Morgunblaðið - 22.11.1970, Qupperneq 7
*> ■- . —.......... ............ .....-------------- -------------
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1970
31
Cr lestrarsal Alþýðubókasaínsins 1933.
því, að nú eru að skapast eða
þegar orðin óviðunandi
þrengsli. Fyrir nokkru hefur
þvi borgarráð samþykkt bygg-
ingu nýs aðalsafnhúss í hinum
fyrirhugaða nýja Miðbæ aust-
an Kringlumýrarbrautar og
sunnan Miklubrautar. Lýsti
borgarstjóri þvi við setningu
þessa þings. Vona ég að ekki
verði háð mörg bókavarðaþing,
áður en sú bygging er risin.
Það er utan við efni þessa
spjalls að rekja heimsóknir á
Landsbókasafnið, en þangað
hafa sporin oft legið.
Þá kem ég að síðara hluta
þessa spjalls.
Mig langaði að koma á fram-
færi nokkrum hugleiðingum um
það, hvei't sé markmið almenn-
ingsbókasafna, hvert beri að
stefna á næstu árum i þessum
efnum.
Þótt miikið sé búið að skrifa
og skrafa um bókasöfn held ég,
að ekki sé til nein sígild kenn-
ing um hlutverk þeirra og
markmið. Það hafa ýmsir lýst
gildi þeirra. Alkunn eru orð
Carlyle’s, að bókasöfn séu há-
skólar nútímans, en þetta segir
raunar ekki mikið.
Þá ber að hafa í huga, að
verksvið bókasafna hefur auk-
izt mjög síðustu áratugina um
heim allan. Viða um lönd hef-
ur verksvið almenningsbóka-
safna verið fært mjög út, t.d.
verið tekin upp tónlistarkynn
ing með útlánum á plötum og
sköpuð aðstaða til að hlusta á
tómiist, víða er myndlistar-
kynning, þá er ýmsum hópum
áhugamanna veitt sérstök fyrir
greiðsla til fundarhalda og
með útvegun mjög sérhæfðra
bóka. Þetta er tvímælalaust
rétt stefna og er ráðgert að
hið fyrirhugaða aðalsafn borg
arbókasafns veiti þessa þjón-
ustu og sjál'fsagt ýmsa aðra.
Margir munu líta á almenn-
ingsbókasöfn, sem e.k. afþrey-
ingarstofnanir. Hlutverk þeirra
sé fyrst og fremst að lána
fólki bækur og blöð í lestrar-
sal eða heim með sér til að
hafa ofan af fyrir sér. Hlut-
verkið verður nánast orðað
eims og mig mimm- að segi í
Þorláks sögu helga: „að dvelja
ónýtar gerðir fyrir mönnum"
Vissulega er þetta rétt og þetta
hreint ekki lítils virði á okkar
dögum, þegar hinar margróm-
uðu tómstundir eru orðnar stór
fellt þjóðfélagsvandamál. Fyr-
ir mörgum árum ræddi ég við
mjög greindan mamn úr hópi
bæjarfulltrúa og kom talið að
Borgarbókasafninu. Hann
sagði eitthvað á þá leið, að sú
hugsun hefði oft hvarflað að
sér, þótt hann þyrði ekki að
segja hana upphátt ennþá,
hvort safnið ætti óumdeilan-
lega tJilverurétt. Með öðrum orð
um, hvort það væri hlutverk
hins opinbera að hafa ofan af
fyrir fólki. Nú mun það ekki
umdeilt, að það sé hlutverk
hins opinbera að hafa ofan af
fyrir fólki með ýmsu móti, og
ekki munu önnur úrræði heppi-
legri í þvi efni en efling al-
menningsbókasafna.
Bókasöfn hafa líka löngum
verið mönnum mikil svalalind.
Mér koma þá í hug ummæli
tveggja kunnra manna, sr. Jón
asar frá Hrafnagili og Bene-
dikts Gröndal.
Sr. Jónas komst svo að orði
í bréfi til Jóns Árnasonar
landsbókavarðar:
„Og mest hef ég saknað eins
siðan ég kom úr Víkimni. Það
er yðar og Landsbókasafnsins
í sameiningu. Ég vil eigi þylja
yður harmatölur, en í Lands-
bókasafninu held ég, að ég
hefði bezt átt heima. Mér
fannst doðrantaloftið þar eiga
svo einkar vel við mig.“
En Benedikt Gröndal lýsir
þvi, er hann kom i bókasafn
klaustursins í Kevelaer: „Ég
var eins og hungraður úlfur,
því ég hafði ekkert lesið eða
fengizt við bækur í heilt ár.“
Þarna kemur fram annað
sjónarmið samhliða, fræðslu-
sjónarmiðið, sem hlýtur líka að
vega mjög mikið, einnig hjá al
menningsbókasöfnum. Með öðr
um orðum að ljá fólki þá hress
ingu: „Menntanna brunni að
bergja á“, eins og þar stend-
ur.
