Morgunblaðið - 28.05.1969, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2«. MAÍ 1«09
75 ára í dag:
Guðrún frá Krossi
Guðrún Kristófersdóttir er 75
ára í dag. Hún er fædd á Brekku
velli á Barðaströnd 28. maí 1894.
Foreldrar hennar voru hjónin
Kristófer Sturluson og Margrét
Hákonardóttir, sem fyrst bjuggu
á Siglunesi á Barðaströnd, síðar
á Hreggstöðum, en lengst af á
Brekkuvelli, og þar ólust börn-
in upp. Guðrún var 13. barn
þeirra hjóna, en alls voru systk-
inin 17. Ættfólk Guðrúnar í báð
ar ættir mun af ósviknu vest-
firzíku og breiðfirzku bergi brot-
ið.
Af systkinum hennar urðu þjóð
kunnir þeir Hákon alþingismað
ur og bóndi í Haga og Eiríkur
fyrrverandi skipherra.
Störf Guðrúnar voru hins veg
ar imnin í kyrrþey.
Árið 1916 giftist hún Valdimar
termanni Sæmundssyni frá Krossi
á Barðaströnd. Þau hjónin eign
uðust og ólu upp átta mannvæn-
leg börn og auk þess gekk
Guðrún sex börnum í móður og
föður stað, og ef skráð yrði saga
íslenzku móðurinnar, væri hún
vafalaust í hópi þeirra, sem
öndvegi mættu skipa.
Guðrún bjó á Krossi um 50
ár, og aldrei man ég eftir hennd
undir öðru nafni en Guðrún á
Krossi.
Nú eru rétt 40 ár síðan fund-
um okkar Guðrúnar bar fyrst
saman. Ég var farkennari á Barða
strönd og meðal annars á Krossi.
Valdimar á Krossi var þá for-
maður skólanefndar.
Guðrúnu hafði ég hitt að máli
og fann af því samtali, að hún
var ákveðin í skoðunum og hvöss
í svörum, ef henni þótti það við
eiga, en mjög viðmótsþýð að
jafnaði.
Ég var haldinn nokkrum kvíða
er ég fór í fyrsta sinn að Krossi
til að kenna.
Ég hafði þá ekki verið í Kenm
araskóla og hafði áhyggjur af
að eiga nú að kenna hjá for-
manni skólanefndar og Guðrúruu
á Krossi. Fljóltega dró úr kvíð-
anum, og í stað hans brustust
fram margþættar hugsanir. Kenn
arinn, sem reyndi eftir mætti, en
af lítilli getu, að kenna börniun-
um, var sjálfur orðinn nemandi,
og kennarar hans voru þrír:
Valdimar sjálfur, formaður skóla
nefndar, Guðrún kona hans og
Emelía móðir hanis, sem oftast sat
á rúmi sínu við ullarvirunu, eða
Lestur, en full af fróðleik og
lífsreynslu.
Eftir kemnislu á daginn sat ég
hjá þessu fólki og ræddi við
það. Reyndi að hylja vanþekk-
ingu mína, en undraðist fróðleik
þess og þekkimgu.
Við brottför mína frá Krossi
var mér fullljóst, að kennarinn
hafði lært meira þar en hann
hafði getað miðlað öðrum.
Á Krossi gætti mikillar snyrti
memmsku utan húss sem innan,
og vel var fylgzt með í ræfct-
un og framförum í búskaparhátt-
um.
Guðrún á Krossi fór ekki á
mis við reynshi þessa lífs, en
trú hennar var óhemjusterk og
hemmar vegna sigraðist hún á erf
iðleikumum. Ef manni varð það
á að láta í ljós samúð, sagði
hún oftast: „Manni leggst eitt-
hvað til“. Sumarið J929 brann
bærinn á Krossi og flest það,
sem brunnið gat, en fólkið bjarg
aðist fáklætt. Brunatryggingar
voru þá fátíðar í sveitum, og
þarna fór allt óvátryggt. Um
haustið var tekið til við að
byggja nýtt íbúðarhús, sem stend
ur þar enn, byggt af stórhug.
Við uppskipun á efni til húss-
ins veiktist Valdimar af þeim
sjúkdómi, sem varð honum að
bana.
