Morgunblaðið - 03.07.1969, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR, 3. JÚLÍ 1909
Það er þó alltaf vel hægt
að lifa af landbúnaði
I BLfÐSKAPARVEÐRI og
glampandi sól brostu uppsveit
ir íslands hýrt við í dýrðar-
ljómanum og að því er virt-
ist, varð á fátt betra kosið
hvað veður og allar horfur
til landbrúksins áhrærði.
f svona veðri eir gaiman að
ganga á vina fund, allir eru
bjartsýnir, enginn sér nema
það bezta og hvað, sem menn
myndu nú annars láta sér um
munn fara í vonda veðrinu,
norðan gjólu og s/kammdeg-
inu, er það alla jafnan gleymt
þegar sunrnan andvarinn kem
ur eins og langþráður vinur
til að kæla sólvermda kinn
í sumaramistri.
Norðtunga er reisulegt býli,
sem liggur á fallegum slétt-
unum, sem teygja sig og
Magnús bóndi Kristjánsson
breiða um víðfeðman dal Þver
ánhlíðarinnar milli Þverár og
Kjarrár og harfir niður í Staf-
holtsitungurnar. Magnús bóndi
Kristjánsisan býr þar stórbúi
með konu sinni, Andreu Dav-
íðsdóttur, ættaðri frá Arn-
bjarnarlæik og fimm börnum
þeirra hjóna. Magnús siór-
bóndi er góður heim að sækja
og ekiki aldeilis í kot vísað þar
um slóðir.
Hann bauð ferðlangnum
inn fyrir á dögunum, og reynd
ar þau hjón bæði, og það var
hlýtt og notalegt á setrinu,
ek'ki síður en í glitrandi sólar
blíðunni úti fyrir.
Ilmandi kaffið rauk og kitl
aði bragðlaukana, svo að ekki
varð um villzt, og enfitt er að
neita góðu boði.
— Hvað ertu með margt
penings hérna, Magnús?
— Ætli ég sé ekki með
svona rúmt 40 gripi, auðvitað
ekki allt mjóllkandi, og svona
átta hundruð fjár.
— Hver eru þín viðhorf og
framtíðarvonir?
— Nú viðhorfin eru góð, og
maður er alltaf bjartisýnn. —
Það er að vísu dýrtíð, en hún
kemu rauðvitað niður á öllum
landslýð, svo að það er enginn
að fást neitt um það, að
minnsta kosti eklki hérna meg
in.
— Það er auðvitað ekki far
ið langt með þúsund króna
seðilinn, ef svo ber undir.
Hann hrekkur ákaimmt, ef eitt
hvað á að verzla, svona þegar
ðkroppið er í kaupstaðinn. Það
þekkja það allir, sem búa í
sveit, að maður verður að
kaupa töluvert inn, öðru vísi
Frú Andrea í Norðtungu.
en fóikið sem býr í bæjum og
þorpum. Þetta verður að duga
lengur, og eklki hægt að hafa
það neitt öðru visi.
— Nei, hann er svo sem ekk
ert til skiptanna iseðillinn. En
það eru allir undir sömu söik-
ina seldir, svo að það tekur
því ekki að fást neitt um það.
— Það er kannski ekkert
gaman að því að búa í þessum
þorpum og bæjum, ekkert að
sækja þangað. Ég veit það
elkki, en eitt er nú staðreynd,
og það er það, að þa® er þó
alltaf vel hægt að litfa á land-
búnaðinum. Henn gefur alltaf
af sér, hvað sem öðru líður,
og hægt að fóðra bæði menn
og sfcepnur, hvað sem í kaup
staðnum gerist.
— Vel mælt. Hvað segir þú
þá um tíðina?
— Nú er sauðburði að Ijúka
og tíðin góð. Sól og þurrfcur.
Gott væri auðvitað að fá ein-
hverja vætu í gróðurinn, en
svo er nú það, að það má ekki
rigna of milkið, því að þá
deyja lömbin, þau þola ekki
vætuna, of milkla eða lengi.
