Morgunblaðið - 18.10.1970, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.10.1970, Blaðsíða 1
18. október 1970 Samtal við Svein Einars- son, verk- fræðing Sveinn Kinarsson ræölr \ið nokkra oöstoðarmanna sinna við eina af borholunum í Ahuachapan. (Ljósm. Jón Jónsson). Leiða vatnið aftur í iður jarðar - tvöfalda orkunýtinguna Sveinn Ehiarsson, verkfræðingm- hef- ur undanfarin misseri starfað í þjón- ustu Sameinuðu þjóðanna sem fram- kvæmdastjóri fyrir rannsóknarstarf- semi í jarðhitafræði í E1 Salvador. Starf semi þessi er kostuð af hálfu leyti af sérsjóði Sameiniiðu þjóðanna og ríkis- stjórn E1 Salvador. Sveinn sat nýlega ráðstefnu í Pisa á Ítalíu og kom hcr við á leið vestur. Morgunblaðið ræddi við Svein um verkefni hans vestra og sagði hann þá: Ramnsóknir þessar eru framhald fyrri rannsókna, sem fram fóru á árunum 1966—‘69 og miðar núverandi áfangi að því að sanna að unnt sé að fá naega gufu úr jarðhitasvæðinu Ahuchapan til þess að fraflnleiða 20 til 30 þúsund kíló- wött af raforku. Ennfremur miðar rann- sóknin að því að gera frumáætlanir að byggingu jarðgiufuaflstöðvar af þessari stærð og í þriðja lagi að þvi a.ð þjáilfa innlenda sérfræðinga í störfum að jarð- hitarannsöknum og virkjunum jarð- varma. • VATNIÐ VELDUR MENGUN — Hve mikil fjárhæð er tii þessa verkefnis? — Heildarfjárhæð, sem varið er til þessa áfanga er sem nasst 2 miJljónir Bamdarifcjadala. Á yfirborði er jarð- hitasvæði þetta mjög svipað íslenzfcum jarðhitasvæðum og við boranir hefur verið sýnt fram á að unmt er að fá heitt vatr. og gufu sem hér á landi. Telj.um við mú að við séum búnir að fá nægilega gufu fyrir rekstur 25 þúsund kilówatta stöðvar og höfum þvi náð megináfang anum strax. Við höfum átt við ýmis vatnsvanda- mál að striða. Sá ljóður er á vatnimu, sem upp kemur, að það er efcki aðeins mjög salt heldur inniheldur það að aufci önnur efnasambönd, svo sem bór, sem er skaðlegt jurtagróðri. f>ess vegna er Giifusula ur borholu á jarðhitasvæðinu í Ahuachapan. þaraa komdð fram nýtt vandamál í jarð- efna<málum, sem sé hvemig eigd að iosna við vatmið án þess að valida mengun á umhverfinu. Ekfci er unnt að veita vatn inu í árfarvegl, þar sem vatn úr þeim er notað til áveitna, auk þess sem þessi efni kynnu að hafa skaðleg áhrif á rækjur eða fisk, sem nú er veiddur í ánni. • VATNINU DÆLT I JÖRÐINA A NÝ — Er unnt að ræsa vatndð fram til sjávar? — Bein lína til sj'ávar er um 45 km og er því ætlað að of kostnaðarsamt verði að leiða vatnið þangað í pápum eða opnum rennum, nema um mjög stór fellda raforfcuvinnslu verði að ræða. Lausnin, sem fyrirhuguð er, felst i þvi að dæla vatminu aftur á mifcið dýpi í jarðhitasvæðinu sjálfu. Sldkt hefur aldrei verið gert áður á neinu jarðhita- svæði og er þess vegna beðið mtð mikiMi eftirvæntingu eftir tiiraunum, sem hafnar verða, þegar ég kem tii baka, eða í næsta mánuði. Bæði ég og aðrir óttuðu.mst lengi vel, að þetta gæti haft skaðieg áhritf á nýt- ingu hitans í jarðhitasvæðinu, en nán- ari athuganir, sem ég hef nýlokið við, leiddu hins vegar í ijós algjörlega óvænt, að þessi aðtferð getur leitt til stórum betri nýtingar orku úr jarðhita- svæðum af þessari tegund (svæðum, þar sem vatn fylgir gufunni), og jafnvel allt að tvöfaddað orkunýtinguna. — Hvert er mikilvægi þessa ? — Reynist þetta rétt og það verður nú reynt, táknar það, að hin votu jarð- gufusvæði eru sambærileg til orku- vinnslu eins og svæði sem einungis hafa þurra gutfu og til þessa hafa verið talin hatfa mikla yfirburði yfir hin. Heppn- ist þessi tækni er jafnframt komið í veg fyrir alla hættu af men.gun í umhverf- inu af völdum afgangshita eða efnasam- banda, sem i vatninu eru. • JARÐHITARÁÐSTEFNA f PISA — Hvað um ráðstefnuna í Pisa ? — Ég er nú að koma frá þessari ráð- stefnu, sem haldin var á vegum Sam- einuðu þjóðanna í boði itöisfcu ríkis- stjómarinnar dagana 22. september til 2. október og f jaldaði hún um alflar hðið- ar jarðhitam'ála. Ráðstefn.una sóttu 300 ful'ltrúar frá 50 löndum og lagðar voru fram um 180 ritgerðir um jarðhitavds- indi og jarðhitamál. Það var mjög ánægjulegt, hve framlag íslendinga til þessarar ráðstefnu var myndarlegt, þar eð 17 eða 18 greinar bárus-t frá þeim, auk þeirra skýrslna, sem ég lagði þar fram sem framsögumaður af háltfu Sam- einuðu þjóðanna. Athygiisvert var, hve áhugi á jarðhitamálum hefur aukizt viða um heim frá því er samskonar ráðstefna var haildin í Róm 1961. — Hvers vegna eýkst áhugi svo mjög? •— Gífurleg jlarðhitasvæði hatfa fund- izt í fj'ölda landa, þar sem ekki sáust áður nein merki jarðhita á yfirborði. Þannig hafa jarðhitasvæði fundizt í Ungverjalandi, Sovétrikjunum og sums staðar í Bandaríkjunum og víðar, svo að eitthvað sé nefnt. Jafnframt hefiur áhugi á nýtingu jarðvarma stóraukizt, vegna þess að mönnum verður æ betur l'jóst, að þetta er ódýrasti orkugjafi, sem þekkist og hefur þann kost yfir fiesta aðra að vatnsaflinu frátöldu, að hann hefur enga teljandi mengiun and- rúmslofts eða umhverfis í för með sér. Sem dæmi um þróunina, má geta þess að n.ú eru starfandi á Geysissvæðinu í Californíu um 100 megawatta jarðgutfu- aflstöðvar, sem risið hafa u.pp smátt og smátt á siðasta áratug. Er nú ráðgert að bæta þar við um 100 megawöttum ár- lega, þar til afkastageta svæðisins er fuMnýtt Hitaveita Reykjavikur er enn lang- stærsta jarðvarmaveita heims, en hætt er við að á næsta áratug eignist hún marga keppinauta í því efni. • VIRKJUNARMÖGULEIKAR A ÍSLANDI — Hverjir eru möguleikar til gutfu- aflsvirkjunar hérlendis? — Það er alkunna, að jarðvarmi er Er jarðgufuaflstöð lausn Laxárvirkjunardeilunnar?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.