Morgunblaðið - 22.06.1969, Blaðsíða 15
MOROUNBLAÐIf), SUN3STUDAGUR 2l2. JÚNlí 1968
15
Svxtugur:
Séra Gísli Brynjólfsson
Það var vorið 1937, að séra
Gísli Brynjólfsson heimsótti okk
ur hjónin í Siglufirði. Svo hittist
á, að við vorum þá alveg ný-
flutt í prestsseturshúsið sem
byggt var þar á árunum 1936—-
37 og ég held meira aðsegja, að
hann hafi verið fyrstí gesturinn
sem heimsótti okfcuir í þetta nýja
hus. Mun hann hafa komið, með-
al annars, í þeim erindagjörðum
að spyrja mig frétta af Síðunni
og um Kirkjubæjarklausturs-
prestakall, sem þá hafði verið
óveitt um hríð, síðan ég fór það-
an. Hann mun jafnvel hafa lát-
ið sér detta í huig að taka setn-
ingu þangað austur, enda sumir
að austan.
Fór svo að hann var settur j
prestur í Kirkjubæjarklausturs
prestakalli haustið 1937.
Taldi ég þá vel hafa skipazt
fyrir Síðumönnum að fá þennan
unga, efnilega og vel menntaða
prest austur þangað. Þar eystra
var Sr. Gísli síðan alla sína
prestSkapartíð eða þangað til
hann fluttist til Reykjavíkur með
fjölskyldu sinni 1963.
Sr. Gísli er fæddur í Skildiniga
nesi við Reykjavík 23. júní 1909
og er því sextugur á morgun.
Foreldrar hans voru þau hjón
in Brynjólfur Gísalson bóndi
í Skildinganesi og Guðný Jóns-
dóttir. Afi sr. Gísla í föðurætt
var sr. Gísli Jóhannesson, prest
ur á Reynivöllum í Kjós, en
kona hans var Guðlaug Eiríks-
dóttir, sýslumanns, Sverrissonar
frá Rauðabergi í Fljótshverfi
Eiríkssonar. Afi sr. Gísla í móð-
urætt var sr. Jón Þórðarson,
próf. á Auðkúlu, en hann var
kvæntur Sigríði Eiríksdóttur
Sverrissonar sýslumanns (Sverri
sensætt) Voru þær því systur
föðuramma og móðuramma sr.
Gísla.
Sverrir Eiríksson á Rauða-
bergi (langa langafi sr. Gísla)
bjó síðar að Kirkjubæjarklaustri
Hánn og kona hans Sigríður Sal
ómonsdóttir Þorsteinssonar voru
síðustu hjónin, sem sr. Jón Stein
grímsson hinn kunni eldklerkur
gaf saman þar eystra.
Sr. Gísli ólst upp í nágrenni
Reykjavíkur og lauk stúdents-
prófi frá menntaskólanum vorið
1930 og var nýbakaður stúdent,
begar Alþingishátíðin var hald-
in á Þingvöllum og norræna
stúdentamótið í Reykjavík. Kandi
datsprófi frá Háskóla Islands
lauk hann 1934 og veturinn 1935
36 dvaldi hann við framhaldsnám
í Cambridge, í Ridley Hall, sem
er einn af prestaskólum ensku
kirkjunnar, en þeir taka við
stúdentum, sem lokið hafa B.A.
prófi í einhverjum greinum.
Háskólamir í Oxford og Cam-
birdge hafa yfir sér sérstakan
blæ og er ómetanlegt fyrir náma
menn að fá að dvelja þar, jafn-
vel þó ekki sé nema uim stundar-
sakir.
Eftir að sr. Gísli kom heim var
hann um stund við blaðamennsku
og annaðist meðal annars ritstjóm
„Framsóknar", blaðs Bænda-
flokksins.
