Morgunblaðið - 30.09.1970, Page 7
MORGUNBLAÐH), M3BVIKUDAGUR 30. SEPT. 1970
7
Sam Letorne, söngelski kokkurinn
Sam með Sofiu Loren. Unclir myndina hefur hann ritað kveðju
til lesenda Morgunblaðsins.
Skammt fyrir utan París er
veitingastaður, sem kallast
„Auberge chez SAM“. Þarna
snæddi biaðamaðnr Morgun-
blaðsins nýiega hádegisverð
ásamt vinum sínum og átti
þess kost að kynnast hinum
franska SAM. Verða þau
kynni stuttlega rakin hér.
Sagan af Sam gæti byrjað
eins og í ævintýri. . . í Frakk-
Landi var einu sinni hani, sem
var gáfaðasti hani heimsins,
þótt hann talaði ekki, skildi
hann alit, sem honum var sagt
að gera, hvort sem það var á
frönsku, ensku, spönsku eða
itölsku. Menn gátu komið og
dáðst að honum í fallegum
veitingastað rétt utan við Par
ís. — En svo fór, að þessi
merkishani, Júlíus mikli, sem
var tryggður fyrir milljón,
féll fyrir aldur fram úr lifra-
veiki, vegna þess að hann
drakk of mi'kið af léttum vin
um og líkjöri. Við fráfall hans
ríkti almennur söknuður, og
húsbóndi hans Sam Letrone
ákvað að gera afkomendur
hans að mestum snillingum
hænsnarikisins.
Sam Letrone er eigandi veit-
ingastaðarins, sem við hann
er kenndur og er í Pontchar
train við París. Við rákumst
inn til hans fyrir tilviljun, þeg
ar við leituðum okkur að mat-
/ stað, eftir að hafa skoðað
J Versali fagran sunnudags-
| morgun. Hann sá, að við vor-
j um útlendingar og tók okkur
tali. Hann sagði okkur sögu
sína, á milli þess sem hann
sinnti gestum sínum og sýndi
listir sinar og fuglanna sinna.
Sam vissi, að það þýddi
ekki að takast á við tilveruna
menntunarlaus, hann lærði
bakaraiðn og síðar mat-
reiðslu. En hann var einnig
músikalskur að eðlisfari og
lærði af sjálfsdáðum að leika
á fiðlu, hawai-gitar, sög,
banjo o.fl. . . Þegar hann fékk
ekki vinnu í eldhúsinu greip
hann til hljóðfærisins og lék
og söng á kaffistöðum eða á
götum úti.
En hvernig tókst honum að
koma undir sig fótunum og
i eignast slíkan veitingastað,
sem við heimsóttum, þar sem
myndir af honum og konung-
um og keisurum prýða veggi?
— Með aðstoð nokkurra
vina, segir hann, tókst mér að
eignast hrörlegt hús, sem hafði
einu sinni verið hótel, en var
alveg i rúst þegar ég keypti
það. Þeir voru djarfir fyrstu
viðskiptavinirnir mínir.
Fyrstu máltíðina varð ég að
elda á tveimur steinum í garð
inum, og þegar rigndi urðu
viðskiptavinirnir að halda á
regnhlíf yfir eldstónni, svo að
vatnið flæddi ekki yfir mat-
inn. Þetta var fyrsti veitinga-
staðurinn minn, og ég tók
ekki við föstum matargestum
nema með ákveðnu skilyrði:
þeir urðu að vinna. Sumir
fóru í sendiferðir og keyptu í
matinn, aðrir kveiktu eldinn
eða þvoðu grænmetið. Ég verð
að taka það fram, að þetta var
undir þýzka hernáminu. Við
þennan rekstur vænkaðist hag
ur minn dálítið og ég gat keypt
mér lítið kaffihús, sem ég kall
aði „Hanann Hardy".
