Morgunblaðið - 19.03.1970, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 119. MARZ 1970
13
Nokkur orð um Sprengisandsveg
Út af þeim ummælum, sem
fram fóru í blöðum og útvarpi á
síðastliðnu hausti, um hugsan-
lega flutningaleið, sem hægt væri
að halda færri meirihluta ársins
norður yfir Sprengisand til Eyja
fjarðar, langar mig að leggja orð
í belg.
Þegar ég var ráðinn yfirverk-
stjóri vega í Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslum árið 1945, hafði
hinn kunni ferðagarpur, Þor-
steinn Þorsteinsson, formaður
Ferðafélags Akureyrar, lagt tölu
vérða vinnu af miklum áhuga í
að finna bílfæra leið upp úr
Eýjafirði upp á hálendið og
beindist sú athugun mest að
Vatnahjallavegi. Þá var líka
vöknuð hugmynd um byggingu
sæluhúss við Laugafell, sem
Ferðafélag Akureyrar reisti þar
fáunn árum síðar. Þessi leið var
þó aldrei verulega nothæf.
Aldrei var þó alveg gefist upp
við að finna leið upp úr Eyja-
firði, sem hugsanlegt væri að
gera bílfæra upp á hálendið.
Þangað stefndi hugur manna í
Ferðafélagi Akureyrar og allar
hugsanlegar leiðir voru rannsak
aðar eftir beztu getu.
Loksins munu þeir Angantýr
kennari frá Villingadal og Ólaf-
ur Jónsson í Hólum, hafa ráðist
í að rannsaka leið upp frá Þor-
móðsstöðum í Sölvadal, ef kom-
ast mætti þá leið upp á Hólafjall.
Leizt þeim það vel á leiðina, að
hún var mæld að tilhlutun vega
gerðarinnar. Reyndist hún þá,
með lítilli skerðingu í fjallsbrún
ina, verða hugsanleg leið a.m.k.
fyrir tveggjadrifa bíla. Eftir það
var unnið að því að fá fé til
framkvæmda, og var svo komið
haustið 1960, að leiðin mátti heita
vel fær öllum kraftmiklum bíl-
um. Síðan mun hafa verið unnið
nokkuð að leiðinni og margir
farið á Hólafjall til að njóta hins
óvenjulega útsýnis þaðan, því
þar blasir við augum hin blóm-
lega byggð Eyjafjarðar frá
innstu dölum allt norður til
Látrastrandar.
Ég er nokkuð kunnugur þess-
ari leið um Hólafjall suður að
Fjórðungsöldu, hef tvisvar farið
hana í björtu og góðu veðri, ein
göngu til að líta eftir hugsan-
legu vegarstæði. Og mér finnst
erfiðasti hluti leiðarinnar vera
Hólafjall suður á móts við Tjarn
ir í Eyjafirði, sem mun vera 12—
15 km, að ógleymdri sjálfri öxl-
inni á Hólafjalli (sem mun heita
Nónöxl), som auðvitað verður
öll að jafnast út, því skerðing
sú, sem nú er austan í henni,
hlýtur alltaf að fyllast af snjó.
Annan hluta þessarar leiðar tel
ég mjög auðveldan til vegagerð-
ar. Svo nærri liggur hún vatna-
skilum, að vart mun þurfa ræsi
á henni alla leið. En hún er á
stöku stað nálægt 1000 m yfir
sjó, og það taldi vegamálastjóri,
í sínu útvarpsviðtali, hættu-
legast við leiðina.
Viðvíkjandi Hólafjalli, sem er
hæsti hluti leiðarinnar, er það
álit mitt, að vel uppbyggður veg
ur eftir því verði varla nokkurn
tíma snjóþungur, en náttúr-
lega geta skapazt þar vond veð-
ur, en með þéttri merkingu ætti
hann í flestunn veðrum að vera
fær. Og það ætti að verða veg-
inum til gildis, ef góður afleggj-
ari yrði af honum að sæluhúsinu
við Laugafell, sem nú er upphit-
að með laugarvátni. Ég tel, að
vegurinn til Bárðardals, þótt
hann liggi lægra, yrði mun dýr-
ari vegna ræsa- og brúargerðar
á þeirri leið, enda mun hún vera
minnsta kosti 20 km lengri, mið-
að við Fjórðungsöldu að Stóru-
Völlum í Bárðardal annars vegar,
og Fjórðunigisöldu og Núpufells
í Eyjafirði hins vegar. Auk þess
er ekki saman að jafna flutn-
ingaþörf milli Reykjavíkur og
Akureyrar, og Reykjavíkur og
Húsavíkur hins vegar.
Seinna mætti hugsa sér leið til
Austfjarða af þessari sörnu leið.
