Morgunblaðið - 30.05.1969, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30, MAÍ 106»
19
Rabb um myndlist
1 MORGUNBLAÐINU 10. maí
birtir Valtýr Péturssion örstutta
umsögn um málverkasýningu
Gunnars Hjaltasonar, sem gæti
boðað Yorfcomu 1 því gróanda-
leysi, sem þar hefur riikt. Orð
ihans eru á þessa leið: Það hlýt-
ur að vera af barnslegTÍ ein-
lægni, að Gunnar Hjaltason hef-
ur hengt upp myndir í Boga-
salnum. Því miður get ég ekki
fundið neina leið til að ræða
þessa sýningu út frá listræriu
sjónarmiði í skrifuðu máli. Þetta
á því miður við um margar sýn-
ingar af sama tagi. Svo fá voru
hans orð. Eins og memn geta ver
ið litblinidir á ákveðna liti, þá
geta þeir verið list-blindir á
ákveðnar tegumdiir listar. Vitan-
lega verður að virða mönnum
þetta tiil vorkunnar. Hvernig
væri hægt að ætlast til þess af
litblimdium marini, alð hann bæri
skyntoragð á fegurð rognlbogans?
Þegar dýpra er skoðað, er
þarma alls ekki á ferðinni nein
umsögn um neina sýninigu, held-
ur einiungis hógvær viðurkenn-
ing mannlegs manns á því, að
hann er ekki sikymbær á þetta
fyrirbrigði né önmur sömu teg-
umdar. Skýringin er nærtæk, því
að verk þessa manns bera því
vitni, að náttúrukennd virðist
honum ekki gefin. íslenzk nátt-
úra veitir honum ekki innblást-
ur til listrænnar siköpunar, held-
ur hvílir list haris á öðrum grund
velli. Ýmislegt haf ég séð vel
gert eftir Valtý Pétiursson, og
ann ég honum viðunkenningar
fyrir það. Hann mun vera vel
að sér á sínu svfði, sem er
abstrakt list. En þegar hann tal-
ar um þá list, sem túlikar áhrif
náttúrunnar á listamanninn er
hann sízt gáfulegri en skurðlækn
ir, sem opinberar fávísi sína á
sviði geðlækniniga. Þess vegna
ber að fagna því, að hann gerist
nú fáorður og viðurkennir van-
mátt sinn utan sinnar sérgreinar.
Jafnvel innan abstraktlistar
geta undarlegir hlutir orðið, þeg-
ar sérfræðingar tala rembilega
út frá siínum litla bás í hinu
mikla fjósi listanna. Um þetta
vitnar fáránlegur listdómur um
Kára Eiríksson, sem birtist ný-
lega. Sumir abstraktmálarar
túl'ka djúplæig fyrirbrigði í sál-
arlífi manma. Þeir fara oftast göt
ur, sem fæstir skiija fyrr en
löngu etftir að verkin verða til.
Engar reglur eru bindandi fyr-
ir þá önnur en sú meginregla
aJllrar sannrar listsköpunar, að
þeir verða alð vera barnslega
einlægir (eins og við Valtýr álít-
um, að Gunnar sé á sínu natúral-
istísika sérsviði). Að öðrum ólöst
uðum þykir miér einna mest til
Eiríks Smith koma í þessari
grein. Svo er annað viðifangsefni
töluvert fjarskylt þessu innan
aibstraiktliistar, þar sem listamað-
urinn fæst við næ,stum því yfir-
skilvitlegar verkanir forms og
lita. Einmitt þar eru menn eins
og Sverrir Haraldisson og Kári
Eiríksson hreinustu galdrakarl-
ar. Þessi tegumd listar fer oft
einkar vel í húsakynmum, þar
sem menn vilja njóta hvíldar,
því að hún er svo fjarri sál-
rænni togstreitu daglegs iífs. Það
er gott að geta gemgið í álfheima
stundum, þó að lífitö sé hér og
mú.
Mér er vel kunnugt um það,
að Jóhannes Kjarvaii kann vel að
meta list Gun.nars. Það mun vera
vegna þess að þeir eiga þrennt
saman, barnslega einlægni, nátt-
úrukennd og virðinguna fyrir
góðu handverki. Auk þess hefur
Kjarval alltaf verið snillingur á
hinum sviðunum að auki. Það
er Gunnari ekki gefið, hann hef-
ur sín takmörk rétt eins og
Valtýr Pétursson. Það geta ekki
allir verið stóxmeistarar, enda
óæskilegt, því að þeir eru svo
afbrig'ðilegir frá fjöldanum.
