Morgunblaðið - 05.03.1970, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1070
— Vara hverja við? Hvaða
stigi? sagði Graham, steinhissa.
Snögglega var eins og Dirk
kæmi fyrir sig vitinu. Hann
andvarpaði. — Ég var að hugsa
um Pelham og Rósu
í Edwardshúsinu. En það var
fyrir ævalöngu, var það ekki?
— Guð hjálpi mér! Viltu bara
sjá! greip bróðir hans fram í
og benti. Þetta er eldur! Þarna
fyrir handan. Sjáðu bara!
Og Dirk sá það. Uppi yfir
húsaþökunum í suðvestri bylgj-
aðist kolsvart reykjarský upp í
heitan hádegishimininn. Slökkvi
dæla með hestum fyrir þaut
skröltandi framhjá þeim, á leið-
inni suður eftir Aðalstræti, og
næstum strax á eftir þaut vatns
slanga.
Þyturinn og brakið í eldinum
heyrðist greinilega langt vestur
eftir strætinu. NeyðaTÓp stigu
upp frá mannfjöldanum. — Ekk
ert vatn! Þeir ná ekki í neitt
vatn! Og einhver sagði, að ein
slökkvidæian hefði bilað.
Þennan dag, 3. apríl 1864,
brann Robbsborg svo að segja
alveg til kaldra kola á örfáum
klukkustundum. Lestarsalur
Búnaðarfélagsins og Kaup-
mannafélagsins, svo og Brezki
Guianabar.kinn urðu að svört-
um rústum.
Þegar eldsvoðinn stóð sem
ihæst, bað Dirk Graham að fara
með sig til Cumingsburg. —
Það er aldrei að vita nema eld-
urinn geti náð þangað, og ég er
hræddur um karlgreyið hann
Clark gamla, í búðinni þar.
Hann er rúmliggjandi.
— Það er vel til fundið, sagði
Graham, og enda þótt undrun-
arsvipur kæmi á ellilegt andlit
hans, og Dirk gæti heyrt hann
segja við sjálfan sig: „Hugsa
sér! Er Dirk er farinn að hafa
áhyggjur af einum rúmliggjandi
negra”, þá lét hann_ samt Dirk
taka vagninn. — Ég ætla að
bíða hérna og sjá, hvernig þetta
fer. Eldarinn virðist vera að
leita norðureftir, en það er samt
aldrei að vita.
Skrifstofa Hartfield og Clarck
son var fyrir sunnan brunasvæð
ið.
Jason Clark varð sárfeginn
að sjá hann. — Hvað það gat
verið fallega gert af yður að
vitja mín í svona ástandi, herra
— Jason er ekki kominn aftur
úr kirkjunni og þessi hræðilegi
bruni geisar. Hann virð-
ist nálgast með hverri mínút-
unni.
— Skilur hann þig einan eft-
ít hérna? Ég bjóst að minnsta
kosti við að finna hann í húsa-
garðinum. Þegar svona stendur
á, ætti bann að vera heima við.
153
— Ég veit það, herra, en ég
hef ekki séð hann síðan hann
fór til kirkjunnar, klukkan tíu.
Dirk sat næstum tvær klukku
stundir hjá gamla manninum.
Honum leiddist það ekkert, því
að hann kunni alltaf heldur vel
við Jason gamla Clark. Hann
var eini svarti karlmaðurinn,
sem hann hafði getað borið ein
hverja virðingu fyrir.
Þeir ræddu um unga Jason
og gamli maðurinn sagði hon-
um, að það væri svo sem allt í
lagi með drenginn, hann væri
duglegur og heiðarlegur, en
býsna glöggur á aurana. Hann
væri tekinn að lána út peninga
með vöxtum, og fólk væri far-
ið að kalia hann Van nirfil.
