Morgunblaðið - 22.04.1970, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 22.04.1970, Blaðsíða 11
MORGITNBLA DIÐ, MIÐVIKUDAGt! R 22. APRtL 1S70'. 11 Það var mikið um að vera í húsi Slysavamafélags ís- lands á Grandagrarði s.l. sunnudag, því þá var síðasti dagur landsþings S.V.F.Í., sem hófst á fimmtudag. Þó tókst okkur að ná stutta stund tali af nokkrum þing- fulltrúum utan af landi og spurðum þá fregna af slysa- varnamálum í heimahögum þeirra. Áhuginn hlýtur að aukast hér Meðal fulltrúa frá slysa- varnadeildinni Vörn á Siglu- firði er Þórhalla Hjálmars- dóttir. Vörn hefur aðeins vinninginn yfir ísafjarðar- deildina að því er varðar ár- in, því hún hefur starfað í 37 ár. — í Vörn eru nú 265 kon- ur á öllum aldri, sagði Þór- halla, en driffjöðrin er for- maðurinn, Guðrún Rögnvalds dóttir, sem stanfar af lifi og sál og reynum við hinar að fylgj a henni. - Það er i i qó flao Á bryggjunni, úti fyrir Slysavamahúsinu: Elías frá Homaf irði, Iðunn frá ísafirði, Ásdís úr Garði og Sigmar frá Svalb arðsströnd. (Ljósm. ÞÁ..) Með slysavamafólki utan af landi — Vörn hefur jafnan haft mörg mál á dagskrá. M.a. beitti deildin sér fyrir því að skýlið á Siglufjarðarskarði var reist svo og skýlið í Héð- insfirði, eftir að hann lagð- ist í eyði. Skýlið í Siglufjarð- arskarði kemur nú reyndar ekki að eins miklum notum nú og meðan vegurinn lá þar yfir. En það kemur sér þó vei, þegar ófærð er >g farið er yfir skarðið á skíð- um og einnig þegar Skarðs- mótin eru haldin þar um hvítasunnuna. Ef eitthvað út af ber er hægt að grípa til Þórhalla Hjálmarsdóttir frá Siglufirði. talstöðvarinnar, sem er í skýiinu. — Deildin hefur beitt sér fyrir ýmsum öryggismáium innanbæjar á Sighifirði. Hún setti t.d. upp björgunarhringi á bryggjur og hefur beitt sér fyrir umferðarkennsiu og staðið fyrir því að SVFÍ hef ur sett upp umferðarmerki við innkeyrsluna í bæinn. Veitir ekki af að gera það, sem hægt er, til að koma í veg fyrir umferðarslys, því uimferðin er orðin mesti slysavaldurinn. — Þegar Vörn átti 35 ára afmæli gaf hún utanborðsmót or í plastbát, sem björgun- arsveitin hefur til afnota. Björgunarsveit Slysavarna- félagsins er ávailt til reiðu ef eitthvað út af ber, annað hvort á sjó eða landi, og á hún þá vísa aðstoð bæjarbúa. Liggur nú fyrir að fá góð lít il fjarskiptatæki („labb- rabb“) handa björgunarsveit inni, því það eru nauðsyn- leg hjálpartæki, þegar verið er að leita að týndu fólki í fjöllunum umhverfis Siglu- fjörð. Þórhalla hefur ekki áður setið landsþing SVFÍ og sagði hún að fyrir sig væri þetta mikið ævintýri. „Ef það er hægt að auka áhuga manns á slysavarnatmálum þá hlýtur hann að aukast hér,“ sagði hún að lokum. Misbrestur á að vistum sé skilað Iðunn Eiríksdóttir er for- maður kvennadeildarinnar á ísatfirði, en kvennadeiildin minntist 35 ára afmælis síns í fyrra. — Á afmælinu var okkur afhent nýtt skýld á Sléttu, sagði Iðunn, og var því gefið nafnið Sigríðarbúð í höfuðið á Sigríði Jónsdóttur, en hún lét nýleg.a aá formennsku eft- ir 30 ára starf. — í kvennadeildinni eru n,ú um 300 konur og er fé- lagsstarfið mjög líflegt og mæta að meðaltali 70—90 konur á fundi, og má það telj ast góð fundarsókn. Við störf um mjög svipað og aðrar deildir, reynum að afla fjár með því að halda basar og selja meriki