Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 24
24 MORGUNÐLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR-30. SIEPT. 1970 A SLODUM ÆSKUNNAR limsjðn SIírtN HALLDÓRSSDN Listamaðurinn Jimi Hendrix hafði sinar góðu og slœmu hiið ar, eins og flestir aðrir. Þegar hann vildi það við hafa, lék hann frábæriega vel og var fyr ir það hátt metinn af öllum öðr um í hópi beztu gítarleikara heims. En allt of oft náði let- in yfirhöndinni. Hann nennti ekki að vanda sig, en sneri sér í staðinn að ýmsum furðuleg- um skripalátum á sviði. Og það voru reyndar skrípalætin, sem íyrst vöktu athygli manna. Þeg ar hann fór i sína fyrstu hljóm- leikaferð um Bretland með fé- lögum sínum, Mitch Mitchell og Noel Redding, var hljómsveit- in aðeins aukahijómsveit, sem lék á undan stórstjörnunum, Walker Brothers. Fyrstu hljóm leikarnir voru haldnir í Lond- on og Jimi flutti þar fjögur lög — hann fékk ekki lengri tima fyrir leik sinn — og undir tektir áhorfenda voru alveg við unandi. En í síðasta laginu kviknaði skyndilega í gítarnum hjá Jimi, einmitt þegar hann var að leika eitt skrípaatriðið, að leika á gítarinn með tönn- unum. Það kviknaði í hárinu á höfði hans og lá við stór- slysi, en starfsmenn hljómleika- hússins brugðu skjótt við og siökktu eldinn með siökkvi- tækjum. Ennþá hefur engin skýring fengizt á þvi, hvort þarna hafi verið um slys að ræða eða íkveikju af ásettu ráði, en Jimi komst auðvitað á forsíður allra dagblaðanna og það sem eftir var af hljómleika ferðinni, féllu Waiker Broth- ers alveg í sk-.gga hans. Jimi Hendrix hafði sigrað Englend- inga. Hann fæddist í borginni Se- attle, norðarlega á vestur- strönd Bandaríkjanna. Áhugi hans á gítarleik vaknaði, þeg- ar vinur föður hans kom í heim sókn til að spila á spii og hafði kassagítarinn sinn með sér. Meðan mennirnir tveir sátu við spil, læddisi Jimi út á tröppur með gítarinn og reyndi að ná lagi á hann. Síðar sagðist hon- um svo frá: „Ég vissi ekki, að ég þyrfti að setja gítarstreng ina öðru vísi á gítarinn, þar sem ég var örvhentur, en eitt var víst: Þetta hljómaði ekki rétt. Ég hugsaði með sjálfum mér, að það væri eitthvað vit- laust í þessu. Eitt kvöldið var vinur pabba þéttfullur, og hann seldi mér gítarinn á fimm dollara. Ég færði strengina til, en þegar þvi var lokið, var git arinn rammfalskur. Ég hafði ekki hugmynd um, hvernig ætti að stilla gítar, svo að ég hijóp út í eina buðma og renndi fingrunum yfir strengi eins gitarsins, sem hékk þar á veggnum. Eftir það gat ég stillt gítarinn minn sjálfur. En svo fékk ég leið á honum og setti hann út í horn. En þá heyrði ég í fyrsta skipti í Chuck Berry og áhug- inn vaknaði á ný. Ég lærði alla þá „frasa“, sem ég komst yfir. Síðan stofnaði ég hljómsveit með nokkrum öðrum strákum, en þeir yfirgnæfðu mig alger- iega. Ég vissi nú ekki hvers vegna til að byrja með, en eftir eina þrjá mánuði, varð mér það ijóst, að ég yrði að fá rafmagns gitar. Pabbi gaf mér þann íyrsta, Danelectro, og hann hiýt ur að hafa verið biankur í langan tíma á eftir. Síðan fór ég í herinn og þar tét ég gítarleikinn að mestu eiga sig, þvi þarna voru engir gítarar til fyrir örfhenta. Ég var í falihlifaherdeild þangað til að ég meiddist i baki i iend- ingu eftir fallhlifarstökk úr þrjú þúsund metra hæð. Eftir að ég losnaði úr hern um, var ég að mestu á flakki. Eftir nokkurn tíma fói ég að leika undir hjá ýmsum þekkt um söngstjörnum, sem voru á hljómleikaferðalögum. Ég lék meðal annars undir hjá Little Richard og siðar hjá Isley Brothers. Ég hafði ekki mikið upp úr þessu, rétt fyrir fæði og klæðum, en ég var svo sem alveg nógu ánægður með það.