Giftur? Nei, hann var víst ekk-
ert í þá áttina, að því er gamli
Jason gæti bezt vitað. Jason
virtist engan áhuga hafa á kven
fólki, svo teljandi væri, enda
þótt hann væri stundum broS-
leitur við það og færi jafnvel
f kirkju með tveimur systrum á
hverjum sunnudegi — en hann
var ekkert hlýr í sér, ef Dirk
skildi, hvað hann ætti við með
því. Nei, hann hugaaði ekki um
annað en peninga og aftur pen-
inga. Gamli maðurinn hafði
spurt hann, hvort hann væri
ekkert að hugsa um að giftast
einhverri stúlku, en þá hafði
Jason strax farið að tala um
kostnaðinn, sem sliku væri sam
fara. Og hvar gæti hann líka
komið konu fyrir? Það mundi
kosta það að kaupa sér kofa.
Öðru hverju, meðan á samtal-
inu stóð, þagnaði hann, til að
líta á reykjarmökkinn, sem
lagði upp yfir húsþökin. Einu
sinni lét gamli maðurinn í Ijós
áhyggjur sínar vegna Grahams
— mundi hann ekki fana að
undrast um Duk, eða þurfa á
vagninum sínum að halda. En
Dirk sagði honum, að Graham
væri innan handar að fá far
með fjölda vagna í Aðalstræti,
ef hann þyrfti að komast heim.
— Það er fjöldi annarra herra-
manna að horfa á eldinn hr.
Clark. Þetta verður slæmur dag
ur fyrii kaupmennina, er ég
hræddur um. Tjónið verður
geysilegt. Og enginn vill víst
fara heim fyrr en búið er að
sigrast á eldinum.
Allt í einu heyrðust dynkir
eins og af sprengingum, og
Dirk sagði: — Nú eru þeir að
sprengja upp hús til þess að
hindra, að eldurinn breiðist út.
Það urðu þeir líka að gera 1828.
Skömmu seinna kom Jason
heim og staðfesti þetta. Já, þeir X.
voru að sprengja upp hús,
sagði han.i þeim. Hann var svart
klæddur eins og fínn maður —
með háan flibba og bindi og
pípuhatt, enda þótt fötin væru
sýnilega keypt notuð. Hann
hlaut að hafa keypt þau fyrir
lítið í einhverri skranbúðinni í
LombardstrætL Buxurnar voru
of stuttar og treyjan of þröng á
hann. Hann leit út eins og
skrípamynd, en vissi ekki af því
sjálfur. Hann kjökraði eitthvað
við Dirk — hvað það væri fal-
legt af honum að koma og sitja
hjá honum afa. — Guð mun
blessa yður fyrir það. Ég var
svo hræddur, en ég varð að
doka við á Vatnsstígnum og sjá,
hvernig eldurinn hagaði sér. Og
nú held ég við séum úr allri
hættu. Svo kveinkaði hann sér
og lét út úr sér einhverja tóma
meiningarleysu um hvað guð
hefði verið góður að þyrma
Cumingsburg. Dirk langaði mest
til að sparka í hann.
Upp yfir húsaþökunum var
reykurinn nú orðinn þunnur og
óverulegur Menn höfðu loksins
náð tökum á eldinum.
Tjónið, sem Georgetown varð
fyrir, var metið á meira en
hálfa milljón sterlingspunda, en
hitt kom mönnum saman um, að
margar byggingarnar í Aðal-
stræti heíðu verið til skammar,
og það hefði verið fallega gert
af eldinum að þurrka þær út.
Einn daginn nokkrum mánuð-
um síðar heyrði Dirk fyrir til-
viljun hjá Timothy Hartfield,
að Jason Vangreen hefði gert
tvo smákaupmenn gjaldþrota og
tekið af þeim kofana þeirra í
Albert Town. — Hann hafði
lánað þeon peninga, og eldurinn
gerði út af við þá, sagði
Timothy. Og þá var Jason ekki
seinn á sér. Og þeir eru safn-
aðarbræður hans.
í nóvembermánuði barst hon-
um bréf, með ógurlegu hrafna-
sparki, frá Jason, þess efnis, að
afi hans væri mjög bágborinn
Vinnuíatnaður
Kynningarsaía á vinnufatnaði
Mikið úrval — Hagkaups verð
Cerið verðsamanburð
HlMIMIMIIItMIHIIIIIIMMHMIIIIIMMMMMltmiMlJIHmmiHIMI.
