Morgunblaðið - 22.06.1969, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 1969
7
Kringum Tjörn i tœru sumarveðri
Nú er snmar og sól og blíð-
skaparveður, i það minnsta hér
syðra, þótt máski snjói eilitið
i fjöll þar nyrðra, — og Jóns-
messan á næsta leiti.
Margir búast til ferðar út i
guðsgræna náttúruna, heizt á fri
dögum, því að þá geta þeir and
að iéttar og strokið sér frjálsar
um höfuð. Sumir endasendast á
bilum um allar jarðir, sjá litið
sem ekkert út um rykugar bil
rúðurnar, aðrir leggja land und
ir fót, komast við það í mun
meiri og nánari snertingu við
náttúruna, en ella.
En það er ekki alltaf nauð-
synlegt að ferðast um langa vegu
til náttúruskoðunar. Venjulega
er það svo, að þegar menn hafa
lileinkað sér þennan dýrmæta
hæfileika að skynja jafnvel hið
smæsta i náttúrunni, er þarflaust
að gera víðreist.
Fyrir okkur, sem byggjum
höfuðborgina, er eiginlega alger
lega ónauðsynlegt að fara út fyr
ir borgarmörkin til að njóta nátt
úrunnar i ríkum mæli.
♦
Því til sönnunar langar mig
til að biðja ykkur, lesendur mín
ir, að koma með mér í göngu-
ferð niður að Tjörn, ganga með
mér svo sen einn Tjarnarhring
eða tvo. í þetta sinn skulum við
leyfa hornsilunum að vera í
friði, þótt heimur þeirra sé í
rauninni afar merkilegur og
girnilegur til fróðleiks.
Ekki skulum við heldur að
þessu sinni hyggja að plöntu-
lífi, þótt nærtækt sé, þegar kom-
ið er að eystri bakka Miðtjarn-
arinnar, en þar í sefinu leynist
mörg lífveran, sem sjálfsagt
væri ómaksins vert að skoða
nánar.
í þetta sinn ætlum við að
skoða fuglalífið á Tjörninni, og
minnumst þó sjálfsagt ekki á
allar þær fuglategundir, sem þar
má sjá, en það kemur með æf-
ingunni að þekkja þær allar og
lifnaðarhætti þeirra.
♦
Við erum stödd í Tjarnar-
krikanum framan við gamla
Miðbæjarbarnaskólann, sem nú
hefur verið upphafinn í æðra
veldi, og gerður að Menntaskóla
Þar rennur enn lækurinn til sjáv
ar, sem Lækjargata dregur nafn
reiðir handa sínum Tjarnarfugl
um. Að gefa Bra-bra, er eitt-
hvert skemmtilegasta áhugaéfni
yngstu kynslóðarinnar, og fær-
ist í vöxt, að foreldrar leyfi
börnum sínum að gefa öndun-
um af afgangsbrauði frá heim-
ilunum, og er slíkt til þroska,
og mun, þó seinna verði, til
að gera litla barnið meiri vin
fuglanna en ella. Á köldum vetr
armorgni rennur hér út í Tjörn
ina einnig afgangsvatn Hitaveit
unnar, mætti raunar vera meira,
en hefur mörgum fuglinum bjarg
að frá kali og kvölum.
♦
Stokköndin er hér i miklum,
meirihluta, en Stokkandarstegg
urinn, Grænhöfðinn, er litfagur
fugl, þótt við getum ekki fall-
ist á það með þeim kennurum.
minnsta öndin, fer lítið fyrir
henni, en á Tjörninni hefur hún
samt sést. og þannig mætti lengi
telja upp andir á Tjörninni,
enda ríkir þar andatrú, en þar
eru einnig Hnúðsvanir og Söng
svanir, og virðast þeir hvorug-
ir „plurna" sig of vel í tilhuga-
lífinu upp á síðkastið. Virðast
þeirra ástir vera kaldar og ó-
frjóar og lítt í meinum, og eru
þó tilburðir ýmsir. Þýzki hnúð
svanurinn frá Hamborg virðist
eiginlega vera að gefast upp í
þessari nóttlausu voraldarver-
öld, og að vonum,, en sýnu er
hann herskárri en hinn. Grágæs
irnar, sem fljúga ósteiktar í
hópum framan við nef svangra
Reykvíkinga, njóta líka nægtana
í hveitibrauði og eru svo til
alveg hættar því óhagræðingar-
Stokkandarhjónin kvtða ekki tilverunni. Þau greiða ckki skatta,
ekki einu sinni aðstöðugjöld.
sem eitt sinn völdu þá spurn-
ingu á gagnfræðaprófi: Hver
er fegursti fugl íslands? Og hið
eina rétta svar var: Stokkand-
arsteggur. Allt annað var rangt.
