Morgunblaðið - 23.01.1970, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1'9?0
19
vel gefið, sem býr allt hér í
Rvík.
Sigurður fer frá Miðhúsum til
Rvík 1912, og byrjair þá eigin
búskap. Hann giftist næsta ár,
23. júní 1913 eftirlifandi konu
sinni og jafnöldru Dagnýju
Níelsdóttur frá Flatey á Breiða-
firði, meðal systkina hennar er
séra Árelus sem kvaddi mág
sinn svo fallega í kirkjunni og
jarðsöng hann.
Þau hjón eignuðust 5 börn
sem öll eru á lífi og búsett hér
í borg. Þau heita:
Haraldur Snæland, Bryndís,
Sigurborg, Siguirður Ragnar og
Kristinn Björgvin.
Alla sínia löngu og farsælu
samveru bjuggu þau hjón á ein-
um og sama stað í litlu húsi sem
Sigurður eignaðist vestast í vest
urbænum, sem hét, að ég held
„Liljustaðir“. Breytti Sigurður
því og stækkaði eftir því sem
börnin komust upp og gerði að
fleirri íbúðum.
Siguirður var mikill dugnaðar
og starfsmaður og svo velvirk-
ur að enginn vildi sleppa hendi
af honum sem kynntist Sigurði
og höfðu notið verka hans. Sig-
urður var ágætlega lagtækur og
hagur, og hafði glöggt auga, þó
ekki væri hann lærður smiður.
Hann til dæmis tók að sér að seta
upp Skúðgarða hér í bænum fyr-
ir ýmsa góðborgara, sem vildu
láta fara vel og fallega girðing-
ar og haglega niður settar trjá-
plöntur og annan garðagróður.
Ég hygg að Sigurður hafi verið
að upplagi smiður, og ræktunar-
maður. Ungur var hann farinn
að rista ofan af þúfunum í Mið-
húsatúninu hjá föður sínum, svo
það átti ekki síður við hann rækt
un jarðar en kaupstaðarvinna.
Því oftast var svo, þegar maður
átti tal við Sigurð Brynjólfsson,
þá var sveitabóndinn framar
öðru efzt í huga hans, og mesta
gleði að ræða um.
Sigurður vann lengi hjá Eim-
skipafélagi fslands við allskonar
vinnu og afgrieiðslustörf í fjölda
ára. Einnig var hann um árabil
hjá Ríkisskip, þar til hann varð
fyrir miklu áfalli sem áður er á
minnst, og varð að hætta allri
vinnu, sem var mikið áfall fyrir
hann. Hjá þessum stofnunum var
Sigurður sem annars staðar vel
metinn af yfirmönnum sínum,
jafnt sem samstarfsmönnum hans
og vinnufélögum.
Á pósthúsinu vann Sigurður
tíma við útburð og fleira. Var
það eftir áfallið, en hann treysti
sér ekki að genast þar fastur
starfsmaður vegna heilsu sinnar,
sem hann þó átti kost á, og oft
boðið. En vann þar samt í afleys
ingum og ígripum ef um meira
var að gera, að koma út póst-
inum. En þrátt fyrir þó að Sig-
urður gæti ekki unnið út á við
sem áður, og honum yrði það
nokkur raun, jafn vinnufúsum
manni og þrekgóðum sem hann
enn var hálf sjötugur. Var hann
samt öllum stundum sívinnandi á
heimili sínu, því hann var svo
verklaginn og lagtækur, að flest
sem lagfsera þurfti og endurbæta
gat hann gert, hvort sem var
utanhúss eða innan.
Sigurður Brynjólfsson var vel
greindur maður og átti mjög góða
skapgerð, alltaf glaður, hress og
skemmtilegur í viðræðum, hvort
helduir var á eigin heimili, vinnu
stað, eða gestur annarra. Sigurð-
ur var bókelskur og las mikið,
einkum seinnihluta ævinnar, þá
var meiri tími, eftir að vinnu-
getan þvarr. Hann hafði góða
sjón og trútt mynni og hafði
mjög gaman af að lesa fræðibæk
ur. Hann unni náttúrufegurð,
enda alinn upp í einni fegurstu
sveit lanidsins. Eins hafði hann
verið mikið söngelskur og tekið
þátt í söng þegar svo bar við, og
sagt var að aldrei hefði hann
komið svo í kirkju að hann tæki
ekki þátt í söngnum. Sigurður
var traustur maður og trúr, lét
lítið yfir sér. Tróð sér alsrei
fram á kostnað annarra. Manna
ábyggilegastur í orði og gerðum.
Þetta veit ég, og með það í
huga kveð ég frænda minn, jafn
hlðia samúðarkveðja til konu
hans og barna.