En sú hressing þarf að vera
meiri en aðeins að gefa fólki
tækifæri til að velja sér bæk-
ur. Til þarf að koma leiðbein-
ingarstarfsemi, þannig að fólk
ið læri að nota bókasöfn. Sá
grunur læðist að mér, að margt
af fólki áræði varla inn á
bókasöfn, þar sem það viti
ekki, hvernig það eigi að
hegða sér, viti ekki hvernig
það eigi að fara að flmma bæk-
ur, botni ekki í spjaldskrám
o.s.frv. Þarna þarf úr að bæta.
Og þá kem ég kannski að því
Vélritun — Aigreiðslu
Innflutningsfyrirtæki
óskar eftir að ráða stúlku eða unga konu til ýmissa starfa,
svo sem vélritunar, afgreiðslu o. fl.
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist Morgunblaðinu
fyrir 25. þ.m. merkt: .Vélritun — 473”.
MERCEDES-BENZ 220 Sb
Til sölu MERCEDES BENZ 220Sb/1961.
Vel með farin og vel viðhaldin bifreið.
Upplýsingar
Oddgeir Bárðarson.
Sími 19550.
þýðingaxrnesta, en það er að
láera að nota bókasöfnin til að
ná hvoru tveggja, bæði sér til
afþreyirigar og til eflingar á
þekkingunni. Með öðrum orð-
um til að auðga líf einstakl-
ingsins.
Nú eru gerðar svo stöðugt
vaxandi kröfur til þekkingar
að augljóst virðist, að sá, sem
ekki fylgist með þvi, sem ger-
ist á líðandi stund hlýtur að
dragast aftur úr.
Þess er varla von, að hægt
verði í fyrirsjáanlegri framtið
að halda þjóðinni á skólabekk
meira' eða minna alla ævi. Það
verða vist margir að láta sér
nægja að mestu lífsins skóla,
þótt ekki falli hann inn i nú-
verandi fræðslukerfi. Það eru
hins vegar sannindi, sem allir
viðurkenna nú, að fólki sé
það mikil nauðsyn að geta
haldið við þekkingu sinni og
aukið, bæði á sínu starfssviði
og almennt. Mikill fjöldi fólks
hefur alls ekki notið þeirrar
skólagöngu eða menntunar,
sem því er nauðsynleg. Ur
þessu þarf að bæta, og hér
eiga bókasöfnin miklu hlut-
verki að gegna, mikliu meira
en nú, þvi að þau eru óhjá-
kvæmilegur þáttur í hvers kon
ar sjálfsmenntun.
Það hljóta að vera þessi
hefðbundnu markmið bóka-
safna að hafa ofan af fyrir
fólki og veita því kost á
fræðslu, sem verða fyrirferðar
mest i starfi bókasafnanna. En
mig langar til að benda á hið
þriðja, sem e.t.v. má þó fella
undir fræðs'luþáttinn. Ég finn
ekki betra orð, en kalla þetta
vakningarstarfsemi; þar á ég
við frumkvæði bókasafna að
útbreiðslu menningairefnis, örv-
un til þátttöku í menningar-
starfsemi, sköpun virkari og
og áhugasamari, en um leið
ábyrgari þjóðfélagsþegna. Þau
eiga að vekja fólk til umhugs-
unar um umhverfi sitt, samtið
og framtíð, vandamál líðandi
stundar, kenna því að meta,
hvað hefur gildi en hvað er
hismið eitt. Með öðrum orðum
Traust iðnfyrirtæki í Reykjavík vill ráða til sín strax eða síðar
blikksmið og vélsmið
Aðeins reglusamir menn koma til greina.
Góð vinnuskilyrði og örugg atvinna.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf,
óskast send til Morguriblaðsins fyrir 28. þ.m. merktar:
„Trúnaðarmál — 471".
T œkifœri
Piltur með gagnfræðapróf getur komist að í vaiáhlutaverzlun
okkar, sem nemi í sérhæfum afgreiðslustörfum.
Upplýsingar um starfið gefur verzlunarstjóri, ekki í síma.
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar
Suðurlandsbraut 14
Aðalfundur
í Hvöt
félagi Sjálfstæðiskvenna verður haldinn í
Átthagasal Hótel Sögu mánudaginn 23. þ.m.
kl. 20,30.
Félagskonur fjölmennið.
STJÓRNIN.
fyrir pensla, rúllu og sprautu ásamt tilheyr-
andi grunni.
NORDSJÖ-lökk fyrir húsgögn.
NORDSJÖ-lökk fyrir húsamálun.
NORDSJÖ-lökk fyrir gólfin.
NORDSJÖ-framleiðsla á allt sem þarf
að láta mála úti og inni.
NORDSJÖ-fúavamaefni glær og lituð.
NORDSJÖ-framleiðslan er sænsk
gæðavara.
Ileildsala — Smásala.
Þorsteinn Gíslason. málarameistari
Framnesvegi 31 A (bakhús) Sími 19047—17047.