Morgunblaðið - 27.10.1970, Blaðsíða 7
MORGUNB'LAÐIÐ, ÞRIÐJUDAOUR 27. OKTÓBER 1970
7
TÚLKAR MANNSSÁLINA í HRAÐA NÚTIMANS
* •
Gunnar Orn
sýnir
í Unuhúsi
„Það sem ég er að reyna
að túlka, er niannssálin í þess
um mikla iiraða nútímans,
þess vegna eru þetta allt and
litslausar verur, eða eins og
einn kunningi minn orðaði
það við mig: Hraðinn í heim-
inum er svo mikill, að maður
greinir ekki andlitin," sagði
Gunnar Örn Gunnarsson list-
málari, þegar við hittum hann
í Unuhúsi við Veghúsastíg fyr
ir helgi, en um þessar nuind-
ir stendur yfir máiverkasýn-
ing hans á þessum stað. Hófst
hún s.I. laugardag, og mun
standa til 1. nóvember, og er
hún opin frá kl. 2—10 dag-
lega.
Það sem vakti fyrst at-
hygli okkar var, að málverk
in eru flest af fólki, en allar
verurnar eru andlitslausar, og
skýringuna gaf málarinn okk
ur, eins og að ofan greinir.
„Þetta eru flestar myndir
af konum, Gunnar Örn. Ertu
kannski genginn i Rauðsokka
hreyfinguna ?“
„Nei, síður en svo, en þótt
konur séu aðalviðfangsefni
mitt, þá eru nú ekki margar
hér rauðar. Jú, annars, þarna
er ein rauð úti í horni. Hvar
ég er fæddur? Ég er Vestur-
bæingur, af Framnesveginum.
Ég átti þar heima í 6 ár, en
fluttist þá suður í Garð, en
þaðan er ég ættaður. Jú, ég
byrjaði ungur að sækja sjó-
inn, og geri það enn, á milli
þess sem ég mála. Ég er á
Gisla Árna, en fór í land til
að ganga frá þessari sýn-
ingu. Það er oft tækifæri til
að mála og teikna um borð,
t.d. á útstíminu og eins þeg-
ar maður siglir. Líklega
skrepp ég á loðnu bráðum.
Ég er 23 ára gamall, kvænt
ur og þriggja bama faðir,
svo að þú sérð, að maður
verður að lifa.“
„Fórstu utan til náms,
Gunnar Örn?“
Gunnar Orn við eina mynd sína. (Ljósm.: Sv. Þorm.)
„Já, raunar, en þó fór ég
í fyrstu ekki til að nema mál
aralist. Ég fór til Kaup-
mannahafnar til að læra að
leika á selló, en þegar út
kom, æxlaðist það svo, að ég
fór á teikninámskeið hjá
Svend Nielsen, og hafði
feikna gott af. Teikning er
svo mikið grundvallaratriði
að allri málaralist, og hún
hefur komið mér í góðar þarf
ir, eftir að ég fór að mála
fyrir alvöru.
Ég sýni hérna 27 olíumál-
verk, sem öll eru til sölu, og
OKKAR
Á MILLI
SAGT
ég vona, að verðið þyki ekki
óaðgengilegt."
Og með það kvöddum við
þennan unga listamann og
andlitslausu kvenverunnar
hans, mitt í hraða nútímans,
og óskuðum honum góðs geng
is. ----- Fr.S.
GAMALT
OG
GOTT
Steinatökin í Dritvík
I Dritvík undir Jökli var fyrr
um útræði mikið. Árið 1763 voru
þar 35 formenn fyrir skipum, og
274 hásetar alls á þessum bát-
um samtals. Fram um miðbik 19.
aldar var enn sóttur mjög sjór
úr Dritvík, og menn reru þar
viðs vegar að. Þegar landlegu-
dagar voru, höfðu vermenn það
sér til skemmtunar að þreyta
aflraunir á steinatök, og koma
steinum upp á mjaðmarháan
bergstall. Voru steinar þessir
f jórir, allir misþungir hét hinn
þyngsti Fullsterkur, sá næst-
þyngsti Hálfsterkur, hinn þriðji
Hálfdrættingur og hinn minnsti
Ainióði. Útræði er nú fyrir
löngu lagt niður í Dritvík en
steinarnir eru þar enn á Djúpa-
lónssandi og liggja við berg-
stall þann, er hefja skyldi þá
upp á. Hinn 1. júní 1906 vógu
þeir Helgi óðalsbóndi Árnason
i Gíslabæ á Hellisvöllum, Jón
sonur hans og Pétur Pétursson
frá Malarrifi steina þessa, eftir
tilmæium frá Landsskjalasafn
inu og reyndist þá þyngd
þeirra þessi:
Fullsterkur var 310 pund
Hálfsterkur — 280 —
Hálfdrættingur — 98 —
Amlóði — 46 —-
VÍSUKORM
Góði Faðir gæzkan þin
gleður sálu mína,
yfir litlu ijóðin mín
leggðu blessun þina.
