Morgunblaðið - 18.10.1970, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. OKTÓBHR 1970
33
Jón H. Þorbergsson:
Kristnin er aðal
námsgrein allra
„Guð talaði og það varð." 1
fyrstu setningum sköpunarsðg-
unnar eru þessi orð: „Þá sagði
Guð: Verði ljós og það varð
ljós." 1 fyrstu orðum Jóhannes-
ar Guðspjalls, standa þessar
setningar: „1 upphafi var orð-
ið og orðið var hjá Guði: „All-
ir hlutir eru gerðir fyrir það og
án þess varð ekkert til sem til
er orðið."
Orð Guðs er upphaf kraftar
ins og tilverunnar, sem við að
nokkru leyti daglega verðum
vör og horfum á. Án þeirra
orða Guðs mundi enn hvíla
myrkur yfir djúpinu. Orð Guðs
er máttur og vald sem aldrei
haggast. Þau eru líka allra
manna andlegt fóður. Lífsfyll-
ing fyrir okkur öll. Það liggur
í augum uppi að tilveran öll,
hlýtur að lúta miklum stjórn-
ara, miklum skapara, sem er al-
máttugur Guð. Við sjálf erum
engin undantekning frá þvi,
sem Guð hefir skapað. Allt,
sem maðurinn hugsar, talar og
f ramkvæmir verður að hafa
Guðs orð að undirstöðu, ef vel
og rétt skal miða. Guð hefir
látið mennina heyra sitt orð, frá
úpphafi. 1 Guðs orði eru mann
anna stöðulög, sem aldrei hagg-
ast. Ef menn setja lög sem
brjóta í bága við orð Guðs,
verka þau lög neikvaett og til
tjóns fyrir mannlífið.
Maðurinn er æðsta lifandi
vera jarðarinnár, Guð skapaði
hann eftir sinni mynd, gaf hon-
um mikla hæfileika og frjáls-
ræði tii að velja og hafna, af
öllu þvi, sem lífið býður. Svo
að við gætum öll þroskað okk-
ur sjálf til þegnréttar í riki
Guðs. 1 Hans orði er mikið af
leiðbeiningum um það, hvað við
skulum velja og hverju hafna.
1 þessu felst mikill lærdómur.
Kristur segir: „Þess vegna er
hver sá fræðimaður, sem orðinn
er lærisveinn himnarikis" (Matt.
13.52). Þar sem fólk ástundar
Guðs orð, leggur sig fram til að
lifa og breyta samkvæmt þvi,
þar myndast andlegur lífs-
kjarni, sem er friður, réttlæti,
samleikur og kærleikur. Þessi
lífskjarni er menningin sjálf.
Án þessar eiginda er ekki hægt
að lifa menningarlífi. Ef þessi
Mfskjami væri ríkjandi meðal
ailra þjóða, þá hefðu þær enga
erfiðleika að striða við og Guðs
ríki væri mitt á meðal fólks-
ins. Eins og Kristur bendir á,
fræðimennskan, sem felst i því
að vera lærisveinn himnarikis,
gripur inn i hvert augnablik í
lífi okkar allra. Þess vegna er
hún framar öllum öðrum fræði-
greinum. Námsaðferðin er undir
gefni undir vilja Guðs eins og
Kristur hefir frætt okkur um
hann og tilbeiðsla um hjálp
Guðs, okkur til handa, ti‘l réttr
ar framkomu. Verði þessar eig-
indir að rótgrónum kjama í
okkar innra skilningarviti, sem
er samvizkan, verður útkoman
trú á Guð og þann, sem Hann
sendi Jesúm Krist.
Kristin kenning er ekki kúg-
un. Hún er leiðsla. Margt fóik
er svo ánægt með trúfrelsi, en
hvað hefir það upp úr þvi?
„Ekkert" Bókstaflega ekki neitt,
nema síður sé. Enginn getur
frelsað mennina nema Kristur.
Enginn hefir gengið á vatninu
nema Hann. Allir aðrir trúar-
leiðtogar hverfa í skuggann fyr
ir Honum. Hann er vinur og
bróðir okkur til hjálpar. Hann
dó á krossinum til þess að
frélsa okkur úr viðjum syndar
innar og opna náðarhús Guðs
fyrir okkur synduga menn.