Höfum við gengið til góðs?
Oft hefur verið á það minnzt
af undirrituðum, að fækka þurfi
stokkandarsteggjum á Tjörninni
því að þar er ekki um að ræða
„kvindernes overtal" eins og
danskurinn segir, og horfir
stundum til vandræða, og mega
þeir skilja, sem fylgjast vel
með fuglalífi á Tjörninni. Er
það þó hart að þurfa að viður-
kenna slíkt, og vera kynbróðir
þeirra, grænhöfðanna.
Stokköndin á Tjörninni
sitt af, enda þótt hann sé löngu
farinn „undir jörðina", sem svo
nefndist á stríðsárunum í þeim
löndum, sem voru jindir járn-
hælnúm gamalkunna.
Máski vita það færri, a.ð í
Tjörninni gætir enn flóðs og
fjöru, og ekki þarf lengi að
standa frammi við handriðið, til
að sjá þessi sjávarföll. Rétt
steinspar frá er gömul stein-
bryggja. Unga fólkið í dag velt
ir^sjálfsagt vöngum yfir nota-
gildi hennar við Tjörnina, en
það var ærið. í þá daga voru
engin hraðfrystihús til, heldur
var höggvinn ís á Tjöininni, ek
ið burt á sleðum, upp eftir þess
ari gömlu bryggju, og þaðan í
Nordalsíshús, í Herðubreið þar
sem nú er Glaumbær eða ís-
björninn, og það voru nú frysti
tækin í gamla daga. Hestarnir,
sem drógu íssleðana blésu af
kappi, myndaðist móða, og karl
arnir, sem við verkið unnu,
börðu sér til hita líkt og fisk-
salarnir á torgunum, sem köll-
uðu „Ýsa á 25 aura kílóið, þorsk
ur á 22 aura kílóið".
♦
Hér í Tjarnarkrikanum er
margt um fuglinn. Fullt af fólki
er að gefa öndum, gæsum og
álftum brauðmat til viðbótar
þeim mat, sem borgin sjálf til-
mm
kafar eftir æti.
Rauðhöfðaöndin er einstak-
lega prúð önd, og „pjúíið“henn
ar heillar oft fólkið. Það heyr-
ist langa vegu að, og að auki
er hennar steggur litlu litminni
en Grænhöfðinn, enda kallaður
Rauðhöfði. Duggöndin er mjög
algeng þarna. Hún er bústin og
feit, mestanpart svört og hvít
og auðþekkt. Skúföndin, frænka
hennar, hefur skúf aftan ó
haus, sem sker hana dyggilega
úr hópnum. Graföndin er tígu-
leg önd. Langt stél hennar hef
ur gefið Englendingum tilefni
til að kalla hana „Pintail", og
er það réttnefni. Eitt sinn, það
mun hafa verið í kringum ] 935
kom Skeiðönd á Tjörnina. Varð
þá uppi fótur og fit hjá öllum
fuglaáhugamönnum. Nafn sitt
dregur hún af nefinu, sem er
eins og skeið í laginu. Nú ér
hún löngu horfin, en heldur þó
ennþá tryggð við ísland, og er
skrautleg önd.
♦
Einn Húsandarsteggur sást í
Þorfinnshólma, einn og yfirgef-
inn, en æðarkolla ein sá aumur
á honum, og síðan urðu þau
par og löbbuðu saman fyrir sunn
an Fríkirkjuna, en engin veit
þó ennþá, hvernig veður skip-
ast í lofti. Ennþá brennur þeim
sjálfsagt í muna. Urtönd er
standi að fljúga langt til heiða,
það er svo mæðandi, „og svo
ætla þeir að drekkja öllu heila
„klabbinu" í raforku" Er það
nema von, að þær kjósi frekar
að heilsa sínum hjartans vini,
honum Tómasi Tómassyni, sem
daglega gefur þeim brauð, á
túninu, þar sem áður stóð ís-
björninn, frystihúsið.
