h. Þær konur sem lengst eru búnar að vera í félaginu og ekki hafa farið í Ölfusborgir áður ganga fyrir. STJÓRNIN. Sumnrdvöl bornn nð Jnðri Tekið verður á móti umsóknum um sumardvöl fyrir 6—10 ára böm á mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 4—6 í Templ- arahöllinni, Eiriksgötu 5. Upplýsingar í sima 20010. Framkvœmdasfjóri Starf framkvæmbdastjóra við Dráttarbrautina h/f í Neskaup- stað, er laust til umsóknar. Til greina koma verkfraeðingar og tæknifræðingar í vél- smíði og skipasmíði. Umsóknir um starfið, með upplýsingum um menntun og fynri störf. sendist formanni félagsins, Bjama Þórðarsyni, bæjarstjóra í Neskaupstað, fyrir 15. júní 1969. Stjórn Drátta rijrauta rinnar h.f. KEFLAVÉK - SUÐURNES ALMENNUR BORGARAFUNDUR um stjómmáfaviðhorfið verður hafdinn í Ungmenna- féfagshúsinu Keflavík, sunnudaginn 11. maí kl. 2 e.h. Ræðumenn verða alþingismennirnir Matthías A. ftlathiesen, Jón Skaftason, Jón Ármann Héðinsson, Gils Guðmundsson. Ræðumenn svara fyrirspurnum. KEFLVÍKINGAR, SUÐURNESJAMENN, fjölmennið á fundinn. Félag ungra Sjálfstæðismanna Féiag ungra Alþýðuflokksmanna Félag ungra Framsóknarmanna Félag ungra Alþýðubandalagsmanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.