Morgunblaðið - 22.03.1970, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. MARZ 1070
MAGNÚSAR
SK1PH3LT121 SIMAR21190
eftír loírun *Íml 40381
wuim
BILALEIGA
HVERJPTSGÖTU 103
VW Sendlferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 9mam»-landrover 7manna
Schannongs minnisvarðar
BiOjið um ókeypis verðskrá.
Ö Farimagsgade 42
Köbenhavn ö
0 Hvenær hverfa
hymurnar?
„Guðrún" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Hvernig er það, kæri Velvak-
andi? Hafa allir gefizt upp við
að berjast gegn þessum ólukkans
mjólkurhyrnum? Mér finnst
langt síðan bréf hafi birzt í dálk
um þínum, þar sem skorað er á
Mjólkursamsöluna að fara nú að
hugsa eitthvað um okkur, kaup-
endur framleiðslu hennar og
taka upp mjólkurfernur eða önn-
ur ílát, sem við getum sætt okk-
ur við. Eru allir orðnir vonlaus-
ir um að fá að hafa áhrif á ein-
okunarsöluna?
Góði, reyndu nú að svara
þessu, ef þú veizt þá eitthvað
meira en við húsmæðurnar í
Reykjavík. Mjólkursamsalan skal
líka fá að vita, að við eigum ætt-
ingja, vini og kunningja á mjólk
urframleiðslusvæði hennar, sem
við látum óspart vita, hvernig
hún dregur úr mjólkursölunni í
Reykjavík með sérvizku (?) í
umbúðarmálum og útsölustöðum.
Það er skrattans ári hart að
þurfa að kaupa gosdrykki ofan
i börnin sín, bara af því að
Mjólkursamsölunni þóknast ekki
að selja okkur mjólk á sunnu-
dögum.
Guðrún“
— Velvakandi veit ekki annað
en það, að ekkert lát er á bréf-
um til hans um þessi mál, og
gæti hann líklega fyllt dálka
sína fram undir næstu aldamót
með slíkum bréfum, ef ekki
þyrfti stundum að skipta um um
ræðuefni. Þetta bréf birtir hann
aðeins sem sýnishorn.
0 Svartbakurinn
Skrifað er:
„Heiðraði Velvakandi!
Vegna greinar Árna Waag í
Lesbók Mbl. sunnudaginn 15.
marz, um eyðingu svartbaks
fann ég löngun til að skrifa þér.
Ég get ómögulega verið sammála
greinarhöfundi í skoðunum hans.
Hann er sannfærður um að ekki
sé hægt að eyða svartbak með
skotvopnum né eitri, og að hætta
skuli verðlaunum fyrir hvern
unninn fugl, en verja fé því til
vísindalegra rannsókna á lifnað-
arháttmn fuglsins með eyðingu
í huga. Hann leggur kannski
til að hinn rauði blettur á nefi
svartbaksins verði strokaður út
og ungar hans þar sem sveltir í
hel, og að öllum úrgangi og
sorpi verði steypt í klumpa og
sökkt í sæ eða skotið á braut
umhverfis jörðu til að varna
svartbaknum aðgang að því. Nei,
ég er hræddur um að það fé
TIL
LEIGU
4 herbergja íbúð á góðum stað
I Hafnarfirði frá og með 15.
júní. Tilboð merkt „Hafnar-
fjörður 51504“ 2534 sendist
Morgunblaðinu fyrir 10. apríl.
WELLAFLEX inniheld
ur SILICON, fer vel
með hár yðar og hár-
greiðslan endist
lengur.
Merkið tryggir gæðin
Ilalldór Jónsson hf.
Hafnarstræti 18 — Sími 22170.
hafi ekki leyfi að bera kristiö
nafn, á meðan þeir vinni á móti
lögum Guðs og kenningu Jesú.
Lífið er neisti af Guði, enginn
eigi rétt á að fara illa með það,
eða taka það af sér eða öðrum.
Það sé það pund sem Guð hefur
falið oss til varðveizlu, og er
hann kallar það af oss, verðum
vér að standa reikningsskil ráðs
mennsku vorrar, hvemig vér höf
um varið því. Svo fljótt sem auð-
ið er verður að uppræta og eyði
leggja hvert einasta vopn. í öll-
um heimsálfunum. Hér eftir fram
leiða jarðvin.nsluvélar í vopna-
verksmiðjunum og breyta stórum
hemaðarflugvélum í tankflugvél-
ar. Á þurrkatímtim eiga þær að
flytja vatn til þeirra þjóða sem
vatns þurfa með. Það eigi að
græða upp eyðimerkurnar, og
gera þær að blómlegum byggð-
um. Allir jarðarbúar fái fullt
frelsi og menntun, og verði
kristnaðir meira en að nafninu
til. Allir búi við mannsæmandi
lífskjör.
