Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.09.1970, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. SEPT. 1970 11 Sr. Árelíus Níelsson Við gluggann Uppreisn unga fólksins Frá því sögur hófust hefur eldri kynslóðin oftást dæmt hart um athafnir og atferli unga fólksins. Hitt er sjald- gæfara, þótt oft hafi bilið milli kynslóða verið breitt, að unga fólkið leyfði sér að fordæma siðu og hátterni, lífs stefnu og takmark hinna eldri og segðu sig jafnvel úr samfélagi við þá. Samt er einmitt þetta síð- astnefnda næstum einkenni á okkar öld. Sjaldan, liklega aldrei hefur bilið verið breið ara milli kynslóðanna en það er nú á síðustu tímum. Og líklega aldrei hafa kynslóðir misskilið hvor aðra og for- dæmt hvor aðra með slíku of forsi sem nú. En um þetta vitnar bítlagargið, hippaæðið og stúdentauppreisnirnar á síðustu árum víða um Vestur lönd sterkara nokkrum orð- um og ljósara en predikar- ar geta túlkað. Margir kenna þar agaleysi og ótemjuskap, frekju og fyr- irgangi unga fólksins einu um. Aðrir vilja leita orsak- anna til rangsnúinnar lífs- stefnu eldra fólksins og til þeirrar heimsku sem orsak- að hafi tvær heimsstyrjaldir á stuttum tima og standi nú á hengiflugi hinnar þriðju. Það er því nógu áhugavert að íhuga, hvað fjórir helztu sérfræðingar Bandaríkjanna í þessum fræðum hafa til mál- anna að leggja, þegar álit þeirra var kannað af opin- berum spyrjanda á þessu ári: Aðalatriðin í svörum þeirra voru á þessa leið: „Unga fólkið virðir ekki leng ur eldri kynslóðina. Og það hefur góðar og gildar ástæð- ur til slíks virðingarleysis. Samt hefur unga fólkið mikla þörf fyrir að dá hina eldri, en það getur það ekki vegna þess: Það veit meira en eldra fólkið. En það vill eldri kyn- slóðin ekki viðurkenna. Það óttast, hvað um það verði í þjóðfélagi þar sem fólki er stjakað frá störfum 65 ára að aldri og gert að þýðingarlausum áhorfendum að leik lifsins. Það sér fyrir sér sundur- tætta veröld af blekkingum, lygum og hræsni, sem allt er skapað af eldra fólkinu. Það getur ekki ráðið fram úr hinum alvarlegu vandamál um styrjalda og spillingar, sem hvarvetna blasa við. Sálarlíf unga fólksins er sundurtætt af ofnotkun sjón- varps og f jölmiðlunartækja. „Unga fólkið þráir ákaf- lega virðingu eldra fólksins. Það reynir að gera allt, sem hugsanlegt er til að vekja á sér athygli og leitar þá oft fordæmis þar sem sízt skyldi. Það eru ekki margar fyrir- myndirnar nú á dögum,“ seg ir Dr. Kenefick deildarforseti í geðveikislækningum í há- skóla í New York. „Krakkar virða í raun og veru eldra fólk, sem þau finna heilindi hjá og meinar það sem það segir," bætir hann við. Og þau eru áköf og forvitin í leit sinni að ein hverjum til að dást að. En í okkar samfélagi er krökkum lítið leyft að gera á eigin spýtur, allt er fyrirskipað, með öllu er fylgzt af hinum eldri, og það skapar eitt alls- herjar þýðingarleysi fyrir unga fólkið. Og þegar unga fólkið horfir á lífsleiðann og tilgangsleysið í lífi eldra fólksins, hugsar það: Er þetta þá allt, sem ég á í vændum. Allt, sem ég hef að hlakka til! Og verði maður hræddur við eitthvað, nú þá reynir maður að forðast það. Þetta eru ósköp eðlileg viðbrögð. Vernda sjálfan sig, segir Dr. Kenefick. Annar sérfræðingurinn sem Dr. Margaret Mead Dr. Donald P. Kenefick spurður var er Dr. Margaret Mead þekktur mannfræðing- ur sem starfar á sögusafni. Hún segir: „Börnin lita í kringum sig i veröldinni nú á dögum og finna að eldra fólkið getur ekki stjórnað henni. Þar er allt í ólstri. Fólk, sem er fætt eftir síð- ari heimsstyrjöld veit svo margt, sem foreldrar þeirra vita ekki. Foreldrarnir ættu að virða og meta þessa þekk- ingu barna sinna, ef þau ætla að vænta skilnings frá þeim á sinni ólíku reynslu frá liðn um dögum. Það er nauðsyn- legt að byggja upp gagn- kvæma virðingu kynslóð- anna. En eldr-a flókið væntir og krefst hlýðni, undirgefni og kurteisi, sem allt er aðeins í þeirra eigin þágu. Og árang- urinn