Morgunblaðið - 25.11.1970, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1970
Fulltrúafundur Land-
verndar og ályktanir
ÖÐRUM fulltrúafundi Land-
verndar lauk á siuinudag. Á
fundinn mættu yfir 60 fulltrúar
frá hinum ýmsu aðildarfélögum
auk áheyrnarfulltrúa styrktarað-
ila, en meðal annarra gesta
voru Baldur Johnsen, forstöðu-
maður Heilbrigðiseftiriits ríkis-
ins, Eysteinn Jónsson, alþingis-
maður og Páll Sveinsson, land-
græðslustjóri. I upphafi fundar
flutti formaður Landverndar,
Hákon Guðmundsson ræðu, en
síðan var flutt skýrsla stjórnar.
Umræður um hana voru fjörleg-
ar og tóku margir til máls.
Annar þáttur dagskrárinnar
var um skipulag og uppbyggingu
samtakanna og voru ræddar hug-
myndir um endurskipulag stjórn
ar, stofnun landverndarfélaga og
tilhögun fræðslu og kynningar
á málefnum samtakanna. Seinni
dagurinn var sérstaklega helg-
aður friðunarmálum, en þá voru
einnig á dagskrá ályktunartillög-
Ostaneyzla vaxandi
SAMKVÆMT skýrslum um
mjólkurneyzlu ýmissa þjóða árið
1968, eru Frakkar mestu osta-
ætur veraldarinnar. Ársnieyzlain
var þar rúmlega 13 kg á mann.
Næstir komu Svisslendingar með
rúmlega 10 kg og Danir með 9,3
kg. íbúar norðamverðrar Evrópu,
Norður-Ameríku og Ástralíu
neyta samkvæmt skýrslunni
mestra ostra, enda eru þetta allt
þjóðir sem búa við góða efna-
hagsafkomu.
Hér á landi hefur ostaneyzla
farið vaxamdi hin síðari ár, þótt
hún sé enm minni en í flestum
nágrannalöndum okkar. Árið
1969 var ostaneyzlan um 3,9 kg
á mamn. Horfur eru á, að osta-
neyzla landsmanna vaxi 10—12%
á þessu ári. Áhugi almennings
fyrir ostum og ostaréttum er
vaxandi og fjölbreytni í fram-
leiðslu vex. Ostar þeir, sem
fluttir hafa verið út undanfarin
ár, aðallega til Bandaríkjanna,
hafa þótt mjög góð verzlunar-
vara.
Osta- og smjörsalan í Reykja-
vík hefur með höndum aila
heildsöluverzlun með smjör og
osta aðra en þá, sem framleið-
endur sjálfir annast. í húsa-
kynnum sínum, Snorrabraut 54,
rekur Osta- og smjörsaian sölu-
búð og þar hefur annað slagið
farið fram kynning á ostum og
ostaréttum síðan vorið 1969.
Hefur þessi starfsemi hlotið
miklar vinisældir, sem sést m. a.
á því, að þa/u 10—12 Skipti, sem
þessi kynning hefur farið fram,
hafa komið 4—6 hundruð manns
hvem dag. Er næsta kynning
fyrirhuguð í desember. Ýmis
félagasamtök í Reykjavík hafa
einnig fengið Osta- og smjör-
söluna til að kynna osta og osta-
rétti innan vébanda sinna. >á
hefur nokkuð verið ferðazt um
landið með þessa starfsemi, nu
síðast til Norðurlands snemma
í nóvember. Var ostakynning á
fjórum stöðum í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslu og sóttu hana
um 400 manns.
Ályktanir
bifvélavirkja
MBL. hefur borizt eftirfarandi
fréttatilkynning frá Félagi bif-
vélavirkja.
Á fundi sem haldinn var í Fé-
lagi bifvélavirkja fimmtudaginn
12. nóvember 1970, voru eftir-
farandi ályktanir samþykktar:
ÁLYKTUN UM EFTIRLAUN
ALDRAÐS VERKAFÓLKS:
Fundur í Félagi bifvélavirkja,
haldinn 12. nóvember 1970, bein-
ix þeirri áskorun til háttvirts Al-
þingis, að það samþykki breyt-
ingar á lögurn nr. 18, 1970, um
eftirlaun til aldraðra félaga í
stéttarfélögum.
Félagið telur það réttlætismál
að samþykkt verði lágmarks-
upphæð eftirlauna til verkafólks
í stéttarfélögum.
ÁLYKTUN UM SKERÐINGU
KAUPGJALDSVÍSITÖLU:
Fundur, haldinn i Félagi bif-
vélavirkja fimmtudaginn 12.
Framhald á bls. 20
Á kynningarfunduim þessum
er dreift bæklingum með upp-
skriftum, og þátttaikendur fylgj-
ast með matreiðslu ostaréttanna
og fá síðan að smalkka á þeim.
Frú Maxgrét Kristinsdóttir,
húsmæðrakennari, hefur haft
þessa leiðbeiningarstarfsemi með
höndum.
(Frá Stéttarsambandi bænda).