Skemmtilegt væri, ef þróunin
yrði sú, að Morgunblaðið fengi
þá, sem hæfnina hafa hver á sínu
sérsviði, til að fjalla um það, sem
þeir 'hafa vit á. Með því gæti
víðlesnasta blað landsins stutt
fjölbreytilega list til vaxandi
þroska. Eims. þó að vel sé að
listinni stutt, gildix samt áfram
það, sem um getur í kvæði eft-
ir Örn Arnarson:
Ekki eru lista leiðir greBar
Lengi þroskast snilli og vit.
í einum spretti enginn skeiðar
upp í frægðarljómans glit.
Kauipmennska og krónuveiðar
kosta minna skæðaslit.
Úlfur Ragnarsson.
Heimsókn kanadíska tundurspillisins „SKEENA“ lauk á mánudagsmorgun. — Á laugardagsmorg-
un var haldin stutt minningarathöfn í Fossvogskirkjugarði, við leiði þeirra 15, sem fórust, þegar
„SKEENA“ eldri strandaði við Viðey 1944. Á myndinni sjást frá vinstri: Itrian Holt, aðalræðis-
maður Breta, Hallgrímur Fr. Hallgrímsson aðalræðismaður Kanada, commander W. G. Brown,
yfirmaður „SKEENA“, Einar Sigurðsson, sem stjómaði björgun 198 manns af „SKEENA" eldri
og séra J. F. Coutts, herprestur. — Einn sjóliðana, sem viðstaddur var minningarathöfnina nú,
var í áhöfn ,,SKEENA“ eldri (Ljóem. Mbl. Sv. Þoran.)
2jo eða 3jo herbergja íbúð
óskast til kaups, helzt í Vesturbæ eða á Seltjarnarnesi.
Góð útborgun í boði.
Upplýsingar á fastaeignasölunni Óðinsgötu 4. Sími 15605.
Get útvegað
smíði á tveimur bátum 12—25 rúmlesta hjá þekktri skipa-
smíðastöð. Verðið hagstætt.
Upplýsingar í síma 1155 og 1168 Keflavík.
EGILL ÞORFIIMNSSON.
Dodge diesel-vörubifreið
árg. 1966 í fyrsta flokks ástandi til sölu Burðarþol á pall 7 tonn.
Góðir greiðsluskilmálar.
KRAFTUR H.F., Hringbraut 121,
sími 12535, 10600.
TIL SÖLU
Fjögurra herbergja íbúð með fimmta herbergi í risi
við Barmahlíð.
Nánari upplýsingar gefur
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þoriákssonar,
Guðmundar Péturssonar og Axels Einarssonar,
Aðalstræti 6 — Símar 12002, 13202, 13602.
Stýrimannafélag íslands
heldur fund að Bárugötu 11 í dag kl. 17.00.
Fundarefni:
Atkvæðagreiðsla um samkomulagið við útgerðarfélögin.
STJÓRNIN.
— appelsínur
þurrkaðir og niðursoðnir ávextir
..n.minu.uiuiiiiiiiimin.im.miuum.iiiiamitim.iunMt..
........ ........................
.••.■■■•■■m.iil HHmmimi'iHiiiiMiiii^HB.i.....
■...4 -
'.■m,m,m,.| ’ V 1 V P 1 tHf I “fH.i|*MMutlUW
..... ðlÚ í A r 4 Al l ■ I gl'mimmiw
'mmmmml M k.w I |j.\w I wi.mnimtiHi.
......."'tABMHfl ■^Hm.m.mi.u
Miklatorgi
ÞiNG LANDSSAMBANDS SJÁLFSTÆÐISKVENNA
verður haldið í Hótel Valhöll á Þingvöllum mánudaginn 9. júní og hefst kl. 10.30 árdegis.
D A G S K R Á :
Þingsetning: Formaður sambandsins Ragnhildur
Helgadóttir.
Skýrslur stjórnar og sambandsfélaga.
Hádegisverður. Ávarp formanns Sjálfstæðisflokks-
ins dr. Bjarna Benediktssonar.
KL. 14.00 Málefni aldraðra.
Frummælendur: Geirþrúður Hildur Bernhöft,
ellimálafulltrúi Reykjavíkurborgar, Sesselja
Magnúsdóttir forstöðukona Elliheimilisins Hlé-
vangs í Keflavík. — Frjálsar umræður.
KL. 17.00 Stjórnarkjör og önnur aðalfundarstörf.
Hópferð verður frá félagsheimili Sjálfstæðismanna, Valhöll við Suðurgötu í Reykjavík kl. 9 árdegis, og
til baka um kvöldið.
Stjórn Landssambands Sjálfstæðiskvenna.