er: Við eigum nú unga kynslóð, sem gerir uppsteit gegn flestu því sem fyrir er og vill ekkert gera fyrir eldra fólkið. Og unga fólkið sækist eftir að komast eins langt og kom- ist verður á sínum eigin braut um þvi betra sem þar er allt ólikt því sem áður var og eldra fólkið þekkir ekki — og vill ekki einu sinni kann- ast við,“ segir Dr. Margaret Mead. Sá þriðji, sem leitað var til í þessum vandamálum heitir Dr. Fitzhug Dodson, og er uppeldisfræðingur. Hann seg ir meðal annars: „Bandarík- in hafa alltaf verið land æsk- unnar og nú miðar það sjón- varp sitt og fjölmiðlunartæki við þessa menningarstefnu sína. En það er ábyrgðar- hluti. Það er ekki alltaf ver- ið að skemmta krökkunum. Það verður að bera virðingu fyrir reynslu og þekkingu æskunnar. Þetta verður eldra fólkið að muna og haga sér samkvæmt þvi. Unglingar líta ekki lengur upp til hinna eldri. Hetjur þeirra eru á þeirra eigin aldri eða lítið eitt eldri.held- ur Dr. Dodson áfram, en hann er eins og áður er sagt mjög þekktur uppeldisfræð- ingur, rithöfundur og skóla- maður. Unglingum er alltof vel ljóst, hve mistök eldra fólks- ins eru margvísleg og hvem- ig við fáum þeim í hendur eit urdreggjar og mengað loft og vatn, sem sagt eitraðan heim, og þetta hefur gerzt fyrir hugsunarleysi og fyrir- hyggjuleysi eldri kynslóðar, sem ekkert gerir til að ráða fram úr þessum vanda, en glímir við tilbúin vandamál. Við höfum auðvitað alltaf haft bil á milli kynslóða. Það er vandamál allra alda. En þetta bil hefur aldrei verið breiðara en nú. Og það er eldra fólkinu að kenna," seg- ir Dr. Dodson, með mikilli áherzlu. „Það er önnur hlið mynd- arinnar, sem hefur fallið í skuggann og ekki verið athug uð, og það hlýtur að hefna sín, en það er þörf barnsins fyrir ástúð, að finna mann- legar, mannúðlegar verur og manngildi, sem hægt er að elska, dást að og virða,“ seg- ir Nathaniel Brandon, þekkt ur sálfræðingur og höfundur margra bóka. „Barni er þörf og eðlislæg nauðsyn að virða og elska foreldra sína, en uppnám þeirra, lxfsleiði og önuglyndi gera það í mörgum tilfellum ómögulegt. Allt viðmót margra foreldra mótazt af taugaveiklun, æsingi og mót- sögnum ásamt ósamkvæmni í orðum og háttum á venju- legu amerísku heimili. Þetta villir um fyrir barni, sem er að reyna að átta sig við upp- haf sinnar ævileiðar. Annað þýðingarmikið atriði sem verkar neikvætt er virð- ingarleysi foreldra gagnvart börnum sínum. Þau umgang- ast þau eins og vélar eða dýr en ekki eins og manneskjur. Slíkt barn hefur engan grundvöll til að byggja á virðingu fyrir réttindum eldri kynslóðar. Eitt af því hryllilegasta, sem ég hef heyrt unga fólk- ið segja, og endurtaka æ of- an í æ, með áherzlu af innstu tilfinningu er þessi fullyrð- ing: „Þetta er lygi. Allir ljúga.“ En því miður. Þarna hef- ur unga fólkið rétt fyrir sér. Þessi hryllilega fullyrðing er sönn. Unglingarnir eins og hinir eldri hafa djúpa þörf fyrir sjálfsvirðingu. En hvernig geta þeir öðl- azt hana í andrúmslofti blygð unarleysis, ótta og ósanninda, sem flæðir yfir allt i þjóðfé- lagi okkar. Krakkarnir, nú á dögum, vita, hverju þau eru „á móti,“ en þau vita ekki hverju þau „eru með“. Allt er neikvætt — sérstak lega virðingin fyrir hinum eldri.“ Það er alvarlegt álit þess- ara vestrænu séi'fræðinga. Gæti ekki verið að vantaði áhrif kristins dóms í uppeldi og samfélag? DRGLECR Kastmót tiieinkað Stangaveiðifélagi Reykjavíkur verður haldið 10. og 11. október n.k. Þátttaka tilkynnist: Ástvaldi Jónssyni, simi 35158, Halldóri Erlendssyni, sími 18382, Sigurbirni Einarssyni, sími 34205. Kastklúbbur Reykjavíkur. Stœrðfrœðikennara vantar að Víghólaskóla í Kópavogi. Upplýsingar hjá skólastjóranum. Sími 40269 og á Fræðslu- skrifstofu Kópavogs. Sími 41863. Menntaskólabækurn ar Ken Bókaverzlun Snæbjarnar, naraskólabækurnar Hafnarstræti 9 Gagnfræðaskólat Bókaverzlun I lækurnar Snæbjarnar, Skólavörur Hafnarstræti 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.