Morgunblaðið - 12.04.1970, Qupperneq 3
MOROUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. APRÍL 1970
3
Séra Qlafur Skúlason:
YONIN
Á FRENTI var frá því skýrt fyrir
nokkru, að læGmir og félagsfræðingur
hefðu verið að gera athuganir á tíðini
diauðsfalla imeðal vistmanna á eUiheim-
iluon nokfcrum. f niðurstöðum þeirra
kom sú mierfcilega kenning fram, að
dauðinn virtist ekki eins útmældur
gomlu fólki og ætla mætti. Dauðnatíðni
reis og hneig, þannig að flest voru dauðs
föllin, þegar efckert var um að vera,
og ekki var til neins að hlakfca. Þegar
ekfcert varð til að rjúfa grámyglu hvers-
dagsleikans, þegar biðin virtist eina
hlutskiptið og einskis var vænzt, féllu
fleiri fyrir manninum með ljáinn.
Fjöldinn fór aftur á móti minnfcandi
óðum fyrst á eftir og fyrst á undan hin-
um stóru dögum, er lengi hafði verið
beðið og til hlakfcað. Afmæli, hátíðir,
gleðistundir með fjölskyldum og vinum
virtust veita það brautargengi og stuðn-
ing, að líkaminn mátti enn um sinn
veita verðugan mótleik árás sláttu-
mannsins. Dkfci vildu vísindamennirnir
að svo kornnu máli leyfa alltof ákveðn-
ar ökoðanir byggðar á rannsóknunum,
því þær væru til þess of skammt á
veg komnar, en í þeim felst þó alla vega
ákveðin vísbending um áhrif hugans á
heill líkamans.
Á því er enginn vafi, að andlegt
ástand getur kallað fram líkamlega
kvilla, alveg eins og hamingja og gleði
fær dregið úr líkamsmeinum. Því það
er ekki aðeins böm, sem gleyma stingn-
um, þegar búið er að kyssa á „báttið“.
Sterkt rneðal til heilla og bóta er
sjálf vonin. Meðan líf finnst, er von, að
sögn, eins má líka segja, að meðan von-
in varir, sé vesöld haldið í skefjum. í
handbrögðum allra þeirra, sem ein-
hverju afreka og sinna andans verfc-
efnum til heillia, ber birtu af voninni.
Hún er hvatinn, hún fær hendur til að
hreyfast og mælir huganum verkefni.
Hún er sem gjöf Guðs til þess að bjarga
bömum hans frá stöðnun aðgerðarleys-
isins og doða uppgjafarinnar. Andstaða
hennar er uppgjöfin, þegar setið er með
hendur í skauti og upp .gefizt fyrir
hverjum mótblæstri. Vonin lyftir ofar
erfiðleiikunum, svo að færar leiðir finn-
ist, með því að ljá þeim vængi, sem
annars væm innilokaðir i eigin fall-
gryfjum eða annarra.
Vonin á sér tvíburasystur, þar sem
trúin er. Hversu vel þeir hafa þetta
reynt, sem séð hafa drauma sína tætta
af dauðanum. „Um eilífð“ er lefcrað á
hjarta kærleikans, og vonin því veMur,
að bjart verður aftur. Jesús nýtir máfct
vonarinmar til björgunar. Hversu oft
kemst hann efcki í það samband við
fólk, sem dugar með þvi að slá á
strengi vonarinnar: hjá sjúbuto og
þreyttum, hjá þeim, sem sjá enga fram-
tíð. Og Páll postuli talar um vonina i
félagi við trúna og kærleikann. Hann
setur að visu trúna fyrst, en oft á tíð-
um er þó vonin framherji trúarinnar,
þannig að sáð er frækorni trúarinnar,
eftir að búið er að plægja með voninni.
Það fer ei milli mála, að í dag er von-
ar þörf. Líkaminn er ekki aðeins byggð
ur upp mieð þeim hreyfingum og æfing-
um, sem hollar kallast. Hann fær einn-
ig styrk sinn að innan. Sá styrkur
kann jafnvel að vera svo milkill, að
hann bægi frá um hríð árásum hins
versta óvinar. Von kristins manns bygg-
ist á traustinu, sem hann ber til Drott-
ins síns.
Myndavél og tölva
bílsins hófst var gamla aðferð
in notuð og mynduðust þá oft
biðraðir langt út á götu, en
með tilkomu myndavélarinn-
ar gengur afgreiðslan milklu
fljótar fyrir sig.
BORGARBÓKASAFN Reykja
víkur tók í vetur upp nýja
aðferð við að skrá útlán bóka
og er hún miklu fljótlegri en
gamla aðferðin og kemur í
veg fyrir að fólk þurfi að bíða
lengi eftir afgreiðslu, eins og
oft kom fyrir, þegar aðsókn
var mikil að safninu. Er þessi
nýja skráning í því fólgin að
sérstök myndavél tekur á
nafnspjald lánþega og
bókarheiti og einu sinni i mán
uði aðstoðar tölva síðan við að
finna þá, sem ekki skila bók-
um sínum áður en lánsfrestur
er úti, en hann er 30 dagar.
Myndsfcrándnig þeasi fer nú
Æram í aðalsafninu í Þing-
holtss'træti, útibúiruu í Sól-
heimum og í bókaibálnum, en
á þessum stöðum til sam'anis
eru lániaðair út daglega yfir
3000 bækur. Þair sem safn-
gestum karan að leika farviltmi
á að vita hvennig þessi mynd-
sfcránimg fer fram leituðum
við upplýsinlga um það hjá
borgarbókavierði, Eiríki Hreini
Fi-nmíbagasyni.