Það er mangs að gæta fyrir
þann, sem á að yrfcja jörðina
og ala fénaðinn, og ýmislegt
er það, sem kann að vena auð
ákilið leikmanni, en þó er það
langt um fleira, sem marg-
slungið er og algerlega ein-
skorðað við þekfcimgu sér-
fróðra manna, og það nafn
bera þeir með rentu . . . bænd
urnir akfcar — og margt er
það, sem við eigum þeim upp
að unna, og meguim þafcka
þeim, þótt það vilji stundum
gleymaist.
ÓLAFUR SIGURÐSSON SKRIFAR UM
KVIKMYNDIR
LAUGARASBÍÓ
KEBECCA
Það sem væntanlega kemur
flestum á óvart við þessa mynd,
er það, að þetta er rómantísk
ástarsaga, en ekki glæpasaga
eins og fólk á að venjast frá
Alfred Hitohcoek.
Sagan hefst í Monte Carlo, þar
sem ung stúlka (Joan Fontaine)
kynnist ríkum ungum Englend-
ingi (Lawrence Olivier), sem er
Vart mönnum sinnandi eftir
dauða konu sinnar. Takast með
þeim ástir og giftast þau. Ham-
ingjan er mikil, þar til þau koma
til Manderley, óðals unga manns
ins í Cornwall á Bretlandi. Þar
reynist erfitt fyrir ungu konuna
að losna undan skugga minning-
arinnar um hina horfnu eigin-
koruu, og ráðakona staðarins verð
ur henni sérlega erfið. Endar
þetta allt með miklium átökum
og erfiðum.
Ef þetta hljómar eins og grát-
konusaga, er það ekki tilviljun.
Þetta er vel gerður melodrama.
Ekki verður þessi mynd talin
meðal beztu mynda Hitchcock,
svo sem Rear Window og The
Man Who Knew Too Much. Eigi
að síður er hún vel gerð og ágæt
lega leikin.
Beztur er leikur Joan Fonta-
ine, sem er þarna ung og frísk-
leg og skilst manni við að sjá
hana þarna hvers vegna hún
hlaut sínar vinsældir. Hinn marg
frægi og góði leikari Lawrence
Olivier virðist ekki finna sjálf
an sig í hlutverkinu fyrr en und
ir lokin, þegar vandræði og harm
ur steðja að.
Þetta er góð rómantísk skemmti
mynd og ég vil taka það fram
að ég tel það fremur kost en löst,
þegar mynd er rómantísk, ef hún
er ekki væmin, og það er þessi
mynd ekki. Á næstunni er von á
tveimur Hitchcock-myndum öðr-
um í Laugarásbíó. Báðar eru þær
hliðstæðar þessari, vel gerðar
skemmtimyndir.
STJÖRNUBÍÓ
FfFLASKIPH)
(Ship of Fools).
Enn einu sinni hefur Stanley
Kramer tekið sér fyrir hendur að
styðja gott málefni og í þetta
sinn er hann á móti Gyðinga-
ofsóknum nasizta í Þýzkalandi.
Það er ekki laust við að manni
líði eins og gömlu konunni, sem
skátinn hjálpaði yfir götuna, þó
að hún ætlaði sér alls ekki yfir
hana. Það eru aðferðir Kramers,
sem ekki er hægt að feíxa sig við.
Myndin fjallar um fólk á skipi
en meginefnið er undanfari Gyð-
ingaofsóknanna. Það má segja að
það sé gott að styðja góð mál-
efni, en það krefst ekki mikils
innsæis að vera á móti Gyðinga-
ofsóknum í Þýzkalandi á því
herrans ári 1967. Samt er það
þetta sem Kramer er að gera, og
maður finnur hvernig hann klapp
ar sjálfum sér á bakið fyrir hvað
hann sé góður og réttsýnn.
