Morgunblaðið - 17.05.1969, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 17.05.1969, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1969 S Sigurþór Guðfinnsson Keflavík — Minning í gær íór fram útför eins af þekktustu borgurum Keflavíkur, Sigurþórs Guðfinnssonar, útgerð armanns, en hann lézt að heim- ili sínu, laugardaginn 10 þ.m. Ut förin fór fram frá Keflavíkur- kirkju. Sigurþór var Kefirvíkingur. Faeddur í KefHavík, þar ólst hann upp, og þar var hans heim- ili og starfssvið til æviloka. Foreldrar hans voru hin góð- kunnu hjón Guðfinnur Eiríks- son og Þorgerður Þóroddsdóttir. Bæði Rangæingar að ætt. Sigur- þór var þriðji í alduTSröð fjögurra bræðra, er upp komust. Elztur var Jóhann, en hann lézt 1926, á 22. aldursári, næstur er Guð- mundur fyrrv. skipstjóri og afla kóngur um árabil, og yngstur er Sigurgeir vélstjóri. Sigurþór kynntist snemma út- gerð vélbáta. Hann vann við þá á sjó og i landi um árabil. Einn- ig var hann lengi verkstjóri við Fiskverkunarstöð Elíasar Þor- steinssonar, en þá var aðal sum- aratvinnan verkun og þurrkun saltfiskjar. — En árið 1935 eign aðist hann, ásamt bræðrum sín- um, Guðmundi og Sigurgeiri, fyrsta vélbátinn, og þar með hófst hin farsæla útgerð þeirra bræðra. Var þetta 18 smálesta bátur, simíðaðuir i Djúpvík í Svi- þjóð og var með stærri skipum hér, því þá voru bátar, þeir stærri, 15—22 smálestir. Bátur- inn bar nafnið Guðfinnur, nafn föður þeirra. Var Guðmundur með bátinm næstu 9 árin og var oftast aflahæstur. Árið 1945 létu þeir smíða stærri bát í Skipasmíðastöð Innri-Njarðvikur. Var hann 28 snmál Þanniig héldiu þeiim áfram útgerð með stærri og ful'lkomn- ari skipum og fylgdust þannig með kröfum tímans. Þeir keyptu næst vélbátinn Önnu frá Njarð- vík, 55 smál. að stærð. Þann bát áttu þeir til ársins 1955. En þá létu þeir smíða 61 smál. bát í Skipasmíðastöð Þorgeirs Jósefs sonar á Akranesi. Allir þessir bátar báru nafnið Guðfinnur, og til þessa höfðu þeir ávalt selt þann eldri, er þeir fengu nýjan. En árið 1959, um haustið, eign- uðust þeir enn nýjan bát, er þeir létu smíða suður í Þýzkalandi. Var þetta bátur 76 smiál. að stærð, og bar nafn móðurbróður þeirra bræðra, Áma Geirs, er var velþekktur skipstjóri og út- gerðarmaður hér í Keflavík. Hinn mesti sæmdarmaðuir og for ustumaður margra framfara og hagsmunamála útgerðarmanna og sjómanna, má þar nefna Bræðslufélagið og ísfélagið. Þessa 2 síðustu báta áttu þeir bræður og gerðu út til ársins 1965. En þá selidiu þeiir báða bát- ana og hættu útgerð með öllu. Höfðu þeir þá rekið happasæla og velþekkta útgerð í Keflavík um 30 ára skeið. Hér fór saman aflasæll skipstjóri, en Guðmund ur var skipstjóri til 1960, og allt af með þeim aflahæstu, — og dugmikill og hagsýnn útgerðar- maður, þar sem Sigurþór var. Saga þessarar útgerðar er sér- stök og er þess fyllilega verð, hað henni væri gerð betri skil en hér er kostur. Auk starfa sinna við útgerð- ina, sinnti hann ýmsum öðrum störfum, sem hann var kjöirinm til. Hann var mörg ár framkv. stj. ísfélags Keflavíkur h.f. og í stjórn Bræðslufélags Keflavíkur me<5 gráu slikjuna Perr þværmeð lífrænni orku MEÐ GRARRI SIIKJU ÞVEGIÐ MEÐ PERR GRÁA SLIKJAN