Morgunblaðið - 03.12.1969, Qupperneq 11
MORíGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. DESEMBER 1969
11
Tveim Biafra-
vélum grandað
L.ag'oa, 1. desember. NTB—AP.
NÍGERÍSKAR þotur hafa grand-
að tveimur af Minicon-vélum Bi-
aframanna, aS þvi er skýrt var
frá í Lagos í dag. Vélunum var
veitt eftirför og grandað þegar
þær höfðu verið neyddar til að
lenda á leynilegum flugvelli við
Ozubulu skammt frá Níger-
fljóti. Flugher Biaframanna hef-
ur að undanfömu gert nokkrar
árásir á olíumannvirki, flugvelli
12 ára
skólasystkin;
Héldu
hlutaveltu
gáfu vangefnum
NÝLEGA komu nokkur 12 ára
skólasystkin á skrifstofu Styrkt-
arfélags vaíigefinna og faerðu fé
laginu kr. 7.279.20, sem var hagn-
aður af hlutaveltu, sem þau
héldu í bílskúr við Bólstaðahlíð.
Styrktarfélag vangefinna er
þessum ungmennuim mjög þakk-
látt og tnetuT framtak þeirra og
gjöf þessa mjög mikils. Ánægju
liegast er að vita til þess að böm
in hafa hugleitt vanmátt þess-
aira fórnarlamba örlaganna og
gert sér grein fyrir því, að þeix
heilbrigðu þurfa að styrkja þá,
sem alla ævi búa við vanmátt
bernskunnar.
Aukafrí
NÆR 200.000 skólaböra hafa
fengið aukafrí vegna verkfalls,
skólakennara, sem er mesta verk
falls, sem orðið hefur í sögu Bret
lands, og hófst í morgun.
Mikill fjöldi maeðra, sem starfa
utan heimilis, verða nú tilneydd-
ar til þess að líta eftir þörnum
sínum, þegar um 4.500 kennarar
viö 330 skóla hafa hyrjað verk-
fail, sem á að standa í tvær vik-
ur. í London var 21 baraaskóla
lokað og 12.000 börn méttu halda
kyrru fyrir heima. Frá öðrum
borgum berast þær fréttir, að
mikil þátttaka sé í kennaraverk-
fallinu, sem talið er, að kosta
muni verkfallssjóð kennara usn
50 millj. ísl. kr.
í verkfallinu er borin fram
krafa um almienna launahækku'n,
sem nemi í kringum 30.000 ísl.
kr. á ári. Kennararnir höfnuðu
fyrir þremuT vikum tilboði um
'hækkuin, sem var í kringum
10.000 kr.
Barnaskólakennarar hafa lengi
verið í hópi láglaunastétta í Bret
landi.
og aðra hemaðarlega mikilvæga
staði í Nígeríu.
Jafnframt herma áreiðanlegar
fréttir að sambandslhermeinn
þjarmá nú mjög að hersveitum
Biaframanna á að minnsta kosti
fimm stöðum. SambandShersveit
imar sækja nú að Owerri, eina
meiriháttar bænum, sem er enn
á valdi Biaframanna. Sótt er að
bænum úr ýmsum áttum og reynt
að einangra hann. Jafnfnamt eru
hafnar árásir á Onitsha í norðri,
og er þvi haldið fram í Lagos að
þessar og aðrar hemaðaraðgerð-
ir séu undanfari annarrar ög
meiri sóknar.
Brynja
50 ára
VERZLUNIN Brynja átti nýlega
50 ára afmæli og var þá þessi
mynd tekin af eigendum og
starfscfólki. Brynja var fyrst til
húsa á Laugavegi 24, þar sem
Fálkinn er nú en fyrir 40 árum
fluttist verzlunin að Laugavegi
29 og þar hefur hún verið síðan
og selt járnvörur, byggingavör-
ur og verkfærL f titefni aJmælis-
ins var tveimur elztu starös-
mönnum verzlunarinnar, Bene-
dikt Jakobssyni afgreiðsliumamni
og Marinó Helgasyni verzlunar-
stjóra gefin gulllúr. Á myndinni
eru: sitjandi frá v: Liesel Beck-
er einkaritari, og Björn Guð-
munásson forstjóri en standandi
eru: Benedikt Jakobsson af-
greiðslumaður, Marinó Helgason
verzlunarstjóri, Brynjólfur
Björasson skrifstafustjórd, Bald-
ur Sveinsson afgreiðslumaður og
Jásep Georg afgreiðslumaður.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
EKIÐ var á bílinn R 13952, sem
er ljósgrænn Volswagen þar sem
hainn stóð á bílastæði á móts
við Landspítalann sL laugardag
frá kL 19,30 til rúmóL 20. Bakkað
var á hlið bílsins, það harkalega
að hainn fær&ist úr stað og
skemmdist vinstri hurð talsvert.