Jónas Magnússon.
Laufey Friðriksdóttir
Oberman — Minning
Fædd á Syðralóni, Langanesi,
31. desember 1884. Dáin í Hol-
landi, 30. október 1969.
ÁRIÐ 1912 giftóst Laufey
Friðriksdóttir hr. Jóhannesi Ob-
erman, starfsmanni hollenzku
nýlend uþjónustunnar í Austur-
löndum. Þau hjónin voru búsett
á Sumötru Jövu, Celebes og
Borneo. Herra Oberman var
gerður að landstjóira yfir hol-
lenzka hluta Borneo árið 1937.
Starf sitt sem eiginkonu hátt-
setts manns í nýlenduþjónust-
unni og seinna sem landstjóra-
frú, annaðist frú Laufey af hinni
mestu prýði. Ef litið er yfir ævi
hennar má segja að ævintýri sé
líkust. Hún fæddist í íslenzkum
torfbæ, en eyddi miklum hluta
ævi sinnar í Indonesíu, bjó þar
í stórhýsum, tók á móti sendi-
fulltrúum og þjóðhöfðingjum og
hafði fjölmennt þjónustulið. Eig
inmaður frú Laufeyjar var stolt
ur af henni, þótti mjög vænt um
hana og virti hana mikils, enda
voru þau hjón mjög hamingju-
söm til æviloka.
Henra Jóhannes Oberman var
sæmdur tveimur hollenzkum
tignarmerkjum. Hann var Offic-
eri af Orange Nassgu og Ridd-
ari Niðurlanda. Einniig var hann
sæmdur brezku heiðursmerki af
The Rajgh of Sarawak. Þau
hjónin fluttu frá Indónesíu og
settust að í Hollandi árið 1938.
Eftir stríðið varð herra Ober-
man íslenzkur ræðismaður þang
að til hann lézt árið 1959 og var
mörgum íslendingum að góðu
kunnur. Hann var sæmdur ísl.
Fálkaorðunni 1948.
Börn þeirra hjóna voru fimm:
Friðrik, elzti sonurinn, bú-
settur í New Orleans, forstjóri
hjá The Good-Year Rubbertyre
fyrirtækinu.
Poppe Pieter, liðsforingi i
hollenzba flughernum, lézt í
fluigslysi á Jövu aðeins 26 ára
gamall.
Weja, gift dr. Elgi Smith, for-
stjóra hjá Unilever í London.
Guðjón lézt úr hjartaslagi á
síðastliðnu ári. Hann fékk hita-
beltismalariu, þegar hann var
barn að aldri, og náði sér aldrei
að fullu. Lát hans var þungt á-
fall fyrir frú Laufeyju.
Kris'tín, gift Sigurði Egilssyni,
Þau búa að Stokkalæk á Rang-
árvöllum.
Frú Laufey var mjög glæsileg
kona, fluggáfuð og vel mennt-
uð. Hún talaði og skrifaði hol-
lenzku, ensku og dönsku af mik
illi kunnáttu og leikni og mun
einnig hafa haft þýzku á valdi
sinu. íslenzkan hennar var
hrein og tær, óg enginn hefði
heyrt á mæli hennar vott af út-
lendum hreim. Hafði hún þó
dvalið erlendis í 57 ár, en að
vísu heimsótt ísland alloft, eink
um á seinni árum. Frú Laufey
taldi sig alltaf fyrst og fremst
íslenzka, þótt hún væri hollenzk
uir ríkisborgari og þætti mjög
vænt um Holland.
Frú Laufey ferðaðist mikið
um dagana. Vegna síns glögga
fegurðarskyns, menntunar og
tungumálakunnáttu naut hún
þess, lærði margt og kynntist
mörgu á sínum ferðalögum. Hún
ferðaðist meðal annars til
Kanada, áður en hún giftist, til
fundar við föður sinn, og dvald
ist hjá honum um skeið. Síðan
fór hún til Danmerkur og loks
til Englands, en þar kynntist
hún hr. Jóhannesi Oberman, sem
síðar varð eiginmaður hennar.
Er frú Laufey lézt var hún
einmitt að áætla ferðalag til
New Orleans, til þess að heim-
sækja Friðrik son sinn. Var svo
ætlunin að vera komin til fs-
lands um jól, að Stokkalæk til
Kristínar og tengdasonar. Hjá
þeim var gott að vera og þar
leið henni vel, enda hafði hún
heimsótt þau á hverju ári, eftir
að Kristín settist að á fslandi.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
ÞÉR hafið sagt, að einungis kristnir menn séu í raun og
veru hamingjusamir. En þeir kristnu menn, sem ég þekki,
þurfa að berjast við erfiðleika, þjáningar og sorgir engu síð-
ur en aðrir. Vinsamlegast útskýrið þetta.
