Morgunblaðið - 12.08.1970, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR, 12. ÁGÚST 1970
JohnBelÍ
í nætur
HITANUM
38
til að játa. Og geri hann það,
þurfið þið ekki að hafa neinar
áhyggjur.
— Þú átt við, að þá láti þeir
okkur í friði? sagði Purdy.
— Stendur heima.
Purdy sneri sér að dóttur
sinni. — Segðu honum frá því,
sagði hann.
Delores iðaði í sætinu og
reyndi að líta út eins og hrein
mey, sem hefði orðið fyrir árás,
en leit samt út líkari einhverri
skrípadúkku.
— Nú, hann var alltaf að
koma á nóttunni og gægjast inn
um gluggana. Ég ætlaði að segja
pabba frá þessu, en ég var
hrædd, þar sem hann var lögga
og það allt. En svo eina nóttina
þegar pabbi var ekki heima,
barði hann á dyrnar. Sagðist
vera á leið í vinnuna. Hann sagð
ist vera að leita að stúlku, sem
gæti verið drottning á tónlistar
hátíðinni. Hann sagði, að ég væri
virkilega sæt, og vildi skrifa
niður nafnið mitt fyrir hátiðina.
Hún þagnaði og leit upp og
Virgil benti henni að halda
áfram.
— Nú jæja, hann smjaðraði
þarna fyrir mér um stund og
sagði, að enda þótt hann ynni
á nóttunni, þá þekkti hann svo
marga, að hann gæti útvegað
mér nógu mörg atkvæði. Og ef
ég yrði hlutskörpust, gæti ég
unnið ferð til New York. Svo
man ég ekki meira hvað gerð-
ist. Hann gaf mér drykk og
sagði, að hann mundi hressa
mig. Hann sagði, að ég væri til-
vonandi drottning og allir
mundu óska sér í mín spor.
Hann sagði, að í New York
mundi ég læra að syngja og
dansa, og kannski líka komast í
kvikmyndir. Hann sagðist geta
látið allt þetta rætast, og ég
ætti að vera sér þakklát. . . Eft-
ir það man ég ekki vel eftir
neinu, en hann sagði mér að
hafa engar áhyggjur, af því að
hann hefði farið varlega. Ein-
mitt með þessum orðum sagði
hann það: hann sagðist hafa far
ið varlega.
Tibbs stóð upp.— Þú ert þá
alveg viss um, að þetta hafi ver-
ið hann Sam? Ég vil bara ekki
láta mér skjátlast neitt, því að
það gæti orðið þér til bölvunar.
Delores leit upp og andlitið
var líkast grímu. — Það var
hann Sam, sagði hún.
Virgil Tibbs fór út og ók af
stað. Á lögreglustöðinni náði
hann í langlínusamtal við Gott-
schalk verkfræðing. Síðan heim
sótti hann Harvey Oberst, sem
var meinilla við að láta sjá sig
með negra, en mundi þá, að
þessi sami negri hafði losað
hann úr varðhaldinu. Svo heim-
sótti hann séra Amos og talaði
við tvo drengi, sem klerkur náði
í fyrir hann. Loks sneri hann
aftur á stöðina og hringdi til
Atlanta. Að öllu þessu loknu
heimsótti hann tvo svarta bæjar
búa og fjóra hvíta, hvar af tveir
neituðu að tala við hann. Einnig
heimsótti hann Harding lækni.
Að öllu þessu loknu, var hann
næstum orðinn uppgefinn. Hann
hafði mjög lítið sofið og var orð
inn þreyttur á að kljást við and
stöðu, sém var ekki hans eigin
sök. Nú var hann reiðubúinn
að tala við Bill Gillespie.
12. kafli.
Um morguninn, eftir erfiða
andvökunótt, reis Duena Mant-
oli á fætur og fann, að hún var
búin að ákveða sig. Hún fékk
Til sölu
Tvær samliggjandi skemmur í Mosfellshreppi til sölu. Skemm-
urnar eru að stærð 320 fm hvor og seljast í þvi ástandi sem
þær eru í, til niðurrifs og brottflutnings.