Hver lánlþegi fær maifruspjaild
sem giMir í þrjú ár oig eT á
það skráð nafn, heimilisfang,
fæðinigardaguir og ár O'g eigin-
h/amdaruindirskrift. Þegar lán-
þegirun fær bók að láni fram-
vísar hairun naifnispjaldi sínu og
er það mymdað ásamt titli
bókarinimair og múmeruðu IBM-
spjMdi, þar sem á er letruð
dagsetninigin. IBM-spjaldið er
síðan sett í bákarvasanm og
það fylgir bófcinni.
J>egar lánþegi skilar bók-
inni er IBM-spjaMið fcefcið úr
hemni og sett í bunfca með öðr
um spjöldum, sem skilað er og
þarf lánþegi sjálfur að fylgj-
ast með því að spjaldið sé tek
ið úr henni og sett i bunkann,
því annars verður hann kraf
inn um bókina, ef spjaldið
finnst ekki. Einu simni í mán-
uði fer svo allur spjaldabunk
inn í tölvu Skýrsluvéla ríkis
ins og Reyfcjavikurborgar og
þar er spjöldunum raðað eftir
númerum. Þau númer, sem
vantar, skráir tölvan og send-
ir bókasafninu og þar er hægt
að finna á filmunni hver fékfc
bófcima mieð þessu IBM-spjaMi
og er viðkomandi þá rukkað
ur um bóikina. Þannig gengur
þetta fyrir sig í stórum drátt-
um.
Borgarbókavörður sagði að
þetta nýja fyrirkomulag hefði
flýtt mjög allri afgreiðslu, sér
staklega þegar tekið væri við
bóikunum. Nú þyrfti starfsfól'k
ið efcki annað en taka spjöld-
in úr bókunum og setja í
spjaMabunkann, en með
gömlu aðferðinni þurfti að það er sá fjöldi bóka, sem að
leita að hverju útlánsspjaldi ' jafnaði er í útláni frá aðal-
meðal 20 þúsund spjalda, en safninu. Þegar reikstur bóka-
Félagsstofnun um
þilplötu verksmið j u
STOFNFUNDUR félags til at-
hugunar á hagkvæmni þilplötu-
verksmiðju og byggingar og
reksturs hennar, ef þær athugan
ir reynast jákvæðar, var haldinn
í gær á Hótel Borg.
Stofaemidur eru: Hjörtur Hjairt-
arsson, forstjóri, Sveinn K.
Sveinisstoin, verkfræðinigur, Hans
Bjarniason, húsigagn.asmíðamieist-
ari, Ulfar Nathanealsison, kaup-
rnaður og Hilmar Jónisison, kaup-
félagsistjóri á Hellu.
Auk þeisis mæfctu á fumdimium
Jóhamm Hafstein, iðnaðarráð-
herra og Inigólfur Jónsson, lamd-
bú naðiarr áðheirra.
í stjóm voru koisnir Hjörtur
Hjartarson, formiaður, Sveiinm K.
Sveinssom, varaformaður og
Hanis Bjamiasiom, ritari.
Ein.s og áður hefur verið skýrt
frá hér í blaðimu hefur verið
uninið að athuigiumum á því að
framlei'ðia þilplötur úr íslenztou
grasi og miðar stofmium þessa fé-
lags að því að hraða þedm at-
hugunum og ráðasit í fram-
kvæmdir, ef þær bera þamn
áramgur, sem vomazt er til.
ÚTSÝNARFERÐ: ÖDÝR EN 1. FLOKKS
FJÖLBREYTTASTA OG
ALLAR ÚTSÝNARFERÐIR MEfl ÞOTUFLUGI
SÓL — FEGURÐ — HVÍLD — MENNTUN — SKEMMTUN — /EVINTÝRI
BEZTU FERÐAKAUP ARSINS: 15 DAGAR A SOLARSTRÖND
SPÁNAR - ÞOTUFLUG - EIGIN BÍLL FRÁ KR. 12,500
COSTA DEL S0L - BEZTA BADSTRÖND EVRÓPU
Enginn baðstaður álfunnar getur nú keppt
við COSTA DEL SOU, Miðjarðarhafsströnd
Andalúsíu, með bezta loftslag Evrópu, náttúru-
fegurð, sem óvíða á sinn líka, beztu hótel Spán-
ar, ódýrt og fjölbreytt skemmtanalíf og verzl-
anir og fjölda merkisstaða á næsta leiti, s. s.
GRANADA, NERJA, SEVILLA CORDOVA,
MALAGA og örstutt er yfir sundið til MAR-
OKKO í AFRÍKC.
í fyrra voru mörkuð tímamót í sumarleyfis-
ferðum íslendinga með reglubundnu þotuflugi
Útsýnar til Costa del Sol, og vinsældirnar voru
slíkar, að ekkert sæti var laust allt sumarið,
en aðsóknin er miklu meiri í ár. Brottfarar-
dagar: 31. júlí, 14. og 28. ágúst, 11. og 25. sept.,
9. okt. — 2, 3 eða 4 vikur. Einnig vikulega um
London í ág.—sept.
Munið ferðakynninguna
í kvöld.
Sjá auglýsingu á bls. 27.
Ferðaskrifstofan
Austurstræti 17. Sími 20100.