og einnig höfðum við skyndihappdrætti, sem gekk mjög vel. Þrír fjórðu þess fjár sem við öflum fer til höfuðstöðvanna í Reykja- vík, en fjórðungi höldum við eftir eins og aðrar deildir. — Kvennadeildin gaf skýl ið á Breiðdalsheiði og sér nú um rekstur þess — býr það fatnaði og vistum. Því miður þurfum við að endurnýja vist irnar árlega því það vill verða misbrestur á því að þeir, sem nota þær skili þeim aftur. En þetta er ekki eins- dæmi og er sömu sögu að segja af öðrum skýlium þarna nyrðra. — Af öðrum verkefmum okkar má mefna að við erum að prjóna ullarfatnað til að hafa í bátunum og svo stynkj um við hjálparsveit skáta, sem alltaf er till taks ef eitt- hvað út af ber, og vinnur þá oft með björgunarsveit Siysa vamafélagsins. Björgunar- sveitin er vel búin og skip- uð reyndum og hraustum mönnum því að þeir þurfa að geta lagt á sig mikið erfiði. Aðstæður allar í nágrenni ísafjarðar eru þannig að það verður lítið komizt á bíium og því verða björgunarsveit- armenn ávallt að vera við- búnir að þurfa að fara fót- gangandi langar og erfiðar leiðir, ef eitthvað út af ber. Fjarskiptaþjón- ustan og sigl- ingamerkin baráttumál á Hornafirði Eftir að hafa talað við tvær slysavarnakonur var kominn tími til að hitta að máli björgunarfélagsmann, og Elí- as Jónsson formaður Björg- unarfélags Hornafjarðar sagði okkur frá baráttumálum sinna félagsmanna. — í vetur vorum við ásamt skipstjórnarmönnum að berj- ast fyrir því að komið yrði á 24 tíma fjarskiptaþjónustu hjá Homafjarðarradíói, sagði Elías, en stöðin hefur aðeins verið opin rúmlega hálfan sólarhring. Neskaupstaðar- radíó heyrist ekki suður fyrir Eystra-Horn og Vestmanna- eyjaradíó ekki austur fyrir Meðallandsfjöru, svo þarna hefur verið gat í næturþjón- ustunni á stóru svæði. Með miklum velvilja ráðherra, Ing ólfs Jónssonar, fékkst þetta leyst til bráðabirgða og leys- ist væntanlega endanlega í haust. — Annað baráttumál hefur verið að sett verði upp fleiri og betri siglingamerki við Homafjarðarhöfn. Þetta er einhver erfiðasta höfn á land inu og verður þar að þræða þrönga sandála. Með tilkomu fiskimjölsverksmiðjunnar sem reist var í vetur, má búast við mjög aukinni umferð ókunnugra skipa og því ríður á að þarna verði bætt úr. Með aðstoð þingmanna og ráð herra hefur þetta nú fengizt merkt að nokkru leyti og vonum við að því verði lokið í sumar. — Annars er nú mest áríð- andi fyrir björgunarfélagið að byggja yfir útbúnaðinn. Við erum með bíl, fjalla- og jöklaútbúnað og sjóbjörgunar tæki og erum með þetta allt á hrakhólum. En við vonumst til að geta byggt sem fyrst. — Björgunarfélagið hefur nú þrjú fjöruskýli til eftir- lits og eitt heiðarskýli. Heið- arskýlið er á Lónsheiði og síð an það var sett upp fyrir fjórum árum hefur það verið til mikilla nota. — Og kvennadeildin? — Hún vinnur af miklum dugn- aði eins og aðrar kvenna- deildir. Maður er orðinn svo vanur því að konurnar séu duglegar, að manni finnst óþarfi að taka það fram. Kvennadeildin Framtíðin á Hornafirði hefur mikið beitt sér fyrir öryggismálum í sam bandi við læknisþjónustuna og til dæmis hefur hún gefið súrefnistæki, talstöð og sjúkrabörur. Og svo má ekki gleyma því að konurnar eru nýbúnar að gefa prjónafatn- að í alla Hornafjarðarbáta. Björgunarskýlið í Garði flutt og lagað Ásdís