Morgunblaðið - 25.11.1970, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 25.11.1970, Blaðsíða 21
MORGUNIBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1970 21 Landssambandiö gegn áfengisbölinu: Lokuð hæli fyrir áfengis sjúklinga nauðsynleg Rokurostofa Sig. Olulssonur Pósthússtræti 2 VERÐUR LOKUÐ fimmtudaginn 26. nóv, vegna jarðarfarar eiginkonu minnar. PÁLL SIGURÐSSON. Landssambandið geffn áfengis bölinu hélt 9. þing sitt laugar- daginn 14. nóv. s.l. að Fríkirkju vegi 11. Formaður sambandsins, Páll V. Daníelsson, setti þing ið með stuttri ræðu og flutti skýrslu um störf sambandsins á liðnu ári. Síðar á þinginu flutti séra Kristinn Stefánsson, áfeng- isvarnaráðunautur, erindi um ástand og horfur í áfengismálum þjóðarinnar. Þessar voru samþykktir þings ins: I. Níunda þing Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu á- lyktar, að Landssambandið beiti sér framvegis eins og hingað til gegn öllum tilslökunum á banni gegn framleiðslu og sölu áfengs öls, og skorar á aðildarfélög sín að taka þátt í baráttu gegn hverri tilraun, sem fram kann að koma í þá átt, að fá því banni hrundið. II. Níunda þing Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu sam þykkir að mæla eindregið með frumvarpi til lagaum hreytingu á lögum um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra, sem fram er komið á þingskjali nr. 17 1970, þar sem lagt er til, að hækkað verði framlag til gæzlu vistarsjóðs. Væntir þing Lands- sambandsins, að verði gæzluvist arsjóður efldur eins og þar er lagt til, verði lagt kapp á að framkvæma í fyllra mæli en ver ið hefur ákvæði nefndra laga, og einkum að því er snertir á- kvæði 17. greinar laganna um að reisa nauðsynlegar stofnanir. Þingið telur mikla nauðsyn, að meðal þeirra stofnana verði lok uð hæli fyrir áfengissjúklinga, konur og karla, auk móttöku- deildar fyrir slíka sjúklinga, sem þurfa bráðrar meðferðar við. III. Níunda þing Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu samþykkir að skora á Alþingi að hækka framlög til áfengisvarna og bindindissamtaka. IV. Níunda þing Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu sam þykkir að skora á yfirstjórn fræðslumála að efla og auka bindindisfræðslu. V. Níunda þing Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu sam þykkir að skora á heilbrigðis- málaráðherra að ráða sérfróða menn til að k%«na ástand áfeng ismála hér á landi, og vísar í því sambandi til ákvæða 2. málsgrein ar 17. greinar laga um meðferð ölvaðra manna og drykkju- sjúkra. VI. Níunda þing Lands- sambandsins gegn áfengisbölinu skorar á Alþingi að samþykkja þingsályktunartillögu á þsk. 83 um varnir gegn sígarettureyk- ingum, svo og frumvarp til laga um breytingu á lögum um verzl- un ríkisins með áfengi, tóbak og lyf á þsk. 109, þar sem lagt er til að bannaðar verði auglýsing- ar um tóbak. Þingið telur, að með þvi að vinna gegn tóbaks- ypÞRR ER EITTHURfl tS fVRIR RUR reykingum, sé einnig stigið mikil vægt skref í þá átt að sporna við byrjandi áfengisnautn ungl- inga. VII. Níunda þing Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu skorar á Alþingi að breyta lög- um þannig, að heimilt verði að úrskurða áfengissjúklinga á hæli eða sjúkrahús, þótt eigi liggi fyrir beiðni viðkomandi sjúkl- ings eða vandamanna hans. VIII. Níunda þing Landssam- bandsins gegn áfengisbölinu heit ir á alla landsmenn, að vera vel á verði gegn innflutningi og neyzlu fíkni- og eiturlyfja. IX. Níunda þing Landssam bandsins gegn áfengisbölinu fel ur stjórn sinni að athuga mögu- leika á þvi að bjóða fram