Um haustið 1937 var hann,
eins og áður er sagt, settur prest
ur að Kirkjubæjarklaustri og
átti þátt í þvi að prestssetrið
var ' flutt þangað frá Prests-
bakka. Prófastur var hann skip
aður í Vestur-Skaftafellsprófasts
dæmi 1952 og gegndi því starfi
meðan hanin var eystra. Frá 1963
hefur hann alla tíð haft mikinn
áhuga fyrir málefnum landbúnað
arins og var fulltrúi Stéttarsam-
bands bænda í mörg ár. öll prest
skaparár sín á Klaustri hafði
hann sjálfur nokkum búskap og
studdi bændur í áhugamálum
þeirra.
Sr. Gísli er kennimaður góð-
ur og áhugamaður um andleg
mál. Meðan hann var prófastur
eystra stjórnaði hann héraðs-
fundum af virðuleik og gerði þá
að kinkjulegum meruninigarfuind-
um fyrir prófastsdæmið.Þar var
fyrst hreyft hugmyndinni
um minjnisvarða á Kirkjubæj ar-
klaustri um sr. Jón Steingríms-
son, sem nú hefuir þróazt í það
að verða minningarkapella um
þann merka klerk. Á héraðsfund
unum flutti sr. Gísli oft merkileg
söguleg erindi, sem athygli vöktu
Sr. Gísli er prýðilega ritfær og
blaðamennskuna lagði hann
aldrei á hilluna, þó að hann
væri allfjarri Reykjavík og sendi
oft hugleiðingar um stjórnmál og
daglegt líf til blaðanna.
Á seinni árum hefur hugur
'hains meira hneigzt að þjóðleg-
um fræðum og skipta greinar
hans um þau efni mörgum tugum.
Hanrn er fuindvís á sérkennilegt
og skemmtilegt efni, leitar hann
oft uppi gamlar myndir og læt-
ur þær fylgja greinuim síinum eða
hann tekur sjálfur myndir, þegar
það á við. Menn láta yfirleitt
ekki greinar og ritgerðir sr. Gísla
frá sér fara ólesnar. Fer nú að
koma tími til þess, að hann safni
saman greinum sínum og gefi út
í bókarformi, með þeim mynd-
um sem þeim hafa fylgt og við
verður komið.
Þó að sr. Gísli sé hættur prests
skap í venjulegum skilningi þess
orðs, fylgist hann vel með öllu,
sem í kirkjunni gerist. Hann hef
ur nokkrum sinnum tekið að sér
þjónustu í forföllum presta, og
í flestum kirkjum Reykjavíkur
hefur hann prédikað og er gott
til hams að leita í þeim efnum.
Hann er manna kirkjuræknasur
og gott að hafa hann í kirkju
hjá sér.
Sr. Gísli er kvæntur Ástu
Valdimarsdóttur frá Akranesi
og eiga þau þrjá syni, sr. Bryn-
jólf, er nýlega hefur verið sett-
ur prestur að Stafholti í Borg-
arfirði, kvæntur Áslaugu Páls-
dóttur frá Litlu-Heiði í Mýrdal,
Valdimar bónda og trésmið í
Álftagróf og Sverri, sem er náms
maður heima hjá foreldrum sín-
um.
Margir minnast ánægjustunda
á heimili þeirra hjóna, bæði frá
Kirkjubæjarklaustri og Reykja-
vík. Það eru jafnan fljót að líða
kvöldin heima hjá frú Ástu og
sr. Gísla. Hann er manna fróð-
astur og góðlátleg kímni hús-
bóndans léttir flestum í skapL
Margir munu í dag senda hon-
um ihlýjar kveðjur og árna
honum og fjölskyldu hans allra
heilla.
Óskar J. Þorláksson
Mangir hugsa til séra Gísla
Brynjólfssonar hinn 23. júní, en
það er afmælisdagurinm hatns, og
að baki litrík sextíu ár. Þeir,
seim orðið hafa bamum samferða,
eiga margs að minmast um fjöl-
hæfan drengskiaparmainin og
trauistan vörð vina sdnna. Mörg
hafa viðfanigsefnin verið, sem
hanm hefur gefið krafta sína og
hvarvetna hefur verið að verki,
staðið með vakandi áhuga og
lífsfjöri í óvenju mikluim mœli.