HAMINGJA er ekki lausn frá þjáningu. fátækt, mót-
læti eða jafnvel sorg. Hún er fólgin í krafti til að rísa
undir þessu öllu og hrósa sigri yfir því. Kristindómur-
inn er ekki rökræn útskýring á vandamálum. Hann er
kraftur, sem lyftir okkur upp fyrir þá.
Enginn lifði jafn stórkostlegu lífi og Drottinn Jesús
Kristur. Hann kynntist þó sannarlega þjáningum og
þrautum. Hann var ranglega sakaður um guðlast. Hann
7var tekinn höndum á fölskum forsendum og þurfti að
þola málaferli, sem byggðust á óheilindum. Hann var
dæmdur til dauða, negldur á kross og hæddur af lýðn-
um, sem hann hafði lagt sig fram um að hjálpa. Samt
sagði hann, í öllu þessu, við lærisveina sína: „Verið hug-
hraustir, þér hafið sigrað heiminn“. Hafi nokkur unnið
til þess, að honum væri hlíft við erfiðleikum, þá var
það hann. Samt þóknaðist Guði að leggja misgjörð okk-
ar allra á hann, eins og Ritningin kemst að orði. En aldrei
kvartaði hann. Biblían talar um hlutskipti hans með
þessum orðum: „Hans, sem í stað gleði þeirrar, sem hann
átti kost á, leið þolinmóðlega á krossi, mat smán einskis"
(Hebr. 12,2). Hann kvartaði ekki yfir hlutskipti sínu.
Öðru nær: Hann fann gleði í því.
Þegar hann tekur sér bústað í hjörtum okkar fyrir
trúna, gefur hann okkur þrótt til þess að horfast í augu i
við erfiðleikana. Þeir, sem eiga hann að, geta séð tilgang t
Guðs jafnvel í þjáning, og regnboga Guðs í hverju skýi. i
Þar heyrði hún ekki annað en
íslenzku. Myndarlegi bamahóp-
uirinn, glaður og bjartuir, átti vel
við hana. Á veturna voru það
fannhvítar hjarnbreiðurnaæ og
hin snævi þöktu fjöll, sem heill-
uðu huga hennar. Á vorin hinn
steirki gróðrarilmur, söngur vor
fuglanna, hinir fallegu léttfættu
íslenzku hestar og allt það líf og
öll sú ferguð, sem vorinu fylgir,
og aldrei bar neinn skugga á í
huga hennar.
Frú Laufey fæddist að Syðra-
lóni á Langanesi. Móðir hennar
lézt, áður en hún varð ársgöm-
ul, og faðir hennar fluttist til
Kanada, þegar hún var á barns
aldri. Hún var alin upp á Húsa-
vík og Norðfirði og átti bjartar
minningar frá þeim stöðum. Síð-
ustu árin voru minningarnar frá
æskuárunum mjög ofarlega í
huga hennar. Snæviþaktar fjalls
hlíðarnar á Norðfirði á veturna
í tunglsljósi, þegar norðurljósin
sveifluðust um himininn. Sól-
bjartur sumardagur á Seyðis-
firði, þegar fjöllin spegluðust í
sléttum sjávarpollinum. Kríu-
mergðin og mávarnir á Húsavík,
þegar fiskibátarnir komu úr
róðri. Syðralón og Sauðanes á
Langanesi og Bakka-Bakki á
milli bæjanna, þar sem úthafs-
aldan gnauðaði og buldi á háum
bökkum og klettum með dmn-
um og sogum. Hún minntist hóp
ferða á hestum til kirkju að
Sauðanesi. Það var alltaf sér-
staklega bjart yfir henni, þegar
hún var að rifja upp æskuj
mirmingarnar. Hún kvaðst hafa
verið kennari á íslandi um skeið
og minntist nemenda sinna frá
þeim tíma. Frú Laufey minntist
oft heimd'lis sr. Jóns Guðmunds-
sonar, föðurbróður hennar og
fóstra og konu hans, Guðnýjar
Þorsteinsdóttur, með innilegu
þakklæti. Enmifremur frú Ólafar
Guðmundsdóttur, ekkju Sigfúsar
Sveinssonair, kaupmanns, og fjöl
skyldu hennar. Taldi hún að á
Norðfirði hefði verið heimili sitt
á íslandi. Frú Ólöf lézt fyrir
allmörgum árum og tók frú
Laufey mjög nænri sér lát henn
ar.
