Morgunblaðið - 26.09.1969, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.09.1969, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. SEPT. H969 ■=-25555 í* 14444 wam BILALEIGA IIVKItFISGÖTU 103 VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn VW 9manna-Landrover 7manna LBTLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 13. Sími 14970 Eftir lokun 81748 eða 14970. RAUÐARARSTIG 31 V______________/ bilaleigan AKBBA UT car rental service 8-23-47 sendum Húsbyggjendur Trl söl'U er ba-ðker og líti'H.raf- knúin, steypuhrærivél á taeki- faeri'sverði Sírrvi 82898. Teppi Vil kaupa notuð vel meðfarin góifteppi. Sími 82898. 0 Bara 25 krónur Júlíus Ólafsson biður Velvak- anda að birta neðanskráð: „12. ágúst var einn sólríkasti dag ur sumarsins hér sunnanlands. I Morgunblaðinu 13. ágúst mátti sjá myndir og viðtöl, er blaða- maður og ljósmyndari blaðsins tóku í smáferðum um borgina. M.a. er mynd af 9 ungmennum í unglingavinnu. Ég veit ekki um aldur þeirra, en eftir ágizkun 12—15 ára. Blaðamaðurinn sagði: „að þeir hafi verið himinlifandi yfir sólskininu, en hins vegar ó- ánægðir með tímakaupið sem þeir fengju". Bara 25 kr. á timann og við sem þrælum okkur út“ Ef miðað er við 8 stunda vinnu dag, verður dagkaupið 200 krón- ur. Vinnuþrælkunin má að skað lausu liggja á milli hluta, ég held að vinna drepi engan nú til dags á íslandi, sem betur fer, sízt af öllu í annarra þjónustu. Þegar ég las þetta, hvarflaði hugur minn 66—67 ár aftur í tim- ann, þá var ég stráklingur 10—11 ára. Ég átti heima í Skuggahverf inu. í þá tíð var fiskverkun á Kirkjusandi, saltfiskurinn var þveginn og sólþurrkaður. Við unglingarnir fengum vinnu þegar sól var og fiskurinn breiddur. Mig minnir, að fiskbreiðslan hafi byrjað kl. 0600, hlé um miðj an daginn hjá þeim er eingöngu unnu við þurrkun . Ég held ég fari rétt með, að við krakkarnir fengum 6 aura á tímann. Ef reiknað er með 12 stunda vinnudegi, sem ekki var talinn langur í þá daga, þá feng- uxn við 72 aura fyrir daginn, ef hann var allur unninn. Með 8 stunda vinnudegi, eins og nú er oftast miðað við, þá fengum við 48 aura yfir daginn. Þess má geta, að þetta var íhlaupavinna, aðeins þegar sólin skein var þörf fyrir okkur og urðu því margar kauplausar stundirnar yfir sum- arið. Nú getur hver sem vill hug- leitt: Vorum við unglingarnir bet ur eða ver sett 1901—02 með 6 aura tímakaup en unglingamir í dag með 2500 aura tímakaup? Það er rúmlega 416 sinnum hærra í fljótu bragði virðist þetta fjar- stæða en er samt raunveruleiki. Hlutfallslega hafa breytingar orð ið á öðrum sviðum á íslandi, það sem af er þessari öld. í flestum tilvikum til heilla og blessunar landi og þjóð. Eitt finnst mér áberandi hafa hrakað með ísl. þjóðinni, en það er þakklátsem- in, hún er ekki „móðins" i dag. Nú er svo fátt þakkað, allt tal- ið sjálfsagt, að öllum sé rétt upp í hendurnar fyrirhafnarlaust, án verðskuldunar. Ég held að alda- móta kynslóðin hafi verið þakk- látari fyrir hvað eina er á vannst til bóta. Júlíus Ólafsson". 0 Mjólkurhysterí Þannig hefst bréf frá Gvendi (líklega þeim sem Gvendarbrunn ar eru við kenndir), en hann tekur mikið upp í sig, þegar hann lýsir vanþóknun sinni í bréfi til Velvakanda á þessu kveini og kvarti yfir að nú muni kannski verða minna um mjólk í vetur. Finnst hornnn það greinilega til bóta, að fullorðna fólkið fari að drekka Gvendarbrunnavatn. Hann segir: „Sannleikurinn er sá að mjólkurþambið í íslendingum er ósiður, sem diaga ætti úr til muna. Að fullorðið fólk sé sýnkt og heilagt að belgja sig upp af mjólk er hvorki hollt né ódýrt. Fínasta vatn í heimi, sem alltaf er verið að stæra sig af, kostar ekkert. Börnum er sjálfsagt hollt að drekka mjólk að vissu marki“. Gvendiur vill sem sagt að börn- in fái þá mjólk sem kemur til með að vera á boðstólum í vet- ur, en fullorðna fólkið geti van- ið sig á að drekka vatn. Vel- vakandi vill nú gjarnan bæta því við, að i ýmsan mat er mjólk óneitanlega nauðsynleg. En ef skortur verður, þá er auðvitað sjálfsagt að láta börnin ganga fyrir. Fleiri hafa skrifað vegnamjólk urinnar, og virðist flestum það á móti skapi að fá blandaða mjólk með hverju sem er. Þá sé betra að drekka bara ýmist almenni- lega mjólk, og svo vatn eða ávaxtadrykki á milli. ANGLI - SKYRTUR COTTON—X = COTTON BLEND og RESPI SUPER NYLON Fáanlegar í 14 stærðum frá nr. 34 til 47. Margar gerðir og ermalengdir. Hvítar —- röndóttar — mislitar. ANGLI - ALLTAF HANDAVINNUNAMSKEIÐ Kvöldnámskeið í Hafnarfirði í svartsaumi, hvítsaumi, herpisaumi o. fl. Einnig föndur t. d. gljábrennsla (emalering) og bastvinna. Upplýsingar og innritun, simi 52628. Kennarastaða Vegna forfalla vantar kennara að Gagnfræðaskólanum að Selfossi nú þegar. Aðalkennslugrein enska. Upplýsingar gefur skólastjórinn í síma 99-1122 og 99-1256. SKÓLANEFNDIN. RAÐIÐ ER EKKI Halldór Jónsson hf Hafnarstrætl 18 • slml 22170 HJARTACARN HJERTE CREPE PREGO DRALON COMBI CREPE BABY COURTELLE Þolir þvottavélaþvott. Prjónabækur og mynstur. VERZLUNIN HOf=, Þingholtsstræti 2. Opinber stofnun óskar eftir unglingsstúlku til sendistarfa og aðstoðar á skrifstofu. Tilboð með upplýsingum um aldur og menntun óskast sent Morgunblaðinu fyrir 30. september 1969 merkt: „Rösk — 3814".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.