Morgunblaðið - 19.03.1970, Qupperneq 14
14
MOROUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. MARZ 107«
Otgefandí hf. Arvakur, Reykjavik.
Framkvaemdastjóri Haraldur Sveirvsson.
Ritstjórar Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson.
Fréttastjóri Bjöm Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Ami Garðar Kristinsson.
Rttstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6. Simi 10-100.
Auglýsingar Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
Askriftargjald 165,00 kr. á mánuði innanfands.
f lausasölu 10,00 kr. eintakið.
NÝJUNGAR í ATVINNUMÁLUM
Á síðustu árum hefur verið
ráðizt í margvíslegar
nýjungar í atvinnulífi Islend-
inga. Við höfum samið við er-
lent stórfyrirtæki um að það
byggi álver á íslandi og gert
við það hagstæðan samning
um sölu raforku. Við höfum
einnig samið við annað er-
lent stórfyrirtæki um aðild
þess að kísilgúrverksmiðj-
unni við Mývatn, ekki sí-zt til
þess að tryggja markað fyr-
ir framleiðsluvörur verk-
smiðjunnar. íslenzk stjórnar-
völd hafa átt í viðræðum við
erlenda aðila um þátttöku
þeirra í byggingu olíuhreins-
unarstöðvar hér á landi.
Þessar aðgerðir eru til vitnis
um það, að íslendingar eru
nú reiðubúnir til þess að
virkja tæknilega þekkingu og
fjármagn erlendra aðila við
uppbyggingu atvinnufyrir-
tækja heima fyrir.
Nýjungar í atvinnumálum
hafa ekki verið einskorðaðar
við samvinnu við erlenda að-
ila. Heima fyrir hafa ný við-
horf einnig rutt sér til rúms.
Hugmyndin um almennings-
hlutafélög er að verða að
veruleika.
N ú liggur fyrir Alþingi frv.
um stofnun Fjárfestingarfé-
lags ísiands h.f. Hugmyndin
er, að eigendur þessa félags
verði einkabankarnir, Sam-
band ísl. samvinnufélaga,
Fra m kvæmd asj óður og ein-
staklingar. Hlutverk þessa fé-
lags á að vera efling atvinnu
lífsins í landinu með ýmsum
hætti. Ýmist getur félagið
gerzt beinn aðili að atvinnu-
fyrirtækjum með því að
kaupa hlutabréf í þeim eða
stutt þau með óbeinum hætti.
Einnig er þessu félagi ætlað
að hafa frumkvæði um stofn
un nýrra atvinnufyrirtækja,
koma þeim á fót, en selja þau
síðan einstaklingum eða fé-
lagssamtökum, þegar rekstur
þeirra hefur verið tryggður.
Slík félög eru starfandi
víða um heim, bæði á Norð-
urlöndunum og annars stað-
ar. Jafnvel í hinu sósíalíska
ríki, Júgóslavíu, er nú unn-
ið að stofnun slíks fyrirtæk-
is. Þýðing þessa félags fyrir
íslenzkt atvinnulíf getur orð-
ið margþætt. Eitt er það, að
starfsemi þess getur dregið
úr ofurvaldi ríkisstofnana,
þ.e. ríkisbanka og opinberra
sjóða yfir atvinnufyrirtækj-
unum. Félagið hefur einnig
tækifæri til að afla fjármagns
til atvinnuuppbyggingar á Is-
landi, sem opinberir aðilar
geta ekki fengið og er þar átt
við Alþjóðalánastofnunina í
Washington, sem er eins
konar dótturfyrirtæki Al-
þjóðabankans, en hefur það
verkefni að efla einkarekstur
víða um heim.
Fjárfestingarfélag Islands
h.f. er ein af hinum nýju
hugmyndum í atvinnumál-
um Íslendinga og kannski sú,
sem mest áhrif mun hafa,
þegar fram í sækir. Starfsemi
þess er líkleg til þess að
stuðla mjög að aukinni þátt-
töku almennings í atvinnu-
lífinu og efla hið frjálsa
framtak einstaklingsins yfir-
leitt. Andstaða nokkurra
þingmanna gegn frumvarpi,
sem miðar að þessu, kemur
engum á óvart. Þar eru á
ferðinni sömu afturhaldsöfl-
in og ailtaf hafa látið til sín
heyra á undanfömum árum,
þegar brotið hefur verið nýtt
blað í atvinnumáium lands-
manna.