„Nú — Nú,
bókin, sem
aldrei var
skrifuð44,
komin út
„NÚ — Nú, bókin sem aldrei
var skrifuð", er komin út, það
er að segja minningar Steinþórs
Þórðarsonar á Hala í Suðursveit.
Bókin er prentuð orðrétt eftir
munnlegri frásögn Steinþórs,
sem mælti æviminningar sínar af
munni fram í útvarpið i 25 hálf-
tima þáttum.
„Frásagnir Steinþórs eiga tæp
Steinþór Þórðarson.
ast nokkurn sinn líka, enda voru
þær fádæma vinsælt útvarps-
efni," segir á kápusíðu. „Bók af
þessu tagi hefur ekki heldur ver
ið gefin út fyrr á íslenzku, þar
sem prentað er eftir munnlegri
frásögn einni saman og ekki vik
ið við orði í átt til ritmáls."
1 formála segir, að megintil-
gangurinn með útgáfunni sé að
gera þessar hugljúfu og skemmti
legu sagnir Steinþórs tiltækar
handa lesendum, en hér sé á
ferðinni sýnisbók um munnlega
frásagnarlist eins og hún gerist
bezt á Islandi á þessari öld.
I bókinni er fjöidi mynda af
fólki, sem kemur við sögu, svo
og atburða- og staðarmyndir
Stefán Jónsson, dagskrárfulltrúi,
sá um útgáfuna, en Jón Aðal-
steinn Jónsson cand. mag., var
ráðunautur um búning til prent-
unar. Bókin er yfir 300 bls. að
stærð. Útgefandi er Bókaútgáfa
GuðjónsÓ.
ur stjórnarinnar um aðkallandi
mál á sviði landverndar.
Að lokum ávarpaði Hákon
Guðmundsson fundarmenn.
Sagði hann það skoðun sína eftir
fundinn og þær umræður, sem
þar hefðu orðið, að stærsta
hlutverk Landverndar hlyti að
vera fræðsla og kynning á land-
græðslu og náttúruvernd. Þá
sagðist hann hafa sannfærzt um,
að þessum málum væri öllum
vel komið í einum heildarsam-
tökum með þátttöku hinna ólík-
ustu félaga og sambanda.
Af ályktunum, sem fulltrúa-
fundurinn samþykkti má nefna
ályktun um brýna nauðsyn þess
að við hvers konar verksmiðju-
rekstur hér á landi verði gerðar
ráðstafanir til að draga úr meng-
un frá honum eins og tæknilega
er mögulegt. Taldi fundurinn efna
fræðilegt eftirlit eitt með öllu
ófullnægj andi, samhliða því
þyrfti að fara fram alhliða líf-
fræðileg athugun.
Þá benti fundurinn á að víða
útliti og umgengni mjög
ábótavant við híbýli og atvinnu-
fyrirtæki og algengt að við verk-
legar framkvæmdir sé valdið
óþarfa landsspjöllum og vanrækt
að bæta úr þeim. Þá vakti fund-
urinn athygli á þeirri mengun,
sem stafar frá frárennsli og
úrgangi frá þéttbýli, sé ekki rétt
og tryggilega frá því gengið og
varaði jafnframt við að olíu-
hreinsunarstöð yrði reist við
þéttbýli, eða þar sem mengun
frá henni getur spillt umhverf-
inu og valdið stórtjóni á lífkerf-
um þess. Taldi fundurinn það
alls óverjandi að olíuhreinsunar-
stöð yrði valinn staður án undan
genginna rannsókna í því, hvar
hún ylli minnstum spjöllum á
umhverfinu.
Þá fagnaði fundurinn um-
hverfisrannsóknum í Þjórsárver-
um og bendir á að of margar
virkjanir hafi verið hannaðar án
undangenginná slíkra rannsókna,
s.s. við Laxárvirkjun. Þá skorar
fundurinn á ríkisstjórn að
hún beiti sér fyrir frumvarpi til
laga um náttúruvernd og þá sér-
staklega um lagasetningu til
verndunar Laxár- og Mývatns-
svæðunum. Þá fagnaði fundurinn
auknu fjárframlagi ríkis og
annarra aðila til landgræðslu
áhugamanna og vænti þess að
fjárveitingar til landgræðslu
yrðu stórauknar.
Orðrómur um breyt-
ingar á stjórn Nixons
Washington —
STERKUR orðrómur er nú á
kreiki í Washington um, að
breytinga sé að vænta á næst-
unni á stjórn Nixons. Frá
þessu segir í Time Magazine
og New York Times. Talið
er líklegt að David Kennedy,
fjármáiaráðherra, og Walter
Hickel, hinanríkisráðherra,
liverfi úr stjórninni snemma
á næsta ári og að Patrick
Moynihan ráðgjafi Nixons
verði skipaður sendiherra hjá
SÞ. Þó að heimildir
í báðum ráðuneytum haldi
því fram, að engra breytinga
sé að vænta, hafa aðrir haldið
því fram, að þessi ráðuneyti
séu efst á lista forsetans yfir
þær stjórnardeildir, sem þurfi
breytinga við.
Háttsettur embættismaður
' '
David Kennedy,
fjármálaráðherra.
