Morgunblaðið - 04.04.1970, Page 16

Morgunblaðið - 04.04.1970, Page 16
f 16 MORGUN'B'LAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. APRlÍL 1070 Útgefandi M. Árvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Ámi Garðar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstraeti 6. Sími 10-100. Auglýsingar Aðalstraeti 6. Simi 22-4-80. Askriftargjald 165,00 kr. á mánuði innanfands. I lausasölu 10,00 kr. eintakið. RÖDD ÚR FORTÍÐ Á borgarstjórnarfundi í ■í*p fyrrakvö-ld réðst borgar- fulltrúi Alþýðuflokksins harkalega gegn þeirri stefnu í húsnæðismálum, að leitast við að auðvelda sem flestum að eignast eigin íbúðir. Benti hann réttilega á, að þetta hefði um iangt skeið verið aðalstefnumál Sjálfstæðis- flokksins í húsnæðismálum, en sagði, að „sjálfseignar- * stefnan,“ sem hann nefndi svo, væri „búin að ganga sér til húðar.'* Þessi talsmaður Alþýðuflokksins sagði, að hús næðisvandamálin ætti að leysa með „félagsleg sjónar- mið“ fyrir augum á svipaðan hátt og gert væri á hinum Norðurlöndunum, því að s j álfsei gnarstefnan væri „komin í slíkar ógöngur, að henni yrði ekki fylgt til fram búðar.“ Með þessum yfirlýsingum hefur Alþýðuflokkurinn á ný markað sér gamla stefnu í húsnæðismálum. Fyrr á árum var harkalega deilt í þessu efni. Sjálfstæðismenn fylgdu fram sjálfseignarstefnunni, en andstæðingar Sjálfstæðis- flokksins lögðu ríka áherzlu * á að byggja skyldi íbúðarhús- næði í stórum stíl á vegum sveitarfélaga og ríkisvaldsins, en ástæðulaust væri, að ein- staklingamir eignuðust íbúð- arhúsnæði — og jafnvel bein- línis þjóðhættulegt. Eins og alkunna er, befur sjálfseign- arstefnan sigrað, fleiri og fleiri íslendingar hafa eign- azt eigin húsnæði, og ekki er ýkja langt að því marki, að allur þorri þeirra, sem þess óska, geti búið í sínum eigin íbúðum. En þá skýtur aftur upp hinum gömdu kreddu- kenningum sósíalismans, og * nú er því haldið fram, að sjálfseignarstefnan sé „búin að ganga sér til húðar,“ og nauðsynlegt sé að taka upp þveröfuga stefnu, ríkið og sveitarfélögin eigi að byggja íbúðarhúsnæði, en einstakl- ingarnir ekki að fást við slíka fásinnu sem það sé, að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Það er ekki að ófyrirsynju að vakin er athygli á þessu argvítuga afturhaldi, þessari rödd úr fortíðinni, sem sann- ast sagna hefði mátt ætla að væri þögnuð fyrir fullt og allt. En þessir menn í Alþýðu flokknum, sem nú eru á miðj- um aldri og lærðu kreddu- kenningar sósíalismans af bókum, virðast aldrei geta áttað sig á staðreyndunum. Kom þetta raunar glöggt í Ijós í ritstjómargrein í Al- þýðubliaðinu fyrir nokkrum dögum, þegar varaformaður Alþýðuflokksins hældi verð- lagshöftum á hvert reipi, en réðst að þeim, sem vildu frjálsræði í viðskiptaháttum og þar með að formanni Al- þýðuflokksins, sem mælti fyr- ir stjórnarfrumvarpi um verð gæzlu og samkeppnishömlur. Vissulega er það rétt, að vel hefur gengið að stjóma með Alþýðuflokknum nú í heilan áratug. Sannleikurinn er sá, að Alþýðuflokksmenn voru komnir í algjöra sjálf- heldu í vinstri stjóminni og frjálslyndari öfl innan flokks ins fengu því ráðið, að algjör- lega var söðlað um og tekið upp samstarf við Sjálfstæðis- flokkinn um að koma á frjáls- legum stjórmarháttum, líkt og allir flokkar, að kommúnist- um undanskildum, styðja í nágrannalöndunum. En nú heyrast gömlu aft- urhaldskenningamiar á ný í Alþýðuflokknum. Nú á að auka ríkisafskipti og ríghalda í leifar haftakerfisins gamla. En fróðlegt verður að sjá við- börgð fólksins við þeim kenn ingum, að fráleitt sé að að- stoða einstaklingana við að eigmast eigin húsnæði, heldur eigi pólitískir spekúlantar að sjá um húsbyggingamálin og síðan eigi fólkið að verða leiguliðar þeirra. Um það m.a., hvor stefnan eigi að ríkja í