Finnsku kosningarnar
að er ákaflega erfitt fyrir
ókunnuga að gera sér
grein fyrir sviftivindum
finnskra stjórnmála. Tilvist
hins volduga nágranna í
austri hefur með margvísleg-
um hætti áhrif á athafnir
Finna, og í rauninni virðist
ekiki skipta meginmáli, hver
kosningaúrslitin verða. Að
lokum er það Kekkonen, for-
seti, sem heldur stjómar-
taumunum í sínum höndum
og gætir þess, að stefna Finna
leiði ekki tii versnandi sam-
búðar við Sovétríkin.
Úrslitin sýna tvennt. I
fyrsta lagi hafa stjórnar-
flokkarnir í Finnlandi orðið
fyrir umtalsverðu áfalli, og í
öðru lagi hefur gengi hinna
sósíalísku flokka dvínað
mjög. Þeir höfðu áður meiri
hluta í finnska þinginu en sá
meirihluti er nú í höndum
b or ga r aflokkanna.
Hinn óvænti sigurvegari
kosninganna er Landsbyggð-
arflokkurinn, sem hafði áður
1 þingmann en vann nú 17 til
viðbótar. íhaldsflokkurinn
vann einnig verulegan sigur
og bætti við sig 11 þingsæt-
um.
Þrátt fyrir þessi úrslit hafa
stjórnarflokkarnir enn mik-
inn meirihluta á þingi. En
fregnum frá Finnlandi ber
saman um, að mikil óvissa
ríki nú í finnskum stjórn-
málum og að taka muni all-
langan tíma að mynda nýja
ríkisistjórn. Ekki liggur enn
ljóst fyrir, hvaða áhrif þessi
úrslit xnuni hafa á afstöðu
Finna til Nordek. j
l
Snjallt finnskt
leikrit
WILLY KYRKLAND heitir ungt
finnskt leiikritaskáld, sem hefur getiö
sér mlkið orð í heimalandi sínu allra
síðustu ár. Eitt af síðustu verkum hans
er Medea frá Mbongo og hefur það ver-
ið sýnt í noklkrum leikhúsuim á Norður-
löndurn og vakið hina mestu ánægju.
Leikritið er komið út í danskri þýð-
ingu í bókarformi og er mjög Skemmti-
legt aflestrar.
Kyrkland hefur tilsvarið full/koimlega
á valdi símu, kítmni hans er stundum
nöpur en aldrei beizkjublandin og
hugimyndaauðgi sína virðist hann
nota út í aesar. Kyrkland fer mjög
frjálslega með Medeu Evripidesar og
færir hana á flestum sviðum til sam-
tímans. Þamnig er til dætmis iðlkuð
tedrykkja í leikritinu og talað í síma
og þegar kórinn tjáir sig um yfirvof-
andi skilnað þeirra Jasons og Medeu er
svarið: „Maður á ekki að giftast útlend-
ingum. Þarna sést, hvernig það fer.“
— „Hún hefur ekki getað lagað sig að
aðstæðunum. Það er henni að kenna.“
„En ósköp skiljanlegt. Þegar hugsað er
urn úr hvaða umlhverfi hún kemur.“
Willy Kyrkland
Kannsiki er það ekki einvörðungu að
leikurinn er færður til samtímanis, sem
gerir Medeu frá Mbongo að meistara-
stykki, heldur að höfundi hefur tekizt
að tengja saman nútíð og fortíð á snilld-
arlegan hátt. Willy Kyrkland hefur
ugglaust skilið að þegar „Medea“
Evripidesar var skrifuð fyrir 2400 árum
var verkið langt á undan sinni samtíð,
einis konar uppreism við viðteknar venj-
ur og siði þess tkna.
Gjöf Picasso
til Spánar
SÚ ákvörðun listmálarans Pablo
Picasso, að gefa hvorlki meira né minna
en milli 800-900 listaverka sinina til
safns nokkurs í Barcelona hefur ekki
vaíkið óskipta ánægju allra, en forvitnin
og umtalið er því meira. Orðasveimur
þessa efniis hafði verið á kreiki, en
fæstir lögðiu þar við eyru og töldu sög-
Pablo Picasso
una ótrúlega í meira lagi. Hing vegar
hefur fulltrúi Picasso nú staðfest að
fréttin sé rétt. Sagði hann að þessi verk
sem Picasso hefði ákveðið að gefa til
Barceloma væru flest unnin fyrir árið
1917.