í Hvíta húsínu sagði nýlega
að engar endanlegar ákvarð-
anir hefðu verið teknar um
stjórnarbreytingar, en jafn-
framt að mjög líklegt væri að
þær yrðu gerðar.
Stjómmálafréttaritarar í
Washington telja, að fyrstu
Walter Hickel,
innanríkisráðherra.
frétta af hugsanlegum breyt-
ingum megi væmta i byrjun
desember nk., en pá flytur
Nixon ræðu á þin-gi Lands-
sambamds bandariskra fram-
leiðenda, sem haldið verður í
New York. Þar er talið að
hann muni skýra ráðstafanir,
sem stjómiin hefur samið til
að styrkja efnahagskerfi
landsins.
Þá er vitað í Washington,
að forsetinm hefur skipað
víðtæka kömmum og athugun
á starfsliði og starfsháttum
Hvita hússins og er það talið
benda mjög til þess, að breyt-
inga sé einndg að vænta í
þeim herbúðum. Sagt er, að
Patrick P. Moynihan, þjóð-
félagsráðgjafi Nixons, verði
á næstunni skipaður sendi-
herra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum I stað
Charles Yost. Fregn þessi
hefur vakið mikla athygli í
Wasbington, er húin birtist
fyrst í dagblaðinu Boston
Globe. Moynihan og Yost hafa
ekkert viljað segja um mál-
Framhald á bls. 20
Norrænir húseigendur
þinga hér árið 1973
FUNDUR var haldinn rneð fulll-
trúum og stjórnarmönnum í
Húseigendasaimbandi Norður-
landa 17,-—19. nóvembsr. For-
Æviminningar
Hannesar Jónssonar
Hið guðdómlega sjónarspil“
ÚT ERU komnar æviminningar
Hannesar Jónssonar, kaup-
manns. Nefnast þær „Hið guð-
dómlega sjónarspil". Hannes er
fæddur Húnvetningur, en flutt-
ist síðan til Reykjavíkur, þar
sem hann hefur átt heima.
Á kápusíðu segir m.a.: „Allir
þekktu kaupmanninn á Lauga-
vegi 28, sem seldi ódýrara en
aðrir, flutti vörurnar inn sjálfur
beint frá útlöndum og var sett-
ur á svartan lista hjá heildsöl-
um. Hannes fór að heiman með
húnvetnska þráann einan í vega
nesti, varð stórlax og mattador,
barðist við heildsalavaldið og
kommúnista. Féll í lífsglímunni,
en hélt þó velli að lokum."
Þá segir: „Bókin er skrifuð á
kjarnmiklu, safariku íslenzku
máli og engin tæpitunga. Hann-
es segir kost og löst á sjálfum
sér og samferðarmönnum án
nokkurra undanbragða og af
fullri hreinskilni."
Við sögu koma margir þekkt-
ir menn lífs og liðnir. Sagt er
frá Kreppunni miklu, Skugga-
Hannes Jónsson.
hverfinu, lífinu við Laugaveg og
Hverfisgötu, lífsbaráttu fólksins
í Húnaþingi um aldamótin og
Reykjavík fyrri tíma, þegar afar
þeirra og ömmur, sem nú eru
sprækastir, voru í fullu fjöri.
Bókin er 176 bls. að stærð.
Útgefandi er Bókaútgáfa Guð-
jónsÓ.
maður þess er Páll S. Pálsson,
allt fraim til 1973, en þá verður
næsta þinig þess haldið hérlendis.
Páll skýrði frá þessu á fundi
m-eð blaðamönnium á mániudaig-
inn var.
Starfsemi þessa sambands nær
til fasbeignaeigenda á Norður-
löndum, og nöfn þeirra félaga,
er a-ðild eiga að sambamdiniu eru:
Den Danske Grundejerforbund,
Norges Husejerforbund, Sveriges
Fastihetságari forbund, Fin-
lands Fastighetságare_ forbund og
Húseigendasambanid íslands, semn
stofnað var 1962.
Húseigemdafélag Stokkhólms
átti 100 ára afmæli um miðjan
nóvemaber, og flutti Páll S. Páls-
son ávarp og kveðjur frá Hús-
eigemdaféliagi Reykjavíkur og
formanni þess, Leifi Sveinssyni,
ásamt gjöf, sem var eimtak af
danskri þýðinigu íslendingasagn-
anna, útg. 1930, og áTÍtað atf
Gunmari Gunnarssyni til föður-
bróður hans.
Einn fulltrúi frá hverju lamdi
flutti ávarp, og ræddi Páll S.
Pálsson um nýja fasteigmamatið
á Islandi, sem vakti athygli
fundarmanna.
Umræðufundur var þetta að
mestu, og enigar ályktanir gerð-
ar þar. Þó var mikið rætt um,
að hve miklu leyti sveitarfélög
ættu að fá útsvör vegma sumar-
bústaða eða lamidareigna, sena
kaupstaðabúar ætbu í sveitum
úti.
Næsta ráðstefna fulltrúanma
verður haldiin í Ósló árið 1972,
en þá á Húseigendasamband
Ósióborgar 60 ára afmæli.