Frú Laufey talaði oft um þá
umhyggju og hlýju, sem hún
hefði notið á æskuárunum og
hvílíkt öryggi og kraft þessi
ástúð hefði gefið sér í veganesti.
Frú Laufey varð að reyna þung-
ar sorgir, en sólskinsdagamir í
lífi hennar vom einnig bjartir
og mairgir. Þannig er lífið, þar
skiptast á skin og djúpir skugg
ar. Hún átti indælt heimili og
var virt og dáð af öllum sem
kynntust henni.
Síðast þegar ég hitti frú Lauf-
eyju las hún fyrir mig aldamóta
kvæði Matthíasar Joehumsson-
air. Það var eins og hin hljóm-
fagra rödd hennair gæfi kvæð-
inu sérstakan blæ tignar og feg-
urðar.
Frú Laufey var hraust bæði
andlega og líkamlega. Þrátt fyr-
ir aldurinn 85 ár virtist ellin
raunvemlega vera henni mjög
fjarlæg. Svo fékk hún skyndi-
lega heilablóðfall og dó viku
síðar. Weja, dóttir hennar, var
hjá henni frá því að hún veikt-
ist og þangað til hún skildi við.
Hún kvaddi lífið eins og hún
lifði því, æðrulaus, virðuleg og
róleg.
Blessuð sé minning hennar.
London í desember 1969
Valgerður Gestsdóttir Yates.
Thule-auglýsinga-
mynd á Evrópusýningu
SJ ÓNVARPSÁHORFENDUR
miuna efllausit eftir augilýsingu frá
SANA á Akureyri, seim sýnlir
miamfli í snlöru Og biðluir uim
fllöákiu af Thfuflie-ölli, sem síðustu
ósfeina. Auglýsinig þesisi mæl't-
ist móög misjiafnlega fyrir hér
og miargir urðu til þesg að lýsa
vanidlætinigu sinini á miynidlininiL
SANA hefur niú hætt að auig-
lýsa mieið þessari myinid, og í
þess stað hiefur hún verið senid
til Svíþjóðiar þar sem hún verð-
uir á Evrópusýninigu auiglýsiniga-
mynida, sem haldla á þair.
Listiðniaðlarhiásfeólimn í Gaiuta-
borg haflði upphaflegia spuimir
aif þessari mynd, og ósfcaði eiftir
því við Sama, að (hiún yrði send
tifl skólanis að sýniniguim lofenum,
Fundir í Náttúru-
fræðifélaginu
HI© íslenzka náttúrufræðifélag
heldur þriðju fræðslusamJkomu
vetrarins í 1. keninslustofu Há-
skólans mánudaginn 26. janúar
kl. 20.30. Þá flytur Guðmundur
Egg'ertsson, prófessor erindi um
erfðir.
Laugardaginn 14. febrúar kl.
16 verður aðal'fundur félagsins
í 1. kennslustofu Háskólana
þar sem hún verður motuð
Við feennsiu á þessu sviði. Full-
trúi Sfeólans skioðaði þessa mynd
hár á lanid'i og þótti ’hún sérstæð
og áhrilfamikil aMglýsáng. Hefur
mynidm því verið senid úr lamdi.
Tunglsýning
á Akureyri
Afeureyri, 22, jam.
SÝNING um tunigMð verður
opniuð í búsa&ynmium Náttúnu-
gripasafns'ins á Akureyiri á morg
un. Hún verður opin laugardiaga
og sunmiudlaga 'kl. 2—10 siðdiegiis
fram tifl 1. mairz.
Þar verða m. a. sýndiar lit-
myndiir frá tunigltendliniguim
Baindaríkjiamainnia á síðasta ári,
hmiattlífean og nýjustu kort atf
tumiglinu, m. a. af balfehiliið þesa.
Þá verða eininiig staefekaiS^r
rnyndir af tungflgrjóti og tungl-
riyikd og Mt.iill lafbsteinn til sýnis.
Stjiörnuifr'æðiinigur spjialliar uim
buinigflið síðdogis á suniniudlögum
ag tavifemyndasýniijnigar erú fyr-
irlhuigaðar. Þegar vel stenduæ á
tumlgM og veðurúkilyrði lleyifla
verður sýndngargestum gefkwi
kostur á að skoða tunigilið með
eigin augum í stjörniusóómaiufea.
Sv. P.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 50., 52, og 54. tbl. Lögbirtingablaðs 1969
á hluta í Langholtsvegi 89, þingl. eign Matvælageymslunnar
h.f„ fer fram eftir kröfu Jóns Ólafssonar hdl., á eigninni
sjálfri, miðvikudaginn 28. janúar n.k. kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.