Trúlega hefur hann tileinkað sér
'hina kunnu hvatningu: Verið
hálfvolgir í áhuganum, verið
brennandi í andanum, enda sá,
sem hana reit, verið honium næsta
handgenginn, sjálfur Pállpostuli.
Ungur valdi séra Gísil sér það
hlutskipti, að halda á loft merki
þeirrar hugsjónar, sem veitt hef
ur mestri blessun í lifi marinanna.
Sú hugsjón hefur átt hjarta hans
óskipt — og áhuga, fagnaðarer-
indið og kirkjan hans. Þar hefur
hann verið í hópi hinna vö'kul-
ustu, síleitandi að taðkifærum til
að bera ljós hennar til haminigju
og blessunar meðbræðrum sín-
um. Hann var sóknarprestur
Síðumarma um langt árabil, virt
ur og vinsæll, sat á Kirkjubæj-
arklaustri, hinum fornhelga stað.
Nú er stórt áhugamál hans að
rætast, um helgidóm á þeim stað,
tengdan minningunni um eld-
klerkinn sögufræga, séra Jón
Steingrímsson. Líta má séra Gísli
á þá framkvæmd sem afmælis-
gjöf til sín, og að sjálfsögðu
harla kærkomna, svo mjög seim
hann hefur fyrr og síðar hvatt
til þess verks. — Sem betur fer
er séra Gísli enn unigur, yntgri
flestum sinna jafnaldra, jafn
kvikur og snar og við vinir hans
munum hann fyrir áratugum, sí
leitandi og sískrifandi. Það fyll-
ir orðið þykkar bækur, sem hann
hefur skráð og skrifað, og kenn
ir þar margra grasa. Þættir
hans um sögu byggða og staða i
ýmsum landshlutum hafa orðið
mörgum fróðlegt og skemmtilegt
lestrarefni. Þar hefur séra GLsli,
að eitt sé talið, unnið merkilegt
fræðistarf.
Hollvinur góði. Ég er í hópj
þeirra, sem láta hugann dvelja
við ljúfar minningar frá mörgum
liðnum árum, vima þinna hinna
fjölmörgu, sem eru þér ævinlega
þakklátir, geyma í hiuga samveru
stundimar, þakka vináttuina og
tryggð þína, sem aldrei hefur tal
ið það eftir sér að fljúga langa
vegu yfir fjöll og sæ. Heillaósk-
ir og hjartans kveðja frá okkur
heima til þín, vinur, og þinna.
Blessi þig júnísóliin í bráð og
lengd.
J. M. G.
Nauðungaruppboð
á hluta I Veghúsastíg 3, eigandi Þórlaug Hansdóttir, verður
endurtekið vegna vanefnda fyrri uppboðskaupanda, á eign-
inni sjálfri, fimmtudaginn 26. júní n.k. kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Biireiðoeigendnr
í Hofnorfirði
og nógrenni
Ljósastillingar verða framkvæmdar dagana 25. júní nk. til 3.
júlí að báðum dögum meðtöldum frá kl. 8.30—18 e. h. (en
ekki laugardaga og sunnudaga), í bílageymslu félagsins á
Hvaleyrarholti.
Félag islenzkra bifreiðaeigenda.
(Félagsfólk, sýnið skírteinin 1969).
Fótformsandalar
Mjög vandaðir sandalar á karlmenn, konur og börn í stærð-
um 28—44.
SKÖSKEMMAN. Bankastræti.
T œkniteiknarar
Stofnfundur félags tæKniteiknara verður haldinn í Leifsbúð,
Hótel Loftleiðum, miðvikud. 25. iúní 1969. kl. 20.30.
Allir þeir, sem stunda tækniteiknun og/eða hafa lokið námi
í tækniteiknun, eru hvattir til þess að koma á fundinn.
Undirbúningsnefnd.
JL&.muis
I DURA-SMOOTHtm
Shyrtublússan sem er straufrí
og aldrei krumpast og er fram-
leidd úr 65°/o dacron polyester
35°fo bómull
Nýkomib mikib úrval
Fást hjá:
Dömudeild London
( Dömublússur)
Karnabœ, Týsgötu
(Táningablússur)