Ef það er rétt þá felst það í, að þar
hljóta að vera mörg verðmætustu og
merkustu verik Picasso frá kúbisma-
tímabili hans og unnin að mesbu í Par-
ís, en þangað fluttist hann árið 1908.
Eitt var það með öðru, sem vakti furðu
manna: hvernig féikk það staðizt að í
eigu Picasso væru svo mörg eldri verka
hans? Þegar hann var ungur maður að
ryðja sér braut til frama var hamm blá-
snauður, vimnustofur hans voru örsmá-
ar kompur og hann gat rétt dregið
fram lífið. Sumir eru þeirrar skoðunar,
að Picasso hafi keypt ýmis gömul verk
sín aftur, eftir að hagur hans tók að
vænkast. í öðru lagi velta menn fyrir
sér, hvers vegna Picasso hafi brugðið
á það ráð að gefa verkin til Spánar.
Þótt hann sé Spánverji, nánar tiltekið
Katalóníumaður, 'hefur hann verið út-
lagi úr föðurlandi sínu frá því borg-
arastyrjöldimni lauk og hann hefur
marglýst því yfir, að til Spánar snúi
hamn ekfci fyrr en þar hafi lýðræði
verið upp tekið. Hitt er þó vitað, að
Pieasso hefur löngum haft sterkar taug
ar til Barceloma, en þar bjó hann frá
fjórtán ára aldri.
Frakkar eru mjög vomsvilknir yfir
ákvörðun Picasso, þar sem þeir höfðu
gert sér vonir um að meginhluti venka
hans myndi verða í Frakklandi eftir
hans dag. Vitað er að André Malraux
hafði á prjónunum ráðagerðir um að
láta byggja sérstakt safnhús yfir verk
hans, en af því hefur enn elkki orðið. Til
þess hefði þurft að koma til samiþykki
Picasso og af eimhverjum lítt skýramleg
um ástæðum var aldrei eftir því leit-
að. — h. k.
Félagslíf
með mikl-
um blóma
Bæ, Höffeitirönd, 9. m.airz.
ÞÓ vagaitiáimaimiir haÆi varið, er
fólaigsBf í hénaiðimw mieð mulkilium
bllómia, islkiamim(tiam.Lr lí hverri
viiku. Sórstaklega þóititi þorra-
miaitiurinin gómisiæitiír. Búiið ©r að
augllýsa frumlsiýindinigu á Ævimitýirí
á gönigufiör í Miðgairði. Áfcveðini-
ar eru somglsikeniimltiainiiir á Hofsósá
og í Kebiliási af áönigfélaiginiu
Hönpu á Hiofsiósii. Einiu siinimi cig
tvisvair í vilku haifia br.idge-uinin-
anldluir úir 4 Ihreppuim hér auistain
vatn/a hditat á HMsóigi oig keppt
þar, ýmiiisit í tivílkiappnii ie@ia sveiitia
keppmii. Er iaið þassu góð slkeimimit-
uni, þair sem 32 isipiilalmienin hiibt-
ast og leiiða aaiman Ihasita siíma.
Ekíki stamda búainldi kionur í
Blönidiuhllíð fcymisiysibrtuim. siániuim í
kaulpsitiöðum að ibaiki uim smiynt-
ingu og fegriuin, því iað miýlleiga
réð 'kvenifiéliaigið 'til síin isniyrti-
dölmiu í fiótta- ag ihiarudsniyintinigu,
sem iniæstuim aMiar Ihiúístmiæðiutr haifia
motfaert stér. Er iþatlta laitihygf.liis-
verð iniýjuinig í siveiituim lanids
vors.
Iinifilúienlsia heifur gangið uim
friamlhónaðiið oig fy>l(g,iir hemnd þná-
lábt bairkalkvef, »am er hviimiieibt
á fiámieininiuim Iheimiillium..
Það heifuir venið ósbilllt til isjáiv-
ar og því firiefcar treguir aifii á
itogbátama. Raiuiðlmiaigaiveiiðd er
nétit að byirjia hér uim slóðiir.
Blað allra landsmanna