Morgunblaðið - 17.05.1969, Page 16

Morgunblaðið - 17.05.1969, Page 16
16 MORGUNiBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1969 Úitglefandí H.f. Árvafcui*, Eeyfcjavlk. Fnamfcvaemdiaatjóri Hiarailidur Svemsson. 'Ritsfgórar Signrður Bjarrcason frá Viguir. fcfafitihías Joihannesa'en. Eyjólfur Konróð Jónsson. Bitstj dmarfulltrúi Þorbjöm Guðtaundsson. Eréttastjóri Bjiörn Jóhannssora. Auglýsingiaiatj'órf Arni Garðar Kristinsson. Eitstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sómi 10-100. Auglýsingar Aðalstræti é. Sími 22-4-00. Ásikriftargjald. fcr. 190.00 á mánuði innanlands. I lausasiölu kr. 10.00 eintakið. NÝTT TÍMABIL AD HEFJAST 'C’ldhúsdagsumræðurnar á Alþingi leiddu glögglega í Ijós þær einföldu stað- reyndir, sem við blasa í ís- lenzkum stjórnmálum um þessar mundir. Núverandi ríkisstjórn, sem veitt hefur þjóðinni forustu á einu mesta blómaskeiði í sögu hennar og einnig á einum mestu erfið- leikatímum í efnahags- og atvinnumálum, sem komið hafa á þessari öld, hefur í megindráttum tekizt að ráða bug á erfiðleikunum og að- laga efnahag þjóðarinnar breyttum aðstæðum. Að baki eru sjö framfara- ár, tvö erfiðleikaár en nú er að hefjast rsýtt tímabil eins og Jóhann Hafstein, vara- formaður Sjálfstæðisflokks- ins, komst að orði í umræð- unum í gærkvöld. Og hann sagði ennfremur: „Það mun væntanlega ekki einkennast af hraðfara hagvexti áranna 1960—1966. En það stefnir upp á við.“ Hin meginstaðreyndin í íslenzkum stjórnmálum í dag er sú sama og verið hef- ur allan þennan áratug. Stjórnarandstöðuflokkarnir eru ekki færir um né hæf- ir til að taka að sér stjórn landsins. Þeir brugðust í góð ærinu og þeir hafa einnig fallið á prófinu á erfiðu árun um. Annar þeirra er svo gjör- samlega sundraður og klof- inn að mörg ár munu líða þar til hann getur orðið raunverulegur þátttakandi í stjórnmálabaráttunni. Hinn, Framsóknarflokkurinn, er enn í sárum vegna þess að fyrir einum áratug var end- ir bundinn á nær samfelld- an 40 ára valdaferil flokks- ins og beizkjan og vonbrigð- in einkenna enn málflutning flokksins og starfshætti. í ræðu sinni í eldhúsdagsum- ræðunum lagði Bjarni Bene- diktsson, forsætisráðherra, áherzlu á að tekizt hefði að hálda svo á málum, að ver- tíðin bjargaðist og mikil verðmæti komu á land, þrátt fyrir takmörkuð verkföll og verkbönn og sagði forsætis- ráðherra, að þessi árangur hefði ekki náðst nema vegna þess, að skilningur og góð- vild hefðu undir niðri ráðið meiru en af yfirborðinu mætti ætla. Bjami Benediktsson gerði einnig að umtalsefni þá reynslu, sem fengizt hefur af verkfalls- O'g verkbanns- aðgerðum síðustu vikur og kvað óhjákvæmilegt að gera nokkrar breytingar á vinnu löggjöfinni og benti í því sambandi á, að mesta vel- megunin hefur einmitt ríkt í þeim löndum, þar sem tek- izt hefur að mestu að kom- ast hjá kostnaðarsömum vinnustöðvunum, svo sem í Svíþjóð og V-Þýzkalandi. Er þess að vænta að víðtæk samstaða náist um sann- gjarnar breytingar í þessum efnum. REKTORSKJÖR VIÐ HÁSKÓLANN TIMagnús Már Lárusson, prófessor, hefur verið kjörinn rektor Háskóla Is- lands og tekur hann við því virðulega embætti í haust