náms- styrk til kennara til að búa sig undir bindindisfræðslu. Stjórn Landssambandsins skipa nú til tveggja ára: Páll V. Daníelsson, formaður, Eiríkur Stefánsson, Pétur Bjömsson, Óskar Pétursson, Jóna Erlends- dóttir, Dr. Jakob Jónasson, Jó- hanna Steindórsdóttir. BYGGINGARVÖRUR Pípur og fittings Skolprör úr potti og plasti Tjöru- og rörhampur Rennilokar Bakstreymislokar Ofnkranar A */. Þorláksson & Nordmann hf. Nœr ÓTELJANDI Kjötbúð til sölu Til sölu kjötverzlun á mjög góðum stað í Austurborginni. Upplýsingar eru einungis veittar á skrifstofunni, ekki í síma,: SUÐURLANDSBRAUT 10 Lýst er eftir tilboðum í vörubirgðir eftirgreindra söludeilda þrotabús Kaupfélags Siglfirðinga: Vefnaðarvörudeildar, Suðurgötu 4, matvöru- deildar, Suðurgötu 4, byggingavörudeildar, Aðalgötu 32, búsáhaldadeildar, Suðurgötu 2. Birgðir hinna ýmsu deilda verða seldar sér, en í einu lagi ef viðunandi boð fæst. Einnig er lýst eftir tilboðum í sendiferðabifreiðina F-442, sem er af rússneskri tegund, UAL-452, árg. 1968. Tilboðum sé skilað fyrir 5. desember n.k. Upplýsingar verða veittar á skrifstofu embættisins. Bordgarfógetaembættið á Siglufirði. þvottakerfi eru á sjálfvirku 3oppa5 Superautomatica 570 þvottavélinni Þetta er rétt. Þér getið valið frjálst um þvotta- tímann, hitastigið (frá 30° til 100°)og mismunandi vatnsmagn. Vélin getur forþvegið, þvegið, skolað og undið, allt algerlega sjálfvirkt. Vélin getur einnig þvegið án þess að vinda og hægt er að leggja I bleyti í hana. Zoppas þvottavélin tekur 5 kg. af þurrþvotti, og ^ inn á sig kalt vatn. ÁRS ÁBYRGÐ — Greiðsluskiimáiar EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti 10A * Sími 16995 I.O.O.F. 7. = 15211258 y2 = 9 sp □ HelgafeU 597011257 VI. — 2. I.O.O.F. 9 = 152 11258% = □ Gimli 597011267 — 1 Frh. Húsmæðrafélag Reykjavikur Jólafundurinn verður að Hótel Sögu miðvikudaginn 2. desember M. 8. Nánar auglýst seinna í vikunni. Splakvöld Templara Hafnarfirði Félagsvistin I kvöld mið vikudag 24.11. í Góðtempl- arahúsinu. Fjölmennið. Aðalfundur Handknattleiksdeiidar Vals, verður haldinn í félagsheim ilinu að Hliðarenda, mið- vikudaginn 2. desember kl. 8.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar, mætið vel og stundvislega. Stjórnin. Kvenfélag Neskirkju Afmælisfundur félagsins verður haldinn fimmtudag- inn 26. nóvember kl. 8.30 i Félagsheimilinu. Til skemmtunar verður: Tízku sýning frá Tízkuþjónust- unni. Afmæliskaffi. Félags- konur fjölmennið. Stjórnin. Félag íslenzkra háskólakvenna fundur í Þjóðleikhúskjall- ara 26. nóv. kl. 8.30. Fyrirlestur: Uppeldishlutverk fjölmiðla Þorbjörn Broddason flyt- ur. Kaffidrykkja. Stjórnin. Aðalfundur U.M.F. Stjörnunn ar í Garðahreppi verður haldinn á sunnudag inn 29. nóvember 1970, í Barnaskólanum. Stjórnin. Kristniboðssambandið Samkoma verður í kristni- boðshúsinu Betaníu Laufás vegi 13, kl. 8.30 í kvöld. Bjarni Eyjólfsson talar. Allir velkomnir. A Farfuglar Opið hús á miðvikudags- kvöldum. Munið handa- vinnukvöldin á miðvikudög um að Laufásvegi 41. Sími 24950. Kennd er leður- vinna, útsaumur, prjón og hekl. Sálarrannsóknarfélag íslands Skrifstofan, afgreiðsla „Morguns“ og bókasafnið Garðastræti 8, sími 18130, er opið á miðvikudögum kl. 17.30 til 19. Úrvai innlendra og erlendra bóka, sem fjalla um visindalegar sann anir fyrir lífinu eftir „dauð ann.“ Æskumenn og konur kynnið ykkur sálarrannsókn ir nútimans með þvi að ger ast félagar í S.R.F.l. Allt áhugafólk velkomið. Sendið nafn og heimilisfaii/g: Póst- hólf 433.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.