húsbyggingarmálum, sjálfseignarstefnan eða stefna ríkisforsjár, verður barizt í borgarstjómarkosningunum í vor. Tunnusmíði T^vær tunnuverksmiðjur eru nú reknar hér á landi, önnur í Siglufirði og hin á .Akureyri. Tunnuverksmiðjan í Siglufirði er mjög fullkom- in, en hins vegar er tunnu- smíði á Akureyri mun kostn- aðarsamari. Tunnuverksmiðj- urnar hafa notið verndar, bæði lítilsháttar tollvemdar og eins hefur innflutningur á tunnum verið takmarkaður, en vegna EFTA-aðildarinnar má vera að samkeppni við tunnuverksmiðjurnar aukist. Nauðsynlegt er að þessi iðnaður haldi hér áfram; sjálfsagt virðist vera að hag- nýta betur verksmiðjuna í Siglufirði, en hætta tunnu- smíði á Akureyri, þótt að sjálfeögðu þurfi þá annar iðnaður að korna þar í stað- inn. En með auknum afköst- um verksmiðjunnar á Siglu- firði, á að vera unnt að lækka verðið á innlendum tunnum, og tiltölulega litla vernd þyrfti þá fyrir þennan mik- ilvæga iðnað. ce;; EFTIR SIGRÚNU STEFÁNSDÓTTUR. Borðtennis Til eru sögusagnir um það, að í þá tíð er Indtand var undir brezkri stjórn og brezkt herlið var í landinu hafi her- mennirnir fundið upp leik sér til dægra- styttingar. Þeir röðuðu upp bólkum á borð og mynduðiu nokkurs konar lágan varnargarð yfir miðju borðisins, síðan notuðu þeir tappa úr vínflöskum fyrir bolta og köstuðu þeim með tómum vindla kössum mitli sín yfir varnargarðinn. iÞessi frumstæði leikur barst til Eng- lands og þaðan ti'l annarra landa. Vindla kassarnir, tapparnir og bsekurnar hurfu úr leiknuim og stað þeirra komu spaðar, kúlur og net og leikurinn fékk nú beitið borðtennis. Borðtennis nýtur sívaxandi vinsælda meðal fóCta á öltum aldri, enda er leik- urinn einfaldur og krefst ekki mikils útbúnaðar og er ekki rúmfrekari en það að koma má upp borðtennisborði í hvaða meðalstóru herbergi sem er. Borð- íð sem notað er í leikinn í dag er tveir metrar og 74 sentimetrar að lengd og 1 m 52 Vz sm að breidd oig hæð (þess er 76 sentimetrar. Eftir miðju borðsins er strengt net, sem er 183 sentimetrar að lengd, þannig að 15,25 sentimetrar af netinu standa út af borðinu sinn hvoru megin. Hæð netsins er einnig 15,25 sentimetrar, og efst á því er hvít rönd. Leikurinn er ýmist einiliðaleikur eða tví liðaleikur eftiir því hvort 2 menn eða 4 leika. Hefur hver leikmaður sinn spaða og í leiknum er ein kúla, sem ekki má vera léttari en 2.40 gröimm og ekki þyngri en 2.53 grömm. Ef um einliða leik er að ræða, er leikurinn fólginn í því að siliá kúlunni frá öðrum belm- ingi borðsins, yfir netið og yfir á borðs- helming andstæðingsins. Síðan slær andstæðingurinn kúl- unni aftur til baka tafarlaust. Ef andstæðinigi tekst hins vegar ekki að slá kúluna með spaðanum og missir af henni, hefur hinn leikmaðurinn fengið 1 stig. Sá leiikmaður sem fyrr er að fá 21 stig vinnur, en einnig er stundum leikið ákveðinn tíma og sá sem hefur fleiri stig þegar tíminn er útrunninn hefur þá sigrað. Ef um tvíliðakeppni er að raéða, er leikurinn alveg eins nema þá eru tveir leikmenn við hvorn borðsendann og siá boltann til baka til skiptis, þegar honum er kastað yfir Nemendur úr Hlíðarskóla að æfa sig í borðtennis. á enda viðkomandi liðs. f keppni eru ýmis 3 eða 5 leikir og er skipt um borðsenda eftir hvern lei.k. Hér í Reykjavík hafa mörg fyrir- tæki, klúbbar, einkaaðilar og íþrótta- félögin Ármann og KR komið sér upp aðstöðu til borðtennisæfinga. Æskulýðsráð Reykjavíkur hefur í samvinnu við fræðsluyfirvöld staðið fyrir borðtenniskennslu fyrir nemend- ur gagnfræðasikólanna undanfarna vet- ur, sem hefur haft það í för með sér ?