af Ármanni Snævarr, sem hef- ur gegnt því um 9 ára skeið. Hektorskjörið hefur að þessu sinni vakið meiri at- hygli en oftast áður, bæði vegna þess að prófkosningar fóru fram meðal nemenda og kennara og einnig hins, að Háskólinn stendur um margt á vegamótum og þess vegna skiptir miklu hverjir veljast til forustu hans. Hin breyttu viðhorf til Háskóla íslands og málefna hans, mótast aðallega af tvennu. Menn gera sér í vax- andi mæli grein fyrir nauð- syn þess að stórefla Háskól- ann á næstu árum og beina starfsemi hans meira inn á nýjar brautir í tengslum við atvinnulífið í landinu, þann ig að æðsta menntastofnun þjóðarinnar fullnægi þörf- um atvinnuveganna fyrir sérmenntað starfsfólk á næstu árum og áratugum. Ennfremur er ljóst, að með- al stúdenta sjálfra hefur orð- ið veruleg hugarfarsbreyt- ing og þeir eru vaknaðir til vitundar um það, að Háskól- inn er ekki einungis stofn- un, sem veitir þeim ákveð- inn stimpil og réttindi held- ur menntastofnun, sem þeir eiga að taka ótvíræðan þátt í að móta. Hins nýja rektors Háskóla Islands bíða því mikil og vandasöm verkefni, sem ef til vill verða auðleysanlegri fyrir hann en ýmsa fyrir- rennara hans vegna þess að almennari skilningur er nú á því meðal þjóðarinnar, að Háskólinn hefur orðið af- skiptur á undanförnum ár- um og að nú þarf að gera stórátak til eflingar hans. Öryg-gisverðir í Irlandi hafa nóg að starfa þessa dagana við aff halda ljósmyndurum, frétta mönnum og forvitnu fólki í hæfilegri fjarlægff frá fyrrver- OROI I EVROPU /kvenju óróasamt er í stjórn ^ málum Evrópu um þess ar mundir. Forsetakosning- arnar í Frakklandi virðast ætla að verða tvísýnni en talið var í fyrstu og fari svo að Poher, bráðabirgðaforseti sigri, er augljóst, að nýjar þingkosningar fylgja í kjöl- farið innan tíðar. I Frakk- landi er því allra veðra von og verulegar breytingar geta orðið þar í landi. andi Frakklandsforseta hCarles de Gaulle — Önnur myndin er af Hero noCve hótelinu, þar sem de Gaulle og kona hans dvelj- ast. Fyrir framan á ánni sigla lögreglumenn á hraffbáti. — Á I V-Þýzkalandi eru þing- kosningarnar, sem fram eiga að fara í haust þegar farnar að hafa úrslitaóhrif á ákvarð anir stjórnarvaldanna, svo sem í sambandi við gengi marksins og bendir margt til þess að óvissu-ástand muni ríkja í peningamiálum Ev- rópu þar til kosningunum þar í landi er lokið. I Bretlandi er einnig óróa- samt á stjórnmólasviðinu og vaxandi andstaða gegn Wil- son, forsætisráðherra í þing- hinnl myndinni sjást de Gaulle og kona hans á gangi í skóg- inum. Neffst tii hægri á mynd- inni sér í öryggisvörff hálffal- inn inn í runna. flokki Verkamannaflokksins. Þar við bætist, að gengis- breytingin þar í landi hefur enn ekki haft tilætluð áhrif og Bretar eru nú að semja um enn eina stórfellda lán- töku hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum. Af þessu má sjá, að margt kann að gerast á næstu mánuðum í nágranna löndum okkar og algjörlega ómögulegt að átta sig á þró- un múla, svo sem varðandi hugsanílega inngöngu Breta í Efnahagsbandalagið, sem get ur komið á dagskrá á ný.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.