Morgunblaðið - 22.11.1970, Page 8
32
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1970
Verðfækkun
Hafiö þið
athugað
verðlœkkunina
á Sönderborg-
garninu
Verzlunin Dalur
FRAMNESVEGT 2.
að stuðla að því, að það kenni
til „í stormum sinna tíða“.
Þróun síðustu ára stefnir
óhæfilega mikið í þá átt, að
þjóðfélagsþegnarnir séu óvirk-
ir. Þeir biði eftir því, hvað
komi næst á færibandinu,
hverju verði dembt yfir þá i
sjónvarpi eða útvarpi, hvað
detti inn um bréfarifuna. Menn
spyrja ekki sjálfa sig: „Hvað
á ég að gera næst?“, heldur:
„Hvað gerist næst?“
Það er mikið talað um lýð-
ræði nú um sinn -— aukna
þátttöku almennings í stjórn
mála. Hvers virði er lýðræðið
og hvernig á almenningur að
taka þátt í stjórn mála, ef
þekkinguna brestur og menn
hafa aldrei hugleitt, hvert
stefna skuli.
Á tímum hraðfara breytinga
hlýtur þekking að vera mjög
afstætt huigtak. Jafnaldrar min-
ir, sem ekki hafa fylgzt með,
byggja sína þekkingu á því,
sem talin voru sannindi kring
um 1940. Á öldinni, sem leið
komst Ibsen svo að orði, að
venjuleg sannindi næðu í
mesta lagi 20 ára aldri. Þá
T
y
F SÍMI 20-000.
Vörður F.U.S. Akureyri
Vöröur F.U.S. Akureyri
ALMENNUR FUNDUR
Vörður F.U.S., Akureyri efnir til almenns fundar sunnudaginn 22.
nóvember n.k. kl. 15.00 í Sjálfstæðishúsinu Akureyri.
Frummadandi:
Dr. Cunnar Thoroddsen
og mun liann flytja erindi urrt:
,VERKF.FNI KOMANDI ÁRA“.
Að lokinni framsögu munu verða al-
mennar fyrirspurnir.
Kaffiveitingar.
Stjórn Varðar F.U.S.
snerist hjólið hægar en gerist
á okkar timum.
Og við skulum gera okkur
það ljóst, að það eru ekki að-
eins raunvísindin, sem eru önn
ur í dag. Menn hugsa allt öðru
vísi. Og við megum ekki bara
líta á þekkinguna sem fjárfest
ingu eins og mörgum hættir
til og hver tyggur eftir öðrum
nú um sinn, eða tæki til að
búa betur efnalega, heldur
líka tæki til að skapa þrosk-
aðri — og við skulum vona
einnig farsælli einstaklinga.
En það þarf ekki síður að
skapa virkari og athafna-
samari einstaklinga, sem láta
ekki skammta sér alla skapaða
hluti, heldur leita sjálfir, velja
sjálfir og hafna, hugsa sjálf-
stætt, en tyggja ekki upp það,
sem sagt var í sjónvarpinu í
gær eða blaðinu í morgun.
Mörgum finnst lítill mann-
fagnaður að slíku fólki. Það
al! á nöldri og óánægju. Marg
ir vilja trúa því að þeir lifi i
beztum heimii allra heima og
vilja fá að una glaðir við sitt.
Ef allir hefðu alltaf verið
þess sinnis, þá væri sjálfsagt
steinöld enn í heimi hér. Sjálf
stætt mat einstaklinga á hlut-
unum leiðir oftast til gagnrýni.
Gagnrýni er hverju þjóðfélagi
nauðsynleg, án hennar hlyti
allt að staðna og stirðna.
Almenningsbókasöfn verða
því í framtíðinni að laða sem
flesta einstaklinga til sín,
kenna þeim að hagnýta sér það
efni, sem til boða er og efst er
á baugi hverju sinni, vinna
þannig að því, að sem flestir
einstakiingar geti lagt sjálf-
stætt mat á umhverfi sitt og
og líðandi stund. Og síðast en
ekki sízt geri sér sjálfstæða
grein fyrir því, hvert stefna
skuli.
Góðir þingfulltrúar!
Efnið: Raddir safngesta set-
ur ræðumanni ekki miklar
skorður. Þetta sundurlausa
spjall ber þess líka vi'tni.
Ég tel, að ég hafi kynnzt
bókasafnsrekstri eins og hann
verður rekinn við einna lakast-
ar aðstæður i höfuðborg nokk
urs lands. Sem betur fer hafa
framfarir orðið miklar frá þeim
tíma hjá þessu safni og mikið
stendur til. Hér í Reykjavík
höfum við auk þess eignazt
mjög fallegt og gott bókasafn
í Norræna húsinu sem metið er
að verðleikum og nýlega átti
ég mikla ánægjustund i amts-
bókasafninu á Akureyri.
En það er ekki nóg að eiga
góð safnahús, gott úrval bóka
og annars menningarefnis, og
menntaða bókaverði. Við verð
um líka að hafa markmið til að
stefna að. Það er ekki sízt hlut
verk bókavarðanna að marka
þá stefnu.
Við mótun þeirrar stefnu má
hins vegar enn í dag taka mið
af því, sem Benedikt frá Auðn
um sagði 1889 og ég vék að hér
í upphafi.
En að lokum þetta:
Fyrir 65 árum ritaði Guð-
mundur Hannesson, siðar próf
essor, grein í blaðið Norður-
land á Akureyri og nefndi
hann greinina: „Þýðing bóka
og bókasafna“. Hann lauk
greininni með þessum orðum:
„Bókasafnið, þessi ómetanlegi
skóli fólksins, á að vera uppá-
haldsbarnið í bænum, sem bæj
arbúar séu stoltir af. Það á að
flytja þeim allar andlegar
hreyfingar í nágrannalöndun-
um, sem nokkuð kveður að,
færa þeim sifellt innstreymi
af frjóvgandi hugmyndum, svo
vér komumst inn i menningar-
strauminn. Bókasafn á að vera
oss Hliðskjálf, sem vér sjáum
úr út um allan heim og heyr-
um hugsanir samtíðarmanna. 1
mínum augum er gott bókasafn
skilyrði fyrir andlegu lífi og
andlegum þroska, en það aftur
skilyrði fyrir öl’lum framförum
og framkvæmdum í rétta átt.“
Undir þetta getum við áreið
anlega öll tekið.
Stúlka
getur fengið vinnu við sælgætissölu í kvikmyndahúsi.
Umsóknir sendist Mbl fyrir 25. þ.m. merkt:
„Sæigætissala — 474".
Tryggingafélag óskav að ráða
skrifstofustúlku
í bókhaldsdeild. Þarf helzt að vera vön bók-
haldsvélum (Kiemzle).
Upplýsingar um aldur, menntun og fyrri
störf sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir
miðvikudaginn 25. nóvember merkt: „Bók-
hald — 470“.
Aðalfundur
Stangaveiðifélags
SfPl Reykjavíkur
verður haldinn að Hótel Sögu, Súlnasal
13. desember n.k. og hefst kl. 14.00.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
HVOT félag Sjálfstæðiskvenna
heldur AÐALFUND í Átthagasal Hótel Sögu mánud. 23. þ.m. kl. 20,30.
Félagskonur fjölmennið. STJÓRNIN.