Upp frá því var Guðrún á
Krossi bæði húsmóðir og hús-
bóndi, og auk þess varð hún
langtímum að hjúkra háaldraðri
tengdamóður og nánustu ættmenn
LAXVEIDI
Tilboð óskast í iaxveiði (netaveiði) fyrir landi ölvaldsstaða
í Hvitá, sumarið 1969.
Greiðsluskilmálar eru þeir, að leigan verði greidd fyrirfram
við samningsgerð.
Áskilinn réttur til að hafna öllum tilboðum.
Tilboð sendist fyrir kl. 14, 2. júní n.k. til
Egils Sigurgeirssonar hrl.
Ingólfsstræti 10, Reykjavík.
AÐVÖRUN
um stöðvun atvinnurekstrar vegna
vanskila á söluskatti.
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heimild í lögum
nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér í umdæminu, sem enn skulda söluskatt 1 ársfjórðungs
1969, svo og söluskatt eldri ára, stöðvaður, þar til þau hafa
gert full skil á hinum vangreiddu gjöldum ásamt áföllnum
dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja komast hjá stöðv-
un, verða að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar,
Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 23. maí 1969.
Sigurjón Sigurðsson.
um.
Fimm af bömum hjónamnia dóu
á bezta aldri, en þrjú eru á lífi
auk fósturbarnanma sex. Sæmund
ur, vélgæzlumaður Hrauntungu
73 Kópavogi, Þorbjörg hús-
freyja á Flóðatanga í Stafholts
tungum og Valdimar starfsmaður
hjá „Skrifstofuvélum h.f.“.
Árið 1963 brugðu þau Guð-
rún og Valdimar sonur
hennar búi og seldu Kross,
en keyptu risíbúð í Kópavogi
og héldu þar saman heimili, með
an fósturbörnin voru a'ð ljúka
námi. Nú síðustu árin hefur hún
að mtestu dvalizt hjá Þorbjörgu
dóttur sirmi. En í dag er hún
hjá Sæmnindi syni sínum Hraun-
tungu 73, Kópavogi. Vintoona
mín, Guðrún, ég óska þér, börn
um þínum og fósturbörnum heilla
4 þessum merku tímamótuim,
svo og tengda- og barnabörnum
og veit, að þú uppsfcerð eins og
sáð var til. Ég vona, að ævi-
kvöld þitt megi vera eins og feg
ursta vorkvöld á Krossi.
Við Barðaströnd er ljúfasti
kafli endurminninga minna tengd
ur, og þegar . ég heyri góðrar
konu getið mininist ég ávallt Guð
rúnar frá Krossi.
Magnús Sigurðsson.
Póstferðir
milli Stykkishólms og Brjánslækjar með viðkomu í Flatey:
Frá Stykkishólmi mánudaga kl. 13.00 og frá Brjánslæk kl. 17.
Aukaferðir til sömu staða á laugardögum frá og með 21. júní.
Frá Stykkishólmi kl. 14 og frá Brjánslæk kl. 18.
Flytjum bíla. Pöntun frá Stykkishólmi sé gerð hjá Lárusi Guð-
mundssyni, frá Brjánslæk hjá Ragnari Guðmundssyni.
Flóabáturinn Baldur, Stykkishólmi.
Plasfikframleiðendur
Norskt innflutningsfyrirtæki sem jafnframt
vinnur að markaðsrannsóknum óskar eftir
sambandi við þau plastikfyrirtæki sem hug
hafa á útflutningi.
Vinsamlegast skrifið á norsku, ensku eða
íslenzku til
VESTAGENTUR & CO.
Import & Markedsföring,
Tlf. 40314,
5260 Indre Arna,
Bergen — Norge.
ÚRVALSSKÓR FRÁ CLARKS
SHOESFOR MEN
Style Consultant HARlDiY AMIIIES
Gardínubtíðin
INGÓLFSSTRÆTI
ÚTSALA
vegno
breytinga
Clugga-
tjaidaefni
Storesefni
Barnamynda-
efni
Eldhúsglugga-
tjaldaefni
Búmteppi
Blúndudúkar
Baöhengi
Plastefni
Hiliuplast-
pífur
Skópokar
Gardínubúðin
HVGÓLFSSTRÆTI