Morgunblaðið - 25.11.1970, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.11.1970, Blaðsíða 15
MORGUNÐLAÐIÐ, MIÐVIíKUDAGUR 25. NÓVBMRER 1970 15 Kynlífsfræðsla Hvers konar? Eftir Sigurð Pálsson skrifstofu- stjóra Ríkisútgáfu námsbóka Á þessu hausti hefur nokkuð borið á umræðum í útvarpi, blöð um og tímaritum um kynlíf og kynlífsfræðslu og í framhaldi af þeim umræður um kynlífssið- ferði almennt. Nú síðustu vikur hefur sýning umdeildrar kvik- myndar örvað mjög þessar um- ræður. Augljóst er að flestir hafa áhuga á efninu, þótt skoð- anir séu skiptar, bæði um kyn- lífsfræðsluna og siðferðið. Vegná þessara umræðna hljóta að vakna ýmsar spurningar, sem nauðsynlegt verður að telja, að menn reyni að finna einhver svör við, ef taka á ábyrga af- stöðu í svo mikilvægu máli sem þessu. 1 hvaða formi á fræðslan að vera? Á hún eingöngu að mið- ast við líffræðilega þekkingu og „tæknilegar“ upplýsingar um samlíf karls og konu? Á fræðsl- an að miða að þvi einu, að ungt fólk kunni glögg skil á því, hvernig forðast megi eðlilegar afleiðingar samfara eða á að láta einhverja siðræna viðmiðun fljóta með? Á að þegja um það, að í samlífi karls og konu flétt- ast saman margir þættir sem ekki verða aðskildir án þess að myndin af þvi verði afskræmd? Og fleiri spurningar vakna. Hvaða gildi hefur það siðferði, sem almennt hefur rikt I þjóðfé- laginu? Hvaða afleiðingar, góð- ar eða slæmar, hefur breyting á siðrænum viðhorfum? Til hvers leiðir algjört frelsi í kynferðis- málum? Án þess að gera sér ein- hverja grein fyrir þessum atrið- um, er tæpast hægt að mynda sér ábyrga skoðun. Fyrir nokkrum árum barst mér x hendur bók, sem út kom árið 1953 hjá forlaginu Land og kirke í Ósló. Bókin er eftir prest af íslenzkum ættum, Jon Johnson og nefnist Kultur stafetten. I bók þessari er fjallað all ítarlega um kynlífssiðferði og m.a. birtur úrdráttur úr og til- vitnanir í merkt rit eftir brezkan vísindamann, J.D. Un- win. Rit þetta nefnist Sex and Culture og kom út hjá Oxford University Press árið 1934 og er u.þ.b. 600 bls. að stærð. Það f jall ar, eins og nafnið bendir til, um samhengið milli menningar og kynlífshátta. 1 formála fyrir bók sinni, Kulturstafetten, segir Jon Johnson um rit dr. Unwins: 1 bók sinni veitir Unwin mik- ilvæga vitneskju um reynslu þeirra manna og þjóða, sem á undan okkur hafa lifað. Vitneskja um lögmál, sem gilda á -þessu sviði mannlífsins, eru góður grundvöllur fyrir kenn- ara, þegar þeir taka til við kyn- lífsfræðsluna og fyrir foreldra, sem eiga erfitt með að átta sig á hvar standa skal varðandi kyn- lífssiðferðið og uppeldið. — Dr. Unwin setur fram nokkr- ar sögulegar staðreyndir á þann hátt, að úr fæst glögg mynd, sem sýnir ákveðið samhengi milli þess, hvernig sambandi kynj- anna er háttað annars vegar og menningarstigs hins vegar, hjá hinum ýmsu þjóðum og þjóð- flokkum. Rannsóknir hans beindust að 80 ósiðmenntuðum þjóðum og þjóðflokkum auk þess sem hann rannsakaði sögu fjölmargra mennlngarþjóða, svo sem Súmera, Babýloníumanna, Aþeninga, Rómverja o.fl. o.fl. Niðurstöður hans eru mjög at- hyglisverðar og ekki síður fyrir það, að þegar hann hóf rann- sóknir sínar vonaði hann að nið- urstöðurnar yrðu