En því miður er Stanley Kram
er ekki réttsýnn í þessari mynd.
Ef.nokkuð gengur í gegn um
hana eins og rauður þráður er
það kynþáttahatur — hatur á
Þjóðverjum. Það er ekki hægt
að réttlæta það að berjast gegn
einni synd með því að fremja
aðra, en það er einmitt það, sem
Kramer er að gera.
Þá er óvenjulega óheiðarlega
farið með bókina. Látum það
vera þótt gerðar séu breytimgar
á söguþræði, en þegar breytt er
sjónarmiði bókarinnar, er
langt gengið.
Höfundur handritsins, Abby
Mann, og Kramer hafa tekið þá
þætti, sem líklegastir eru til að
ganga í fjöldann og leggja alla
áherzluna á þá. Þá umsnúa þeir
mörgu fleiru, t.d. snúa þeir við
hlutverkum elskendanna ungu.
Það er líka athugandi, að þeir
láta söguina gerast 1933, þegar
nasiztar voru að taka völd í
Þýzkalandi, en Katherine Ann
Porter lætur hana gerast 1931,
þegar Gyðimgaofsóknir varu
ekki eins mikið mál.
Þetta er allt mjög sorglegt, því
að Kramer hefur safnað saman
einhverjum bezta hópi leikara,
sem ég man eftir að sjá á tjaldi.
Minnisstæður verður leikur Jose
Ferrer, sem mathákurinn kven-
sami, Rieber, sem hatar Gyðinga.
Lee Marvin er fyndinn, en erfitt
að sjá hvaða erindi hans hlut-
verk á inn í myndina. Það er
gaman að sjá Vivian Leigh, sem
nú er látin, sanna það að aldur
þarf ekki að draga úr töfrum
konu og það sama má segja um
Simone Signoret, sem þrátt fyrir
sjáanleg merki um að hún er orð
in miðaldra, hefur kjmþokka í ó-
trúlega stórum skömmtum. Hver
þarf ungar stúlkur, þegar þær
eru aniniars vegar.
Það er táknrænt fyrir aðferð-
ir Kramers í þessari mynd, að
þegar hann þarf að fá flamenco
dansara, sem ferðast um með hóp
af stúlkum, sem hann leigir út
til ásta, að þá fær hann Jose
Greco, frægasta flamencodansara
í heimi. Það er ekki líklegt að
svo góður dansari þyrfti að leigja
út mellur. Elisabeth Ashley og
Gearge Segal leika unga elskend
ur, og gera þessum tvívíddarhlut
verkum þau skil sem hægt er.
Heinz Riihmam, gamli vinsæli
gamanleikarinn, leikur góðhjart
aðan og glaðlyndan þýzfcan Gyð-
ing og gerir það frábærlega vel.
Og svo er það sigurvegarinn.
Sá maður sem mest gerir til að
bjarga myndinni og kemur út
með glæsilegustu frammistöðuna
er Oscar Werner, sem leikur
Schumann skipslækni. Er leikur
hans mjög góður, auk þess sem
hann hefur til að bera mikinn
persónulegan þokka. Varla fer
hjá því að við eigum eftir að sjá
hann oftar framvegis, eftir þetta
hlutverk.
Ég er persónulega á móti Gyð
ingaofsóknum og ég ber enga sér
staka ást á Þjóðverjum í brjóisti,
en ég vil endurtaka hér að það
bætir engu við réttlætið að
byggjia upp hatur á Þjóðverjuim,
á röngum forsendum.
Kaupum
hreinar og stórar léreftstuskur
prentsmiðjan
Til sölu
Vel með farin Broyt-grafa með forgröfu og bakgröfubúnaði.
VELTIR H.F.
Glæsileg 2jo herb. íbúð
í Vesturborginni til sölu, 80 ferm., harðviðarinnréttingar,
teppalögð.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN,
Austurstræti 12.
Símar 14120 — 20424.
Sölumaður heima 83633.