♦
Erum við þá komin að máv-
um og ber þá fyrst fræga að
telja hina björtu Kríu, sem sum
ir nefna „L‘Arrabiata“ um lang
an veg komin alla leið frá Suð-
urheimskautinu, yfir það óra-
víða haf, þar sem lengst er á
milli landa á jarðarkringlunni,
frá strönd Mörgæsanna við Suð-
urheimskautið og allt út fjörun-
ar við Grindavík, hér suður af.
Hún byggði Sverrishólma af
ást og skyldurækni, og ver kon
ungsríki sitt með oddi og egg.
Kári frá Víðikeri yrkir svo til
vinkonu sinnar, kríunnar:
„Sjáðu! Nú er krlan komin.
Hvað er hún að fást við
lækinn?
Sifellt hefir hún sama kækinn
Silungsveiði stundar hún,
litil, snotur, björt á brún“
En þeir eru á Tjörninni fleiri
mávarnir. Þar er sá hvimleiði
Hettumávur. Hann er svo sem
nógu fallegur, skinnið að tarna
en samt anzi leiðigjarn, og er
eiginlega rétt í þann mund að
nema hér land, og skakkar
varla meira en 35 órum. En að-
gangsfrekur er hann á túnun-
um bændanna hér í nærsyeitun-
um, og fara þá fyrir lítið bústn
ir skozkir ánamaðkar. En sú
lyst! Að hugsa sér!
Og svo að síðustu! Vargur-
inn í fuglahjörðinni, sá alræmdi
og illræmdi Svartbakur, söku-
dólgurinn víðfrægi. Svartbakur-
inn eða Veiðibjallan, er tígu-
legur fugl, það er arnsúgur und
an vængjum hans, og mér er
sagt, að augu hans stækki 9 sinn
um alla hiuti. Hann sinnir sín-
um bjargræðisvegum. Máski hon
um þyki lostætastir æðarungar,
líkt og okkur kjúklingar. Hver
er munurinn?
Stundum er eins og Tjörnin
sé merlúð perlum af mávum.
Eða þá þeir standa á hálum ís
og víðsjálum. En mættu þeir
líka lifa. Leyfum samræminu í
náttúrunni að lifa og halda sér.
Mun okkur þá vel farnast.
Tjarnarferð í góðu veðri get
ur verið mikill yndisauki. Nátt-
úruskoðun þar er sízt lakari en
annars staðar. — Fr.S.
ÚTI
Á
VÍÐAVANGI
Veðskuldabréf
Höfum kaupendur að nokkru magni veðskuldabréfa.
FASTEIGNIR OG FISKISKIP,
Hafnarstræti 4, sími 18105.
OHTSU hjólbarðar
1000 x 20 — 14 PR m/slöngu kr. 13.794.00
1100 x 20 —- 14 PR m/slöngu kr. 15.026.00.
OHTSU MÆLA MEÐ SÉR SJÁLF.
II. i' ni [II1
ryöMSojra sul □UlíSJIí
Hverfisgötu 6 — Sími 20000.
Húsbyggjendur
FYRIRLIGGJANDI: —
Undirpappi, breidd 50 og 100 cm.
Yfirpappi tfteidd 100 cm.
Asfaltgrunnur (Primer)
Oxiderað asfalt grade 95/20
Frauðgler einangrunarplötur
Niðurföll 2f' — 3" og 4”
l.oftventlar
Kantprófílar.
VIÐ HÖFUM SÉRHÆFT OKKUR í FRÁ-
GANGI ÞAKA OG HÖFUM í OKKAR
ÞJÓNUSTU SÉRHÆFÐA STARFSKRAFTA
Á ÞESSU SVIÐI.
= Gerum tillögur um fyrirkomulag og endanleg
tilboð í framkvæmd verksins.
= Leggjum til allt efni til framkvæmdanna.
= Veitum ábyrgð á efni og vinnu.
KYNNIÐ YÐUR OKKAR HAGSTÆÐU
VERÐ OG GERIÐ RÁÐSTAFANIR UM
FRAMKVÆMDIR TÍMANLEGA.
T. Hannesson & Co.
Brautarholti 20 - Sím/ 15935
ARABIA-hreinlætistæki
Stórkostleg
nýjung
Hljóðlaus W.C. — kassi.
nýkomið: W.C.
Handlaugar
Fætur f. do.
Bidet
Baðker
W.C. skálar & setur.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Glœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumboð fyrir Island:
HANNES ÞORSTEINSSON
heildv., Hallveigarstig 10, sími 2-44-55.