allt aðrar en raun varð á, að þvl er hann sjálfur segir í formála. Hér skal í örstuttu máli drepið á helztu niðurstöður Unwins, sem get- ið er i fyrrnefndri bók, Kultur- stafetten. Eftir athuganir sínar á ósið- menntuðum þjóðum, skipti hann þeim í þrjá flokka, eftir því hvaða reglur giltu um samskipti kynjanna fyrir stofnun hjúskap ar. Fyrsta flokkinn fylla þær þjóðir eða þjóðflokkar, þar sem algjört frelsi rikir, fyrir utan ákveðnar reglur vegna skyld- leika. Þegar, eftir að unglingarn ir hafa gengið í gegnum ákveðna vígslu, hafa þeir frelsi til að hafa kynmök við hvern sem þau óska. Gagnkvæmur vilji er eina skilyrðið. Nú kemur í Ijós, að all ir þjóðflokkar, sem heimila fullt frelsi til kynlífs þegar fyrir stofnun hjúskapar, eru á lægsta þekkjanlegu menningarstigi. (Pa det zoistiske stadium). Eða öfugt: Allir þjóðflokkar, sem standa á lægsta þekkjanlegu menningarstigi, lieimila fullt frelsi til kynlífs þegar fyrir stofnun hjúskapar. Annan flokkinn fylla þeir, sem setja ákveðnar hömlur á kynlíf áður en stofnað er til hjúskapar. Ekki er hægt að stofna til kynmaka við hvern sem er. Eftir ákveðnum reglum er heimilt að stofna til slíks, en þær setja kynlífinu ákveðnar hömlur. Það kemur í ljós að þess ir þjóðflokkar standa skör ofar í menningarlegu tilliti og þeim mun ofar sem reglurnar eru strangari. I þriðja flokknum eru þeir, sem krefjast algjörs skírlífis áð- ur en stofnað er tii hjúskapar. Þessir þjóðflokkar standa á hæstu menningarstigi nxeðal ósið menntaðra þjóða. Athuganir á siðmenntuðum þjóðum leiðir eftirfarandi í ljós: Sameiginiegt öllum þjóðum, sem ná iengra í menningarlegu til- liti en þriðji flokkur hinna ósið- menntuðu, er skiiyrðislaus krafa um einkvæni og skirlífi fyrir stofnun hjúskapar. Sagan þekkir engin dæmi þess, að þjóðir hafi náð iangt í menning- arlegu tilliti, án þess að þarhafi ríkt ströng hefð um þessi atriði. Sérhvert samfélag, seni setti strangar reglur um kynlífið, og hélt þvi innan ákveðinna marka, afrekaði miklu í þjóðfélagslegu og menningarlegu tilliti. Væru hinar ströngu reglur rýmkaðar eða þeim sleppt, þvarr hinn skapandi máttur menningarinnar og hvarf síðan með öllu. I þessu efni er sagan gjörsamlega til- breytingarlaus. Þetta hefur end urtekið sig með sama hætti hvað eftir annað. Sagan þekkir engin dæmi þess, að menningarþjóð, sem gert hefur strangar kröfur til einkvænis og skírlífis fyrir stofnun hjúskapar og síðan varpað fyrir róða þeim venjum sínum, hafi haldizt á menningu sinni lengur en þrjár kynslóðir. í bók sinni „Ends and Means'1 segir Aldous Huxley: „Oft og með háreysti lýsa frjálslyndir menn því yfir, að þeir vilji njóta þess sem háþróuð menning hefur að bjóða og einnig, að þeir vilji losa sig við hömlur strangs kyn- lífssiðferðis. Þeir lifa á höfuð- stól andlegrar auðlegðar, sem fyrri kynslóðir hafa safnað, kyn slóðir þeirra einkvænissamfélaga, hverra meðlimir fengu eiginkon- ur sínar hreinar meyjar í brúð- arsængina. Þeir geta notið hvors tveggja svo lengi sem þeir lifa sjálfir. Raunsóknir dr. Unwins hafa hins vegar leitt í ljós að það verður ekki mögu legt börnum þeirra að njóta bæði hömluleysis og liáþróaðrar menningar." Um niðurstöður Unwins og Sigurður Pálsson. ályktanir segir Huxley enn fremur: „Sönnunargildi þessara álykt- ana er svo fullkomið, að erfitt er að sjá, hvernig því verður hnekkt.