Morgunblaðið - 19.04.1970, Page 14

Morgunblaðið - 19.04.1970, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAjGUR 19. APRÍJL 1970 Nýr þáttur i heilsuvernd; ísland einna f yrst til að hef ja almennar Rhesusvarnir í blóðbankanum, þar sem greining á blóði með tilliti til Rhes usflokka fer fram. Frá vínstri: Gunnar Biering læknir, Auðu r Theodórs, meinatæknir, Valtýr Bjannason, læknir og Halla Snæbjömsdóttir yfirhjúkrunarkona. Gera misræmi í blóði móður og barns óvirkt Flestir hafa heyrt um blóð- sjúkdóm hjá nýfæddum börn- um sem skapast af blóðflokka- misræmi hjá móður og fóstri, þ.e. þegar barnið hefur blóð- flokk, sem móðurina vantar. Undanfarin ár hefur í erfiðari tilvikum orðið að grípa til þess ráðs að skipta um blóð í böm- unum þegar eftir fæðingu. En nú eru komnar fram varnir gegn þvi að slíkt misræmi á blóðflokkum valdi skaða, ef brugðið er við í tíma. Og fs- lendingar hafa orðið meðal fyrstu þjóða til að notfæra sér það almennt og fyrir alla, og taka upp skipulagðar fyrir- byggjandi ráðstafanir. Læknarnir Gunnlaugur Snæ dal og Gunnar Biering unnu að því í samvinnu við dr. Sig- urð Sigurðsson, landlækni og yfirlækni Blóðbankans Valtý Bjarnason að þessar varnir voru upp teknar og stóð undir- búningsstarf í rúmt ár, en Gunnar hefur nú umsjón með þessum varnaraðgerðum í fram kvæmd. Þar sem mikilvægt er, að konur þær, sem þurfa á slíkri meðferð að halda, skilji í hverju hún er fólgin og viti, að hún stendur til boða, hefur Mbl. leitað til Gunnars Bier- ing, til að fá nánari útskýr- ingar. — Mannsblóð er flokkað í fjóra aðalblóðflokka, sem kunn ugt er, hóf Gunnar útskýring- ar sínar. Auk þeirra eru til svo kallaðir undirbLóðflokkar, sem sumir hafa í blóði sínu en aðrir ekki. Merkastur þessara undir flokka er Rhesusblóðflokkur- urinn. Um það bil 85% allra hvítra manna hafa þennan flokk í blóði sínu og nefnist þessi hópur Rhesus-jákveeð- ur. Hin 15%, sem ekki hafa blóðflokkinn nefnast Rhesus- neikvæðir. Vandkvæðin skap- ast þegar Rhesus-neikvæð kona gengur með Rhesus-já- kvætt barn, en þá hefur faðir- inn verið jákvæður. Móðirin tekur þá að mynda mótefni gegn afkvæmi sínu. Myndisit nægilegt magn af þessum mót- efnum, en það getur tekið tvær eða fleiri meðgöngur, þá geta þau borizt um fylgjuna til bamsins og taka þar að vinna gegn blóðkornum þess. Veldur þetta blóðsjúkdómi, sem ein- kennist af blóðleysi og gulu. í þessu sambandi er rétt að geta þess, að fósturlát er ekki síð- ur sterkur hvati til mótefna myndunar en meðganga og fæð ing. Sama getur einnig gerzt, ef Rhesus-neikvæðri konu er gef ið Rhesus-j ákvætt blóð, en slíkt tilheyrir auðvitað hrein- um undantekningum í dag. — í hverju eru Rhesus-varn ir þá fólgnar? — Meðferðin er fólgin í því, að konunum er gefið Rhesus mótefni (Immune globulin). Mótefnagjöfin hindrar mótefna myndun hjá konunum sjálfum. Efnið er gefið í lok hverrar fæðingar eða eigi síðar en þrem sólarhringum eftir fæð- inguna. Rannsóknir hafa sýnt, að móteínamyndun hjá Rhesus- neikvæðum mæðrum er ekki mest á meðan á meðgöngutím anum stendur heldur í fæðing- unni sjálfri. Mótefnin, sem kon- an myndar af völdum fæðiing- arininar, skaða