ð iðkun borðtennis í skólum hefur farið ört vaxandi. Hafa skólarnir efnt tii keppni sín á milli nokkrum sinn- um og núna á sunnudaginn hefst í Íþróttahöllinni í Laugardal borðtennis- mót gagnfræðaskólanna og er hug- myndin sú að mót þetta verði haldið árlega framvegis. Verður keppnin sveitakeppni og siendir hver skóli eina fjögurra manna sveit og munu þar væntanilega maeta sterkasta borðtennis- fólk gagnfræðastigsins hér í borg. f íþiróttahallinni hefur nú skapazt aðstaða fyrir borðtennis á efstu hæð hússins, en þar er sérstakur borðtennis- salur og eru nú að hefjast þar nám- skeið á vegum íþróttahallarinnar, sem standa yfir í þrjár vikur, en í vor efn- ir Í.S.Í. til vormóts fyrir alla þá með- limi íþróttafélaga, sem áhuga hafa á að keppa í borðtennis. rt 'Vz Jónas Pétursson, alþm.: Eru engir vaxtarmöguleikar í land- búnaði í framleiðslusókn nk. ára? OFT hef ég hleypt í brúnirnar undanfarið við lestur blaðagreina eða við að hlusta á ræður og samtöl, þar sem framvindu ís- lenzkra atvinnumála ber á góma. Mlkið var bollalagt uim þessi efni í sambamdi við EFTA-aðild. Flest ir, já, langflestir hafa talið að til þess að sjá sífjölgandi þjóð- fyrir atvinnu, væri iðnaðiur, auk inn iðnaður nær það eina sem vaxtarmöguleilka ætti. En sér- Eins og kunnugt er má fá fram ýmis konar sérreglur í EE’TA-samstarfinu, t.d. verð- ur sementsinnflutniimgur ekki frjáls strax vegna hagsmuna Sememtsverksmiðjunnar, og þar sem hagsmunir ákveð- inna byggðarlaga eru í veði, eru einnig gerðar undantekn- ingar. Ef til þess kæmi, að hætta yrði á, að tunnusmíði dragist hér saman, mætti vinna að því að fá fram ein- hverjar sérreglur varðandi tunnusmíði hér á landi næ®tu árin, og vafalaust mundi þá verða að því unnið. staklega hafa ýmsir, og máls- metandi menn m.a. látið þess getið að landbúnaður gæti ekki tekið við fleira fólki, jafnvel sumir 'haft orð á að fólki við land búnað muni fækka á næstu ár- um vegna tæknilegra framfara við búslkapinn. Mér finnst þessi skoðun bera vott um andlega ör brigð. Við hljótum að keppa að því að efla og auka þær fram- leiðslugreinar, sem við höfum lifað af, sem landöhættir hafa Skapað. Eklki með því aðeins að blína á þær framleiðslugreinar einar, sam til þessa hafa verið yf irgnæfandi, heldur færa jafn- framt út kvíar á fleiri svið. Ég vil nefna hér t.d. loðdýra- ræktina, sem er að byrja — land búnaðargrein í strjálbýlið, sem við þurfum að aulka og efla í næstu framtíð og sem við bindum við miklar vonir — og treystuim á manndóm og bú- hyggindi ökikar í framtíðinni til þess að njóta arðs af fyrir væn- legan hóp íslenzkra landbúnaðar manna. Fiskirækt í ám og vötn- uim og fislkeldi er framtíðarbú- grein, stórfellt vaxtarsvið í ís- lenzíkum landbúnaði. Fiskiræktin og fiskeldið á vaxtarsviðið um svo til allar byggðir og er þess I vegna, einimitt þess vegna, sér- sta’kt kjörsvið íslenzlkra atvinnu mála. Nú þarf að hefja stórsókn í þessum málum og fólkið í strjálbýlinu verður að átta sig á gildi málsins fyrir framtíð ís- lenzkra byggða og taka saman höndum til sóknar. Jarðhiti er víðsvegar um land ið. Gróðurhús byggjast á þess- um hita og framleiðsia þeirra er umtalsverður þáttur landbúnað arinis. Nýlega ritaði einn okkar ungu lærdómsmanna, Sveinbjörn Björnsson, athyglisverða grein í Morgunblaðið. um ræktun við jarðhita. í>ar feomst hann m.a. svo að orði: „Nýting jarðhita til gróðurræktar hefir hingað til verið í mjög smáuim stíl og mið ast eingöngu við innlendan mark að. Með inngöngu íslands í EFTA gæti hins vegar opnast markað ur 100 milljón neytenda fyrir þessar afurðir og gæti það breytt viðhorfum um alla framleiðlslu og rekstur. Þessi stóriðja yrði að því leyti hagkvæmari okkur en efnaiðja, að hún þyrfti að öllum líkindum hlutfallslega minna stofnfé og meira vinnuafl en verksmiðjur til sjóefnavinnslu, magnesíumvinnslu eða álbræðslu sem veita tiltölulega fáum vinnu, Framhald á bU. 1(

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.