A BAK OG BURT PERR greipist inn í þvottinn. ^ ^ ^ Gráa slikjan hverfur meá lífrænni orku.sem fervel mecJ þvottinn. PERR sviftir burt gráu slikjunni af þvotti yáar. Hvítt vercíur aftur hvítt og litir skýrast. Vétar eéa handþvottur árangurinn alltaf undraverður ^ Þetta tekst Perr med lífrænni orku /rm* Porr I raudum pakka. Frá Henkel w h.f., svo nokkuð sé nefnt. Eitt kjörtímabil, 1942—46, átti hann sæti í hreppsnefnd Keflavíkur. AM.s staðar vann hann sér trauBt og virðingu þeirra, er með hon- um störfuðu. Hann var dreng- skaparmaður, sem vildi leggja hverju góðu máli lið. Árið 1945, 27. ágúst, kvæntist Sigurþór eftirlifandi konu sinni, Kristjönu Magnúsdóttur, Kefl víkingum að góðu kunn. Hún var þá ekkja og fjögurra barna móðir og börnin á bernsteu- og æskualdri. Var hjónaband þeirra farsælt og reyndist Sigur- þór stjúpbörnum sínum sem bezti faðir. Stjúpbörnin eru þessi: Höskuldur, vélstjóri, búsettur í Reykjavík, Brynjar, rennismið- ur, búsettur í Keflavík, Dallý og Þóra, báðar búsettar í Banda ríkjunum. Þau Sigurþór og Kristjana eignuðust tvær dætur, Jóhönnu, sem er í foreldrahúsum og Guð- finnu, sem er gift Sævari Sör- ensyni, rafvirkja. Þaú eru bú- sett í Keflavík og eiga einn son, er ber nafn Sigurþórs, afa síns. Þótt okkur sé ekkert vísara en vistaskiptin síðustu, er við að lokum flytjum héðan, þá er það nú svo, að á meðan heilsam er þolanleg, eru þau vistaskipti oftast fjarri huga. Sú var að minnsta kosti raunin á fyrir mér er við Silgurþór hibtuims't siðiast, fyrir nokkrum dögum og rædd- um um atburði líðandi stundar. Að vísu var okkur báðum ljóst, að sá sjúkdómur, er hann gekk með og að lokum varð honum að aldurtila, var varasamur. Hann var þá einmitt að koma frá lækni sínum í Reykjavík og var mjög vongóður um þolanlega heilau með góðri meðferð. Hinsvegar veit ég af gömlum kynnum, að eilífðarmálin voru honum aldrei fjarri huga, og um þau hafði hann sínar ákveðnu skoðanir, sem veittu honum styrk í önn dagsdns, í blíðu og stríðu. Við Sigurþór erum báðir fædd ir í KefLavík, og þátt byggðin hér hafi á okkar uppvaxtarárum ekki verið víðáttumikil eða fjöl- menn, þá voru kynni okkar á þeim árum ekki mikil. Hvort- tveggja var, að hann vair nokkru yngri og svo var hitt, sem var jþyngra á metunum, — hann var úr Austurplássinu en ég úr því Vestra. Leiðir okkar lágu því ekki saroan fyrr en við vorum báðir fuilltíða menn. Það var vorið 1933, er við tóku>m að ókikiur að veiita for- stöðu fiskverkunarstöð, er nokk ur útgerðairféllög tóku á leigu hér í Keflavík. Árið eftir rák- um við svo stöðina á eigin reikn ing. Þetta samstarf okkar tókst með ágætum, þrátt fyrir ólík sjónarmið á ýmsum sviðum, svo sem stjómmálum. En um starfið, sem við höfðum tekið að okkur var fullur samhugur og einnig. Og þessi kynni okkar á næstu tveimur árum leiddu til vinattu, sem hélzt æ síðan. Leiðir okkar skildu um hríð. Sigurþór gerðist útgerðarmaður ag því ativinnurekandi, en mín störf urðu margvísleg, og eitt af mínum aukastörfum var starf fyrir samtök verkamanna og sjó manma. Þá urðum við Sigurþór stundum sinn hvorum rmegin vlð Framhald á bls. 24

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.