Ég vann myrkranna á milli,
og helztu viðskiptavinir mín-
ir voru ökumenn flutningabif
reiða. Þetta voru skemmtileg-
ir náungar, sem ég gleymi
ekki, og ég sé stundum eftir
þvi, að eiga svo stóran veit-
ingastað, sem þeir þora ekki
að heimsækja. En hvað um
það, á „Hananum Hardy" datt
mér i hug að þjálfa hana til
að réttlæta nafngiftina á veit-
ingastaðnum. Það var eins
gott, að ég kallaði ekki stað-
inn „Gullna ljónið“ eða Hvíta
hestinn" . . . En hanann kall-
aði ég Júlíus mikla, og hann
er ættfaðir konungsættarinn-
ar minnar. Nú verð ég að
biðja ykkur um að afsaka
mig, þvi að skemmtiatriðin
eru að byrja.
Þjónarnir bera fram körf-
ur með hönum, hænum og dúf
um, og þegar fuglarnir eru
kynntir, setjast þeir á þver-
slá í miðjum salnum. Sam
stjórnar þeim með miklum til-
þrifum. Haninn Caruso galar
af hjartans lyst eftir fyrirmæl
um hans. Hænan Seraphin
dregur þrjár dúfur í litlum
vagni um gólf salarins. Einn
hani reykir og annar sýnir
jafnvægislitir á glösum, sem
raðað hefur verið upp. Én
undrun okkar verður mest,
þegar fröken Rosalie verpir
eggi eftir fyrirmælum Sams.
Hann kemur með glóðvolgt
eggið og gefur okkur það, svo
að við þurfum ekki að efast
um raunveruleika þess, sem
við sáum. — Siðan byrjar Sam
að leika á margs konar hljóð-
færi, fiðlu, sög, kastaniettur
og mandólín. Salurinn er troð
fullur af fólki, þegar skemmti-
atriðunum er lokið, og Sam
fer fram í eldhúsið til að líta
eftir matnum.
Hann kemur aftur að borði
okkar skömmu síðar með
hljómplötu og bók, sem hann
hefur gert. Hann gefur okkur
sitt eintakið af hvoru, og við
spyrjum hann frekar um
ævimtýralegt líf hans.
— Ég ákvað að flytja mig
nær París, en „Haninn
Hardy" var í Touraine, og
kom mér fyrir hér í Pontchar-
train. En ævintýrin hafa ætíð
heillað mig, og 1953 hélt ég í
ferðalag til Tahiti. Síðan hef
ég ferðazt víða.
Hann segir okkur frá ferð-
um sínum til Perú, Guatémala,
Kína, Japan og Indlands.
Hann hefur ekki enn heimsótt
ísland, en hann vissi mikið
um landið. Við komumst að
því, að Sam hefur heimsótt 82
lönd og honum finnst miður
að Island er ekki í þeirra
hópi. Sam sýnir okkur falleg
ar myndir frá Jamaica. En
ferðamálaráðherra landsins
hafði heimsótt veitingastað
hans og boðið honum til Jama
ica, vegna þess hversu mikið
hann vissi um það, enda þótt
hann hefði aldrei komið þang-
að. Og Sam dregur einnig
fram blaðaúrklippubækur,
sem hafa að geyma úrklipp-
ur úr blöðum óteljandi landa
nema íslands. . .
MENN
OG
MÁLEFNI
Fröken Rosalie, hænan, sem verpir eftir pöntun.
GEYMSLA UMDIR VEIÐARFÆRI BROTAMÁLMUR
ós'kast till teigu í Haifinarfiirðli, Keflavík eða Kópaviogi. Uppl. í isfima 52106 kl. 8—10 á 'kivöildin. Kaupi allan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatúni 27, sími 2-58-91,
PfANÓKENNSLA Get enm bætt við nokkr- t«n nemendum. Kennsla befst 1. október. Þóra Johan- sen, Reyniiimel 36, sím i 16092. VINNUSKÚR tiil sölu, sími 33585.