“ En örlögin ætluðu Jimi Hend rix stærra hlutverk. Árið 1966 var hann kominn til New York og lék þar í klúbbi einum sem hét „Club Wha“. Hljómsveitin hans hét þá Jimi James and the Biue Flames og átti sína aðdáendur, því einn daginn kom einhver aðdáandi Jimi til Chas Chandlers, sem þá var nýhættur að leika á bassagítar í hijómsveitinni Animals. „Þú verður að fara í „Club Wha“ — Það er þar siðhærður, svart ur gítarleikari, sem er alveg stórkostlegur." Chas fór — sá Jimi og var sigraður. Hann bauð Jimi að gerast umboðsmað ur hans og koma honum til Englands og gera hann að stór- stjörnu þar. Og Jimi sló til. I Englandi fékk hann nýja undirieikara, Mitch Mitchell, trommuleikara, og Noel Redd- ing, bassaleikara. Og hljóm sveitin fékk nýtt nafn: „Jimi Hendrix Experience". Fyrsta platan var gefin út, gamalt, bandarískt þjóðlag, „Hey Joe“, en i nýrri útsetningu og það flaug upp vinsældalistana upp í topp tíu. Síðan kom hljóm- leikaferðirí og sigurgangan var hafin. Plöturnar héldu áfram að koma út: „Purple Haze, Burn- ing of the Midnight Lamp. All Along The Watchtower" og hæggengu hljómplöturnar „Are You Experienced, Axis: Bold As Love og Electric Ladyland". En Hendrix var að ganga úr greipum Englendinga. Hann var langtímum saman á hljóm- leikaferðum í Bandaríkjunum, þar sem hann hafði slegið í gegn árið 1967 og til Eng- lands kom hann aðeins endrum og eins. Einstaka hljómleikar í London — meira sáu Englend- ingar ekki af honum. 1 fyrra hætti hljómsveitin að spila og liðsmenn hennar fóru hver sina leið. Noel Redding stofnaði Fat Matress, Mitch Mitcheil ílæktist um og hafði það gott, og það sama má segja um Hendrix — með einni und- antekningu þó. 1 maimánuði var hann handtekinn á flugveií inum í Toronto í Kanada með eituriyf í fórum sínum. Hann átti yfir höfði sér langa fang- elsisvist, en slapp með því að greiða himinháa sekt. Síðan bárust af og til sögur af hon- um yfir Atlantsála. Hann var búinn að stofna nýja hljóm- sveit, Band of Gypsies, en hún gerði ekki mikið af þvi að leika fyrir almenning. Þó kom Jimi Hendrix fram á tónlistarhátíð- inni í Woodstock og sló þar i gegn. Hann lék allmergjaða út gáfu af bandaríska þjóðsöngn um og bætti meira að segja áróðri gegn styrjöldinni i Víet Nam inn í flutninginn. Hvern- ig er áróður leikinn á gítar? Jimi töfraði fram alls kyns furðuhljóð, sem helzt minntu á drunur úr orrustuþotum og sprengjugný. Og þegar slíkur hávaði er framkallaður í banda ríska þjóðsöngnum, er auðvelt að leggja saman tvo og tvo. Á gamlárskvöld iék Jimi Hendrix með hljómsveit sinni, Band of Gypsies í Fillmore- hljómleikasalnum í New York. Var flutningurinn hljóðritaður og nýlega gefinn út á hæg- gengri hljómpiötu. Þá er ekki ósennilegt, að leikur Jimi Hend rix á tónlistarhátíðinni á Isle of Wight verði gefinn út á plötu, og verður það þá síð- asta platan með leik hans. Síðustu vikurnar var Jimi Hendrix greinilega sjúkur mað ur. Það sást á framkomu hans og leik. Hann var á hljóm- leikaferð í Danmörku í byrj- un þessa mánaðar. Auðvitað flykktust allir á hljómleikana, sem einhverja aura áttu, en miðaverðið var reyndar gífur- lega hátt. En fengu menn eitt- hvað fyrir peningana? Það er ekki alveg víst. Hendrix átti í greiniiegum erfiðleikum með sjálfan sig og þegar hann lék í Árósum, neyddist hann til að hætta leik sínum eftir eitt ein- asta lag. Hann sagðist vera veik ur og hijóþ út af sviðinu. En gestirnir fengu miðana endur- greidda. Jimi Hendrix var sjúkur mað ur, en hver sjúkdómurinn var, er ekki gott að segja. Flestir hallast þó að þvi, að það hafi verið eiturlyfjaneyzla. Ef svo var, þá rifjast óþægilega upp fyrir manni orð Hendrix: „Það er skoðun mín, að hver mað- ur eigi að fá að gera það, sem honum sýnist, svo framarlega, sem það skaðar engan annan.“ Jimi Hendrix gerði það, sem honum sýndist. Hann lagði lif sitt að veði. Og tapaði. Hann skaðaði þó ekki aðeins sjáifan sig. Popheimurinn og milljónir áhugamanna um góða poptón- list hafa misst mikið. Sá skaði verður seint bættur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.