ékki barnið, sem hún er að fæða, heldur barnið, sem hún kann að eiga næst. Ef efnið er gefið í lok hverr- ar fæðingar hindrar það því mótefnamyndun hjá móðurinni í næstu meðgöngu á eftir. Einn ig er nauðsynlegt að gefa þetta efni RJhesius-nieikvæðum kon- um, sem láta fóstri. Er ástæða til að hvetja allar konur, sem láta fóstri, til að gera lækni viðvart sem fyrst, svo þær geti hlotið viðeigandi meðferð, ef þær reynast Rhesus-neikvæð ar. — Þið eruð nýbyrjaðir á þessari meðferð? Hvernig eru undirtektir? — Það eru rúmir þrír mán- uðir síðan byrjað var og við erum mjög ánægðir með undir tektir lækna og ljósmæðra í landinu. Við lögðum ríka áherzlu á að hefjast handa sam tímis á öllu landinu en ekki fyrst í Reykjavík eins og oft er venjan. Til þess þurfti all mikinn undirbúning. Við Gunnlaugur Snædal ferðuð- umst m.a. um allt landið á sl. sumri til að kynna læknum og ljósmæðrum hinar nýju varnir. — Er nægilega mikið af þessu efni til fyrir alla, sem á þurfa að halda? — Já, okkur hefur tekizt að fá nægilegt magn frá Kanada. Hér er um að ræða 450 skammta á ári og smæð þjóðarinnar ger- ir það að verkum, að við fáum nægilegt magn til umráða. Enn sem komið er er Immune globulin þó framleitt í svo litlu magni, að stærri lönd geta ekki gefið það öllum, sem þess þurfa. — Hvenær hófst framleiðsla á þessu efni? — Efnið kom á almennan markað á miðju ári 1968, en mjög ítarlegar rannsóknir og prófanir höfðu farið fram á því allt frá 1960. — Hvað gerist, ef Rhesus- neikvæð kona fer að mynda mótefni og mótefnin berast yf- ir í barnið? — Ef mótefnaflutningur frá móðurinni er ákaflega mikill, getur barnið fæðzt andvana. Slílk tilvik eru þó fiá og hefuir farið stöðugt fækkandi hin síð ari ár með bættum rannsóknar aðferðum. Annars fer meðferð in eftir því á hvað háu stigi sjúkdómurinn er. í vægari til- viikum er meðferðin engin. í þeim erfiðari eru blóðskipti eina meðlferðin, sem að gagni hefur komið,- og reynast þaiu undantekningarlítiið mjög vel, ef þau eru gerð í taaka tíð. Lan,gofitast eru blóðskipti gerð á Landspítalanum. Við vitum orðið um flestar konu ’, st m þannig er ástatt fyrir og þær eru látnar koma 'þangað fyrir fæðingu. — En Immune globulinið dug ar ekki, ef konan er þegar far in að mynda mótefni? —■ Nei, því er verr og miður. Framhald á bls. 2.Í 0 69 M iðSl > <M YAiim BLÓDSÝNISHORN GEYMIST Á KÖLDUM STAÐ m ■"■gSi sl» « Umbúðir B1 óðbankans undir blóðsýnishorn Allar barnshafandi konur í blóðflokkun í Blóðbankann f framhaldi af viðtalinu við Gunnar Biering lækni, lögðum við leið okkar í Blóðbankann, sem tekur við blóðsýnishornum frá vanfærum konum og grein- ir þau, bæði í aðalblóðflokkana og einnig með tilliti til Rhesus- flokka. Fyrst hittum við Valtý Bjarnason, lækni, sem vann mik ið og gott starf við að koma þessu af stað. — Blóðflokkun með tilliti til Rhesus-flokka hefur reyndar farið fram í Blóðbankanum frá upphafi, en nú er þetta í miklu stærri stíl og víðtækara, sagði hann. Nú kemur einkum meira hingað af sýnishornum utan af landi. Við spurðum Valtý, hvort ekki væri meira öryggi í því að senda blóðið til greiningar í Blóðbankann. — Jú, það er miklu öruggara, svaraði