Hann flutti okkur fagnaðarer-
indi Guðs um umhyggju Hans
fyrir okkur og sæLu himnanna,
sem okkur er búin í framhalds-
lífinu. Hann er okkar kennari
Jón H. Þorbergsson.
til þess að frelsa okkur frá
villu vegarins og kenna okkur
að ganga hina réttu leið. 1 þvi
sambandi stofnaði Hann kirkju
sina og kirkju Guðs. Hann sann
aði okkur tilveru og almættd
Guðs í kraftaverkunum, sem
Hann gerði og framhaldslifið í
upprisunni. Kristur er okkar
læknir, okkar fyrirmynd til eft
irbreytni. Hann er okkar kon-
ungur. Hans boðum er nauðsyn
legt og Ijúft að hlíta og hlýða.
Hann einn kom í krafti Guðs
og er með okkur alla daga allt
til enda veraldarinnar, okkur
sem trúum á Hann. Þetta eru
fræði, sem nema þarf og sem
verða okkur léttari og kærari
sem lengur er unnið. Námsbók-
in er heilög ritning. Kirkjan er
okkar félagsheimili til sam-
bands við Guð. Hún er skóla-
hús i kristnum fræðum. Kirkj-
an með kenningu Krists, er höí
uð menningarstofnun þjóðarinn-
ar. Háskólinn i landinu, verður
að sætta sig við að vera skör
neðar, til undirstöðu sannrar
menningar. Þótt örfáir nemi þar
i Guðfræðiðeild.
Kristur er höfuðkennari allr-
ar kennslu. Allir þurfa alla
daga á Hans kennslu að halda,
nú og ævinlega. Þess vegna eru
Kristinfræði hið fyrsta, sem
nema þarf og svo verður það
um alla framtíð. Engin fræði
eru svo bundin og nauðsynleg
við hvert augnablik í lífi okk-
ar allra, neitt til jafns við hana.
Það er hægt að stunda þessi.
fræði i dagsins önn með því að
tala við Drottin. Sjálfsagt erað
hafa bibliuna á náttborðinu og
lesa í henni, á hverju kvöldi á
undan bæn til Guðs. Það gefur
góðan svefn. Fólk, sem ástund-
ar Guðs orð og eflir með því
sina trú er heilsubetra óg verð
ur langlífara heldur en vantrú
að fólk og trúlaust á Drottin
allsherjar. Það hefir einkum ver
ið athugað i Bandarikjunum.
Skólarnir, hér í landi vanrækja
þessa fræðigrein stórkostlega til
tjóns sannri menningu. Enda úir
og grúir af kennurum, sem fást
ekki um þessi fræði. Þessi van-
ræksla í kristnu þjóðfélagi er
hreint út sagt alveg ógerleg,
enda færast nú í vöxt raddir
um það að slákt megi ekki svo
fram fara. Aðalmál á siðustu
prestastefnu var um aukna
kennslu í kristnum fræðum í
skólum landsins. Að aflokinni
þessari stefnu kom presfur og
kennari fram í sjónvarpinu og
ræddu um þetta mál. Kennarinn
var alveg út á þekju í þessu
mikilvægasta fræðsiumáli og
taldi nóg borið á borð fyrir
fólkið af Guðs orði og upplýs-
ingum í kristnum fræðum. Þrátt
fyrir mikið kristilegt starf í
landinu, er fjöldinn af fólkinu
ókristinn. Eiga skólamir sinn
þátt í því, ásamt mörgu ffleiru.
Ef svo er ástatt, að um 1% af
fólkinu í þéttbýlinu sæki mess-
ur í kirkjurnar stöðuglega, sára
fáir hlýði á messur og morg-
Framhald á bls. 41
KerfamarkaBurinn
IGNIS
FRY STIKISTUR
IGINS-djúpfrystirinn gerir yður kleif hagkvæmari matar-
innkaup og sparar yður snúninga vegna matarkaupa.
Tvöfaldur þéttilisti f loki — hlífðarkantar í hornum —
Ijós i loki — færanlegur á hjólum — Ijósaborð með
rofa fyrir djúpfrystingu, kuldastilli og 3 leiðbeiningar-
Ijósum. „gult djúpfrysting" — „grænt venjuleg frysting"
— „rautt of lág frysting". —
L.
Stærðir^ Staðgr.verð Afborg.verð
145 Itr. kr. 16.138— kr. 17.555,— i út + 5 mán.
190 Itr. kr. 19.938,— kr. 21.530,— i út + 5 mán.
285 Itr. kr. 24.900,— kr. 26.934,— l út + 6 mán.
385 Itr. kr. 29.427.— kr. 31800— } út + 6 mán.
RAFTORG
VIÐ AUSTURVÖLL
SÍMI 26660
AÐEINS
ÓDÝR
ÚRVALS-
KERTI
DOMUS MEDICA.
Op/ð í allan dag