Það slkal tekið fram, að þetta
til sölu
2 bátar til sölu strax, annar 10 tonn, hinn 11 tonn.
Fást með hagkvæmum greiðsluskilmálum
Upplýsingar gefur undirritaður.
ÞORFINNUR EGILSSON
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 14, Sími 21920.
Póst- og símamnlastjornin
óskar eftir tilboðum í niðurtekinn eirvír úr loftlínum og blý
úr jarðsimum.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna
öllum. Dtboðsgagna má vitja hjá birgðastjóra Pósts og síma.
Tilboð berist á skrifstofu birgðastjóra, Sölvhólsgötu 11, fyrir
kl. 11 f.h. miðvikudaginn 25. marz 1970.
Virðingarfyllst
f.h. póst- og símamálastjóra
J. Skúlason.
er ekki ný hugmynd í mínum eyr
um, því fyrir mörgum árum var
hugmyndinni hreyft á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins af
Kristjáni Guðlaugssyni hæsta
réttarlögmanni, núverandi stjórn
arformanni Loftleiða. Það var
einhvern tíman á árunum milli
1950 og 1960, en á þeim tíma tók
ég tillöguna ekki alvarlega, hló
í mínu hjarta, eins og Sara forð-
um. En nú hef ég breytt um skoð
un, enda stórvirkari tæki til á
flestum sviðum.
Og nú vil ég skora á Akur-
eyringa og Eyfirðinga að fylgja
hugmyndinni fast fram til sigurs,
því þetta er ekki eingöngu þörf
flutningaleið, heldur ómetanleg
leið fyrir alla þá, sem unna feg-
urð og tign hálendisins, bæði inn
lenda menn og útlenda.
Karl Friðriksson.
Til fermingargjafa
Svefnpokar, bakpokar, vindsængur,
anorakkar, skíði og picnic-sett.
Sportbœr, Bankastrœti 4, sími 18027
Byggingarfélagi
óskast
Ós'ka eftir að komast í sajnband
við mann sem hefuir ráð á lóð
eða byggiingairrétti á viðbygg-
iogiu á tveim Ibúðum, stœrð ura
80—100 fenmetrar. Upplýsingar
í sima 84736.
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar,
Guðlaugs Þorlákssonar,
Guðmundar Péturssonar,
Axels Einarssonar,
Aðalstræti 6, III. hæð.
Simi 26200 (3 línur)
15% tækifæris-
kaup tii páska!
Gefum 15% afslátt af sófasettum, svefn-
bekkjum, kassabekkjum. kommóðum, stök-
um stólum og mörgu fleiru gegn staðgreiðslu,
til páska.
Einnig hagkvæmir greiðsluskilmálar!
Yfir 100 litir ullar-
og dralonáklæða.
Sendum gegn póst-
kröfu um land allt!
Hverfisgötu 50
Sími 18830.
ia
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
13
m
MOSKVICH M408
ÞRAUTREYNDUR
Moskvich bifreiSarnar hafa reynzt fram-
úrskarandi vel á okkar vegum. Kraftmik-
ill meS viðurkennt rafmagnskerfi. —
Minnsta hæð frá jörðu 18 cm. Sparneyt-
inn (7—8 I per 100 km). Moskvich 408 er
kjörinn fyrir íslenzkar aðstæður.
VERÐ KR. 192.834,00.
Innifalið í verðinu:
Ryðvörn, öryggisbelti, aurhlífar, Ijósa-
stiiiing, vindlakveikjari, þjónustueftirlit
og uppherzla eftir 500 km og 2000 km.
Auk þess fyigir fullkomið verkfærasett.
6 mánaða eða 10 000 km ábyrgðarskír-
teini. Hagstæðir greiðsluskilmálar.
Biíreiðar & Landbúnaðari élar hi.
11‘ÓAlfrS Sudurlandsbraut 14 - Rejkjatik - Sími 38600
Óróðstoloð
A eftir nokkrar lóffir undir ein-
býlsiihús i Garða'hreppi, Upplýs-
mgar í síma 51814.
S'tgurl'inrw Pétursson.
LÖCFRÆDISKRIFSTOFA
TÓMAS ARNASON
vilhjAlmur Arnason
hæstaréttarlögmenn
Iðnaðarbankahúsinu. Lækjarg. 12
Símar 24635 og 16307
OSTAKYNNING
í dag og á morgun föstudag, frá kl. 14—18.
Margrét Kristinsdóttir, húsmæðrakennari,
kynnir ýmsa vinsæla ostarétti m.a. nýtt og
spennandi ostabrauð, ofnbakað.
Ostur
er veizlumatur
Osta- og smjörsalan
Snorrabraut 54.