“ Með þetta í huga vaknar sú spurning, hvert stefna „frelsis- boðberanna", sem enga viðmið- un hafa aðra en hömlulausar hvatir sínar, muni leiða. „Frelsisboðberarnir" hafa fundið upp ýmsar grýlur, tii að hræða sjálfa sig og aðra. Þær eru m. a. afturhald, þröngsýni, pukur, örgustu fordómar, mið- aldahugsunarháttur og jafnvel kristið siðgæði. Þetta eru þó allt meira eða minna útblásnar „plat grýlur", búnar til úr fölskum forsendum, sem grundvallaðar eru á þekkingarskorti. Til eru aðrar raunverulegri og háska- legri grýlur í þessu sambandi, sem stofna gæfu einstaklinga og þjóða í hættu. Menn hafa t.d. hrósað happi yfir því, að sá hugsunarháttur, að kynmök eigi aðeins heima í hjónabandi, skuli vera á hröðu undanhaldi. Því hefur hins vegar verið haldið fram, af mönnum, sem fjalla um hjúskaparvandamál, að ungt fólk skapi sér aukna erfiðleika og aukin vandamál, þegar það í ríkari mæli en áður hefur kyn- mök á unglingsárum (Bovet: Ekteskapets krise og fornyelse). Þetta ber uppalendum og fræð- urum að gera unglingunum ljóst. Hvaða áhrif slík skyndisam- bönd hafa á væntanlegt hjóna- band er mismunandi eftir ein- staklingum. Stundum tekst að loka fortíðina svo gjörsamlega af, að hennar finnast engin merki. 1 öðrum tilvikum koma í ljós persónulegir erfiðleikar meira eða minna alvarlegir. Fyrri sambönd geta skilið eftir sig tilfinningaleg bönd, það get- ur komið fram augljós eða dul- in afbrýði og hinar skýru línur í samskiptum kynjanna geta orð ið svo óljósar, að trúnaði hjú- skaparins sé stefnt í voða. Það sýnir sig einnig, að kynmök geta orsakað tilfinningu fyrir því að heyra öðrum til, jafnvel þó til sliks sé stofnað án dýpri tilfinn- inga. Ef hjónaband er byggt á ótryggum grunni, geta vonbrigð- in orðið mikil. Þessi sál- fræðilegu sjónarmið verða að koma fram í kynlífsfræðslunni a.m.k. nógu skýrt til þess að gera fyrirheit „frjálsra ásta" um hamingju tortryggileg, að ekki sé meira sagt. Aðal áherzlan á þó að vera á hinu siðferðilega. Því hefur verið haldið fram, að bindindissemi í þessum efnum sé óæskileg og jafnvel skaðleg. Þetta er rangt. „Kynferðisleg bindindissemi á unglingsárunum býður engum teljandi erfiðleik- um heim, ef ekki er sýknt og heilagt verið að hrópa í eyru unglinganna, að bindindissemi sé ónáttúruleg, óholl, krafa hinna fullorðnu til að varðveita forréttindi sín o.s.frv. (Prof. Ragnar Vogt: Etiske problemer). Harald Schelderup segir í bók sinni Sinnets helse: „Það er munur á þvingunum og sjálfs- stjórn. Sjálfsstjórn felur í sér, að maður neitar sér um fulinæg- ingu vegna annarra verðmæta, eða vegna þess að frestun eða afneitun er nauðsynleg vegna ytri aðstæðna. Uppeldi til að þoia sjálfsafneitun og hófsemi til heyrir þvi, sem gefur sálarlíf- inu styrk. Þess vegna er það grófur misskilningur að halda því fram, að náttúruleg viðhorf til kynlífsins feli í sér að hvetja unglinga til kynlífs svo fljótt og í svo rikum mæli sem mögulegt er.