Guðrún Guðmundsdóttir
frá Melgerði.
Spakmæli dagsins
Ég hef enga tröllatrú á þeim
manni, sem er engu vitrari í dag
en hann var í gær.
A. Lincoln.
tíANGIÐ ÚTI í GÓÐA VEÐRINú
PRESTOLITE raifgeymar, a'flair stærðir í ail- air tegundliir bíila. Lamg ódýnastir. NÓATOlM 27, sími 2-58-91. BROTAMÁLMUR Kaupi ailan brotamálm lang- hæsta verði, staðgreiðsia. Nóatúni 27, sími 2-58-91.
VIÐTÆKJAVINNUSTOFAN HF. 8—22 FARÞEGA
er rvú I Auðbnekku 63. Sími 42244. Var áður að Lauga- vegi 178. hópferðabílar trl leigu í iengri og skemmri ferðir. Ferðabílar hf, sími 81260.
FATNAÐUR PILTUR EÐA STÚLKA
Tiil söI'U er kivem-, barna og unglingaifatmaður. Skór o. fl. Upplýsiingar í siíma 16805. óskaet í maitvöruverzl'um hélf- an eða allan dagimm. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt „6311" fyrir fimmtiudagskv.
FLYGILL REGLUSAMUR PILTUR
Vegna tanowffurtimiingis er nýieg ur flygill til sölu. Upplýsiingar i síma 13204. óskum eftir henbergii, g'jaimam með einihverjum h'úsgögmum, helzt í Laugameshverfi. Uppl. í síma 32638.
DÓMASAFN laindsyfirréttanins frá 1873— 1916 og Nordisk fovibog (hvorutveggja í bamdii) til söiu. TiPb. óskast send afgr. M'bl. f. 31. október, menkt „JUS 6307". SA, SEM FANN KARLMANNS- úr á svartni leðuról í skáp nr. 45 í kj. sundl. í Laugarda'l á summiudagsimorg'unimm var, er beðinm að Skila því til Breika Karissonar, Safamýri 38, sími 82168.
SKRIFSTOFUVINNA Reglusöm kona óskast hátfam daginm tíl aðstoðar við bó'k- halds- og Skrifstofustörf. Tifb. með uppl. um afdor, menmtium og fynri störf sendist afgr. M'bl. f. 1/11 merkt „Rösk 6095“. MÁLMAR Kaupi aliam brotamólm, nema járn, al'lna hæsta verði. Stað- gneitt. Opið alla virka daga kl. 9-12 og 1-5, nema iaug- ard. W. 9-12. Arinco, Skúlag. 55, Síimar 12806 og 33821.
GLERVERK - HJÁLMHOLT 6 - SÍMI 82935
Hef fengið fallegt gult litað gler, 6 mm.
Ákjósanleg þykkt í dyraumbúnað, tvöfalda ef óskað er.
Einnig 2ja mm rammagler ásamt fleiri þykktum.
Bora vaska og salerniskassa.
Umferðarráð óskar eftir að ráða
verkfrœðing
eða mann með hliðstæða menntun til að annast úrvinnslu
slysaskýrslna.
Ekki er um að ræða fullt starf.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Umferðarráðs í sima 14465.
ROCKWOOL’
Rockwool Batts112
(steinull).
Nýkomið Rockwool í stærð-
unurrt 60 x 90 cm. Þykktir
50, 75 og 100 mm.
Mikil verðlækkun.
ROCKWOOL er rétta ein-
angrunin.
Hannes Þorsteinsson
Hallveigarstíg 10,
sími 24459.
HUNDRAÐ KRÓNUR Á MÁNUDI
Fyrir EITT HUNDRAÐ KRÓNUR á mánuði seljum við
RITSAFN JÖNS TRAUSTA
8 bindi í svörtu skinnlíki
Við undirskrift samnings greiðir kaupandi 1000 krónur. SlÐAN 100 KRÓNUR Á MÁNUÐI.
Bókaútgáfa GUÐJÓNSÓ
Hallveigarstíg 6a — Sími 15434