Morgunblaðið - 04.06.1970, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1070
Reiðskóli Fóks
Ný námskeið að hefjast.
Nokkur pláss laus.
Upplýsingar í síma 30178 frá kl. 2—5 daglega.
Hagbeit
Tekið verður á móti hestum í hagbeit.
í Geldinganesi frá kl. 7—9 í kvöld .
Hestamannafélagið Fákur.
Skattskrár Reykjanes-
umdœmis árið 1970
Skattskrár Reykjanesumdæmis árið 1970, fyrir öll sveitarfélög ,
og Keflavíkurflugvöll, liggja frammi til sýnis frá 4 júní til
17. júní að báðum dögum meðtöldum á eftirgreindum stöðum:
í Kópavogi:
Á skrifstofum Kópavogsbæjar og hjá umboðsmanni í Félags-
heimili Kópavogs á II. hæð. Skrifstofa umboðsmanns verður
opin alla virka daga frá kl .4—7 e.h., nema laugardaga.
í Hafnarfirði:
Á skrifstofu Hafnarfjarðarbæjar og á skattstofunni.
í Keflavík:
Á skrifstofu Keflavíkurbæjar og hjá Járn og Skip h.f., Hafn-
argötu 61.
Á Keflavíkurflugvelli:
Hjá umboðsmanni Guðmundi Gunnlaugssyni á skrifstofu
Flugmálastiórnar.
í hreppum:
Hjá umboðsmönnum. sveitarstjórum og oddvitum.
1 skránum eru eftirtalin gjöld:
1. Tekjuskattur
2. Eignaskattur
3. Námsbókagjald
4. Almannatryggingagjald
5. Slysatryggingargjald atvinnurekenda
6. Lífeyristryggingariðgjald atvinnurekenda
7. Atvinnuleysistryggingariðgjald
8. Iðnlánasjóðsgjald
9. Iðnaðargjald
10. Launaskattur (ógreiddur)
11. Útsvör, nema fyrir Kjósarhrepp
12. Aðstöðugjöld, þar sem þau eru álögð.
I skattskránum eru einnig sóknargjöld og kirkjugarðsgjöld
þeirra sókna, sem þess hafa óskað.
Innifalið í tekju- og eignarskatt er 1 % álag til Bygginga-
sjóðs ríkisins.
Kærufrestur vegna ofanritaðra gjalda er til loka dagsins
17. júní 1970. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærur vegna útsvars skulu sendar viðkomandi framtals-
nefnd, en vegna annarra gjalda til skattstofu Reykjanesum-
dæmis, Hafnarfirði, eða umboðsmanns í heimasveit.
Skrár um álagðan söluskatt í Reykjanesumdæmi 1969 liggja
ennfremur frammi á skrifstofu skattstofunnar í Hafnarfirði.
Álagningarseðlar, er sýna gjöld og gjaldstofna, hafa verið
sendir til allra farmteljenda
Hafnarfirði, 3. júní 1970
Skattstjórinn i Reykjanesumdæmi.
Trésmiðjon Ösp Hornnfirði
óskar að ráða trésmið, þarf að vera vanur innréttingasmíði.
Upplýsingar gefnar mili kl. 12—1 í síma 44 Höfn.
Jörð
Fjárjörð óskast til kaups, má vera húsalítil á Suðurlandi
á fallegum stað.
Tilboð sendist afgr. Mbl. sem fyrst merkt: „Fjalljörð — 5384".
Tilboð í frógnng lóðnr
Tilboð óskast í að ganga frá lóð við einbýlishús í Garðahreppi.
Upplýsingar í síma 42555 dag og næstu daga.
BÍLAR
Höfum verið beðnir að selja:
Chevrolet Impala 1967
Chevrolet Chevelle 1967
Ford Custom 1967
Ford Fairline 1966.
Allar bifreiðarnar eru vel með famar og vel
útlítandi að utan og innan. Verða til sýnis
í portinu hjá Ræsi hf. kl. 1—6 í dag.
Sími 19550.
RÆSIR HF.
Skákþingi Húsa-
víkur lokið
SKÁKMNGI Húsavíkur er lok-
ið. í 1. flokki og meistaraflokki
varð efsitur Árni Sigurjónsson og
hlaiut hann þar með titilinn skák-
meistari Húsavíkur 1970. Annar
varð Grímur Leifsson og þriðji
varð Sigurþór Siguirjónsson.
í 2. flokki varð efstur In.gólfur
Ingólfsson, annar varð Tryggvi
Bessason og þriðji varð Haukur
Kristjánsson.
í A-flokki unglinga varð efst-
ur VaMiimar Guðjónsson, annar
varð Hafþór Leifsson og þriðji
varð Heiðar Ásgeirsson.
í B-flokki unglinga varð efst-
ur Aðalsteinn Óskatrsison, annar
varð Hafþór Harðarson og þriðji
varð Haukur Hauksison.
í C-flokki unglinga varð efst-
ur Grétar Aðalsteirusison, annar
varð Börkur Ingvarsson og þriðji
varð Skúli Gunnarsson.
50 mainns tóku þátt í skák-
þingi Húsavíkur 1970. Skákþing-
inu var slitið með samsæti á
Hótel Húsavík 24. mad í boði
bæjairstjómar Húsavíkur.
Skákstjóri mótsins var Hjálm-
ar Theodórsson.
Sparifjáreigcndur
Ávaxta sparifé á vinsælan og
öruggan hátt. Upplýsingar kl.
11—12 f. h. og 8—9 e. h.
Margeir J. Magnússon
Miðstræti 3A.
Símar 22714 og 15385.
EFLUM 0KKAR
HEIMABYGGÐ
★
SKIPTUM VIÐ
SPARISJÖÐINN
SAMBANO ÍSL. SPARISJÓÐA
Dömur — líkamsrækt
Megrun og líkamsrækt fyrir konur á öllum aldri.
Megrunaræfingar — matarkúr — líkamsrækt.
Kennsla 1 tíma á dag 4 daga í viku. Þriggja vikna kúrar.
Morgun- dag- og kvöldtímar. Nýr kúr 11. júní.
DÖMUR ATH. AÐEINS 1 KÚR EFTIR.
Plássum ekki haldið nema greitt sé við innritun vegna
mikillar aðsóknar í þennan seinasta kúr á vorinu.
Innritun í dag frá kl. 10—5 að Stigahlíð 45 (Suðurveri).
Upplýsingar í síma 83730 á sama tíma.
JAZZBALLETTSKÓLI BÁRU.
Tilkynning til eigenda
ALPHA-dieselvéla
Þjónustumaður frá ALPHA verður hér frá 9. til 22. júní.
Þeir eigendur Alpha-véla, sem óska að fá hann, til eftirlits eða ráð-
legginga hafi samband við okkur sem fyrst.
H. BenedSktsson HF.
Suðurlandsbraut 4 — Sími 38300.