“ Vert er að drepa á enn eitt atriði, sem ofarlega hefur verið á baugi, og komið inn i þessar umræður um kynlífsfræðslu. Ot- breiðsla ýmissa lyfja og tækja til getnaðarvama hefur orsakað þann misskilning, að hin „lausu" sambönd séu ekki eins varhuga- verð og áður, vegna þess að „áhættan" sé minni. Slík fullyrð ing vanmetur algjörlega hina eig inlegu „áhættu" i þessu sam- bandi. Áhættan er fyrst og fremst sú, að skaða samvizku sína, raska sálarró annarrar manneskju og troða boðorð Guðs fótum. Þau eru gefin mönn um til að hindra að þeir eyði- leggi fyrir sjálfum sér og öðrum, og eru enn í fullu gildi. Aðeins það eitt, að tilkoma nýs lífs er álitin hin mesta ógæfa, sýnir glöggt, hversu siðferðilega for- kastanlegt þetta viðhorf er. Fræðslu er þörf, og það sem meira er, leiðsagnar, þ.e. fræðslu sem byggð er á siðræn- um grunni. Kynlífsfræðslan á að grundvallast á kristnum viðhorf um og siðgæði, vera í tengslum við uppeldi og menntun almennt og bygg-ja á líffræðilegum, þjóð- félagslegum og sálfræðilegum staðreyndum. Fræðslan á ekki að koma fram sem eitthvað nýtt og forvitnilegt á unglingsárun- um, heldur á hún að hefjast á heimilunum strax og barnið hef- ur vit til að spyrja og síðan á hún að fylgja þroska þess og uppeldi í tengslum við aðra þætti, bæði í skóla og á heimili. Kynlífsfræðslan á ekki að vera sérstök námsgrein, til þess er hún of tengd flestum þáttum mannlegs lífs. Hún á ekki að vera sýnikennsla í rekkjubrögð- um og fara fram í kvikmynda- húsum með boðorð villimannsins, „sá sem vill, hann má“ að leiðar- ljósi. Hún á fyrst og fremst heima inni á heimilunum, skól- inn getur síðan komið til aðstoð- ar og stutt við fræðslu heimil- anna og þar eiga barna- og unglingaskólar einir ekki að eiga hlut að, heldur einnig fram- haldsskólar og æðri skólar. Um- fram allt á þessi fræðsla að grundvallast á kristnum siðgæð- isviðhorfum, einfaldlega vegna þess að það leiðir til velfarnað- ar. Þeim, sem sjá enga grýlu ljót ari en kristin viðhorf, ætti að vera það nokkur huggun, að þau eru viðui'kennd langt inn í raðir þeirra, sem að öðru jöfnu láta sér fátt um kirkju og kristni finnast. Þess er að vænta, að við þá allsherjar úttekt, sem nú fer fram á skólakerfinu, verði kyn- lífsfræðslunni ætlaður staður í eðlilegum tengslum við aðrar greinar, svo sem samfélagsfræði, sálfræði, siðfræði, líffræði og kristin fræði. Til að þrýsta á þá stefnu, þurfa heimilin að gera sér ljósa sina ábyrgð, og að þeirra hlutverk er stærst og þeirra ábyrgð mest í þessum efnum. Kínverskur sendiherra til Moskvu Moskvu, 23. móvemiber. — AP, NTB. — SOVÉTRÍKIN og Kína hafa gert með sér nýjan viðskiptasamning, að sögn Tass-fréttastofunnar. — Jafnframt hafa Kínverjar, sent nýjan sendiherra tii Moskvu, hinn fyrsta um fjögurra ára skeið. — Hinn nýi sendiherra Rússa í Peking, Vasili Tolstikov, tók við starfi sínu fyrir tæpum hálfum mánuði. Bent er á, að þótt sambúð ríkjanna hafi batn- að, sé enn sem fyrr mikil spenna í sambúð kommúnistaflokka landanna. 20. nóvember sl. hefði Robert Kennedy orðið 45 ára. Edward Kennedy, Joan kona lians, Etliel Kennedy ekkja Roberts og fimrn barna þeirra heimsóttu gröf Roberts í Arlington. Þau lieim- sóttu einnig gröf Johns F. Kennedy og sjást hér krjúpa við hana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.