^HmilIMIMfl M.11 IIM
ŒmM"v.r:vj §T§ [§ I y{t isi •Tirr.v.v:
MImmmVmmVlVlVlV
r MImViVmfl^^BlMMHMimhÍhmmmmh^B ^KVmViVmVmVh
■HIMimimIPIPWWmmmmmmmmmmmmmiPPMPIWmmimmm*
^'•MIMIMIMIiMMIMMMMMMMMMIMIMMIMMMMMMIMMI'
Lœkjargötu
Ekki bara falleg
Hurðirnar okkar þekkjast af faljegri áferð,
völdu efni og faglegum frágangi. Hitt sést
ekki eins vel. Þær eru gerðar með
fullkomnustu tækni, sem hér þekkist. Smiðirnir
hjá okkur smíða fátt annað en hurðir, —
en því meira af hurðum. Þess vegna merkjum
við hurðirnar, sem fara frá okkur.
Þá geta allir séð, að þær eru ekki bara
fallegar, — heldur líka góðar.
SE. INNIHURDIR GÆDI í FYRIRRÚMI
SIGURÐUR
ELlASSON HF.
* W AUÐBREKKU 52, KÓPAVOGI,
SÍMI 41380
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Arðvænleg tilboð eru á næsta leiti. Einbeittni þín og þrákelkni
gæti komið þér á gróðavegu, sem þó eru enn ekki tímabærir. Ráð-
færðu þig við fjölskyldu og vini, áður en þú lætur U1 skarar skríða.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Haltu þig við venjuleg störf, í stað þess að gcra tilraunir. Ef þú
verður að troða nýjar slóðir, skaltu gera það, þar sem það skiptir
einhverju máli, þótt fáir skilji, hvað þú ert að fara.
Tvíburamir, 21. maí — 20. júní.
Dómgreind þín i fjármálum er ekki upp á sitt bezta i svipinn.
Biddu i hálfan mánuð eða svo áður cn þú tekur ákvörðun. Það gengur
á ýmsu i tengslum við vini þina, og ýmislegt getur breytzt.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Reyndu að fá fjárhagsaðstoð fyrir áhugamál þin og reyndu að ná
tali af fólki, sem mikils má sin í sambandi við starf þitt. ,
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Leggðu þig allan fram og i fyrra lagi, þannig að þú megir hafa sem
mest gagn af samvinnunni við starfsfélaga þína. Þú flýtur á óvenju-
legri opnun. Það borgar sig að lagfæra heima fyrir strax.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
Fólkið, sem þú ert með skiptir fljótlega um skoðun, og gefur þér
ýmsar gátur til að glíma við. Geymdu fjármálin þar til þú hefur al-
gerlega lokið að ráðgast við ráðgjafa þína.
Vogin, 23. september — 22. október.
Ýmiss konar tilfinningasemi verður skýrari, ef þú hlustar vcl, og
þú ert mildur í gerðum. Vinir og ættingjar eru á síðustu stundu, og
ergilegir. Varaðu þig á vélum.
Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember.
Stuttar ferðir gera meira gagn en að halda sig heima Ef likamleg
áreynsla er óhjákvæmileg, skaltu láta hugann reika.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember.
Leggðu hart að þér að standast áætlun, eða vera á undan í dag.
Snúðu þér persónulega að merkum málefnum, og gakktu frá þeim
í hvelli. Tómstundaiðjan getur fært þér taisvert i aðra hönd, ef þú
vinnur vel að henni.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Hugkvæmni þín kemur fram í dagsljósið, og fær þig til að tak-
ast á hendur meiri ábyrgð Hætta, scm þú tekur með félögum þínum
eða fjölskyldu fá þér meira fé handa á milli. Fyrirtakshugmynd bætir
andrúmsloftið heima fyrir.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Sinntu fjármálum þínum, en hafðu þau einslega. Ný verkefni sem
þú byrjar á í dag verða vissulega crfið i framkvæmd, og tefjast mik-
ið. Gakktu frá þvi, sem bíður.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz.
Úr þvi að þú ert i góðu skapl, og getur sinnt ýmsu, skaltu ekki
gleyma því að ráðfæra þig vegna gamalla málefna, þegar þú færð
tækifæri tU að ræða við gamlan vin.