Morgunblaðið - 18.10.1970, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.10.1970, Blaðsíða 2
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1970 * * óvíða útbreiddari en á Islandi. Við not- uðum hann nær eingöngu til húshitun- ar, þar til Klsiliðjan við Mývatn var reist og gerð tilraunaaflstöð við Náma- fjall. Bygging og rekstur Kísiliðjunnar hefði verið óhugsandi án notkunar jarð- gufu, því að samsvarandi hitun með olíu hefði orðið 5 til 6 sinnum dýrari og það hefði vinnslan ekki getað borið. Hins vegar biða einhvers staðar á milli 15 og 20 þekkt jarðhitasvæði notkunar víðs vegar um landið — svæði, sem gætu orðið undirstaða engu minni raforku, en failvötn landsins. — Hver er verðmismunur á gufuafl- stöðvum og vatnsaflsstöðvum? — Jarðgufuaflstöðvar eru mun ódýr- ari í stofnkostnaði miðað við uppsett £ufl heldur en vatnsaflstöðvar. Hins vegar er endingartími gufuaflsstöðva —: véla og borhola, væntanlega skemmri, en það má þá minna á í því sambandi að í Lar- derello á Italíu eru starfandi jarðgufu- aflsstöðvar, sem byggðar voru fyrir rúmum 30 árum og eiga vafalaust lang- an starfsaldur fyrir höndum enn. Hvað varðar orkuverð, þá virðist raforka unnin með jarðvarma vera að verði sambærileg við verð frá flestum vatns- aflsstöðvum. • nAmai i vi.i, og deilan um i.axArvirk.hn — Hvað um Námafjall? Er ef til vill möguleiki á að leysa hina torleystu Laxárvirkjunardeilu með virkjun þar? — Ég hef ekki haft nægilegt tækifæri til þess að kynna mér eða fylgjast með þvi máli til þess að geta dæmt um hvernig sé unnt að leysa þá deilu. Hins vegar er alkunna, að Námafjallssvæðið er mjög öflugt jarðhitasvæði og gæti vafalaust staðið undir allstórfelldri raf- orkuvinnslu. 1 því sambandi vil ég þó benda á það að ef raforkuvinnsla í stór- um stíl væri fyrirhuguð, þá tel óg að hana ætti að framkvæma austan Náma- fjalls til þess að vernda Mývatn fyrir allri hættu af hita- og efnamengun, Ef tilraunir okkar í E1 Salvador bera til- ætlaðan árangur, gæti það haft beina þýðingu einmitt fyrir Mývatn í sambandi við þá varmavinnslu, sem fier fram vestan fjallsins vegna Kisiliðjunn- ar. • SKORTUR Á REYNDUM JARÐHITAMÖNNUM — Hvað viltu segja um störf íslenzkra jarðhitasérfræðinga erlendis yfirleitt? — Vegna þeirrar þróunar, sem sýni- leg er framundan í jarðhitamálum, bæði í hinum þróuðu löndum, svo og í þró- unarlöndunum, þá er fyrirsjáan- legur og þegar fyrir hendi mjög baga- legur skortur á reyndum jarðhitasér- fræðingum. Sameinuðu þjóðimar kosta þegar rannsóknaráætlanir í 5 þróunar- löndum og búast má við að eitt eða fieiri bætist þar við árlega á næstu ár- um. Islendingar hafa fram að þessu hlaupið undir bagga eftir getu. Þannig hafa um 10 íslenzkir jarðhitasérfræðing- ar starfað um lengri eða skemmri tíma i E1 Salvador og komið við sögu í enn fleiri löndum. Ég tel ákaflega mikil- vægt, að slík aðstoð frá Islendingum geti haddið áfram. Við stöndum í flest- um tæknilegum efnum í þakkarskuld við aðrar þjóðir og þegar af þeirri ástæðu væri mjög ánægjulegt að við gætum veitt þróunarþjóðunum aðstoð til sjálfs'hjálpar á þesisu eða öðrum svið- um. Á hinn bóginn tel ég að islenzkir jarðhitamenn hafi ákaflega mikið gagn af að starfa við aðrar aðstæður heldur en hér heima og ekki sízt í því að eiga náið samstarf og reynsluskipti við starfsbræður í öðrum heimshlutum. Af eigin reynslu get ég sagt að ég hef ef til vill meira lært á síðustu 14 mánuðum, sem ég hef dvalizt þama vestra, en nokkrum jafn löngum tima öðrum. Ég vildi gera það að tifilögu minni að stefnt yrði að því af Islendinga hálfiu að koma upp nægiilega stórum hópi jarð- hitamanna, svo að unnt Væri að sinna okkar verkefnum og þörfum jafnhliða því að manna a.m.k. eitt rannsóknar- verkefni í þróunarlandi erlendis —- sagði Sveinn Einarsson, verkfræðingur að lokum. - mf. 0=1 ÖRN OG ÖRLYGUR H.F. BÓKAÚTGÁFAN BIRGIR KJARAN lýsir sögu og sérkennum staðanna í texta, sem er á fjórum tungumálum; íslenzku, ensku, dönsku og þýzku. Bókin er prýdd 50 litmyndum eftir ýmsa af þekktustu Ijósmyndurum þjóðarinnar. Útsöluverð kr. 362.00. Þjóðgarðar islands The National Parks of lceland Islands nationalparker Die islándischen Nationalparks SKAFTAFELL ÞINGVELLIR REYNIMEL 60 SÍMI 18660. Ný sending komin ★ Panfanir óskast sóttar strax KLÆÐNING HF LAUGAVEG1164 SÍMAR 21444-19288 * Litmynda- og landkynningarbók

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.