Nánari upplýsingar i simum 66218 og 66219 á venjulegum
skrifstofutima.
Tilboð óskast
í timburhús í Varnaliðsstöðinni á Heiðarfjalli, Langanesi.
Tilboðin verða opnuð hjá Sigurði Jónssyni, herppstjóra, Efra-
Lóni, Lariganesi þriðjudaginn 18. ágúst kl. 11.00 árdegis.
Sölunefnd varnaliðseigna.
Bifreiðarstjóri
Óskum að ráða röskan og duglegan mann til útkeyrslu á fóðurvörum.
Nauðsynlegt að viðkomandi hafi réttindi til að stjórna bifreið sem er
yfir 5 tonn.
Aðeins reglusamur maður kemur til greina.
Upplýsingar á skrifstofunni. Mjólkurfélag Reykjavíkur,
Laugavegi 164. Sími 111 25.
NÝTT FRÁ FINNLANDI
HÚSGAGNAVERZLUN
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
LAUGAVEGI 13 - SÍMI 25870
GLÖS, ÝMSAR
GERÐIR
ÁVAXTASETT
SKÁLAR
KERTASTJAKAR
OG MARGT FL.
sér hressandi bað. Að því loknu
leit hún á sjálfa sig I speglinum.
Hún vissi, að hún var óvenju-
lega lagleg og hún vissi líka,
að hún hafði lagt mikið á sig
til þess að vera það. Jæja, að
útlitinu gat hún að minnsta
kosti boðið hverri pilsaveru út,
en í þetta sinn var það ekki
fyrst og fremst útlitið hennar,
heldur greindin, sem hún þurfti
á að halda.
Hún klæddi sig og fór niður
til morgunverðar. George og
Grace Endicott biðu hennar þar.
— Við erum búin að frétta frá
Eric, sagði Grace við hana undir
eins og hún var setzt, — og
hann hafði góðar fréttir að færa.
í fyrsta lagi tókst honum að ná
i góðan hljómsveitarstjóra til að
bjarga hátíðinni fyrir okkur.
— Hver er það? spurði Du-
ena.
— Það vildi Eric ekki segja,
af því að hann vill koma okkur
á óvart, þegar hann kemur hing
að. Hin fréttin er sú, að umboð-
ið, sem selur aðgöngumiðana fyr
ir okkur segir söluna vera betri
en nokkurn tíma hafði verið bú-
izt við.
— Það var gleðilegt að heyra,
sagði Duena. Hún drakk svo eitt
glas af appelsínusafa og sagði
þeim síðan, hvað hún hefði í
hyggju. — Þið haldið náttúr-
lega, að ég sé orðin vitlaus, þeg-
ar ég segi ykkur þetta, en ég
ætla í bæinn í dag og hitta hr.
Schubert. Ég þarf að tala við
hann.
— Um hvað? spurði Endicott,
— Mér líkar ekki það, sem er
að gerast. Það er eitthvað at-
hugavert við það. Það er maður
í fangelsi, sem ég held að sé
saklaus. Ég skil ekki, hvers-
vegna hann hefur ekki verið lát
inn laus gegn tryggingu, eða þá
að minnsta kosti formlega kærð-
ur, eða hvernig sem þetta nú
gengur fyrir sig.
Grace Endicott greip fram í.
— Þetta mundi ég ekki gera,
Duena. Hvorki þú né neitt okk-
ar þekkir neitt inn á gang
svona mála, og við mundum ekki
gera annað en flækjast fyrir
þeim, sem kunna á þau. Það yrði
aldrei neitt gagn í því, en gæti
bara tafið fyrir þeim.
Duena fékk sér aftur safa
í glasið og drakk úr því. — Þú
skilur þetta ekki. Hr. Wood . . .
lögreglumaðurinn, sem kom
hingað um daginn . . . er kominn
í fangelsi. Spurðu mig ekki fyrir
hvað en ég veit það. Þess vegna
vil ég tala við borgarstjórann.