Káradóttir er formað ur kvennadeildar Slysavama félagsins í Garðinum. óhætt að segja að hún sé dag og nótt í beinu sambandi við slysavarnir, því maður henn- ar, Sigurberguir Þorleifisson er vitavörður í Garðsskagavita. — í Garðsskagavita er mið unarstöð, sagði Ásdís og því verðum við að vera viðbúin allan sólarhringinn, ef óskað er eftir miðun. Skipaferðir eru miklar á þessum slóðum og þess vegna fer ekki hjá því að hugur manns er bund- inn hafinu og viljum við gera skyldu okkar í þessum mál- um. — í slysavarnadeiidinni í Garði eru nú 66 konur. Deild in hefur starfað í 36 ár og hefur fjáröflun jafnan gengið ágætlega og öllum okkar mál efnum verið mjög vel tekið. — Á síðasta ári var unnið að því að flytja björgunar- bátaskýlið á heppilegri stað og það endumýjað og lagað eftir þörfum. Björigunanbát- urinn, sem þar er, er í eigu fleiri slysavarnadeilda í kring því á Reykj anesinu er keðja af slysavarnadeildum. — í fyrravetur kom Hann es Hafstein og endurreisti björgunarsveitina og nýir menn tóku við af þeim, sem farnir voru að eldast. Björg- unarsveitin starfar innan vé- banda kvennadeildarinnar. Sveitin er búin þeim tækjum, sem talin eru nauðsynleg í dag til björgunar á strand- stað. Kvennadeildin hefur þegar gefið björgunarsveit inni 10 þúsund krónur af and virði lítilla fjarskiptastöðva, sem nú eru taldar nauðsyn- leg hjálpartæki við hvers konar björgun á strandstað. Litlu deildirnar ekki síður mikilvægar Sigmar Benediktsson hefur setið öll landsþing SVFÍ frá því hann stóð að stofnun slysavarnadeildarinnar Svöl- unnar á Svalbarðseyri. Stofn endur Svölunnar voru um 60 og er félagatalan nú svipuð og lætur nærri að fjórðungur íbúa Svalbarðseyrar séu fé- lagsmenn. í Svölunni eru bæði karlar og konur. Svalbarðseyri er lítið þorp og ekki beinlínis hættustaður og hefur slysavamadeild- in engin björgunarskýli til eftirlits. Björgunarsveit er heldur engin starfandi, enda er Akureyri á næstu grösum með sína björgunarsveit. — En þótt ekki sé um að ræða hættustaði hefur það feikilega mikla þýðingu að slysavarnadeildirnar séu sem öflugastar, sagði Sigmar. Heima fyrir höfum vlð reynt að beita okkur fyrir umferð- arfræðslu og sett bjarghringi á bryggjuna, en aðaláherzlan er lögð á að skila sem mestu fé til aðalstarfsins hér syðra. Litlu deildirnar eru ekki síð- ur miikilvægar en þær stóiru, því sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér. — Brautryðjendurnir í Slysavarnafélaginu voru hetj- ur og þeir, sem á eftir hafa komið, hafa haldið uppi merkinu og ég tel að skilning ur yfirvalda landsins á þess- um félagsskap sé góður og starfið vel metið. Húsnœði í boði FuHorðin kona ós'kast ti-l að annast aldraða konu eftiir k'l. 3 á daginn gegn húsnæði og fæði. Ek'ki húsvenk. Laun eftir sam- komulagi. Uppl. í síma 14950. Skrifstofusfúlka Stórt fyirtæki hér í borg vantar stúlku vana vélritun og skrif- stofustörfum. Tilboð leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir mánudagskvöld merkt: „Vélritun 27 — 5228". Veiðivatn til leigu Tilboð óskast í veiði í Hvítárvatni á Biskupstungnaafrétti f sumar. — Upplýsingar gefur Gísli Einarssonar, Kjarnholtum og sé lokuðum tilboðum skilað tPI hans fyrir 10. maí. Stjórn Veiðifélags Hvitárvatns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.