hann. — Við höfum oft fengið blóð, þar sem vanfærar konur og blóðgjafar hafa verið rangt blóðflokkaðir með Eldon-aðferð inni. En sú aðferð hefur verið mikið notuð, vegna þess hversu handhæg og einföld hún er. Sem betur fer hafa slíkar vill- ur yfirleitt ekki gert svo mikið til. En í þessu tilvilki, sem við nú erum að tala um, er nauð- synlegt að þetta sé nákvæmt. Við höfum (engið blóð frá konu, sem hefur verið talin Rhesus-neikvæð, en hún svo reynzt Rhesuis-jálkvæð. Það er slæmt fyrir konuna, sem held- ur að hún sé neikvæð og setur að henni óþarfian ótta um barnið, sem hún gengur með. Við skoðuðum umbúðir, sem Blóðbankinn hefur látið gera sérstaklega fyrir blóðsýnishorn, sem senda á þangað. Þetta eru litlir kassar, með áletraðri utan áskrift til Blóðbankans og síma númeri þar. Á þeim stendur með áberandi hvítum stöfum: „Var- úð, Blóðsýnishorn. Geymist á köldum stað.“ En innan í eru lítil glös undir sýnishornin og þeim þannig komið fyrir að þau hreyfast ekki eða verða fyrir hnj aski. — Allir læknar og ljósmæð- ur úti á landi hafa fengið þessa kassa undir blóðsýnishorn, sem eiga að fara til Blóðbankans, sagði Valtýr. Og með fylgir seð ill, sem segir fyrir um hvernig eigi að taka sýnishornin og senda þau. Kassinn er svo áber andi og vel merktur, að þó hann falli t.d. af bíl eða tapizt, þá sér finnandi undir eins að þetta á að fara til Blóðbankans. Og þjónustan hjá flugfélögum og Póstþjónustu hefur verið frá- bær í þessu sambandi. Undir eins og þessar umbúðir eru á ferðinni, er þeim umsvifalaust komið á ákvörðunarstað eða hringt í Blóðbankann. Kassarn ir eru gerðir í Kassagerðinni, og við erum satt að segja mjög stoltir af þeim. Þá hittum við fyrir Höllu Snæbjörnsdóttur, yfirhjúkrun arkonu og Auði Theodórs, meinatækni, sem sérstaklega vinnur við blóð3ýnishornin vegna Rhesus-varnanna. Auður hóf störf um leið og hinar víðtæku Rhesus-varnir hófust. Hún tók undir orð Val- týs, sagði að síðan hún byrjaði hefði fyrri blóðflokkun í þó notokuð miörgum tilvikum reynzt röng. E.f till vi'll stafaði þessa háa hundraðstala af því, að nú bærist svo miikið af blóð sýnishornuim frá kon.um utan af landi. Eftir að læknarnir Gunn laugur Snædal og Gunnar Bier ing ferðuðust um landið til að kynna Rhesus-varnirnar, þá hafi sýnisbornin hópazt inn. Rétt er að geta þess, að frá því að Blóðbankinn tók til starfa, hafa læknar á Reykja- víkursvæðinu hagnýtt sér þjón ustu hans hvað snertir blóð- flokkanir. Halla bætti því við, að áður hefði starfsfólk furðað sig á hve lítið af blóðsýnishornum frá vanfærum konum barst Blóð bankanum frá sumium héruð- um. — Allar barnshafandi konur þurfa að láta blóðflokka sig og við viljum lika geta gert mót- efnamælingar hér í Blóðbank- anum, þegar kona er neikvæð, sagði hún. Hér höfum við að- stöðu til þess og það er betra að bafa allt á sama stað. Spurð um það, hve fljótt slík flokkun getur gengið fyrir sig, svaraði Auður því til, að blóð- flokkunin sjálf þyrfti ekki að ta'ka nema einn morgun. Elf blóðsýn,ishorn kæmi til dæmiis frá barni að morgni, væri hægt að síma niðlurstöðu síðdegis. E. Pá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.