Fjármunir eru Guðs eign en
ekki manna. Það er ekki hans
vilji að sumir hafi offjár undir
höndum, en aðrir svelti. Þeir
sem auðinn hafa leggi fram féð
til þessara framkvæmda.
Segið hermönnunum að leggja
niður vopnin, og segja yfirboð-
urum sínum að betra sé að hlýða
Guði en mönnum, og það sé
kristileg skylda að breyta sem
hinn miskunnsami Samverji. Tak
ið höndum saman um heim aU-
an, sem vilja fylgja Jesú, verið
sannar hetjur og komið vilja
hans í framkvæmd. Gjörið allar
þjóðir að hans lærisveinum, og
munið að það er Jesús Kristur
sem er vegurinn, sannleikurinn
og lifið. Vér verðum að taka
hann inn. í vort líf og hlýðnast
hans boðum. Þá göngum vér veg
lifsins, friðarins og gleðinnar.
„Það sem ungur nemur, gam-
all temur“. Vér ættum daglega
að biðja Guð að gefa oss hreint
kærleiksríkt hjarta, fagra sál og
að Jesús Kristur verði allsráð-
andi í lífi voru. Þá skapast Guðs
ríki innra með oss, sem er frið-
ur og fögnuður I heilögum anda.
Svo hið sœluríka líf skapist sem
fyrst bið ég sjónvarp, útvarp,
skóla og heimili, að syngja dag-
lega inn í sálir vorar sálm núm-
er 370 í Kirkjusöngssálmabókinni
„Við freistingum gæt þín“. Ef
börnunum væri strax kennt að
elska Jesúm og hafa hann daglega
í verki með sér. Við þurfum öll
að hafa hann daglega í verki
með oss, og innra með oss. Þá
væru öll vandamál úr sögunni.
Þá réði andinn yfir efninu,
sálin yfir líkamanum. Þá verður
það illa upprætt og enginn þyrfti
að óttast neitt.
Verið öll blessuð.
M. J.“.
EINBÝUSHÚS
við Mávahraun í Hafnarfirði
Til sölu er nýtt einbýlishús í Hafnarfirði.
Húsið er um 162 fm og 38 fm vlðbyggður bíl-
skúr, allt á einni hæð. í húsinu eru 5 svefn-
herbergi, sjónvarpsherb., stofa og borðstofa.
Húsið er ekki alveg fullgert að innan, en vel
íbúðarhæft, múrhúðað en ómálað að utan,
steypt verönd og stéttar. Mjög hagstæð lán
áhvílandi. Verð 2,3 millj.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli & Valdi).
Sími 26600. — Heimasími 30587.
dygði skammt við þær rann-
sóknir og framkvær.idir sem til
þyrfti að koma ef gagn ætti að
vera að því. Mér er spurn, veit
höfundurinn um hve margar þús
undir svartbaks falla í valinn á
hverju ári fyrir skotglöðum veiði
mönnum, því þeir eru ekki svo
fáir byssumennirnir okkar sem
fana um fjörur og sœ með svart-
baksdráp í huga, og ekki ætti að
spilla ánægjunni að vita af verð-
launum fyrir hvern fugl, þó ekki
séu þau innheimt fyrir nema
sáralítinn hluta af skotnum svart
baki. Að svartbakur sé skaðvald
ur bæði fyrir annað fuglalíf og
fiska í ám og vötnum þarf eng-
inn að efast um, og gerir grein-
arhöfundur það ekki heldur, en
hann efast hins vegar um að
hann sé sá skaðvaldur sem hing-
að til hefur verið haldið fram.
Ég býst við að hann skipti um
skoðun ef hann sæi allan þann
fagra æðarungahóp, og laxa- og
silungstorfurnar sem bætast eiga
við dýralíf okkar á hverju ári,
en í þess stað hverfa ofan í gráð
ugan kjaft svartbaksins. Að gjör
eyða svartbak er nánast ógjör-
legt, en að allar þær kúlur sem
á stofni svartbaksins dynja hafi
enga fækkun í för með sér á ég
bágt með að trúa.
Magnium short“.
0 Sannar hetjur
„Velvakandi góður!
Vilt þú gera svo vel að birta
þetta bréf.
„Kæra æskufólk!
Fyrir löngu bauð Jesús Krist-
ur mér að kalla yður til starfs,
en ég sinnti því ekki, og nú er
samvizkan farin að áklaga mig.
Hjá Matteusi 16. kap. 24. versi
mælti Jesús við lærisveina sína.
„Vilji einhver fylgja mér, þá af-
neiti hann sjálfum sér, taki upp
kross sinn og fylgi mér“. Ég vona
að það verði margir sem vilja
taka upp krossinn, og gerast jxist
ular frelsara vors Jesú Krists.
Hans vilji er, að þér farið til
þeirra þjóðci, sem bera kristið
nafn, en framleiða vopn og hafa
herskyldu. Gangið fram fyrir
valdhafana. Segið þeim að þeir
Stærsta og útbreiddasta
dagblaðið
Bezta augiýsingablaðið