KLINIK-STÚLKA ÓSKAST nú þegar. Þarf að haifa tands- próf eða hliðstaeða mennitun. Meðm. ef fyniir hen'di, Vininut. ikl. 1-5. Ti'lb. till Mbll. f. 1. ökt, croerikjt „Regtusemii 4997". ÞRIGGJA HERBERGJA IBÚÐ tiil íeigu í Miðborgiiinroi. Tilboð með upptýsiiingum senidist Mbl. fyrir 3. ökt., menkt „Regtusemi og rólegiheit — 4993".
BARNAPÍA Bainngóð og saimvizku'söm slkóteistúllka (15—16ána) som er ií sikólanom f. h. ósikast til að pasisa 2 stelpuc 2—3svar í vi'ku. Uppl. að Laugarásv. 41. OKKUR VANTAR IBÚÐ ma'ng's konar heimiiíisaðstöð í boði. Upplýs'ingar í síma 40594.
HAFNARFJÖRÐUR — barnagæzla. Áreiðanileg sitúlika ósikiast tHI að gæta 5 ána dnengs á dagiron fynir bjóm, sem bæði virona úti. Uppl. í s. 52478 eftir kl. 7. NJARÐVÍK — KEFLAVlK Tiil sölu ágæt Rafha-eldavél. Selst ódýrt. Upplýsingar f síma 2504.
KONA ÓSKAST UNGLINGSSTÚLKA
tiil léttra h'eiim'ifiisstairfa og gaeta tveggja banna í síma 52106 kl. 8—10 á kvöldin. óskaist til léttca venka og Ifta eftic bönnuim. Upplýsingac í síma 84100.
ÞRIGGJA HERBERGJA fBÚÐ TVÆR REGLUSAMAR
ós'kast. Þnjiú neglusöm systk- mi utan af landi óska eftir þniggja 'henbergja fbúð. Upp- lýsiingar i síma 12059, stúllkur óska eftic 2ja—3ja herbengja ibúð sem aflira fynst. Upplýsingac í sfma 10794 eftir k'l. 4.
HAGLABYSSA IBÚÐ ÓSKAST
Vil kaupa notaða haglabyssu. Upplýsingair í síma 11858 eftir k!l. 7 á kvö'ld in. Þriggja henbergja íbúð óskast til teigu. Góðri umgiengini og negiiuisemii heitið. Upplýsingac í síma 34920.
HERBERGI BRÚÐARKJÓLL TIL SÖLU
Skó'Iapilt vantar henbengi. Áreiðanlegair greiðslur. Upp- týsingar í síma 36402. Mjög fa'l'leguc síður bnúðar- kjóll með slöni, stærð 36—38. Upplýsingac í sima 30332.
ÉG ÓSKA EFTIR að taika á leigu 2ja—3ja henbengja íbúð í Vestunbæ. Fyninfraimgneiðsla kemur til greiroa. Uppl. í síma 18774. eftir 'kl. 6. TIL SÖLU NOTAÐUR miðstöðvarketill 3,5 til 4 fm ásamt ölilu ti'theynandi i sima 84622 á kvöldin.
LE5IÐ 3Hov0tml<htbiÍ) DBCLECO TVEGGJA TIL ÞRIGGJA ihenbecgija íbúö óska'st austac- lega í austunbænum í Kópa- vogi 1. okt. Fynirfnamgreiðsla. Sími 42576.
Verkstjóri
Duglegur ungur maður, vanur hverskonar fiskvinnu, og helzt
með réttindi til verkstjórnar við síldarsöltun, getur fengið góða
framtíðaratvinnu hjá fyrirtæki í Reykjavík.
Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist Morgunblað-
inu merkt: „Verkstjóri — 4994".
Gagnfræðoskólinn d Selfossi
verður settur í húsi skólans fimmtudaginn
1. október kl. 2 e.h.
Skólastjóri.