George Endicott tók til máls,
varkárnislega. — Ég held að þú
látir tilfinningarnar ráða gjörð-
um þínum, Duena. Vertu róleg
og láttu karlmennina fást við
þetta. Ef Wood er saklaus verð-
ur hann ekki lengi í varðhaldi.
Og svo er það hann Tibbs, ég
hef ástæðu til að halda að hann
sé mjög fær.
— Honum kemur það nú að
litlu gagni hérna. Hún sló út í
aðra sálma. Gott og vel.
Ætlarðu í bæinn í dag?
— Já, seinnipartinn.
— Má ég þá verða samferða.
Ég gæti að minnsta kosti farið
eitthvað í búðir.
Endicott kinkaði kolli til sam
þykkis.
Frank Schubert lagaði sig til
í stólnum, snortinn af hinum ögr
andi töfrum gests síns. Hann
velti því fyrir sér, hvernig hún
hefði getað kjaftað George Endi
cott upp í það að fylgja henni
hingað, en það hafði hún sýni-
lega gert.
— Ungfrú Mantoli, hóf hann
mál sitt, — ég ætla að trúa yður
fyrir trúnaðarmáli. Viljið þér
lofa mér að þegja algjörlega yf-
ir því?
— Því lofa ég, sagði Duena.
— Gott og vel. Ég veit ekki,
hversu vel þér þekkið efnahags-
ástandið hérna í Suðurríkjunum,
en viss svæði hafa orðið fyrir
þungum áföllum. Og Wells
er eitt þessara svæða. Við erum
ekki á neinum aðalvegi, heldur
aðeins á hliðarvegi, sem ekki er
notaður nema af einum bíl af
hverjum fimmtíu. Það er aftur
sama sem, að við missum af mikl
um ferðamannatekjum. Akur-
yrkjan er í afturför hér um slóð-
ir, iðnaðurinn hefur enn sem
komið er ekki viljað flytja sig
hingað — í stuttu máli sagt er
bærinn og flestir íbúar hans
bókstaflega á hausnum.
Duena hafði hlustað með at-
hygli og kinkaði kolli.
— Okkur varð það Ijóst —
bæjarstjórninni og mér — að eitt
hvað yrði til bragðs að taka, eða
ástandið yrði verulega alvarlegt.
Þess vegna kom hann George
hérna með þessa hugmynd um
tónlistarhátið. Hún átti nú erfitt
uppdráttar í fyrstunni, en hann
sannfærði okkur um, að hún
gæti komið okkur á ferðamanna
kortið. Og yrði svo, gæti það
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl.
Vertu samstarfsþýSur og kátur, og reyndu alls konar nýjar leiðir
í starfinu.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Aðalspurningin í dag, sem þú þarft æ ofan í æ að vera að svara:
Er þetta hagkvæmt?
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
I»ú hefur verið að reyna þig í einhverju starfi, og það sem þú
hefur gert, verður endurskoðað bráðlega.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Ýmislegt, sem þú áleizt vera frágengið er það ekki, og þér kemur
það á óvart.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Ilvatir þínar og hugarflug leiða þig á réttar brautir. Þú skalt
stytta þér leið, því að þú fræðist á því.
Meyjan, 23. ágúst — 22. september.
óvenjulegar aðstæður gleðja þig þessa stundina.
Vogin, 23. september — 22. október.
I’ér kemur gott ráð í hug. Reyndu að finna jafnvægi, áður en
þú breytir um stefnu.
Sporðdrekinn, 23. októb-er — 21. nóvember.
Leitaðu eftir einhverjum táknum um, hvað fólk ætlast fyrir.
Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember
Vinir þínir ákveða eitthvað, sem kemur þér á óvart.
Steingeitin, 22. desember — 19. janúar.
Vinnuskilyrði þín eru líklega að breytast. Gerðu ekki skyndiráð-
stafanir. Það er hyggilegra að hugsa málið dálítið betur, áður en þú
aðhefst eitthvað. Tilfinningar þínar eru þungar.
Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar.
Reiknaðu með lagalcgum heimildum og takmörkunum.
Fiskarnir, 19. febrúar — 20 mara.
Vinnuskilyrðin eru að versna eitthvað í svipinn.