Morgunblaðið - 19.04.1970, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.04.1970, Blaðsíða 10
10 MORGU'NIBÍLAIMÐ, SUINNIUDAGUR 19. APRÉL 19-70 Við erum ein hjörð Irtfl I heimsókn hjá hinum kaþólska Rey k j aví kur biskupi, dr. Hinrik H. Frehen Dr. Hinrik Frehen biskup í skrifstofu sinni, Herra biskup kaþólskra, dr. Hinrik Frehen. — STÆRSTA spurningin, sem bíður úrlausnar kaþólskra manna, og raun- ar allra kristinna manna í dag, er sú. hvernig við fá- um viðhaldið kristinni trú. Svo virðist sem kristin tfú sé í meiri hættu í heimin- um, en hún hefir verið nokkru sinni áður. Þetta sagði kaþólski bisk- upirm í Reykjavík dr. Hinrik H. Frehen, er ég sat og ræddi við hann að biskupssetrinu við Egilsgötu 18 hér í borg. Kaldur vetur hélt biskups- dæmni hans enn í kölduim greipum, er samtal þetta fór fram. Raunar var mér þetta sam- tal miklu meira en venjulegt rabb. Þetta var helgistund, full af hlýju, trú, mannkost- um, innilegri og falslausri gamansemi samfara djúp- stæðri alvöru. Það hlýtur að vera góður og göfugur mað- ur, sem skapar kringum sig slíkt andrúmsloft. Þann'ig kom mér kaþólski biskup- inn fyrir sjónir og þannig reyndi ég hann í löngu spjalli. Vel gaeti þessri hógværi guðsmaður verið íslenzkur sveitaklerkur. Ég spurði líka sjálfan mig á eftirr f hverju liggur munurinn á okkur mót" mælendum og þeim kaþ- óflaku? Ég finn enigan mun á því er veit að trúnni og þeim styrk, er hún veitir öllum, sem hana tileinka sér, Ég veit heldur ekki hvers vegna ég er mótmælandi en dr. Hinrik Frehen kaþóiskur. Ég treysti mér ekki tiil að mótmæla neinu, sem hann hefur sagt mér. Hitt h-efir mér löngum fundizt, að í umhleypingum og róstum mannlífsins muni kaþ ólska kirkjan starnda fastari fótum, en aðrar kirkjur. Ég verð að játa að ég ber meira traust til henn-ar en minnar eigin kirkju, a.m.k. í sumu til liti. Vænti ég að prestar mín- ir fyriirgefi mér þetta, og raunar mega þeir sjálfum sér um kenna. Það sem gladdi mig mest í samtalinu við kaþólska bisik- upinn var hinn sterki vilji hanis til aukins samstarfs við aðrar kirkjudeildir, hin fram rétta hönd hans til samstarfa og sátta. Tilefnið til samtalsins var hins vegar fundur, er kaþ- ólsku biskuparnir á Norður- löndum héldu með sér í Maríaholm við Osló snemma á þessu ári. Mikilvægasta um- ræðuefnið þar var hjón-a- bandið, þar sem anna-r aðiíl- inn er kaþólskur en hi-nn úr annarri kirkju. Raunar er dálítið erfitt fyr ir okkur mótmælendur að skilja þennan vanda. Við er- um svo vanir því a-ð auðvelt sé að rjúf-a þennan sáttmála milli karls og konu. Dr. Fr.ehen benti mér hin-s vegar á, að auðveldara væri kan-mgki fyriir miamin að skilja sjónarmið kaþólskra, ef mað- ur legði fyrir sig þá miklu samvÍ2Íkuspurningu, hvort okkur væri það ófrávíkjan- leg trú og vissa að ekkert fengi sli-tið eða rotfið þenn-an sáttmála nema dauðinn einn. Læðist ekk-i að okkur sú hugsun-, að ekkert sé raunar auðveldara en að rjúfa þenn- an sáttmála, jafn-vel þótt við höfum lofað að halda hann allt til da-uð-ans? Og hefir ekki þeirri kennimgu verið haldið að Ok'kur að betra sé að rjúfia þennan sáttmála, heldur en lifa í óhamingju- sömu hjónabandi? Ég var ekki í neinum vanda -að -svara þessari spurningu af mimni hállfu. En fyri-r kaþólskan mann er þessi sáttmáli heilagt sakramenti, og ef hann er rof inn þýðir það útábúfun úr helgidómi h-ana og jafnvel óþolandi líf meðal samborg- aranna. í annam stað kemur svo spurningin um það hvort priestur sá, sem ber ábyr-gð á hjónabandinu og vígir hjón- in saman, hefi-r lagt við und- irbúninginn þá rækt, sem skýlda er meðal kaþólskra presta að ger-a. Þessi lífstíð- arsáttmáli er enginn hégómi hjá þekn. Hann er þess vegna ekkert fljótræðis-verk, eða á að minnsta kosti ekki að vera það. Þess vegna Mýtur sú spurning að vakna með-al oklkar, hvort við gerurn ekki þennan sáttmála milli karls og konu með öðru huigarfari en kaþólgkir menn? Nú er það hims vegar vilja- yfirlýsing margra k-aþólskra kirkj ufrömuða og þar á með al Norðurlandabiskupanna, að þessi svonefnd-a blandaða gifting eigi að geta farið fram í mótmælendakirkju og að vígslan eigi að geta verið framkvæmd af m-ótmælenda- presti, ef að-stæður eru þann- ig, eða þá að vígsluna ann- ist bæði kaþðliskuir og mót mælendaprestur. Með þessu vilj-a kaþólskir kirkjuhöfð- ingjar slaka á hinni ófrá- vikj-aniegu -reglu ki-rkj-u sinn Biskupinn í kór dómkirkjunnar að Landakoti. Til vinstri við hann séra Sæmundur Vigfússon, en tii hægri þeir séra Franz Ubaghs og séra Hákon Loftsson. Næst sne-rist siaimtalið um samskipt-i hinna kristnu kirkna. Dr. Frehen biskup sagði að nú væru kirkjurn- air að reyna að nálgast hverja aðra meir og meir og líta af meiri skilningi á hinn raun- verulega trúargrundvöll fremur en það hver kirkjan er. Herra biskupinn lét á sér skilja að vel væri hugsanlegt að hér á landi gæti svo farið að efnt yrði til sameig- inlegra guðsþjónusta þar sem prestar kaþólskra og mótmæl enda syngju saman messu. Hann kvaðst hafa verið við- staddur slika guðlsþjónustu erlendi-s og honum hefði flalliið hún vel í geð. Framhald á bli. 21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.