Ökumaðurinn, sem valdur var
að árekstri þessum skildi eftir
sig minjagripi — hiuti úr sinum
eigiin bíl og eru þeir í vörzlu
rannsóknarlögregkmnar.
Rannsóknarlögreglan skorar á
viðkomandi bílstjóra að gefa sig
fram hið allra fyrsta og ennfrem
ur hafi einhver séð umraett at-
vik, að hann komi einnig til við
tals. Sími rannsóknarlögreglunn
ar er 21108.
Iðnaðarhúsnœði
Til sölu 500 ferm. iðnaðarhúsnæði á jarðhæð. Gott athafna-
svæði. Miklir stækkunarmöguleikar. Skipti á minna húsnæði
koma til greina.
Tiboð merkt: „Skipti — 3935" sendist Mbl. fyrir 7. þ.m.
Aðalfundur
Stangaveiðifélags Akraness
verður haldinn sunnudaginn 7. desember á Hótel Akranesi.
DAGSKRA:
1 .Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
STJÓRNIN.
Norsk stjórnvöld
hafa ákveðið að veita islenzkum stúdent eða kandidat styrk
til háskólanáms í Noregi næsta háskólaár, þ. e. timabilið
1. september 1970 til 1. júní 1971 Styrkurinn nemur 900—
1000 norskum krónum á mánuði, og er ætlunin til, að sú
fjárhæð nægi fyrir fæði og húsnæði, en auk þess greiðast
400 norskar krónur vegna bókakaupa o. fl.
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20—30 ára, og hafa
stundað nám a.m.k. tvö ár við Háskóla Islands eða annan há-
skóla utan Noregs. Þá ganga þeir fyrir um styrkveitingu,
sem ætla að leggja stund á námsgreinar, er einkum varða
Noreg, svo sem norska tungu, bókmenntir, réttarfar, sögu
Noregs eða norska þjóðmenningar- og þjóðminjafræði, dýra-,
grasa- og jarðfræði Noregs, kynna sér norskt atvinnulíf
o. s. frv.
Þeir, sem kynnu að hafa hug á að hljóta styrk þennan,
sendi menntamálaráðuneytinu umsókn fyrir 15. janúar 1970
ásamt afritum prófskirteina og meðmælum. Sérstök umsókn-
areyðublöð fást ( ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
25. nóvember 1969.
Stórfróðleg bók sem segir frá
frægustu tilræðum veraldarsög-
unnar við stjórnmálamenn og
stjórnmálamenn og þjóðhöfð-
ingja, allt frá þeim tíma er
Charlotte Corday myrti Jean
Paul Marat 1793 til morðsins á
John F. Kennedy 170 árum
síðar.
301 bls. Kr. 530,00
án söluskatts.
Þetta er bók sem mun án efa
vekja athygli allra þeirra sem
hafa áhuga á sálarrannsóknum,
Höfundur segir í niðurlagsorð-
um formála: „Ég játa vanmátt
minn, en get svarið, að ég hef
verið strangheiðarleg.
Ég hef skrifað hér það sem ég
meðtók og lesandinn verður
sjálfur að dæma sannleiksgildi
þess."
135 bls. Kr. 340
án söluskatts.
5NÆBÍ0RN iÓNSSON
6 NÝJAEt BÆKUR
FRÁ ÍSAFOLD
ÍSAFOLD
Stefán Jónsson, hinn vinsæla
bamabókahöfund, þarf ekki að
kynna. Hér er kominn gamall
kunningi barnanna, Disa frænka
og feðgarnir á Völlum, sem
hafði orðið útundan í bandi þeg-
ar hún fyrst kom út. Við viljum
vekja athygli á því að þetta
upplag er mjög takmarkað.
221 bls. Kr. 160,00.
án söluskatts.
í þessari nýju bók Kára eru
rúmlega 50 Ijóð. Höfundur skipt-
ir henni í þrjá hluta eða þætti:
Föðurland og fjarlægar slóðir,
Ferðaianga og Stríðandi lýði. Eru
rímlaus Ijóð í miðhluta bókar-
innar en fyrsti og síðasti hluti
bera hefðbundið form. Þessi
nýju Ijóð Kára eru vel þess
virði að þeim sé gaumur gef-
inn.
84 bls. Kr. 230,00.
án söluskatts.
„Sandur er frásögn um baráttu
undanfarinna kynslóða við eyð-
andi öfl náttúrunnar, arfgengan
hjátrúargeig og harðlynd lögmál
þjóðfélagsins". Fimmta bókin í
ritsafni Guðmundar Daníelsson-
ar.
251 bls. Kr. 460,00.
án söluskatts.
Þetta er fjórða bókin sem hefur
að geyma greinar og ritgerðir
Snæbjarnar Jónssonar. Snæ-
björn er hispurslaus í máli og
lætur skoðanir sínar hiklaust í
Ijós. Bók sem mun vekja at-
hygli.
251 bls. Kr. 460,00.
án söluskatts.