Morgunblaðið - 22.11.1970, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1970
27
andstæða við hina blíðu fjarða-
stemningu sem nú tók hann all
an, og frá því hefur list
Schevings einkennzt af þessum
■ miklu andstæðum. Milli þess
I sem hann málar stórar sjávar-
[ myndir mikilla mannlegra
F átaka málar hann vinalegar
[ húsamyndir, myndir af fólki og
* skepnum i sveit, stundum með
j þjóðsögulegu ivafi, að ógleymd
í um smiðjumyndum hans. Iðu-
lega stafar einhver kuldi frá
hafinu, eins og til andófs (jafn
vægis) hinum heitu jarðlitum,
sem hann notar mikið. Viðfræg-
ar eru húsamyndir hans frá
Grindavik svo og Hafnarfirði,
þar sem hann átti lengi heima,
og þar sem var mikið af vina-
legum og maleriskum báru-
járnshúsum með fjölskrúðugu
umhverfi. Þar var líka öflug
togaraútgerð, er setti mikinn
svip á bæinn, en þrátt fyrir þá
staðreynd voru það fyrst og
fremst bátar, sem hann málaði.
Hann fann í þeim meiri sam-
kennd við líf sjómannsins —
báturinn gaf meiri möguleika
til tröllaukinna átaka við hafið
en hinir rammgerðu togarar.
En hann hefur jafnan miklu
meira að segja okkur samfara
hinu sýniiega i málverkum sín
um, og við getum ekki meðtek
ið list hans án þess að gera
okkur þessa staðreynd Ijósa.
íslendingum gekk iengi • erf-
iðlega að meðtaka hið hrjúfa
yfirborð mynda Gunnlaugs
Schevings, en árið 1946 fékk
mynd eftir hann mjög góða
dóma á norrænni myndlistar-
sýningu í Stokkhólmi, sú mynd
hét „Hvítt hús og úfinn sjór.“
Það mun hafa opnað augu
margra fyrir myndum Schev-
ings í heimalandi hans. Ég nefni
grein mína eftir þessari mynd,
því að styrkur listar Schevings
felst í hreinleika, mikilli birtu
og karlmannlegum átökum við
viðfangsefnið. Það vill oft fara
svo, að viðurkenningin berist
um krókaleiðir, þegar listin á
í hlut. Nú nýtur Scheving
fyilstu viðurkenningar í heima
landi sínu sem einn mesti nú-
iifandi málari landsins, sem
merkir hið sama og í myndlist
íslands frá upphafi. Myndir
hans eru víða í opinberum stofn
unum og i einstaklingseigu.
Það þykir mikiil vegsauki að
eiga góða mynd eftir þennan
máiara, sem málar lengi í mynd
ir sínar, því að vinnubrögðum
hans fylgir agi, ró og viljafesta
sem eru höfuðeinkenni margra
mynda hans.
Vegna myndanna hér á sið-
umum skai þess getið, að þegar
teknar eru myndir af málverk-
um Schevings, þá er það merki
legt, að erfitt er, ef ekki ómögu
iegt að geta sér til um stærð
þeirra, vegna þess að sama
„mónumentala“ reisn einkennir
aiiar myndir hans smáar sem
stórar, — en áhrifin eru ekki
hin sömu, er áhorfandinn
stendur augliti til auglitis við
þær. Ég valdi með þessari
grein ekki síður myndir af
nýrri verkum málarans, þvi að
ég vil með því undirstrika, að
hann er enn í fullu fjöri sem
málari, og gefur ekki eftir i
glímu sinni við liti og form. —
Frekar mætti segja, að hann
setti sér stöðugt stærri og
„mónuimenta]ari“ verkefni —
málaði i stærri fleti, og þó hef-
ur list hans ekki tekið svo
ýkjamiklum breytingum á und-
anförnum áratugum. Það er út-
færsla myndanna, sem hefur
breytzt, hann spilar á fleiri og
fieiri strengi innan ramma list-
ar sinnar, spennir út svið
hennar, og er það í samræmi
við trausta skapgerð hans, að
vinna drjúgt úr öllu sem hann
tekur sér fyrir hendur.
íslendingar meðtaka list
Gunnlaugs Schevings vegna
þess, að hún er hluti af þeim
sjáifum, og Evrópubúinn á einn
ig að geta meðtekið list hans,
sem hluta af menningu sinni
og svo allir þeir, sem eru inni
í iist Evrópu.
Eins og sagt hefur verið:
„Málverkið hefur eigið líf, sem
á allan hátt hefur samhljóm
með sál þess, sem málaði það,
og er þannig bezta lýsingin á
skapara sinurn."
Bragi Ásgcirsson.
mmim
- •'"í-0vVÍ
-V;v.ns>
' ;
i/vVýV:
V. ■•■ :•
i ■*■.
■
....
VV:
„Nótt á sjónum“, olía 1964.
BÓKAÚTGÁFAN ÖRN OG ÖRLYGUR HF,
REYNIMEL 60, SÍMI 18660.
Andrés Kristjártsson, ritstjóri:
Águst á Hofi
leysir frá skjóðunni
og segir frá fólki og fénaði í öllum iandsfjórðungum.
Ágúst á Hofi ferðaðist um landið þvert og endilangt í þrjá
áratugi.
Ágúst er skemmtinn maður og kíminn og kann óteljandi
sögur af atvikum og orðaskiptum. í bók sinni rifjar hann
upp gömul kynni, segir smákímnar sögur, en allt í mesta
bróðerni.
OKKAR BÆKUR ERU YKKAR BÆKUR.
GULLINSTJÖRNU BÆKURNAR
eru komnar í bókabúöirnar.
FJÖLVI
"FF3
LITAUÐGI - LESTRARGLEÐI