Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ; MTÐ’VTKITDAGTJR' 30. SEPT. 1970 Hann var allur ríkmannlegur út lits. Hann bauð Raeburn vindl- ing úr stórum sillurkassa á borð inu. Hann var stór og myndar- legur maður, með silfurgrátt hár. — Það er leiðinlegt þetta með hann Harry kallinn, sagði hann. — Ég ætti eiginlega að fara að heimsækja hann. Það er leiðin- legt, þegar menn geta ekki hald ið við kunningsskap vegna ann- rikis. Hann brosti. Tennurnar átti hann sjálfur og þær voru hvitar og jafnar. — Mér skilst, að þið hr. Rick hafi verið félagar. — Já, meðan Polards.var við liði. En Harry sóttist eftir að komast í stórfyrirtæki eins og Assec. Ég vildi heldur vera að máttlausa manninum í rúm- inu. — Fyrirgefðu mér, að ég skyldi ganga svona hart að þér, Pete. — Það er allt í lagi, Mark. Þú getur ekki að því gert. Raeburn var ekki viss hvort þetta væri gullhamrar eða móðgun. Leon-fatágerðin h.f. hafði skrifstofur í Holborn. Ýmislegt var þama til að ganga í aug- un á gestum, en sýnilega var þetta ekki neitt stórt fyrirtæki. Skrifstofa Turner Roberts var að visu stór og vel búin, en það kostaði nú heldur ekki nein ósköp að hafa eitt herbergið vel búið. En hr. Turner Roberts var sjálfur einn sýningargripurinn. minn eigin herra. Það er svo margt sinnið, sem skinnið á þessu sviði. Aftur brosti hann. Vafalitið hafði Rick bolað Ro- berts burt úr fyrirtækinu. einhverjum stjórnarfundinum. Nú héldi hann að Raeburn væri einhver senditík frá Rick lík- lega með einhvern mola meðferð is af borði ríka mannsins. — Jæja. . . ? Þetta var frem- ur eitthvert spyrjandi hljóð en raunverulegt orð, en gaf til kynna, að Tumer Roberts væri reiðubúinn til viðræðna. Það var Raeburn líka. — Eins og ég sagði yður, er ég rétt nýbúinn að vera hjá Rick. Roberts kinkaði kolli, glað- lega og vingjarnlega. — Mér skiist að Rick hafi átt eitthvert viðskiptasamband við Maaskirche. Hann athugaði Roberts vand- lega meðan hann talaði, en þess var varla þörf. 1 stað vingjarn- lega svipsins kom annar, sem var í senn hlédrægur og var- kár. — Pollards átti í samningum við hollenzkt fyrirtæki þar, sagði Roberts. Þetta var það minnsta, sem hægt var að segja, án þess að eyðileggja það, sem kynni að vera saklaus eða kannski ábatavænleg spurning. — Einhver samningur um sölu á rafölum, skildist mér. Rae bum fór þarna eftir gömlu regl unni að gefa vitninu eitthvað til að mótmæla. — Rafala? Roberts virtist steinhissa. — Vitanlega ekki. Þetta var um sölu á ljósaper- um. Varkárnin var allt í einu orðin að beinni tortryggni. — Sjáið þér til, hr. Raebum, hald ið þér ekki, að þér vilduð bara segja mér, í hvaða erindum Riek hefur sent yður til mín? — Rick sendi mig alls ekki hingað. Ég er að rannsaka dauða frú Edith Desmond, og ég vil fá að vita, hvað hún hef- ur vitað um Maaskirehe. — Guð minn almáttugur, þér eruð svei mér ósvífinn! Rjóða andlitið á Roberts undir virðu- legu silfurhárunum var orðið enn rjóðara. — Rick skal ekki hafa mikið upp úr þessu. Hann var ekki síður bendlaður við Maaskirche en ég. Allt, sem Edith Desmond vissi um mig í sambandi við Maaskirche, vissi hún líka um hann. Til hvers sendi Rick yður hingað- ítrek- aði hann. — Rick sendi mig alls ekki. Mér þykir fyrir þvi, ef þér mis- skiljið þetta. Dansskóli Hermanns Ragnars ,,Miðbœr" Háaleitisbraut 58-60 A Kennsla hefst mánudaginn 5. október. Innritun daglega frá kl. 10—6 e.h. Símar 8-2122 og 3-3222. Síðastu innritunardagar. Byrjenda- og framhaldsflokkar fyr- ir börn, unglinga og firllorðna, (einstaklinga, pör og hjón). U pprifjunartímar hálfsmánaðarlega fyrir hjón. ir Seltjarnarnes: Kennt veröur í Félagsheimilinu fyrir börn. Uppiýsingarit liggur frammi í bókaverzlununum. DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS Tryggir rétta tilsögn. Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl. Vertu svolítið rólegri, þá vinnast störfiin betur. Reyndu að eiga rólegt kvöld. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Láttu skynsemina ráða en ekki tilfinningarnar. Fjárhættuspil hef- ur næstum óumflýjanlega tap í för með sér og jafnvel annað enn verra en peningatap. Tvíburamir, 21. maí — 20. júní. Það er engin töfralausn á vandamálum dagsins. Taktu eitt vanda- mál fyrir I einu. Krabbinn, 21. júní — 22. júlí. Ef þú ætlar að ferðast, skaltu sýna varkárni. Eins ef þú vinnur með hættulegum tækjum. Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst. Vertu íhaldssamur í dag, það getur gefið betri raun en að vera róttækur. Meyjan, 23. ágúst — 22. september. Það ríkir mikil spenna — notaðu hana í skapandi viðfangsefnum. Vogin, 23. september — 22. október. í dag á sköpunargáfan að fá að njóta sín. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Taktu daginn snemma, afgreiddu málin áður en vinirnir fara að skipta sér af þeim. Kvöldið getur orðið skemmilegt. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Láttu eðlishvötina ráða. Gættu þess, að smádeilur verði ekki að stærðar rifrildi. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Þessi skipulagningarárátta þín kemur sér illa fyrir aðra. Reyndu að komast að samkomulagi um þessi mál. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Reyndu að stofna hjónabandinu ekki i hættu. Láttu eðlishvöt- ina ráða, þó að rökfimi þín sé afar góð. Fiskamir, 19. febrúar — 20. marz. Nú er líklega bezt að láta berast með straumnum, en siðar verð- ur þú að fara þinar eigin leiðir. — Nei, fjandinn hafi það, víst hefur hann sent yður. Þér lítið einmitt út eins og einn handlang ari hans. En þetta get ég sagt yður: Ég sá, að Edith Desmond var dáin. Sama mátti mér vera. Hún var engin kærasta mín, og ég hefði aldrei greitt henni eyr- isvirði fyrir það, sem hún kynni að vita um Maaskirche. Roberts var reiður, en hræddur. — Hvað vissi hún um Maas kirche? sagði Raeburn. Röddin var hvöss og skerandi og Ro- berts varð enn hræddari — Hún vissi sitt af hverju um Maaskirche. Þér skuluð spyrja Rick, hvað hún hafi vitað! Hann var meira flæktur í þetta en ég. Þér eruð furðu djarfur að koma hingað, Raeburn. Snáf ið þér nú út héðan og heim til húsbónda yðar. Raeburn fór. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem honum var vís að á dyr. Hann kippti sér ekk- ert sérlega upp við það. Á næsta horni keypti hann eintak af Standard. Þar var allt fullt af rosa-fyrirsögnum: „Rak hnífabardagi í Soho. Michael (Coper) Flynn deyr í sjúkra- húsi". Hann las áfram og sá nöfn sem hann kannaðist við: Coper Flynn, King Barton Cho- doff — Óaldarforingjar, sem höfðu enn lent i ófriði. „Allur mannafli höfuðborgarlögregl- unnar var í dag að starfi. . . “ Jú, það var ekki nema að von- um. Raeburn vissi, að lögreglan vildi fremur fá Barton bak við lás og slá, en nokkurn annan Atvinna Vegna forfalla vantar ráðskonu að Laugaskóla, Dalasýslu. Einnig stúlku til eldhússtarfa. Upplýsingar í síma 26468 kl. 18—20 næstu kvöld. Málarar Skriflegt tilboð óskast í að mála í einum eða tveimur litum stigahúsið Hringbraut 39. Upplýsingar í síma 14121 og eftir kl. 18 00 í síma 19584. VIÐ EIGUM STRIGASKÓ í ÖLLUM STÆRÐUM. LEIKFIMISBUXUR MARGA LITI OG STÆRÐIR. IÞRÓTTABÚNINGA Á AL.LA FJÖLSKVLDUNA Á §P0RTVAL ! HLEMMTORGI.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.